
„Leiðinlegt að horfa á leik með tæpum 30 stiga mun“
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, gat leyft sér að grínast örlítið og brosa út að eyrum eftir öflugan 20 stiga sigur hans manna á heimavelli gegn Breiðablik í kvöld, 109-89.
Hjalti Þór Vilhjálmsson, þjálfari Keflavíkur, gat leyft sér að grínast örlítið og brosa út að eyrum eftir öflugan 20 stiga sigur hans manna á heimavelli gegn Breiðablik í kvöld, 109-89.
Keflavík hefur nú unnið alla átta heimaleiki sína á tímabilinu eftir öruggan 20 stiga sigur gegn Breiðablik í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 109-89, en með sigrinum jöfnuðu Keflvíkingar Val á toppi deildarinnar.
ÍR vann ótrúlegan endurkomusigur á Grindavík 91-90. Taylor Johns reyndist hetja heimamanna er hann gerði síðustu körfu leiksins í blálokin.
Eftir sex tapleiki í röð komst ÍR aftur á sigurbraut eftir dramatískan sigur á Grindavík 91-90. Ísak Wíum, þjálfari ÍR, var afar ánægður með sigur kvöldsins.
Njarðvíkingar unnu góðan sjö stiga sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 93-86. Þetta var sjötti sigur Njarðvíkinga í röð á heimavelli og liðið er nú tveimur stigum á eftir toppliði Vals.
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, slapp með skrekkinn í kvöld þegar hans menn lögðu Stjörnuna í sveiflukenndum leik í Subway-deild karla. Hann hrósaði Stjörnumönnum fyrir þeirra frammistöðu sem gáfu Njarðvíkingum heldur betur alvöru leik í kvöld.
„Akkúrat núna er ég svolítið vonlaus og svekktur,“ sagði Mate Dalmay, þjálfari Hauka, eftir tap sinna manna gegn Íslandsmeisturum Vals í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld.
Valsmenn eru aftur komnir á topp Subway-deildarinnar eftir átta stiga heimasigur gegn Haukum í fimmtándu umferð deildarinnar, lokatölur urðu 84-76.
Styrmir Snær Þrastarson mætti vel til leiks þegar hans menn í Þór frá Þorlákshöfn unnu KR í Vesturbænum 83-105 með sannfærandi hætti. Styrmir skoraði 24 stig með 71% hittni sem skilaði 26 framlagspunktum. Hann var á því að flest allt hafi gengið upp í leik liðsins í kvöld.
KR tók á móti Þór frá Þorlákshöfn í fimmtándu umferð Subway deildar karla í körfubolta í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Gestirnir úr Þorlákshöfn skildu verkefnið og mættu tilbúnir til leiks og náðu í nauðsynlegan sigur og gerðu það sannfærandi. Lokatölur 83-105 og vandræði KR og eymd eykst þegar sjö umferðir eru eftir.
Tvö lið sem urðu Íslandsmeistarar fyrir aðeins nokkrum árum spila líf upp á líf eða dauða í Subway deild karla í körfubolta í kvöld.
Pavel Ermolinskij er kominn með leikheimild hjá Tindastól en þjálfari Stólanna fékk félagsskipti í dag frá Val.
Að sjálfsögðu var „Framlengingin“ á sínum stað í síðasta þætti af Körfuboltakvöldi. Þar spyr Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi, spurninga sem sérfræðingarnir þurfa að svara. Farið var yfir hvaða leikmaður deildarinnar hefur komið mest á óvart ásamt mörgu öðru áhugaverðu.
„Í þessum leik sáum við troðslu með stóru T. Mögulega tilþrif ársins,“ sagði Kjartan Atli Kjartansson, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds, um troðslu Hilmars Smára Henningssonar í sigri Hauka á KR í framlengdum leik í Subway-deild karla á föstudagskvöld.
Frammistaða Ólafs Ólafssonar í leik Grindavíkur og Keflavíkur í Subway deild karla var til umræðu í síðasta þætti Körfuboltakvölds. Farið var yfir hversu mikið mæðir á Ólafi þegar Grindavík spilar og hvernig hans bestu árum hefur í raun verið sóað í meðalmennsku eftir að Grindavík komst í úrslit árið 2017.
Þór Þorlákshöfn komst upp fyrir ÍR í fallbaráttu Subway-deildar karla í körfuknattleik eftir 83-86 sigur á Hetti á Egilsstöðum í kvöld. Þór hafði forustuna allan leikinn en Hetti tókst að hleypa spennu í hann undir lokin.
Fjórtánda umferð Subway deildar karla í körfubolta var gerð upp í Körfuboltakvöldi á Stöð 2 Sport á föstudagskvöld.
Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur samið við hinn 35 ára gamla Zoran Vrkić um að spila með liðinu í Subway deild karla í körfubolta út leiktíðina.
Kári Jónsson sá alveg hag í því að hafa tapað fyrir Breiðabliki í kvöld þó að hann hafi náttúrlega verið svekktur með frammistöðuna. Leikurinn endaði 89-78 og þrátt fyrir 20 stig frá Kára þá áttu Valsmenn varla möguleika á móti Blikum í seinni hálfleik sérstaklega.
Eftir fjögur töp í röð sýndu leikmenn Breiðabliks úr hverju þeir eru gerðir þegar þeir lögðu Íslandsmeistara Vals með 11 stiga mun í Subway deild karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur í Smáranum 89-78 og segja má að Breiðablik sé vaknað af værum blundi. Sigurinn færir Blika líka í áttina að heimavallarréttinum en það eru þó fjögur stig í fjórða sætið úr því fimmta þar sem Blikar finna sig í dag eftir 14 umferðir.
Máté Dalmay, þjálfari Hauka, var ekki sáttur við frammistöðu lærisveina sinna þegar liðið vann torsóttan sigur gegn KR eftir framlengingu í Subway-deild karla í körfubolta. Maté var þó létt að hafa náð að landa tveimur stigum.
Botnlið KR heimsótti Hauka í Ólafssal í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Leikurinn var æsispennandi og þurfti að framlengja þar sem staðan var jöfn 94-94 þegar fjórða leikhluta lauk. Í framlengingunn kláraði Darwin Davis Jr. leikinn fyrir Hauka og tryggði þeim mikilvægan sigur. Á sama tíma er KR áfram á botni deildarinnar en með sigri hefði liðið jafnað Þór Þorlákshöfn og ÍR að stigum.
Hattarmenn hafa endurnýjað kynnin við bandaríska Hollendinginn Bryan Anton Alberts og hann er kominn með leikheimild hjá KKÍ.
Stórleikur Manchester City og Arsenal er á dagskrá á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Einnig verða beinar útsendingar frá Subway-deild karla og BLAST-Premier mótinu í CS:GO.
„Ég er fyrst og fremst stoltur af mínu liði, við gáfum þeim bara hörkuleik. Það er svolítið að tala svona, auðvitað er ég svekktur eftir tap. En við vorum ákveðnir að labba stoltir héðan út og ég held að við getum borið höfuðið hátt, sagði Jóhann Þór Ólafsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið gegn Keflavík í kvöld.
Keflvíkingar keyrðu yfir granna sína á fimm mínútna kafla Keflvíkingar unnu sigur á grönnum sínum í Grindavík á útivelli í 14. umferð Subway-deildar karla í kvöld. Keflavík vann með ellefu stigum, lokatölur 104-93 eftir að Grindavík leiddi með fjórum stigum í hálfleik.
Stjarnan vann mikilvægan sigur á ÍR í Subway-deild karla í kvöld. Lokatölur 94-76 og Stjarnan skilur ÍR-inga sex stigum fyrir aftan sig í töflunni.
Njarðvík gerði góða ferð á Sauðárkrók í kvöld þegar liðið vann 94-86 sigur á Tindastóli í Subway-deild karla. Pavel Ermolinskij tókst því ekki að ná í sigur í fyrsta heimaleik sínum sem þjálfari Stólanna.
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var ekki á hliðarlínunni þar sem hann var í leikbanni. Arnar tjáði sig um leikbannið og að hans mati er regluverkið ósanngjarnt gagnvart þjálfurum.
Arnar Guðjónsson, þjálfari Stjörnunnar, var úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd KKÍ vegna framgöngu sinnar í leiknum gegn Keflavík síðastliðinn föstudag í Subway-deildinni í körfubolta.