

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2
Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu.

Kjartan kveður eftir tuttugu ára starf
Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með næstkomandi áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna að því er segir í tilkynningu til Kauphallar.

Hersir Aron nýr aðstoðarmaður Bjarna
Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins.

Arnar Helgi og Hildur Helga ráðin til Aton.JL
Arnar Helgi Garðarsson og Hildur Helga Jóhannsdóttir hafa verið ráðin til starfa sem hönnuðir hjá Aton.JL.

Ingibjörg Arnarsdóttir nýr framkvæmdastjóri hjá Isavia
Ingibjörg Arnarsdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra á nýju sameinuðu svið fjármála og mannauðs hjá Isavia.

Vigfús Bjarni mun stýra Fjölskylduþjónustu kirkjunnar
Vigfús Bjarni Albertsson sjúkrahúsprestur hefur verið ráðinn í forstöðumannsstöðu Fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Ráðinn tæknistjóri Sendiráðsins
Ólafur Björn Magnússon hefur verið ráðinn tæknistjóri Sendiráðsins þar sem hann mun leiða teymi forritara í hugbúnaðarþróun.

Handboltakempa sér um mannauð Landspítalans
Gunnar Ágúst Beinteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala. Gunnar tekur við starfinu af Ástu Bjarnadóttur sem gegnt hefur hlutverkinu í fimm ár.

Aðalheiður Ósk ráðin framkvæmdastjóri Vök
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Vök Baths og mun hún hefja störf í ársbyrjun 2021.

Þorkell nýr forstjóri Náttúrufræðistofnunar
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað Þorkel Lindberg Þórarinsson í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands til næstu fimm ára.

Ása og Björg skipaðar dómarar við Hæstarétt
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að leggja til við forseta Íslands að Ása Ólafsdóttir og Björg Thorarensen verði skipaðar dómarar við Hæstarétt Íslands frá 23. nóvember 2020.

Fyrrverandi bæjarstjórar í hópi umsækjenda
Alls sóttu 32 um stöðu framkvæmdastjóra Sorpu sem nýverið var auglýst laust til umsóknar.

Mugison nýr rokkstjóri Aldrei fór ég suður
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur verið ráðinn sem næsti rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður.

Úlfar og Grímur skipaðir í stöðu lögreglustjóra á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum
Þeir Úlfar og Grímur eru skipaðir í embætti að undangengnu mati hæfnisnefndar og miðast upphaf skipunartíma við 16. nóvember næstkomandi.

Ráðinn kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins
Björn Teitsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Krabbameinsfélagi Íslands sem nýr kynningarstjóri.

Herdís ráðin forstjóri Valitor
Herdís Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Valitor og mun ekki taka þátt í störfum stjórnar Arion banka að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Hilma og Viktor til liðs við stofu Sævars Þórs
Hilma Ósk Hilmarsdóttir og Viktor Marinó Alexandersson hafa verið ráðin til starfa á lögmannsstofuna Sævar Þór & Partners.

Herdís Magna er nýr formaður kúabænda
Herdís Magna Gunnarsdóttir frá Egilsstöðum á Héraði er nýr formaður Landssambands kúabænda. Hún er 33 ára og býr á Egilsstaðabúinu með manni sínum, Sigbirni Þór Birgissyni og drengjum þeirra. Herdís er fyrsta konan til að gegna stöðu formanns hjá kúabændum.

Rannveig og Gísli ráðin í stjórnendastöður hjá Seðlabankanum
Rannveig Júníusdóttir hefur verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands og Gísli Óttarsson hefur verið ráðinn í stöðu áhættustjóra Seðlabanka Íslands.

Anna nýr þjóðgarðsvörður á norðurhálendi
Anna Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin þjóðgarðsvörður á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs með aðsetur á Mývatni.

Ráðin til Gagnaveitu Reykjavíkur
Guðmundur Jóhann Arngrímsson og Regína Björk Jónsdóttir hafa verið ráðin í tækniþjónustu- og afhendingardeild Gagnaveitu Reykjavíkur.

Víðir ráðinn í stöðu Víðis
Guðmundur Víðir Reynisson, betur þekktur sem Víðir Reynisson, hefur verið ráðinn í stöðu yfirlögregluþjóns almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra.

Mjólkursamsölunni skipt upp og Pálmi nýr forstjóri
Eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starfseminni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi.

Ráðinn til Sjóvár
Þórir Óskarsson, tryggingastærðfræðingur hefur verið ráðinn til trygginga- og tölfræðigreiningar Sjóvá.

Frá Össuri til Alvotech
Lyfjafyrirtækið Alvotech hefur ráðið Rakel Óttarsdóttur sem framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs.

Birgir hættir sem forstjóri Íslandspósts
Birgir Jónsson forstjóri Íslandspósts hefur ákveðið að láta af störfum hjá fyrirtækinu.

Helga og Sveinn til Orkídeu
Sveinn Aðalsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri nýsköpunarverkefnisins Orkídeu.

Hjálmar hyggst hætta sem formaður
Hjálmar Jónsson formaður Blaðamannafélags Íslands hyggst ekki bjóða sig fram til formanns á ný á aðalfundi félagsins á næsta ári.

Ósk ráðin nýr framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar
Ósk Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sjálfsbjargar – landssambands hreyfihamlaðra.

Mun starfa samhliða Tryggva sem umboðsmaður Alþingis
Forsætisnefnd Alþingis hefur tímabundið sett Kjartan Bjarna Björgvinsson héraðsdómara til að sinna starfi umboðsmanns Alþingis samhliða kjörnum umboðsmanni, það er Tryggva Gunnarssyni.