Ofbeldi gegn börnum

Vagnstjóri fylgdi ekki verklagi þegar stúlku var hótað nauðgun
Vagnstjóri Strætó fylgdi ekki verklagsreglum þegar ung stúlka tilkynnti honum fyrir tæpum tveimur vikum að sex drengir væru að áreita hana í vagninum. Framkvæmdastjóri Strætó segir að verklag verði ítrekað við vagnstjóra. Hann segir slík atvik eiga sér stað reglulega en að þeim hafi ekki farið fjölgandi.

Vildu mann grunaðan um brot gegn börnum framseldan frá Íslandi
Landsréttur hefur vísað máli frá dómi sem varðar erlendan mann dvaldi hér á landi sem er grunaður um kynferðisbrot gegn börnum á erlendri grundu. Ástæðan er sú að maðurinn fór af landi brott og því ekki á færi íslenskra stjórnvalda að aðhafast í máli hans. Síðastliðinn mánudag var hann handtekinn erlendis.

Ástralskur biskup ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn börnum
Ástralskur biskup hefur verið ákærður fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot, meðal annars gegn börnum. Christopher Saunders, 74 ára, var handtekinn í Broome á miðvikudag, eftir að sætt rannsókn af hálfu lögregluyfirvalda og Páfagarðs.

Vinsæll áhrifavaldur dæmdur fyrir að beita eigin börn ofbeldi
Sex barna móðir, sem öðlaðist vinsældir og frægð fyrir að deila uppeldisráðum á YouTube-rás sinni, hefur verið dæmd í fjögurra til 60 ára fangelsi fyrir illa meðferð á börnum.

Faðirinn ákærður fyrir ofbeldi gegn norsku hlaupabræðrunum
Norski frjálsíþróttaþjálfarinn Gjert Ingebrigtsen hefur verið ákærður af norsku lögreglunni fyrir að hafa beitt syni sína ofbeldi.

Flutti DVD-diska með barnaníðsefni til Íslands
Karlmaður hlaut í síðustu viku eins árs fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir vörslu barnaníðsefnis.

Skorti sönnunargögn gegn stjúpafa á Suðurlandi
Landsréttur hefur mildað dóm karlmanns sem stundaði það að taka myndir stjúpdóttur sinni og tveimur stjúpbarnabörnum ýmist nöktum eða klæðalitlum. Hann fékk fimmtán mánaða fangelsisdóm í héraði en Landsréttur taldi ekki sönnun komna fram hvað varðaði öll ákæruatriðin.

Starfsfólk eigi ekki að breytast í rannsóknarlögreglumenn
Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur hjá Barna- og fjölskyldustofu, segir áríðandi að allir sem vinni með börnum þekki einkenni þess að verið sé að beita barn ofbeldi eða tæla það.

Nýtti Snapchat til að freista fermingarstúlkna og nauðga þeim
Theódór Páll Theódórsson, þrítugur matreiðslumaður, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Hann þarf að greiða hvorri stúlkunni þrjár milljónir króna í miskabætur.

Ítalskur karlmaður handtekinn á Íslandi grunaður um barnaníð
Tæplega fimmtugur ítalskur karlmaður búsettur á Íslandi hefur verið handtekinn grunaður um að hafa brotið á að minnsta kosti fimmtíu ungum stúlkum.

Fjölskyldan lýsti áralöngu ofbeldi en ekki fallist á brot í nánu sambandi
Pólskur fjölskyldufaðir hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir og barnaverndarlagabrot gegn eiginkonu sinni og þremur börnum. Ekki var fallist á það með ákæruvaldinu að hann hefði gerst sekur um brot í nánu sambandi, þrátt fyrir að fjölskylda hans hafi lýst áralöngu ofbeldi af hans hálfu.

Óskar eftir því að dómur Hæstaréttar verði ræddur í nefnd
Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur óskað þess að allsherjar- og menntamálanefnd taki til umræðu nýjan dóm Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Brynjari Joensen Creed og hvort að breyta þurfi ákvæðum hegningarlaga til að vernda börn betur.

Vafasamt að dómari meti hvenær barn gefi samþykki fyrir kynmökum
Umboðsmaður barna hefur sent Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra bréf varðandi kynferðisbrot gegn börnum. Þar er því haldið fram að vafasamt sé að dómari leggi mat á það hvenær barn veiti samþykki fyrir kynmökum.

Zuckerberg bað fjölskyldur afsökunar á nefndarfundi í gær
„Mér þykir leitt allt það sem þið hafið þurft að ganga í gegnum... það er hræðilegt. Það á enginn að þurfa að upplifa þá þjáningu sem þið hafið upplifað.“

Dómur Brynjars stendur þó ekki sé fallist á að netbrot séu nauðgun
Kynferðisbrot þar sem gerandi og þolandi eru fjarri hvoru öðru og brotin fara fram í gegnum samfélagsmiðla eða samskiptaforrit teljast ekki til nauðgunar að mati Hæstaréttar. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar á hendur Brynjari Joensen Creed.

Grunaður um að brjóta á táningsstúlku og greiða henni fyrir
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot á fjórtán ára gamalli stúlku og fyrir að kaupa af henni vændi.

Fritzl fluttur í venjulegt fangelsi
Dómstóll í Austurríki samþykkti í morgun að flytja Josef Fritzl af réttargeðdeild í öryggisfangelsi í venjulegt fangelsi.

Tilkynningum um heimilisofbeldi til lögreglu fjölgað verulega
Ríkislögreglustjóri telur að aukin áherslu á rannsóknir heimilisofbeldismála og stuðning við brotaþola hafi leitt til mikillar fjölgunar tilkynninga um heimilisofbeldi. Þau eru nú tæplega helmingur allra ofbeldisbrota.

Sýknaður þrátt fyrir játningu um að binda niður barn og kitla það
Maður, sem var ákærður fyrir að brot á barnaverndarlögum með því að brjóta á tíu ára gömlum dreng, hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness. Atvikið sem málið varðar átti sér stað í desember 2021.

Nauðgað tveggja til níu ára: „Við þurfum samt líka að trúa strákunum“
„Reyndar veit ég ekki hvers vegna þetta hætti þegar ég var níu ára. Ég hef aldrei spurt hann að því.“

Ofbeldishrina tveggja táningspilta: „Við erum að fara að drepa ykkur alla“
Tveir táningspiltar voru sakfelldir í Héraðsdómi Norðurlands eystra í desember á nýliðnu ári fyrir fjölda brota líkt og líkamsárásir og hótanir.

Meira en 90 prósent barnaníðsefnis tekið upp af börnunum sjálfum
Meira en 90 prósent alls barnaníðsefnis sem finna má á internetinu er tekið af börnunum sjálfum. Börnin, sem eru neydd til að taka upp efnið, eru allt niður í þriggja ára gömul.

Dæmdur fyrir að ógna lífi dóttur, stjúpdóttur og barnsmóður sinnar
Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot gegn dóttur, stjúpdóttur og barnsmóður sinni. Í ákæru segir að maðurinn hafi ógnað lífi, heilsu og velferð kvennanna, en mörg brota hans áttu sér stað á heimili fjölskyldunnar í Reykjanesbæ.

Til þeirra sem eiga miða á Lúnu í Borgarleikhúsinu
Í ágúst hóf Borgarleikhúsið að auglýsa leiksýningu undir heitinu „Kvöldstund með Heiðari snyrti“. Leikverkið er eftir Tyrfing Tyrfingsson og um mitt síðasta ár lýsir hann því í fjölmiðlum að verkið sé unnið í samstarfi við Heiðar sjálfan enda löng vinátta þeirra á milli og Heiðar sé áhugaverður maður.

Fritzl mögulega fluttur úr öryggisfangelsi
Austurríski kynferðis- og ofbeldismaðurinn Josef Fritzl verður mögulega fluttur í almennt fangelsi eða á elliheimili. Fritzl hefur afplánað dóm sinn á réttargeðdeild í öryggisfangelsi frá því hann var handtekinn árið 2009.

Varlega skal farið í að „skipta um þjóð í þjóðinni“: Fyrri saga
Þegar ég var við nám í Svíþjóð 1976 til 1979.

Edda Björk dæmd í tuttugu mánaða fangelsi
Edda Björk Arnardóttir hefur verið dæmd í tuttugu mánaða fangelsi fyrir að nema börn sín á brott frá Noregi. Aðalmeðferð í máli Eddu Bjarkar fór fram í þingsréttinum í Þelamörk í desember og nú hefur norskur dómstóll kveðið upp dóm sinn.

Nýr veruleiki blasir við nemendum vestur í bæ
Ómar Örn Magnússon skólastjóri Hagaskóla segir að skólayfirvöld hafi fengið upplýsingar í gær um eitt tilvik þar sem nemandi villti á sér heimildir og seldi barnaníðingi falskar myndir af sér.

Rannsaka umskurð í heimahúsi á Akureyri
Lögreglan á Norðurlandi eystra er með til rannsóknar hvort drengur á öðru aldursári hafi verið umskorinn í heimahúsi á Akureyri haustið 2022.

Jakkafataklæddi níðingurinn í Volkswagen-bílnum
Jóhann Hlíðar Harðarson fréttamaður birti sláandi frásögn af því þegar hann varð fyrir barðinu á barnaníðingi í búningsklefa gamla Hálogalands. Viðbrögðin hafa verið mikil.