Guðjón Skúlason: Einmitt það sem ég bjóst við Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, tók glaður við stigunum tveimur sem liðið vann fyrir gegn Tindastóli í kvöld. Keflvíkingar náðu þar með að hefna fyrir ósigurinn um síðustu helgi þegar Stólarnir komust áfram í bikarnum. Körfubolti 9. desember 2010 21:24
Keflavík náði fram hefndum - úrslit kvöldsins Keflavík hefndi fyrir bikartapið gegn Tindastóli í kvöld er liðin mættust aftur í Sláturhúsinu í Keflavík. Stólarnir unnu stórsigur í bikarnum á dögunum en Keflavík svaraði fyrir sig í kvöld. Körfubolti 9. desember 2010 21:05
Ingi Þór og Hrafn búnir að velja Stjörnuliðin sín Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells og Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, munu stýra liðunum í Stjörnuleik KKÍ sem fram fer í Seljaskólanum á laugardaginn. Körfubolti 8. desember 2010 14:15
Hamar engin fyrirstaða fyrir KR - myndir KR tók á móti Hamri í gær í sextán liða úrslitum Poweradebikarsins. KR var yfir allan leikinn og vann sanngjarnan sigur. Körfubolti 6. desember 2010 07:30
Ágúst: Vantaði baráttu og betri vörn Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars, var ekki sáttur við spilamennsku sinna manna í kvöld. Þeir eru úr leik í bikarnum eftir að hafa tapað fyrir KR á sannfærandi hátt. Körfubolti 5. desember 2010 21:29
Fannar Ólafsson: Ætlum alla leið „Við ætluðum okkur að kvitta fyrir tapið í Hveragerði og ég held að við höfum gert það nokkuð örugglega," sagði Fannar Ólafsson, leikmaður KR, eftir að hans lið sigldi örugglega áfram í bikarnum með 99-74 sigri gegn Hamri úr Hveragerði. Körfubolti 5. desember 2010 21:21
Bikarmeistarar Snæfells úr leik Njarðvík, Tíndastóll og KR tryggðu sér öll sæti í átta liða úrslitum Poweradebikars karla í kvöld. Njarðvík lagði Snæfell í Fjárhúsinu í háspennuleik. Það er því ljóst að Snæfell ver ekki bikarmeistaratitilinn í ár. Körfubolti 5. desember 2010 21:07
Örvar: Við ætlum okkur alla leið Örvar Kristjánsson, þjálfari Fjölnis, var mjög svo ánægður með sigurinn í kvöld en hans menn náðu að leggja ‚ÍR-inga í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins 112-90 en leikurinn fór fram í Seljgaskóla. Körfubolti 3. desember 2010 22:20
Ægir: Erum komnir einu skrefi nær markmiðinu „Við erum komnir einu skrefi nær að því sem við ætlum okkur,“ sagði Ægir Steinarsson, leikmaður Fjölnis, eftir sigurinn í kvöld. Fjölnir bar sigur úr býtum gegn ÍR í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins 112-90 en leikurinn fór fram í Seljaskóla. Ægir átti frábæran leik eins og svo oft áður í vetur og skoraði 21 stig og gaf 11 stoðsendingar. Körfubolti 3. desember 2010 22:04
Sveinbjörn: Voru ekki með hausinn skrúfaðan á „Menn voru ekki með hausinn skrúfaðan á frá fyrstu mínútu,“ sagði Sveinbjörn Claessen, leikmaður ÍR, virkilega svekktur eftir tapið í kvöld. ÍR-ingar féllu úr leik í Powerade-bikarnum gegn Fjölni í kvöld en þeir töpuðu 112-90 í Seljaskólanum. Körfubolti 3. desember 2010 22:00
Langþráður sigur hjá Njarðvíkingum Njarðvík enduðu fimm leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla með þrettán stiga sigri á nýliðum Hauka, 80-67, í Ljónagryfjunni í kvöld. Körfubolti 29. nóvember 2010 20:53
Grindvíkingar enduðu sigurgöngu KR-inga Grindavík komst aftur upp í 2. sæti Iceland Express deildar karla eftir tíu stiga sigur á KR, 87-77, í Röstinni í Grindavík í kvöld. KR hafði unnið þrjá síðustu leiki sína í deildinni en tókst ekki að vera fyrsta útiliðið til að vinna í Grindavík. Bæði lið áttu mjöguleika á því að ná öðru sætinu með sigri. Körfubolti 29. nóvember 2010 20:38
Snæfell lagði Stjörnuna Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld. Íslandsmeistarar Snæfells komust á topp deildarinnar með sigri á Stjörnunni á heimavelli, 114-96. Körfubolti 28. nóvember 2010 21:03
Svavar aftur í búninginn hjá Tindastóli Þrír leikir eru í Iceland Express-deild karla í körfubolta í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:30. Snæfell tekur á móti Stjörnunni í stórleik í Stykkishólmi, á Ísafirði heimsækir Keflavík lið KFÍ og á Sauðárkróki eigast við Tindastóll og Fjölnir. Körfubolti 28. nóvember 2010 16:00
Nonni Mæju fékk flest atkvæði í Stjörnuleik KKÍ Snæfellingurinn Jón Ólafur Jónsson, þekktastur undir viðurnefninu Nonni Mæju, fékk flest atkvæði í netkosningu á KKÍ þar sem gestir síðunnar fengu að velja byrjunarliðsleikmenn í Stjörnuleik KKÍ sem fer fram í Seljaskóla 11. desember næstkomandi. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 26. nóvember 2010 15:50
KFÍ búið að reka þjálfarann sinn - formaðurinn tekur við liðinu B.J. Aldridge er hættur þjálfun KFÍ-liðsins í Iceland Express deild karla og er þegar farinn til síns heima. Aldridge stýrði KFÍ-liðinu í átta leikjum í deildinni en liðið er sem stendur í 9. sæti deildarinnar. Þetta kemur fram á heimasíðu KFÍ. Körfubolti 24. nóvember 2010 14:58
Umfjöllun: Njarðvík sá glitta í sigur en Keflavík kláraði dæmið Njarðvíkingar þurftu að sætta sig við naumt tap á útivelli gegn grönnunum og erkifjendunum í Keflavík í kvöld. Úrslitin urðu 78-72 og fimmta tap Njarðvíkinga í röð staðreynd. Körfubolti 22. nóvember 2010 22:39
Guðjón Skúlason: Komumst aldrei almennilega í gang Keflavík vann grannaslaginn gegn Njarðvík 78-72 í hörkuspennandi leik. Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, er ánægður með bæði stigin en telur lið sitt hafa verið langt frá sínu besta. Körfubolti 22. nóvember 2010 22:29
Gunnar Einarsson: Nú á maður montréttinn „Grannaslagirnir eru skemmtilegustu leikirnir,“ sagði Gunnar Einarsson Keflvíkingur eftir að liðið vann nauman sigur á Njarðvík í Iceland Express-deildinni í körfubolta. Körfubolti 22. nóvember 2010 22:25
Keflavík vann grannaslaginn - Grindavík lá í Hveragerði Endurkoma Magnúsar Gunnarssonar í lið Njarðvíkur dugði ekki til þegar Njarðvík sótti Keflavík heim. Keflavík vann í spennuleik og Njarðvík er því enn í fallsæti. Körfubolti 22. nóvember 2010 21:00
Snæfell vann sinn fimmta leik í röð - myndir Íslands- og bikarmeistarar Snæfellinga eru áfram á toppnum í Iceland Express deild karla eftir sextán stiga sigur á Haukum, 105-89, á Ásvöllum í kvöld. Þetta var fimmti sigur liðsins í röð og sjá sjöundi í átta deildarleikjum á tímabilinu. Körfubolti 21. nóvember 2010 22:30
Draumabyrjun Stólanna dugði skammt í DHL-höllinni KR vann 19 stiga sigur á Tindastól, 107-88, í Iceland Express deild karla í DHL-höllinni í kvöld. Tindastóll komst í 24-9 í fyrsta leikhluta en KR-ingar unnu upp muninn í öðrum leikhlutanum og stungu síðan af með því að vinna þriðja leikhlutann 37-16. Körfubolti 21. nóvember 2010 20:52
Snæfelingar áfram á góðu skriði - unnu Hauka létt á Ásvöllum Snæfellingar eru áfram á toppi Iceland Express deildar karla eftir sextán stiga sigur á Haukum á Ásvöllumn í kvöld, 105-89. Snæfellingar tóku frumkvæðið strax í fyrsta leikhlutanum og litu aldrei til baka eftir það. Þetta var fimmti sigurleikur liðsins í röð og hafa Íslandsmeistararnir nú unnið 7 af fyrstu 8 leikjum sínum á tímabilinu. Körfubolti 21. nóvember 2010 20:44
Stjarnan endaði taphrinuna með sigri á botnliði ÍR Stjörnumenn unnu langþráðan sigur þegar þeir unnu ÍR-inga með 13 stigum í Garðabænum í kvöld, 89-76. Stjarnan var fyrir leikinn búið að tapa þremur leikjum í röð í deild og bikar en það var ljóst frá byrjun þessa leiks að lærisveinar Teits Örlygssonar ætluðu að breyta því í kvöld. Körfubolti 21. nóvember 2010 20:41
Hamar aftur á beinu brautina Hamar vann í kvöld sigur á KFÍ, 83-69, í frestuðum leik í Iceland Express-deild karla. Körfubolti 18. nóvember 2010 20:45
Grindavík taplaust með Guðlaug í liðinu Mikilvægi Guðlaugs Eyjólfssonar fyrir Grindavíkurliðið fer ekki á milli mála þegar tölfræði Iceland Express deildar karla er skoðuð því enginn leikmaður deildarinnar kemur betur út í plús og mínus tölfræðinni þegar sjö umferðir eru búnar. Körfubolti 18. nóvember 2010 06:00
KR skoraði 143 stig fyrir vestan - Grindavík vann Stjörnuna Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild karla í kvöld. KR fór mikinn á Ísafirði og skoraði 143 stig gegn KFÍ og þá vann Grindavík góðan heimasigur á Stjörnunni. Þá unnu Fjölnismenn góðan sigur í Njarðvík, 97-73. Körfubolti 15. nóvember 2010 21:04
Magnús á leiðinni heim til að spila með Njarðvík Magnús Þór Gunnarsson er á leiðinni heim og ætlar að spila með Njarðvík í Iceland Express deild karla. Þetta kemur fram á heimasíðu Víkufrétta en á karfan.is er talið líklegt að Magnús verði með Njarðvík á móti Keflavík þegar liðin mætast næsta mánudag. Körfubolti 15. nóvember 2010 15:30
Nýi Grindavíkur-kaninn lofaði góðu á fyrstu æfingu - frumsýning í kvöld Bandaríkjamaðurinn Jeremy Kelly er lentur á Íslandi og ætlar að taka að sér leikstjórnendahlutverkið hjá Grindvíkingum. Kelly tekur við stöðu Andre Smith sem óskaði eftir því að fara frá liðinu sem vann fyrstu fimm leikina með hann innanborðs. Körfubolti 15. nóvember 2010 09:45
Snæfell enn á toppnum og Tindastóll lagði Hamar Snæfell er enn á toppi Iceland Express-deildar karla eftir sigur á ÍR í Seljaskóla í kvöld. Alls fóru fram þrír leikir í deildinni í kvöld. Körfubolti 14. nóvember 2010 21:59