Flug
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 173 ›
Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Lítil flugvél brotlenti í íbúðahverfi í San Diego í Kaliforníu í Bandaríkjunum með þeim afleiðingum að eldur kviknaði í á öðrum tug húsa. Ekki er ljóst enn hvort einhver hafi farist. Erlent 22.5.2025 14:37
Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Íbúar í bænum Tasiilaq, stærsta bæ Austur-Grænlands, stóðu fyrir fjölmennri kröfugöngu síðastliðinn sunnudag þar sem mótmælt var einangrun og pólitísku afskiptaleysi gagnvart íbúum byggða á austurströnd landsins, þeirra sem næst eru Íslandi. Samtímis var efnt til samstöðugöngu í höfuðstaðnum Nuuk á vesturströndinni. Erlent 21.5.2025 23:44
Burðardýr í flugvél Play „fríkaði út“ Lenda þurfti farþegaflugvél Play á leiðinni frá Spáni til Íslands á Írlandi í nótt vegna bráðra veikinda farþega. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að farþeginn hafi verið burðardýr með fíkniefni innvortis. Innlent 20.5.2025 15:55
Þegar Þorvaldur í Síld og fisk varð örlagavaldur Loftleiða Þorvaldur Guðmundsson athafnamaður, oftast kenndur við Síld og fisk, reyndist örlagavaldur í rekstri Loftleiða árið 1959. Grétar Br. Kristjánsson, sonur þáverandi stjórnarformanns Loftleiða, Kristjáns Guðlaugssonar, segir að Þorvaldur hafi sem stjórnarformaður Verzlunarsparisjóðsins, síðar Verslunarbankans, tryggt nauðsynleg lán til að Loftleiðir gætu keypt Douglas DC 6B-flugvélarnar sem urðu grunnurinn að velgengni flugfélagsins. Innlent 18.5.2025 06:48
Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Fimm eru látnir eftir að tvær þyrlur rákust saman og brotlentu skammt frá Eura í suðvesturhluta Finnlands. Þyrlurnar voru báðar á leið til finnska bæjarins Kokemäki til að taka þátt í viðburði flugklúbbs. Erlent 17.5.2025 18:44
Hækkar verulega verðmat á Icelandair og telur „allar líkur“ á viðsnúningi í rekstri Icelandair hefur sjaldan byrjað fyrstu mánuði nýs árs jafn vel og núna í ár, að sögn hlutabréfagreinanda, sem telur allt útlit fyrir að það verði talsverður viðsnúningur í rekstrinum og hefur hækkar verðmat sitt á flugfélaginu um nærri fjórðung. Hann segir áhyggjuefni hversu veikur hlutabréfamarkaðurinn er hér landi – Icelandair hefur fallið í verði um þrjátíu prósent frá áramótum – með lítilli dýpt, lakri verðmyndun og „hálf munaðarlausum“ félögum. Innherji 15.5.2025 15:46
Hefja flug til Edinborgar og Malaga Icelandair hefur flug til fjögurra nýrra áfangastaða í haust. Edinborg og Malaga bætast við sem nýir áfangastaðir í september en áður hafði félagið tilkynnt um flug til Istanbul og Miami. Viðskipti innlent 15.5.2025 12:29
Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Flugleiðir voru á barmi gjaldþrots og höfðu engin tök á að halda þriðjungshlut sínum í Cargolux fyrir fjörutíu árum. Þetta er meginástæða þess að Íslendingar misstu tökin á frakflugfélaginu í Lúxemborg, að mati eins helsta valdamanns Flugleiða á þeim tíma. Innlent 14.5.2025 22:11
Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Isavia um áfrýjunarleyfi í máli flugumferðarstjóra á hendur félaginu. Landsréttur taldi Isavia ekki hafa mátt segja manninum upp af þeim sökum einum að hann væri orðinn 63 ára. Innlent 14.5.2025 20:22
Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Hann var einn valdamesti maður íslenska fluggeirans um áratugaskeið og sá sem lengst allra sat í stjórn Flugleiða. Hann stóð þó utan sviðsljóssins þrátt fyrir að hafa allan sinn starfsferil jafnframt verið einn af lykilstjórnendum Loftleiða og síðar Flugleiða. Innlent 14.5.2025 13:00
Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Rússnesk stjórnvöld eru ábyrg fyrir því að malasísk farþegaþota var skotin niður yfir Úkraínu árið 2014 með þeim afleiðingum að tæplega þrjú hundruð manns fórust. Alþjóðaflugmálastofnunin ákveður á næstu vikum hvers konar bætur þau þurfa að greiða. Erlent 13.5.2025 07:38
Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Hinn nýi alþjóðaflugvöllur Grænlendinga í Nuuk hefur lokast mun oftar vegna óveðurs en búist var við. Sláandi tölur hafa verið birtar um fjölda aflýstra flugferða frá áramótum. Erlent 12.5.2025 22:11
Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hefur undirbúið lögfræðiálit um að forseti þeirra megi þiggja lúxusþotu sem er metin á milljarða króna að gjöf frá emírnum í Katar þrátt fyrir að stjórnarskrá banni að forseti taki við gjöfum eða mútum frá erlendum ríkjum. Forsetinn sjálfur er áfjáður í að þiggja þotuna. Erlent 12.5.2025 11:51
Ríkið eignast hlut í Norwegian Norska ríkið mun eignast hlut í norska flugfélaginu Norwegian og mun fara með 6,37% hlutafjár í félaginu þegar viðskiptin hafa gengið í gegn. Í heimsfaraldri covid-19 veitti ríkið flugfélaginu neyðarlán en í stað þess að félagið greiði lánið til baka að fullu fær ríkið hlut í fyrirtækinu. Viðskipti erlent 12.5.2025 07:27
Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Ráðamenn Icelandair hafa tekið þá ákvörðun að hætta breiðþoturekstri og nota eingöngu mjóþotur í millilandafluginu. Þá er framundan að ákveða hvort aðeins verði reknar Airbus-þotur eða hvort Boeing Max-þoturnar verði áfram í flotanum. Innlent 10.5.2025 22:11
Flugmenn tókust óafvitandi á um stjórnina í mikilli ókyrrð yfir Íslandi Flugstjóri og flugmaður tyrkneskrar farþegaþotu sem lenti í alvarlegri ókyrrð yfir Íslandi árið 2023 tókust óafvitandi á um stjórn vélarinnar. Sjö manns um borð slösuðust í ókyrrðinni. Viðbrögð áhafnarinnar var talin orsök atviksins en bæði Veðurstofa Íslands og Isavia fengu tilmæli um umbætur vegna þess. Innlent 9.5.2025 09:37
Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Icelandair flutti 381 þúsund farþega í apríl, 24 prósent fleiri en í apríl 2024. Það sem af er ári hefur félagið flutt yfir 1,2 milljón farþega. Í mánuðinum voru 29 prósent farþega á leið til landsins, 19 prósent frá landinu, 47 prósent voru tengifarþegar og fimm prósent ferðuðust innanlands. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Icelandair. Viðskipti innlent 6.5.2025 18:08
Yfirgefa Svíþjóð til að hraða þróun rafmagnsflugvélar Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá Gautaborg í Svíþjóð til Los Angeles í Kaliforníu. Fyrirtækið segir að með þessu sé ætlunin að efla þróun ES 30-rafmagnsflugvélarinnar og styðja betur við fyrirhugað tilraunaflug. Erlent 1.5.2025 09:45
Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Flestir bendir til að Icelandair hefji á ný flug til Hornafjarðar í haust eftir að félagið reyndist vera lægstbjóðandi í útboði Vegagerðarinnar. Þetta gæti breytt forsendum þeirrar ákvörðunar Icelandair að hætta Ísafjarðarflugi á næsta ári. Innlent 30.4.2025 22:20
Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Flugfélagið Play tapaði 26,8 milljónum bandaríkjadala eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, en það jafngildir um 3,5 milljörðum króna. Í tilkynningu frá félaginu segir að um framför sé að ræða frá sama tímabili í fyrra þegar tapið var 27,2 milljónir bandaríkjdalir. Viðskipti innlent 29.4.2025 17:36
Létt í lund þrátt fyrir margra klukkustunda bið eftir Lissabon Sögulegt rafmagnsleysi á Spáni og Portúgal í gær olli alvarlegum samgöngutruflunum á landsvísu, en rafmagnsleysið varði í margar klukkustundir. Segja má að Icelandair og Play air hafi sloppið vel í gær og í dag varðandi flugáætlun til landanna tveggja. Flug Play til Lissabon í gær raskaðist þó verulega. Innlent 29.4.2025 14:22
Hafi verið látinn fljúga þrátt fyrir þekkt andleg veikindi Lögmaður aðstandenda Sólons heitins Guðmundssonar fer hörðum orðum um Icelandair, sem hann segir ekki hafa tekið með réttum hætti á einelti í garð Sólons á vinnustaðnum. Icelandair hafi stillt honum upp við vegg og hann sagt upp störfum í kjölfarið. Tveimur dögum síðar svipti Sólon sig lífi. Þá hafi hann verið látinn fljúga þrátt fyrir að vera vansvefta og með stuttan þráð vegna málsins. Innlent 28.4.2025 07:05
Fjölgun safngripa kallar á stækkun Flugsafnsins Nýir og fyrirferðarmiklir safngripir eins og þyrlur og flugvélaskrokkar kalla á stækkun Flugsafns Íslands á Akureyri. Safnið er það eina viðurkennda hér á landi sem hefur það meginhlutverk að varðveita íslenska flugsögu. Innlent 27.4.2025 22:22
Töldu Akureyringa ekki reka alvöruflugfélag Með stofnun Norðurflugs á Akureyri varð Tryggvi Helgason brautryðjandi í rekstri landshlutaflugfélaga á Íslandi. Flugfélagið Norlandair og áður Flugfélag Norðurlands eru bæði sprottin af Norðurflugi. Innlent 27.4.2025 07:00
Vagga Akureyrarflugs er á Melgerðismelum Melgerðismelar í Eyjafirði skipa merkan sess í flugsögu Íslands. Þar var fyrsti flugvöllur Akureyrar og sá mikilvægasti utan Suðvesturlands þegar innanlandsflugið var að færast yfir í landflugvélar á upphafsárunum. Innlent 24.4.2025 23:46
Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Beint flug milli Akureyrar og útlanda hefur aldrei verið meira og voru sjö áætlunarflug á viku út í heim að jafnaði frá Akureyrarflugvelli í síðasta mánuði auk leiguflugs. Akureyri nálgast núna Reykjavíkurflugvöll í heildarfjölda flugfarþega. Innlent 22.4.2025 22:11
Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Þrjúhundruð farþegar um borð í farþegaþotu á vegum Delta flugfélagsins í Bandaríkjunum þurftu að yfirgefa vélina í snatri þegar eldur kom upp í henni á flugbrautinni á Orlando flugvelli í Flórída í gær. Erlent 22.4.2025 07:09
Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Hluti Íslendingahópsins sem réðist til starfa hjá Cargolux á árunum eftir 1970 sneri ekki aftur heim til Íslands. Kjarninn var ungt flugfólk sem fór til tímabundinnar dvalar. Innlent 21.4.2025 07:47
Koma strandaglópunum heim í kvöld Leiguflugvél á vegum Play mun fara frá Barselóna klukkan 20:15 á staðartíma í kvöld. Hún á að fljúga með strandaglópa til Íslands. Innlent 19.4.2025 13:42
„Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Hátt í níutíu íslenskir piltar, þar af sjötíu undir lögaldri, eru fastir ásamt fylgdarliði á flugvellinum í Barselóna þessa stundina. Í hópnum eru allt niður í fjórtán ára börn og einhver enn þá yngri systkini. Drengirnir sem eru annars vegar Skagamenn og hins vegar Grindvíkingar voru í keppnisferð í fótbolta, að taka þátt í Daurada Cup í Salou. Pappírar sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana renna út í dag. Innlent 19.4.2025 10:08