

Sveitarstjórnarkosningar 2022
Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fóru fram 14. maí 2022.

„Samfylkingunni ber að lúta landslögum“
Guðmundur Ingi Þóroddsson frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík segir ekki tilefni fyrir stuðningsmenn sína að segja sig úr flokknum. Greint var frá því í gærkvöldi að Guðmundi hafi verið meinuð þátttaka í prófkjörinu þar sem hann er á reynslulausn eftir fangelsisvist.

Kom á óvart að vera meinuð þátttaka í prófkjöri á síðustu stundu
Guðmundi Inga Þóroddssyni frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var meinuð þátttaka í prófkjörinu á síðustu stundu þar sem hann er enn á reynslulausn eftir fangelsisvist. Hann telur sig hins vegar kjörgengan samkvæmt lögum.

Björn vill þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Björn Gíslason, borgarfulltrúi og formaður Fylkis, gefur kost á sér í þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í próofkjöri fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.

Ragnhildur Alda boðar oddvitaslag hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni
Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hún fer þar upp á móti Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa, sem var í öðru sæti listans í síðustu kosningum.

Framtíðin er að renna okkur úr greipum
Við stöndum frammi fyrir risastórri áskorun. Loftslagsvánni. En áskoranir fela líka í sér tækifæri. Tækifæri til að byggja upp borg sem er leiðandi í grænni uppbyggingu, grænum samgöngum og grænum störfum. Græn umskipti eru lykillinn að framtíðinni.

Guðmundi meinuð þátttaka í prófkjöri Samfylkingarinnar
Kjörstjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík hefur ógilt framboð Guðmundar Inga Þóroddssonar, formanns Afstöðu, í prófkjöri Samfylkingarinnar til sveitarstjórnarkosninga í Reykjavík.

Sjálfstæðisflokkurinn missir tvo borgarfulltrúa samkvæmt könnun Maskínu
Meirihlutaflokkarnir myndu bæta við sig tveimur borgarfulltrúum ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu fylgi frá síðustu kosningum, Píratar sækja í sig veðrið og Framsóknarflokkurinn næði inn manni.

Fjölskylduvæn borg fyrir fjölbreytt fólk – mannréttindi og lýðræði
Reykjavíkurborg hefur verið í örri þróun síðastliðin ár og á kjörtímabilinu sem bráðum líður undir lok höfum við sett okkur stefnu í ýmsum málum má þar meðal annarra nefna Lýðræðisstefnu, Menningarstefnu, Menntastefnu, Lýðheilsustefnu og Græna planið.

Betri borg fyrir dýr
Líkast til hefur áhugi manna á að eiga gæludýr sjaldan verið meiri en á síðustu misserum á meðan COVID hefur geisað með tilheyrandi einangrun og lokunum. Við vitum að gæludýr, sérstaklega hundar og kettir, hafa mannbætandi áhrif á flesta, vinna gegn einmanaleika og andlegum vandamálum.

Er ríkið að brjóta sín eigin lög á kostnað barna?
Samkvæmt Vísindavefnum var fyrsta eiginlega Internettengingin á Íslandi árið 1989. Sjö árum seinna, nánar tiltekið 4. mars 1996, gerðu ríki og sveitarfélög samkomulag sín á milli um að sveitarfélög tækju við rekstri á grunnskólum landsins.

Velferðartækni – tækifæri til framtíðar
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur haft það sem stefnu frá árinu 2018 að nýta velferðartækni til að auðvelda fólki að búa á eigin heimili við betri lífsgæði, þrátt fyrir öldrun, fötlun eða veikindi.

Halda opið prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík hefur ákveðið að halda opið prófkjör fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Prófkjörið mun fara fram annað hvort tólfta eða nítjánda mars.

Sex vikna prófkjörslota hefst á laugardag
Mikil prófkjörslota fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor sem stendur næstu sex vikurnar hefst með prófkjörum Samfylkingarinnar í Reykjavík og Hafnarfirði um helgina. Borgarstjóri situr einn aðforystusætinu í borginni en barist er um oddvitasætið í Hafnarfirði.

Einar Þorsteinsson líklegastur til að leiða Framsókn í Reykjavík
Uppstillingarnefnd Framsóknarflokksins stendur í ströngu um þessar mundir að raða upp á lista flokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Veitur en ekki veitur!
Fjarvarmaveitur nota rafskautakatla til að búa til gufu sem síðan er notuð til hita upp hringrásarvatn hitaveitunnar. Fjarvarmaveitur nota sem sagt raforku til að búa til varmaorku. Á grundvelli orkupakka 1 og 2 og orkulaga frá 2003 sagði Landsvirkjun upp raforkusamningi við fjarvarmaveitur árið 2010.

Þjóðarleikvang í Kaplakrika
Nú um mundir er unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu sem er fyrirhugaður í Laugardal í Reykjavík. Þessi nýi leikvangur er fagnaðarefni fyrir alla unnendur knattspyrnu og boðar nýja tíma fyrir alla landsmenn.

Litlu málin eru líka stór
Hvaða úrlausnarefni í stjórnsýslu og pólitík eru stór - og hver þeirra teljast til hinna litlu?

Sköpum gott veður í skólum borgarinnar
Í Reykjavík á sér stað gróskumikið skólastarf á öllum skólastigum. Að starfinu stendur öflugur hópur kennara, starfsfólks og stjórnenda. Skólar, félagsmiðstöðvar og frístundaheimili borgarinnar eru fullir af framúrskarandi fagfólki sem við þurfum að gefa tækifæri til að blómstra í störfum sínum.

Vaxtaverkir í leikskólamálum í Urriðaholti
Samkvæmt skilgreiningu orðabókar þýðir „vaxtaverkur“ meðal annars stundarörðuleikar tengdir örri þróun.

Marta fer ekki fram gegn Hildi en gefur kost á sér í annað sætið
Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi hyggst ekki fara fram gegn Hildi Björnsdóttur í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þess í stað sækist hún eftir öðru sætinu á lista Sjálfstæðisflokksins.

Búist við hitafundi fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna á morgun
Ákvörðun Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaga í Reykjavík, um að loka kjörskrá tveimur vikum fyrir kjördag í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur reynst umdeild meðal flokksmanna.

Færist fjör í leika í fyrsta prófkjöri Viðreisnar
Þórdís Sigurðardóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar til margra ára, eigandi Manifesto ráðgjafafyrirtækis og stjórnarmaður, íhugar um þessar mundir að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Viðreisnar í borginni.

Ráðherrar fortíðarinnar?
Ég hjó eftir því að bæði innviðaráðherra og fjármálaráðherra eru sammála um að sveitarfélögin eigi bara alls ekki að hafa orð á því að tveir stærstu málaflokkarnir sem þeim ber að sinna vaxi svo hratt að það fjármagn sem var ætlað í þá fyrir áratugum síðan dugi ekki lengur.

Frestað!
Byggingarfulltrúi í Reykjavík tók til afgreiðslu á dögunum, 88 mál á fimm klukkustunda fundi. Það fór ekki betur en svo að 63 málanna var frestað. Torsótt er að kynna sér ástæður frestunar.

Lýðræði ungmenna í borginni – breytt einkunnagjöf í íþróttum
Lýðræðisstefna Reykjavíkurborgar hefur nýlega litið dagsins ljós og tók ég þátt í þeirri vinnu. Innleiðing á stefnunni er rétt að hefjast en í henni er lögð áhersla á að meira samráð sé haft við borgarbúa um skipulag og uppbyggingu borgarinnar bæði hvað varðar þjónustu og umhverfi.

Þessi níu bjóða sig fram í forvali VG á Akureyri
Níu verða í framboði í rafrænu forvali Vinstri grænna á Akureyri sem fer fram dagana 2. til 5. mars næstkomandi.

Saman að settu marki
Ég hef lengi tekið þátt íþrótta- og æskulýðsstarf, sem iðkandi, foreldri, stjórnarmaður og ekki síst stuðningsmaður. Ég brenn fyrir því að Garðabær haldi forystu á þessu sviði.

Katar Norðursins?
Þegar við sem búum hér á Íslandi berum okkur saman við önnur lönd þá kjósum við helst Norðurlöndin. Skandinavísku löndin þar sem lífsgæði eru með þeim bestu í heiminum fyrir flesta sem þar búa, þar sem jöfn tækifæri, mannréttindi og lýðræði eru höfð að leiðarljósi.

Sjálfsmark!
Í Kastljósþætti RÚV í gærkvöldi, þriðjudag, var rætt um húsnæðisverð og aukna verðbólgu. Þar sagði Ágúst Bjarni Garðarsson, alþingismaður Framsóknarflokksins, sem einnig er formaður bæjarráðs og varaformaður skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar, að ástæða hækkandi íbúðaverðs væri skortur á íbúðum og lóðum á höfuðborgarsvæðinu.

Loftslagsmálin hafa forgang
Ég bind miklar vonir við að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við umhverfis- og loftslagsráðuneytinu. Víst er að loftslags- og umhverfismál munu verða efst á baugi hjá okkur Íslendingum á næstu árum og áratugum.