Birtist í Fréttablaðinu

GM stærst í Mexíkó
General Motors framleiddi meira en fjórðung bíla sinna í Mexíkó og það vafalaust við lítinn fögnuð Donalds Trump. General Motors hefur verið að minnka framleiðslu bíla sinna í Bandaríkjunum og Kanada en auka hana í Mexíkó þar sem laun eru lægri.

Nýtt lið í úrslitum um helgina
Mikil körfuboltaveisla er fram undan næstu daga í Laugardalshöll þar sem leikið verður til úrslita í bikarkeppni meistaraflokks kvenna og karla. Þá verður líka leikið í yngri flokkum.

Agnarsmáir jepplingar frá Hyundai og Kia
Ráðgera að bæta við enn minni jepplingum en Hyundai Kona og Kia Stonic fyrir Evrópumarkað.

Euronext hækkar tilboð sitt í kauphöllina í Ósló um 9 prósent
Evrópska kauphallarsamstæðan Euronext hefur hækkað tilboð sitt í kauphöllina í Ósló og yfirboðið þannig bandaríska kauphallarrisann Nasdaq.

Icelandair kærir uppbyggingu hótels
Hótelkeðja Icelandair hefur kært ákvörðun borgarráðs Reykjavíkurborgar um samþykkt á deiliskipulagi sem felur í sér uppbyggingu hótels í næsta nágrenni hótels Icelandair.

Stórbankinn Deutsche Bank greiðir hæstu vextina
Stórbankinn Deutsche Bank þarf að greiða hæstu vexti allra leiðandi banka á evrópskum skuldabréfamarkaði í ár, samkvæmt upplýsingum frá fréttaveitunni IFR.

Undirbýr sölu á stórum hlut í Arion
Kaupþing, stærsti hluthafi Arion banka, áformar að selja að lágmarki tíu prósenta hlut í bankanum á komandi vikum.

Telur ögurstundu renna upp í kjaraviðræðum í næstu viku
Forseti ASÍ segir að reynt sé að púsla myndinni í kjaraviðræðum saman á mörgum vígstöðvum en engar tillögur í skattamálum liggi fyrir frá stjórnvöldum.

Skilorð fyrir að nauðga kærustu
Átján ára piltur var í Héraðsdómi Reykjaness dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku í febrúar 2017.

Ég var ekki lengur rétti forstjórinn
Reynir Grétarsson, stjórnarformaður og aðaleigandi Creditinfo, vék úr starfi forstjóra eftir 20 ár og réð Ítalann Stefano M. Stoppani árið 2017. Neistinn var farinn. Við það fékk fyrirtækið tækifæri til að endurnýja sig.

Íslandsvinurinn lætur gott heita
Bandaríski lögmaðurinn Lee Buchheit, sem er Íslendingum góðkunnur, lætur af störfum í lok næsta mánaðar. Hann hefur á ríflega fjörutíu ára ferli aðstoðað stjórnvöld í skuldugum ríkjum í glímunni við vogunarsjóði.

Réttarhöldin sögð vera farsi
Réttarhöldin yfir leiðtogum katalónsku sjálfstæðishreyfingarinnar hófust við hæstarétt Spánar í Madrid í gær. Málið má rekja til sjálfstæðisatkvæðagreiðslu og -yfirlýsingar haustið 2017.

Pósturinn varði 121 milljón í lögmannsþjónustu á sex árum
Árið 2017 fékk lögmaður Íslandspósts, Andri Árnason hjá Juris, meira greitt en forstjóri fyrirtækisins, 31 milljón króna. Samtímis hafa laun stjórnarmanna og forstjóra hækkað um ríflega fimmtíu prósent.

Srí Lanka vill ráða tvo böðla
Ríkisstjórn Srí Lanka auglýsir nú eftir tveimur böðlum. Reuters greindi frá þessu í gær en Maithripala Sirisena forseti lýsti því yfir í síðustu viku að hann vildi taka upp dauðarefsingar í eyríkinu á ný til þess að refsa fíkniefnasmyglurum, -framleiðendum og -sölum.

Vill að Seðlabankinn rétti hlut þeirra sem sættu sektum
Seðlabanki Íslands ætti að hafa frumkvæði að því að rétta hlut þeirra sem sættu sektum af hálfu bankans eða gerðu sátt við bankann undir þvingun í tilvikum þar sem gildar viðurlagaheimildir voru ekki til staðar.

Þríeykið D, B og M; mestu þjóðernisseggir Evrópu!?
Á dögunum birtist grein – skemmtilegt nokk á Net-Mogga –, um það, að einn öfgafyllsti hægriflokkur Norðurlanda, Svíþjóðardemókratarnir, hefði hætt að berjast gegn ESB-aðild Svía.

Baráttan er eins og að vilja ekki bólusetja börn
Líkja má afstöðu forkólfa verkalýðsfélaga sem kalla eftir ríkulegum launahækkunum við foreldra sem neita að bólusetja börn sín. Þessir hópar eiga það sameiginlegt að vera vel meinandi.

Bætir við sig í Marel fyrir um milljarð
Fjárfestingasjóður í stýringu evrópska vogunarsjóðsins Teleios Capital bætti í liðinni viku við sig ríflega tveimur milljónum hluta í Marel, að virði um 940 milljónir króna, og fer nú með samanlagt 7,3 milljónir hluta í félaginu, samkvæmt nýjum lista yfir stærstu hluthafa þess.

Kjósa að kjósa ekki
Meirihlutinn í Reykjavík ákvað að nota skattpeninga til að hvetja tryggustu kjósendahópa sína til að mæta á kjörstað í síðustu kosningum.


Hver er þinn áttaviti?
Í gömlum viðskipta- og hagfræðibókum er heimurinn einfaldur. Fyrirtæki eru rekin til að skila hagnaði og þurfa til þess að fjárfesta vel, halda aftur af kostnaði og framleiða góða vöru.

Kúltúrinn í klessu
Fréttir af hækkun mánaðarlauna bankastjóra Landsbankans um 1,2 milljónir hinn 1. júlí 2017 og aftur um 550 þúsund í apríl 2018 koma á versta tíma inn í viðkvæmar kjaraviðræður. Verkalýðsforystan hefur gagnrýnt hana harkalega, líkt og var fyrirséð.

Þöggun á þöggun ofan
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SVS) telja sig hafa komist í feitt með frásögnum af 30 ára gömlum blaðagreinum eftir mig þó að um leið lýsi það mikilli málefnafátækt að gera mér upp skoðanir sem ég hvorki hef nú né hef nokkurn tíma haft.

Veik króna refsaði IKEA á metsöluári
Þrátt fyrir metveltu á síðasta rekstrarári dróst hagnaður IKEA á Íslandi verulega saman milli ára. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA, segir að þessa mótsögn megi nær alfarið að skrifa á sviptingar í gengi krónunnar.

Ríkið tapaði aftur í Strassborg
Ríkið refsaði Ragnari Þórissyni tvisvar fyrir sama skattalagabrot segir Mannréttindadómstóll Evrópu. Ragnari dæmdar rúmar tvær milljónir króna. Fallist var á endurupptöku dóms Hæstaréttar í líku máli.

Sameiningin auki virði Haga um tíu prósent
Greinendur Capacent meta gengi hlutabréfa í Högum á 60,6 krónur á hlut í nýju verðmati eða allt að 38 prósent hærra en markaðsgengi bréfanna eins og það var eftir lokun markaða í gær.

Lamborghini Urus kominn á bílaleigur vestanhafs
Það var líklega bara tímaspursmál hvenær bílaleigur heimsins byðu Lamborghini Urus jeppann til láns fyrir aðdáendur ofurjeppa og þrjár bílaleigur vestur í Bandaríkjunum hafa riðið á vaðið.

Forsetinn valdi Urban Nomad hillur
Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi FÓLKs, segir það ákveðna viðurkenningu að forseti Íslands valdi að gefa verðlaunahöfum Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands Urban Nomad hillur.

Í skugga fjölbýlis
Föstudaginn síðastliðinn frumsýndi sjálfstæði sviðslistahópurinn Smartílab Það sem við gerum í einrúmi eftir Heiðar Sumarliðason og Söru Martí Guðmundsdóttur í Tjarnarbíói, en sú síðarnefnda leikstýrir einnig sýningunni.

Audi kynnir nýjan rafmagnsjeppling
Stærð bílsins bendir til þess að Audi muni stefna honum gegn tilvonandi Tesla Model Y bíl og rafmagnsútgáfu af komandi Volvo XC40. Verður á stærð við BMW Q3.