
Birtist í Fréttablaðinu

Árekstur menningarheima í boði Ólafs Jóhanns
Ólafur Jóhann Ólafsson fagnaði með spenntum væntanlegum lesendum í Ásmundarsal í gær þegar útgefandi hans blés til hófs í tilefni af útkomu skáldsögunnar Innflytjandinn.

Meniga metið á fimm milljarða
Fjártæknifyrirtækið Meniga var metið á fimm milljarða króna í bókum fjárfestingafélagsins Kjölfestu árið 2018. Virðið jókst um 56 prósent á milli ára eða um 1,8 milljarða króna.

Kanna allar greiðslur af reikningum Upphafs
Stjórnendur GAMMA hafa fengið óháðan sérfræðing til að fara yfir allar greiðslur sem hafa verið greiddar af bankareikningum Upphafs síðustu ár. Sjóðsfélagar Novus hafa leitað eftir því að þáttur endurskoðanda sé kannaður.

Fjárfestingafélagið Brimgarðar tapaði um 1,8 milljörðum króna
Fjárfestingafélagið Brimgarðar tapaði 1,8 milljörðum króna árið 2018 fyrir tekjuskatt. Árið áður nam tap félagsins um hálfum milljarði króna fyrir tekjuskatt.

Uppbygging bandarískra herstöðva
Forsetar Bandaríkjanna og Póllands samþykktu nýverið yfirlýsingu um verulega aukna viðveru bandarískra herja í Póllandi. Alls verða 5.500 bandarískir hermenn að staðaldri á sex stöðum í Póllandi til að vinna gegn hugsanlegum rússnesk

Kex Hostel tapaði 182 milljónum
Árið áður nam tapið 58 milljónum króna. Eigið fé fyrirtækisins var neikvætt um 28 milljónir króna við árslok.

Vilja auka innflutning
Kínversk stjórnvöld hafa lýst yfir vilja til að auka enn frekar íslenskan innflutning til Kína með því að greiða fyrir innflutningi á sjávarafurðum, fiskimjöli, laxi og lambakjöti.

Pólsk fyrirsæta traðkar á íslenskum mosabreiðum
Pólska ofurfyrirsætan Julia Kuczynska, sem jafnframt heldur úti tískuvefsíðunni Maffashion, er harðlega gagnrýnd í pólskum lífsstílsmiðlum, svo sem Pudelek og Plotek, fyrir að traðka á íslenskum mosa.

Íbúar Okinawa segja líka „þetta reddast“
Forstjóri fyrirtækis á eldfjallaeyjunni Okinawa segir Ísland kjörið til að kynna aldagamlan drykk fyrir Vesturlandabúum. Íslendingur sem hefur unnið að markaðssetningu segir eyþjóðirnar eiga margt sameiginlegt.

Kvartað yfir loftgæðum
Ráðast þarf í endurbætur á loftræstikerfi Stjórnsýsluhússins á Ísafirði en kostnaður er áætlaður um 86 milljónir króna. Þetta kemur fram í minnisblaði frá bæjarritara sem lagt var fyrir bæjarráð síðastliðinn mánudag.

Horfir til frekari sóknar erlendis
Jón Helgi Guðmundsson segir að þetta hangi allt á spýtunni, Norvik byggi á timbri með einum eða öðrum hætti. Starfsmenn séu um tvö þúsund. Hann hafi ekki áhyggjur af því að markaðsvirði Bergs Timber hefur lækkað um tæp 30 prósent á einu ári.

Búsetumismunun vegna NPA
Innleiðing NPA-löggjafarinnar hefur gengið illa. Launataxtar aðstoðarfólks eru ekki samræmdir, deilt um gildissvið og fatlaðir ekki með í ráðum varðandi útfærslur, að sögn formanns NPA miðstöðvarinnar.

Varpa fram spurningum um eitraða karlmennsku
Á mánudaginn kom út myndband við nýjasta lag Hatara, Klámstrákur. Klemens, annar söngvara sveitarinnar, segir lagið fjalla um stöðu nútímakarlmannsins í tuttugustu og fyrstu aldar samfélagi.

Helgi hefur selt í Marel fyrir um 800 milljónir
Helgi Magnússon fjárfestir, sem sat í stjórn Marels á árunum 2005 til 2019, hefur á síðustu mánuðum selt tæplega helming bréfa sinna í fyrirtækinu fyrir jafnvirði samtals um 820 milljóna króna miðað við núverandi hlutabréfaverð Marels.

Arnar gjaldþrota
Arnar Bergmann Gunnlaugsson, fjárfestir og fyrrverandi knattspyrnumaður, var úrskurðaður gjaldþrota í sumar og lýkur skiptum á búinu á næstu dögum.

Nöfn dómþola verða afmáð úr dómum ári eftir birtingu
Dómstólasýslan hefur birt reglur fyrir öll dómstigin um birtingu dómsúrlausna á vefsíðum dómstólanna og hafa þær verið samræmdar. Dómþolar og aðilar einkamála geta óskað eftir nafnleynd ári eftir að dómur hefur verið birtur.

Þúsund tonna fiskkvóti fer úr Grímsey
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að ekki sé ástæða til að aðhafast neitt vegna kaupa Ramma hf., sem vinnur rækju á Siglufirði og fisk í Þorlákshöfn, á öllu hlutafé í Sigurbirni hf., í Grímsey.

Virðið aukist um 70 milljarða
Afnám bankaskattsins getur aukið söluvirði ríkisbankanna um rúmlega 70 milljarða samkvæmt greiningu Bankasýslu ríkisins. Lækkun útlánsvaxta og útlánaaukning geti vegið upp á móti tekjutapinu.

Breski herinn verður með viðveru á Íslandi í fyrsta sinn frá seinna stríði
Breski flugherinn, RAF, mun koma til Íslands í annarri viku nóvembermánaðar og sinna loftrýmisgæslu, sem stendur vanalega í þrjár til fjórar vikur.

Tómhentur af fæðingardeild
Í síðustu viku eignaðist ég tvíburadrengi og í síðustu viku missti ég tvíburadrengi. Eineggja létust þeir í ljúfum móðurkviði eftir fimm og hálfs mánaðar legu.

Akureyri tekur á móti yfir þúsund gestum
Umfangsmesta ráðstefna sem haldin hefur verið á Akureyri og mun færa ferðaþjónustunni norðan heiða umtalsverðar tekjur á tíma sem annars er rólegur í greininni. Gert ráð fyrir að tillaga verði gerð til ráðherra norðurslóða.

Bókin varð til í heita pottinum
Bókin Friðbergur forseti eftir Árna Árnason kom út nú á dögunum og er í efsta sæti yfir söluhæstu barnabækurnar á landinu. Bókina skrifaði hann með aðstoð dóttur sinnar Helenu.

Met Nicklaus það eina sem Tiger vantar
Tiger Woods jafnaði um helgina 54 ára gamalt met Sams Snead þegar hann vann sitt 82. mót á PGA-mótaröðinni. Allt stefnir í að Tiger taki fram úr Snead á næstu árum og met Jack Nicklaus er í sjónmáli.

Undanþága vegna Torgs og Hringbrautar
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt undanþágu á samkeppnislögum vegna yfirtöku Torgs, sem á og rekur meðal annars Fréttablaðið, á sjónvarpsstöðinni Hringbraut.

Farið milli skauta og heima
Segja má að í þessari í nýjustu ljóðabók Gerðar Kristnýjar, sem nefnist Heimskaut, sé bæði farið milli skauta og heima því að efnistökin einskorðast hvorki við nútíð né fortíð, nánd eða firrð.

Jarðarvinir kæra Náttúrustofu Austurlands
Dýra- og náttúruverndarsamtökin Jarðarvinir hafa kært Náttúrustofu Austurlands til lögreglu fyrir vanrækslu vegna skýrslu um afdrif og afföll hreindýrskálfa. Ole Anton Bieltvedt, forsvarsmaður samtakanna, segir að um 600 kálfar hafi drepist síðasta vetur.

Hæstaréttarlögmaður og fótboltadómari fertugur
Arnar Þór Stefánsson, fyrrverandi næturfréttamaður á RÚV og nú einn eigenda lögmannsstofunnar LEX, hefur sterkar rætur til Húsavíkur. Ætlar að fagna tímamótunum með fjölskyldunni og er alveg eins líklegt að Hamborgarafabrikkan verði fyrir valinu.

Safnar ástæðum til að kætast
Súrnun sjávar, stríð í Sýrlandi, brennandi Amason, fækkun skordýra, plastmengun, Trump, Erdogan og Bolzonaro. Er nokkuð að undra að viðkvæmt fólk ákveði öðru hvoru að setja sjálft sig í fréttabann?

Telur uppruna mannsins í Botsvana
"Það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að nútímamaðurinn kom fram í Afríku fyrir um 200.000 árum en það sem hefur ekki verið ljóst er hvaðan nákvæmlega forfeður okkar koma.“

Háar fjárhæðir til setts ríkislögmanns
Andri Árnason hefur fengið rúmar 17,7 milljónir í tíu greiðslum frá Embætti ríkislögmanns vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála. Tæpt ár er síðan hann var settur ríkislögmaður. Ekki hefur enn verið greitt inn á kröfur þeirra sem eiga bótarétt vegna málsins.