Reykjavíkurmaraþon
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Tæp fjórtán þúsund hafa skráð sig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka í ár sem fer fram næsta laugardag. Flestir eru skráðir til að hlaupa tíu kílómetra, eða um tíu þúsund, og svo tæp fjögur þúsund í hálfmaraþon. Rúm tvö þúsund eru skráð í skemmtiskokk og svo um 1.500 í heilt maraþon. Innlent 19.8.2026 07:01
Helvíti hægt Ágústmánuður er mánuður hátíða, gleði og jákvæðni í Reykjavík. Þungamiðjan er í mínum huga Reykjavíkurmaraþonið þar sem ég hef reimað á mig skóna undanfarin mörg ár til að taka þátt í 10 km hlaupinu sem er hátindur hlaupaársins hjá mér. Skoðun 17.8.2026 10:16
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Hópur Korpúlfa, sem er félag eldri borgara í Grafarvogi, ætlar að hlaupa saman í Reykjavíkurmaraþoninu. Hópurinn safnar fyrir félaginu og félagsstarfinu sem þau skipuleggja. Formaður segir mikilvægt að halda fólki í virkni eftir að það hættir að vinna og mikil áhersla sé lögð á það hjá Korpúlfi að fólk geti fundið sér eitthvað við hæfi. Innlent 16.8.2026 07:02
„Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Sesselja Hreinsdóttir missti son sinn, Þorlák Inga, fyrir um fimm árum. Þorlákur Ingi var 21 árs þegar hann lést í sjálfsvígi jólin 2020. Sesselja segir missinn hafa markað líf sitt og hún hafi lært mikið á þessum fimm árum. Það mikilvægasta sé að enginn takist á við slíkan missi og slíka sorg einn. Hver og einn þurfi samt sem áður að finna sín eigin bjargráð og sinn takt í sorginni. Innlent 15.8.2026 09:02
„Það er engin skömm í krabbameininu“ „Fyrstu tvær vikurnar á spítalanum eru í þoku. Maður verður hræddur, að sjálfsögðu, og þetta var rosalega erfitt tímabil í byrjun, þegar við erum að reyna að lenda með þessar upplýsingar,“ segja hjónin Íris Alda Ísleifsdóttir og Ævar Ólafsson um það þegar Ísleifur Ingi, yngri sonur þeirra, greindist með eitilfrumukrabbamein. Lífið 11.8.2026 12:01
Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Reykjavíkurmaraþonið er miklu meira en bara hlaup. Sem einn stærsti almenningsíþróttaviðburður landsins dregur það að sér þúsundir þátttakenda sem vilja ögra sjálfum sér, tengjast öðrum og styðja við góð málefni. Boðið er upp á fjóra vegalengdarflokka: 3 km skemmtiskokk, 10 km hlaup, hálfmaraþon og heilt maraþon. Árið 2024 tóku 14.646 einstaklingar þátt í viðburðinum. Skoðun 6.8.2026 17:02
Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei „Við ákváðum strax að sagan hans Hjalta mætti ekki enda þarna. Það var of seint fyrir Hjalta, en vonandi ekki fyrir aðra. Við viljum byggja staðinn sem hefði getað hjálpað honum,“ segir Gerður Ósk Hjaltadóttir. Gerður er móðir Hjalta Snæs Árnasonar, sem tók sitt eigið líf í marsmánuði árið 2025, eftir erfiða baráttu við geðræn veikindi. Hann var einungis 22 ára gamall. Lífið 3.8.2026 08:01
Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Helga Fanney Edwardsdóttir Finnsson var hraust, virk og í krefjandi starfi við Háskólann í Lúxemborg þegar hún fékk einkirningasótt árið 2015. Hún sneri fljótt aftur til vinnu en náði sér aldrei að fullu og fékk síðar greiningu á ME. Næstu fjögur árin hélt hún fast í vinnuna á meðan íþróttir, félagslíf og samvera með fjölskyldu hurfu smám saman úr lífi hennar. Lífið 2.8.2026 09:32
Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Sylvía Rún Guðnýjardóttir og Dagný Rut Kjartansdóttir ólust báðar upp í Grundarfirði og þekkjast frá barnæsku. Leiðir þeirra skildu um tíma en fyrr á þessu ári tengdust þær aftur. Fljótlega kom í ljós að þrátt fyrir ólíkar lífsleiðir áttu þær sameiginlega reynslu sem hvorug hafði gert sér grein fyrir að hin deildi. Lífið 27.7.2026 09:00
Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Guðný Pála Rögnvaldsdóttir kennari og söngkona er í miðri meðferð við þriðja stigs brjóstakrabbameini en undirbýr sig um leið fyrir tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún ætlar ekki að setja tímamet, heldur einfaldlega að mæta, halda áfram og komast í mark áður en því verður lokað. Lífið 25.7.2026 14:01
Þöglu börnin gleymast í kerfinu „Það er ekkert að barninu mínu. Samfélagið mætir honum bara ekki. Við foreldrar þurfum stöðugt að sanna það sem ætti að vera augljóst,“ segir Þuríður Sverrisdóttir. Sonur hennar, Sverrir Styrkár, varð fimm ára í maí. Hann er greindur með einhverfu, málröskun og erfiðleika við fæðuinntöku. Síðustu ár hafa kennt Þuríði að réttindi fást ekki sjálfkrafa þótt greining liggi fyrir. Lífið 19.7.2026 14:01
„Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Vera Helgadóttir greindist með bráðahvítblæði árið 2023, þá 23 ára gömul og nýbökuð móðir. Þegar hún var í krabbameinsmeðferð dvaldi hún löngum stundum í einangrun á blóðkrabbameinslækningadeild 11EG. Þar komst hún að því að það sem flestir taka sem sjálfsögðum hlut getur orðið að stóru atriði þegar maður er lokaður inni, veikur og háður öðrum um nánast allt. Lífið 13.7.2026 08:02
„Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ „Ég leyfi mér einfaldlega að halda í þá hugsun að það muni allt verða í lagi. Ég verð bara eins og ég er núna, í rauninni það sem eftir er. En ég ætla ekki að láta þetta stoppa mig í neinu sem ég geri,“ segir Birgir Örn Birgisson. Lífið 12.7.2026 09:01
Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Að vera með OCD getur verið svo sérstakt vegna þess að maður er að glíma við þessar brengluðu hugsanir en samt veit maður alveg að þær eru fáránlegar og engin rök á bak við þær,“ segir Kelsey Paige Hopkins sem búið hefur á Íslandi í tólf ár. Lífið 4.7.2026 08:00
Breyta hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoninu Tekin hefur verið ákvörðun um að breyta hlaupaleiðum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem haldið er ár hvert á Menningarnótt. Nú verður rásmarkið við Háskóla Íslands. Innlent 2.6.2026 09:59
Reykjavíkurmaraþonið eignast systur í Pittsburgh Reykjavíkurmaraþonið hefur ákveðið að hefja samstarf við maraþonið í Pittsburgh í Bandaríkjunum. Hér eftir verða hlaupin tvö kynnt sem systurmaraþon. Sport 18.2.2026 16:30
Yfir 170 góðgerðafélög hlutu styrk í áheitasöfnun Reykjavíkurmaraþons Fulltrúar góðgerðafélaga komu saman á árlegri uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í síðustu viku. Í ár söfnuðust alls 326.709.581 króna sem er met í áheitasöfnun. Heildarupphæð áheita sem safnast hafa í Reykjavíkurmaraþonum Íslandsbanka hefur því náð yfir tvo milljarða króna en áheitasöfnun hófst árið 2006. Lífið 29.10.2025 11:16
„Hjálpar okkur í að nýta þjónustu sem er ekki til á Íslandi í dag en ætti að vera til“ Met var slegið í söfnun áheita í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið en yfir 320 milljónir króna hafa safnast til hinna ýmsu málefna. Sá efsti á lista hlaupara safnaði yfir þremur milljónum fyrir styrktarsjóð vegna endurhæfingar sonar síns. Lífið 25.8.2025 13:31
„Það urðu smá árekstrar en heilt yfir var þetta ótrúlega vel skipulagt“ Íþróttabandalag Reykjavíkur hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir skipulagið, eða skort þar á, í kringum Reykjavíkurmaraþonið. Formaður ÍBR segir að breytingum fylgi mistök en þau muni ekki endurtaka sig og heilt yfir hafi hlaupið verið ótrúlega vel skipulagt. Sport 25.8.2025 10:27
Stjörnulífið: Maraþon, brúðkaup og gellugallinn Liðin helgi var viðburðarík og lífleg hjá stjörnum landsins. Hlauparar reimuðu á sig skóna fyrir Reykjavíkurmaraþonið og mannlífið iðaði þegar Menningarnótt var haldin hátíðleg með fjölbreyttri dagskrá. Að auki loguðu samfélagsmiðlar af ást og rómantík í brúðkaupum helginnar. Þá klæddust fjölmargir bleikum fötum um helgina og heiðruðu minningu Bryndísar Klöru. Lífið 25.8.2025 10:07
Metaðsókn og söfnunarmet slegið Metaðsókn var í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fór fram á laugardaginn. Skráðir þátttakendur voru 17.786, sem eru rúmlega þrjú þúsund fleiri en á síðasta ári. Þegar þetta er ritað hafa safnast yfir 321 milljónir, og er það söfnunarmet. Enn er hægt að heita á hlaupara fram á miðnætti. Innlent 24.8.2025 23:28
Kom með blóðugar tær í mark eftir heilt maraþon berfættur Einkaþjálfarinn Guðmundur Emil Jóhannsson, betur þekktur sem Gummi Emil, hljóp berfættur heilt maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu í gær og kom í mark á tæplega sjö klukkutímum með illa farnar tær. Lífið 24.8.2025 15:05
Tóku hlé í miðju hlaupi til að halda tónleika Tónlistarmennirnir Pétur Ben, Gunni Hilmars úr Sycamore Tree og Frosti Logason og Frosti Gringo úr hljómsveitinni Mínus tóku allir pásu í miðju tíu kílómetra hlaupi í gær til að halda tónleika. Þeir fluttu lagið „Kings of the underpass“ sem samið var um Loft Gunnarsson sem lést árið 2012. Lífið 24.8.2025 14:00
Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Töluverðrar óánægju gætir innan hlaupasamfélagsins með framkvæmd Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í gær. Skipting í almennan flokk og keppnisflokk tókst ekki betur en svo að fyrri hópurinn teppti fyrir þeim seinni. Íslandsmeistari í maraþoni segir mistök brautarstarfsmanns mögulega hafa kostað sig sigur. Innlent 24.8.2025 13:46
Vel studdur í brautarmeti: „Mjög sérstakt og keyrði mig virkilega mikið áfram“ Íslandsmethafinn Baldvin Þór Magnússon hljóp til sigurs í tíu kílómetra hlaupi í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, á nýju brautarmeti, eða 29 mínútum og 34 sekúndum. Hann fann virkilega fyrir vindi og stuðningi í hlaupinu. Sport 24.8.2025 10:35
„Horft illum augum á þannig taktík í hlaupaheiminum“ Íslandsmeistarinn Hlynur Andrésson segir það frekar ósmekklegt hvernig Portúgalinn José Sousa nýtti sér Hlyn sem skjól fyrir vindinum stærstan hluta Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka í gær. Sousa hafi þó verðskuldað sigurinn og Hlynur ekki átt sinn besta dag. Sport 24.8.2025 09:31
Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Fjölmargir einstaklingar og hópar hlupu til styrktar góðra málefna í Reykjavíkurmaraþoninu í dag en hinn fimmtán ára Magnús Máni Magnússon og hans fylgdarlið vöktu sérstaka athygli. Sport 23.8.2025 19:47
Miklar tilfinningar og mikil stemning í Reykjavíkurmaraþoninu Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í fertugasta sinn í dag. Aldrei hafa fleiri hlauparar verið skráðir til leiks né jafn mikill peningur safnast til góðgerðarmála. Viktor Freyr ljósmyndari var á staðnum og myndaði fólk að hlaupa og koma í mark. Lífið 23.8.2025 15:54
Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Halldóra Huld Ingvarsdóttir vann Íslandsmeistaratitilinn í maraþoni kvenna í dag eftir að hafa ákveðið á síðustu stundu að taka þátt. Hún eignaðist son í apríl síðastliðnum og hélt á honum í viðtali eftir að titillinn var í höfn. Sport 23.8.2025 12:30
Svekktur Íslandsmeistari: „Þetta var rosalega erfitt hlaup“ „Ég er ekki alveg nógu ánægður,“ sagði Hlynur Andrésson eftir að hafa orðið Íslandsmeistari í maraþoni í dag. Hann var nefnilega nokkuð langt frá brautarmetinu sem hann hugðist slá, í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka, í erfiðum aðstæðum í dag. Sport 23.8.2025 11:46