

"Ég er í fínu standi og æft af fullu síðustu vikur. Meiðslin hafa auðvitað sett strik í reikninginn hjá mér í vetur,“ segir landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason í blíðunni í Laugardalnum.
Argentínumenn unnu 1-0 sigur á erkifjendum sínum frá Brasilíu í vináttulandsleik þjóðanna á krikket-leikvanginum í Melbourne í dag.
Stutt í grínið hjá landsliðsmönnunum okkar fyrir leikinn gegn Króatíu á sunnudag.
Knattspyrnusamband Sádí Árabíu hefur beðist afsökunar á framkomu leikmanna sinna í Ástralíu í gærkvöldi þar sem landslið Sáda var að spila við Ástralíu í undankeppni HM 2018.
Alfreð Finnbogason segist hafa lært mikið af því að hafa þurft að sitja á hliðarlínunni í hálft ár vegna meiðsla í vetur. Hann er nú heill heilsu og ætlar að láta til sín taka í landsleiknum gegn Króatíu á sunnudag.
Sverrir Ingi Ingason segir að síðasta tímabil hafi verið erfitt.
Heimsmeistarakeppnin í Katar fer ekki fram fyrr en eftir fimm ár en margir í fótboltaheiminum hafa nú sem áður miklar áhyggjur af þróun mála í Katar.
Í hátíðarútgáfunni af 1 á 1 með Gumma Ben, sem fer í loftið á morgun, þurfti Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði að svara fyrir treyjuvesenið hjá honum og Ronaldo á EM. Félagar hans í landsliðinu eru enn að hlæja að því.
Jón Daði Böðvarsson sló í gegn hjá stuðningsmönnum enska B-deildarliðsins Wolves í vetur.
Það var létt yfir varnarmanninum Ragnari Sigurðssyni fyrir æfingu landsliðsins í dag þó svo hann viðurkenni að vera orðinn svolítið þreyttur á spurningum um skort á leikformi hjá sér.
Gummi Ben er með stjörnurnar í íslenska karlalandsliðinu í fótbolta í skemmtilegu spjalli í sérstökum hátíðarþætti af 1 á 1.
Luka Modric og Dejan Lovren eru á leiðinni til Íslands til að spila leik í undankeppni HM en þeir eru líka báðir á leiðinni í réttarsal þar sem þeir eru vitni í spillingarmáli í heimalandi sínu.
Emil Hallfreðsson segir að sjálfstraustið sé gott í íslenska liðinu fyrir leikinn gegn Króatíu. Miðjumaðurinn er ekki farinn að huga að heimferð eftir tæp tíu ár á Ítalíu og segir að hann verði alltaf með annan fótinn úti.
Álvaro Morata sá til þess að Spánverjar eru enn ósigraðir undir stjórn Julen Lopetegui þegar hann jafnaði metin í 2-2 þremur mínútum fyrir leikslok í vináttulandsleik gegn Kólumbíumönnum í kvöld.
Ítalía vann öruggan sigur á Úrúgvæ þegar liðin mættust í vináttulandsleik í Nice í kvöld. Lokatölur 3-0, Ítölum í vil.
Mario Mandzukic skoraði stórkostlegt mark í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á laugardaginn eða aðeins átta dögum áður en hann stígur inn á Laugardalsvöllinn til að mæta Íslandi í undankeppni HM.
Enska knattspyrnusambandið sýndi enga miskunn þegar þeir tóku á máli tveggja stuðningsmanna enska landsliðsins sem gerðust sekir um ósæmilega hegðun á vináttulandsleik í Þýskalandi í mars.
Birkir Bjarnason hefur ekki spilað fótboltaleik í rúma þrjá mánuði en verður tilbúinn fyrir stórleikinn gegn Króatíu um helgina. Hann spilar á Englandi en var í Sviss á dögunum að fagna meistaratitli með Basel.
Strákarnir í íslenska landsliðinu í fótbolta skelltu sér á Fabrikkuna í dag.
Danmörk og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í vináttulandsleik á heimavelli Bröndby í kvöld.
Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fótbolta, er tilbúinn að berjast fyrir sæti sínu í byrjunarliði Nürnberg á næsta tímabili.
Strákarnir á miðjunni í íslenska landsliðinu munu sleppa við glímu gegn Ivan Rakitic, miðjumanni Barcelona, á Laugardalsvellinum um helgina.
Arda Turan, leikmaður Barcelona og tyrkneska landsliðsins, missti stjórn á skapi sínu í flugi í gær og ræðst á tyrkneskan íþróttafréttamann.
Alfreð Finnbogason missti af æfingu landsliðsins nú fyrir hádegi þar sem hann er orðinn veikur.
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, hefur ekki miklar áhyggjur af því að leikmenn hans séu búnir á því eftir langt og strangt keppnistímabil.
Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska fótboltalandsliðsins, segir að miðja króatíska landsliðsins sé sú besta sem hann hafi mætt.
Olivier Giroud varð í gær fyrsti Frakkinn til að skora þrennu í landsleik í 17 ár þegar Frakkland rústaði Paragvæ, 5-0, í vináttulandsleik í Rennes.
Theodór Elmar Bjarnason var í byrjunarliðinu þegar Ísland mætti Króatíu í Zagreb í nóvember síðastliðnum en hann kemst ekki í hópinn fyrir seinni leikinn.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segir að leikurinn gegn Króatíu 11. júní sé úrslitaleikur um það hvort Ísland geti barist um efsta sætið í I-riðli undankeppni HM 2018.
Heimir Hallgrímsson sagði frá því á blaðamannafundi í dag að landsliðsþjálfarinn hafi fengið góða hjálp frá enska félaginu Aston Villa við að það að gera Birki Bjarnason leikfæran fyrir leik Íslands og Króatíu í undankeppni HM.