Fréttir af flugi
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 144 ›
Furðuleg og ósanngjörn staða Icelandair og Play skoða réttarstöðu sína vegna verkfallsaðgerða flugumferðastjóra sem hafa valdið félögunum miklu tjóni. Ferðaplön þúsunda farþega röskuðust þegar verkfallið skall á í nótt. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. Viðskipti innlent 12.12.2023 12:53
Engar bætur vegna seinkunar vélar sem varð fyrir eldingu Viðskiptavinir Play fá engar bætur vegna aflýsingar á flugi flugfélagsins frá Keflavíkurflugvelli til Alicante í desember á síðasta ári eftir að eldingu hafði lostið niður í vélina. Neytendur 12.12.2023 08:54
Skoða að sækja bætur til Isavia vegna verkfallsaðgerðanna Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið muni skoða það hvort það geti sótt bætur til Isavia vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Viðskipti innlent 12.12.2023 08:43
Laun flugumferðarstjóra um 1,4 milljónir króna Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands eru flugumferðarstjórar með regluleg meðalheildarlaun upp á 1,4 milljónir króna. Neðri fjórðungsmörk launa flugumferðarstjóra eru um ein milljón króna. Innlent 12.12.2023 08:08
Verkfall flugumferðarstjóra skollið á Verkfall flugumferðarstjóra skall á klukkan fjögur í nótt eftir að fundi samninganefnda Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins lauk án samnings í gærkvöldi. Vinnustöðvunin raskar flugi þúsunda ferðalanga. Innlent 12.12.2023 06:24
Fundi flugumferðarstjóra og SA frestað til morguns Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, sem semja fyrir hönd Isavia, í Karphúsinu er lokið. Boðað hefur verið til nýs fundar klukkan 15 á morgun. Innlent 11.12.2023 22:08
Verkfallsaðgerðir raski plönum mörg þúsund farþega Flugumferðarstjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á tveimur dögum í næstu viku til viðbótar við aðgerðir á morgun og næsta fimmtudag. Enn er fundað í Karphúsinu og bendir því allt til að það verði af fyrirhugaðri vinnustöðvun í nótt sem mun hafa áhrif á mörg þúsund farþega. Innlent 11.12.2023 20:10
Stefnir í mikla röskun á millilanda- og innanlandsflugi á morgun Komur og brottfarir rúmlega fjörutíu flugvéla raskast á Keflavíkurflugvelli og allt innanlandsflug liggur niðri frá klukkan fjögur í fyrrramálið til klukkan tíu, náist ekki samningar í kjaradeilu flugumferðarstjóra við Ísavia í dag. Formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segir frekari aðgerðir í undirbúningi. Innlent 11.12.2023 11:49
Enn reynt að ná utan um lausa þræði Flugumferðarstjórar munu enn að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku. Samninganefndir Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins funduðu í tvo klukkutíma hjá ríkissáttasemjara í gær en samtökin fara með samningsumboð Isavia í deilunni. Innlent 9.12.2023 11:01
Óheimilt verði að fljúga með hunda og ketti í farþegarými Óheimilt verður að flytja hunda og ketti til landsins í farþegarými flugvéla samkvæmt drögum að breytingu á reglugerð um innflutning hunda og katta. Innlent 8.12.2023 12:39
Kartöfluummælin hjálpi lítið: „Þú getur rétt ímyndað þér hvernig fólk tekur þessu“ Arnar Hjálmsson, formaður Félags flugumferðarstjóra, gefur lítið fyrir ummæli Sigríðar Margrétar Oddsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem sagði að ef hún væri jólasveinninn þá myndi hún gefa flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn. Hann segist ekki vita hver meðallaun flugumferðarstjóra séu og að hann láti hækkunina sem farið sé fram á liggja á samningsborðinu. Innlent 7.12.2023 20:49
Segir ánægjulegt að sjá tölur um skattspor ferðaþjónustu Skattspor ferðaþjónustunnar í fyrra nam 92 milljörðum króna, ef þröngt er reiknað, samkvæmt tölum sem birtar voru í dag. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar spáir því að greinin afli hátt í fjörutíu prósent gjaldeyristekna þjóðarbúsins í ár. Innlent 7.12.2023 20:40
Ríkissáttasemjari boðar til fundar í deilu flugumferðarstjóra Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar samningsaðila í kjaraviðræðum Félags flugumferðarstjóra og Isavia klukkan eitt í Karphúsinu á morgun. Innlent 7.12.2023 13:40
Gæfi flugumferðarstjórum kartöflu í skóinn Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fráleitt að flugumferðarstjórar boði nú til þriðja verkfallsins á fimm árum á meðan unnið sé að gerð nýrrar þjóðarsáttar á meðal allra aðila vinnumarkaðarins. Innlent 7.12.2023 12:18
Verkfallið komi á „gríðarlega vondum tíma“ Flugfélögin Play og Icelandair skoða nú viðbrögð sín við fyrirhuguðu verkfalli flugumferðarstjóra á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku. Innlent 6.12.2023 21:40
Flugumferðarstjórar boða til verkfalls í næstu viku Flugumferðarstjórar munu að óbreyttu leggja niður störf á þriðjudags- og fimmtudagsmorgun í næstu viku. Samningar milli þeirra og Isavia hafa verið lausir í rúma tvo mánuði og formaður Félags flugumferðarstjóra segir enn töluvert bera í milli. Innlent 6.12.2023 16:47
Vélinni snúið við á miðri leið Flugvél Icelandair á leið til Þýskalands var snúið við vegna veðurs í morgun. Innlent 2.12.2023 12:07
Japanar vilja kyrrsetja herflugvélar eftir slys Yfirvöld í Japan hafa beðið Bandaríkjamenn um að stöðva notkun V-22 Osprey flugvéla nærri eyríkinu um tíma. Það er eftir að ein slík flugvél féll í hafið undan ströndum Japan í gær, miðvikudag. Erlent 30.11.2023 13:12
Bandarísk herflugvél hrapaði í sjóinn við Japan Bandarísk herflugvél hafnaði í sjónum undan ströndum Japans í morgun. Lík eins úr flugvélinni hefur fundist í sjónum en sex eru sagðir hafa verið um borð. Flugvélin var af gerð sem kallast V-22 Osprey og er nokkurs konar blendingur þyrlu og hefðbundinnar flugvélar. Erlent 29.11.2023 11:07
Flugu yfir Atlantshafið á fitu og sykri Flugmenn Virgin Atlantic flugu í gær farþegaþotu yfir Atlantshafið á eingöngu fitu og sykri, ekki hefðbundnu eldsneyti. Er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert en flugvélin losar um sjötíu prósent minna af gróðurhúsalofttegundum en hefðbundnar farþegaþotur. Viðskipti erlent 29.11.2023 10:29
Breytt afkomuspá vegna jarðhræringa: Hlutir hafi verið teknir úr samhengi Flugfélagið Play hefur tilkynnt að afkomuspá fyrir árið eigi ekki lengur við. Jarðhræringar á Reykjanesskaga og áhrif þeirra á eftirspurn til skemmri tíma orsaki það. Viðskipti innlent 28.11.2023 18:50
Semja aftur um flug til Húsavíkur Samningar hafa náðst milli Flugfélagsins Ernis og Vegagerðarinnar um áframhaldandi flug til Húsavíkur næstu þrjá mánuði og verður í kjölfarið ákveðið með framhaldið. Viðskipti innlent 25.11.2023 16:32
Icelandair áformar að stækka flotann í allt að hundrað vélar fyrir árið 2037 Stjórnendur Icelandair stefna á að flugfélagið vaxi úr 39 flugvélum í 70 til 100 árið 2037, á 100 ári afmæli þess. Framkvæmdastjóri hjá félaginu sagði að markmiðið væri raunhæft en hvort það gangi eftir muni ráðast af markaðsaðstæðum. Forstjóri Icelandair telur hins vegar að of háir umhverfisskattar gætu orðið Þrándur í Götu. Innherji 23.11.2023 16:53
Ófært Áætlunarflug til Vestmannaeyja í sinni hefðbundnu mynd hefur legið niðri frá því að Ernir hætti að fljúga til Vestmannaeyja haustið 2020 ef frá eru taldir þeir samningar sem samgönguráðuneytið gerði á sínum tíma annars vegar við Icelandair og hins vegar Erni um lágmarksflug til Eyja í örfáa daga á viku. Ekkert reglulegt flug hefur verið til eða frá Eyjum frá því um miðjan apríl síðastliðinn. Skoðun 23.11.2023 10:30
Dæmdur fyrir að afhöfða mann með flugvél Franskur flugmaður hefur verið sakfelldur fyrir að afhöfða fallhlífarstökkvara með flugvélarvæng árið 2018. Flugmaðurinn flaug á fallhlífarstökkvarann, sem hafði skömmu áður stokkið úr þessari sömu flugvél, í um fjögur þúsund metra hæð. Erlent 22.11.2023 14:11
Eldgos líkt Surtsey gæti lokað Keflavíkurflugvelli Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur segir að neðansjávargos undan Reykjanesi í líkingu við Surtseyjargosið gæti lokað Keflavíkurflugvelli. Innlent 22.11.2023 11:55
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. Innlent 21.11.2023 20:27
Verulega hægst á sölu flugferða Icelandair til Íslands Verulega hefur hægst á sölu á flugferðum Icelandair til Íslands næstu vikurnar miðað við það sem áður var áætlað vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Þær hafa ekki haft áhrif á flugsamgöngur um Keflavíkurflugvöll og flugáætlun Icelandair er óbreytt. Viðskipti innlent 21.11.2023 19:55
Vélinni líklega flogið heim frá Indlandi á næstu vikum Afturhluti vélar Icelandair straukst við flugbraut í lendingu á Lal Bahadur Shastri flugvellinum á Indlandi fyrr í mánuðinum. Gert er ráð fyrir því að hægt verði að fljúga vélinni aftur heim fljótlega. Flugvirkjar voru með í fluginu sem hófu strax vinnu við að meta tjónið. Innlent 21.11.2023 14:30
Fjölda flugferða aflýst eða flýtt Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 21.11.2023 13:27