Aldrei fór ég suður

Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum
Tónlistarkonan Una Torfadóttir naut sín í botn á sviðinu á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði um helgina. Klæðaburður hennar greip auga blaðamanns sem fékk að heyra nánar frá þessum sérsaumaða kjól sem vinur hennar hannaði sérstaklega fyrir Unu.

Metfjöldi á Aldrei fór ég suður: „Þetta var algjör draumur“
Fyrra kvöld rokkhátíðarinnar Aldrei fór ég suður var haldið í gærkvöldi á Ísafirði. Rokkstjóri hátíðarinnar er í skýjunum yfir vel heppnaðri hátíð og segist hafa aldrei séð jafn marga gesti.

Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fagnaði tuttugu ára afmæli sínu á páskunum í fyrra. Fyrsta hátíðin var haldin í bríaríi í sushiverksmiðju á Ísafirði árið 2004, þar sem hátíðarhaldarar höfðu ekki miklar áætlanir og settu upp tjöld til einnar nætur. Nú er hátíðin hins vegar orðin fjölskylduvæn tónlistarveisla og er að hefja sinn þriðja áratug með endurbættri ásýnd.

Aldrei fór ég suður snýr aftur: „Þetta eru vissulega stórir peningar“
Ísafjarðarbær og tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hafa undirritað samstarfssamning fyrir árin 2025 til 2027 með það að markmiði að hátíðin verði áfram árlegur viðburður í bænum um páskahátíðina.

Ekki sjálfsagt að Aldrei fór ég suður hafi lifað tvo áratugi
Veðrið setti örlítið strik í reikninginn hjá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður þegar útlit var fyrir að flugvél full af tónlistarmönnum gærkvöldsins kæmist ekki vestur. Rokkstjóri hátíðarinnar segir þetta einmitt í anda hátíðarinnar og bætir við að ekki sé sjálfsagt að frumkvöðlaverkefni sem þetta lifi í tuttugu ár.

Maður gerir ekki rassgat einn
Sagan að baki tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður á Ísafirði hefur eflaust verið margsögð og margtuggin í þau tuttugu ár sem hátíðin hefur verið til. Það var bjartsýnishugmynd með grínívafi sem flaug um yfir þeim feðgum, Erni Elíasi og Guðmundi föður hans eða þeim Mugison og Mugga pabba hans.

Múrarinn sem fékk símtal og varð bruggari
Upphaf fyrsta brugghússins á Vestfjörðum má rekja til afdrifaríks símtals frá mági framkvæmdastjórans. Hann vann við að múra þegar símtalið kom en mánuði eftir það var brugghúsið orðið að veruleika.

Tuttugu ára afmæli Aldrei fór ég suður: Of Monsters and Men meðal hljómsveita
Of Monsters and Men verður á meðal þeirra hljómsveita sem munu koma fram á vestfirsku tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer um páskana á Ísafirði. Hátíðin fagnar tuttugu ára afmæli í ár og verður blásið í herlúða að sögn skipuleggjanda.

Þessi spila á Aldrei fór ég suður
Ragga Gísla, FM Belfast og Bríet eru á meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði 7.-8. apríl næstkomandi.

Ryðguð í skipulagningu en mikil stemning fram undan
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður hefst í kvöld - eftir tveggja ára Covid-hlé. Rokkstjóri hátíðarinnar segir mikla stemningu í bænum og að fullt sé út úr dyrum hjá mörgum bæjarbúum.

Upprisa Aldrei fór ég suður um helgina
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður verður haldin á Ísafirði nú um helgina eftir tveggja ára hlé vegna kórónuveirufaraldursins. Meðal tónlistarmanna verða Bríet, Mugison og Páll Óskar.

Aldrei fór ég suður fer fram í ár
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður, sem haldin er um páskana á Ísafirði, verður haldin þetta árið. Hátíðinni hefur verið slegið af síðustu tvö ár vegna kórónuveirufaraldursins.

Listamennirnir sem koma fram á Aldrei fór ég suður
Þrettán tónlistarmenn og hljómsveitir munu koma fram á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður sem fram fer á Ísafirði um páskana. Í fyrra fór hátíðin fram með óhefðbundnum hætti í ljósi kórónuveirufaraldursins en í ár stendur til að halda hátíðina með áhorfendum í sal.

Mugison nýr rokkstjóri Aldrei fór ég suður
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur verið ráðinn sem næsti rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður.

Aldrei fór ég suður fer fram þrátt fyrir samkomubann: „Ekki koma samt“
Forsvarsmenn vestfirsku tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður ætla að halda ótrauð áfram þrátt fyrir samkomubann. Hátíðin verður haldin en þó með breyttu sniði.

Þessir listamenn koma fram á Aldrei fór ég suður
Mugison, Between Mountains, Páska-Helgi Björns og hljómsveitin ÝR eru meðal þeirra sem koma fram á Aldrei fór ég suður 2020.

Kardashian að kenna að Jón Þór er orðinn þyrluflugmaður
Jón Þór Þorleifsson vill hvetja fólk eindregið til að elta drauma sína.

Aldrei fleiri á Aldrei fór ég suður
Veðrið leikur við tónleikagesti á Aldrei fór ég suður og segir Rokkstjóri hátíðarinnar að annar eins fjöldi gesta hafi aldrei sést á svæðinu. Hátt í fjögur þúsunda manns lögðu leið sína vestur samkvæmt Vegagerðinni.

Stemningin á suðupunkti á Aldrei fór ég suður
Páskahelgin er yfirleitt mikil ferðahelgi og er sú í ár engin undantekning. Mikill fjöldi fólks hefur ferðast til annarra landshluta til að sækja heim ættingja, tónlistarhátíðir eða til að skella sér á skíði.

JóiPé x Króli og Svala skemmta á Aldrei fór ég suður
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður á Ísafirði fer fram í sextánda sinn á páskum, nánar til tekið 19.- 20. apríl næstkomandi.

Gangan trekki fleiri að en Aldrei fór ég suður
Fossavatnsgangan á Ísafirði verður haldin um helgina. Keppnin hefur vaxið hratt síðustu ár og er nú hluti af alþjóðlegri mótaröð skíðagöngumanna. Ein stærsta ferðamannahelgi á Ísafirði, en um 500 erlendir keppendur mæta til leiks.

Iðandi rokkveisla
Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður hefst á skírdag og undirbúningur hefur verið á fullu. Mikill áhugi er á hátíðinni.

Sjáðu langtímaveðurspána fyrir páskana
Margir ætla vafalaust að leggja land undir fót um páskana og því skynsamlegt að fylgjast vel með veðurspá dagana fyrir brottför.

Emmsjé Gauti, HAM og KK á Aldrei fór ég suður
Hátíðin fer fram í fjórtánda skipti og er ókeypis inn eins og alltaf.

Forréttindi að fá að dvelja fyrir vestan
Tónlistarmaðurinn Kristján Freyr Halldórsson hefur verið í innsta hring tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður á Ísafirði frá upphafi. Kristján sest nú í fyrsta sinn í stól sjálfs rokkstjóra hátíðarinnar.

Frumsýning: Ber skylda að gera aðeins snilld
Snorri Helgason leyfir utanaðkomandi að skyggnast inn í æðrulaust líf sitt í nýju myndbandi við lagið Vittu til.

Síðasta andvarp Risaeðlunnar?
Risaeðlan heldur sína fyrstu tónleika í 20 ár í Gamla bíói í kvöld. Þessir tónleikar munu líka verða þeir hinstu hjá sveitinni – og þó, Risaeðlan hefur áður hætt og átt óvæntar endurkomur.

Risaeðla í Reykjavík
Hljómsveitin Risaeðlan ætlar að koma saman á einum tónleikum í Gamla Bíó um miðjan maí áður en sveitin fer aftur í dvala.

Heimshornaflakkari stýrir rokkhátíð
Birna Jónasdóttir er rokkstýra hátíðarinnar Aldrei fór ég suður sem fer fram á Ísafirði um páskana. Undirbúningur stendur nú sem hæst en búist er við fyrstu gestum á miðvikudag.

Svolítið eins og að hjóla
Hljómsveitin Risaeðlan kemur saman eftir langt hlé á Aldrei fór ég suður um páskana. Meðlimir sveitarinnar æfa nú af kappi og rifja upp gömul kynni við hljóðfærin.