
EM 2020 í fótbolta

Ragnar meiddur en reiknað með að hann byrji að æfa í vikunni
Ragnar Sigurðsson er enn á meiðslalistanum og var ekki í leikmannahópi FCK sem vann í kvöld 2-1 sigur á C-deildarliðinu Avarta í danska bikarnum.

8 dagar í Ungverjaleik: Þjálfaraferill hins eina sanna Puskás endaði á Íslandi
Landsliðsþjálfaraferill ungversku fótboltagoðsagnarinnar Ferenc Puskás var á enda eftir tapleik í Laugardalnum í júnímánuði fyrir rúmum 27 árum síðan.

Giggs í leyfi frá störfum sem landsliðsþjálfari eftir atvik næturinnar
Ryan Giggs stýrir ekki velska landsliðinu í nóvemberglugganum eftir að hafa handtekinn fyrir heimilisofbeldi.

9 dagar í Ungverjaleik: Yrði jafnsögulegt fyrir Ungverja og fyrir Íslendinga
Ungverjar og Íslendingar spila hreinan úrslitaleik um sæti á EM og um leið geta knattspyrnulið beggja þjóða náð sögulegum árangri í knattspyrnusögu sinnar þjóðar.

UEFA íhugar að spila EM í einu landi og Rússarnir eru taldir líklegastir
UEFA skoðar nú allar sviðsmyndir fyrir Evrópumótið næsta sumar. Upphaflega átti mótið að fara fram í ár, 2020, í tólf löndum en nú íhugar UEFA að spila mótið í einu landi.

Lagerbäck vonsvikinn vegna „amatöranna“
Lars Lagerbäck, þjálfari norska landsliðsins í fótbolta, harmar það að einhver eða einhverjir í norska hópnum skuli hafa lekið því í fjölmiðla hvað gekk á í síðasta landsliðsverkefni.

Kári vonast til að mega æfa: Gæti hjálpað geðheilsu þjóðarinnar
Kári Árnason hefur jafnað sig eftir að hann meiddist í sigrinum á Rúmeníu. Hann segir unnið að lausn svo hann geti æft fótbolta fram að úrslitaleiknum við Ungverjaland um sæti á EM.

10 dagar í Ungverjaleik: Höfum aldrei unnið Ungverja án Guðna formanns
Það er kannski spurning um að klæða formann KSÍ aftur í íslenska landsliðsbúninginn þegar Ísland mætir Ungverjum í hreinum úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu næsta sumar.

Miðar ruku út á úrslitaleik Íslands og Ungverjalands
Ljóst er að ungverskir stuðningsmenn ætla ekki að láta sitt eftir liggja þegar Ungverjaland og Ísland mætast í úrslitaleiknum um sæti á EM, í Búdapest eftir 13 daga.

Kálfinn angrar Jóhann Berg þegar stutt er í úrslitaleikinn við Ungverja
Óvíst er að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með Burnley gegn Chelsea um helgina vegna kálfameiðsla, nú þegar sléttar tvær vikur eru í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM í fótbolta.

Lagerbäck og lærisveinninn grafa stríðsöxina
Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, og norski landsliðsframherjinn Alexander Sörloth virðast hafa náð sáttum.

Segir Lagerbäck ekki fara með rétt mál
Skilaboðin halda áfram að fljúga á milli Alexander Sörloth og Lars Lagerbäck eftir hávaðarifrildi þeirra í kjölfar þess að norska landsliðið í fótbolta féll út úr EM-umspilinu.

Framherjinn sagði Lagerbäck vanhæfan: Aldrei upplifað þetta á þrjátíu ára ferli
Lars Lagerbäck hefur sent frá sér yfirlýsingu eftir að greint var frá harkalegum deilum hans við Alexander Sörloth, framherja norska landsliðsins.

Ólík örlög síðustu mótherja Íslands á FIFA-listanum: Ísland upp um tvö sæti
Íslenska karlalandsliðið hækkar sig um tvö sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins. Síðustu mótherjar liðsins fara bæði upp og niður.

Lagerbäck í hávaðarifrildi við eina af stjörnum Noregs
Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, átti í háværum deilum við framherjann Alexander Sörloth fyrir framan allan norska landsliðshópinn eftir að EM-draumurinn hvarf.

Býst við að Hamrén hætti ef Ísland kemst ekki á EM
Líklegt þykir að Erik Hamrén stígi frá borði ef íslenska landsliðinu mistekst að komast á EM. Þetta segir Kristján Guðmundsson.

Þjálfari Ungverja er ekki hræddur við leikinn gegn Íslandi
Marco Rossi, þjálfari ungverska landsliðsins í knattspyrnu, segir íslenska liðið engu betra en Serbíu eða Rússland. Tvö lönd sem Ungverjar mættu í æfingaleikjum nýverið.

Íslenska landsliðið mun hækka sig á FIFA listanum í fyrsta sinn á árinu
Sigur Íslands á Rúmeníu hjálpar íslenska landsliðinu að komast upp FIFA-listann en Rúmenar detta aftur á móti niður um tíu sæti eftir ófarir þeirra í þessum landsliðsglugga.

EM alls staðar gæti farið fram í einu landi næsta sumar
Svo gæti farið að Evrópumótið í knattspyrnu næsta sumar taki verulegum breytingum á næstunni.

Mikið rót á landsliðinu í síðustu leikjum
Það verður seint sagt að Erik Hamrén og Freyr Alexandersson hafi ekki gefið mönnum tækifæri í leikjum Íslands að undanförnu. Alls hafa 29 leikmenn tekið þátt í leikjunum fjórum í Þjóðadeildinni.

Allt í blóma hjá Ungverjum eftir sögulega þynnku
Ungverjar hafa farið í gegnum rússíbanareið frá því að þeir mættu Íslendingum á EM 2016. Liðin mætast í úrslitaleik um sæti á EM, í Búdapest 12. nóvember.

Víðir segir KSÍ hafa brugðist: „Fyrst og fremst vonbrigði“
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segir það fyrst og fremst vonbrigði að starfsmenn karlalandsliðsins í fótbolta hafi verið í snertingu við leikmenn þvert á loforð KSÍ.

Þorgrímur sagður hafa brotið sóttvarnareglur
Þorgrímur Þráinsson er sagður hafa brotið sóttvarnareglur þegar hann gekk inn á Laugardalsvöllinn eftir leikinn gegn Rúmeníu og faðmaði mann og annan.

Sá elsti í sögu landsliðsins er orðinn einu ári eldri
Kári Árnason heldur upp á 38 ára afmælið sitt og er nýbúinn að taka tvö met af formanni KSÍ, Guðna Bergssyni.

Ættu að fá mikinn stuðning gegn Íslandi en mæta bullurnar með blysin?
Eins og staðan er núna er útlit fyrir að 20 þúsund stuðningsmenn Ungverjalands geti stutt við bakið á sínum mönnum í úrslitaleiknum gegn Íslandi um sæti á EM í fótbolta.

Kári ekki fótbrotinn
Bjartsýni ríkir um að Kári Árnason geti leikið með íslenska landsliðinu gegn því ungverska eftir mánuð.

Gylfi næstbesti leikmaður gærkvöldsins að mati UEFA
Aðeins Serbinn Sergej Milinkovic-Savic lék betur en Gylfi Þór Sigurðsson í umspilsleikjum fyrir EM 2020 í gærkvöldi samkvæmt tölfræði UEFA.

Víðir segir landsliðið sýna hvað hægt sé að gera með samstöðu
Framganga íslenska landsliðsins gegn Rúmeníu í gærkvöld vakti aðdáun Víðis Reynissonar sem vill að íslenska þjóðin sýni sams konar samstöðu og strákarnir gerðu innan vallar.

Elsta íslenska landslið sögunnar í gær
Meðalaldur leikmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í sigrinum á Rúmeníu í gær er sá elsti frá upphafi en hann fór í fyrsta sinn yfir 31 ár.

Formaður KSÍ segir Valgeir læra af ummælum sínum um Kolbein
Valgeir Sigurðsson, stjórnarmaður hjá KSÍ, kveðst vona af öllu hjarta að Kolbeinn Sigþórsson muni spila sem lengst fyrir íslenska landsliðið.