
Ofbeldi gegn börnum

Bretar hindra útsendingu frá erindi eftirlýsts umboðsmanns barna
Bretar hafa beitt neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir að sent verði út frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem umboðsmaður barna í Rússlandi mun flytja erindi í gegnum fjarfundarbúnað.

Maðurinn sem rændi Cleo Smith dæmdur í þrettán ára fangelsi
Terence Kelly, 37 ára, hefur verið dæmdur í þrettán ára og sex mánaða fangelsi fyrir að hafa rænt hinni fjögurra ára Cleo Smith þar sem hún svaf í tjaldi ásamt fjölskyldu sinni á tjaldsvæði í Vestur-Ástralíu.

Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi
Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár.

Líta verði á börn sem fjárfestingu en ekki kostnað
Nauðsynlegt er að líta á börn sem fjárfestingu til framtíðar en ekki sem kostnað, þetta segir barnamálaráðherra. Ráðstefna um málefni barna fer nú fram í samvinnu Evrópuráðsins og mennta- og barnamálaráðuneytisins.

Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn
Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið.

Þrjár ungar stúlkur ákærðar fyrir líkamsárás og frelsissviptingu
Þrjár stúlkur, tólf, þrettán og fjórtán ára, hafa verið ákærðar fyrir að hafa tælt þrettán ára stelpu á ótilgreint heimili í Ástralíu, svipt hana frelsi sínu og beitt hana ofbeldi. Athæfið mun hafa verið tekið upp á myndband.

Fékk unga stelpu til að senda sér nektarmyndir
Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að senda ungri stúlku nektarmyndir, fá hana til að senda sér kynferðislegar myndir áður en hún náði fimmtán ára aldri, fyrir að hafa viðhaft klúrt, lostugt og óviðeigandi orðbragð við hana og fyrir að biðja hana um að kyssa sig í bifreið sinni á fáförnum vegi.

10 ár frá lögfestingu Barnasáttmálans
13. mars 2023 eru liðin 10 ár frá því að Barnasáttmálinn varð að lögum á Íslandi. Til hamingju kæru börn og við öll, með 10 ára afmæli lögfestingarinnar!

Sérstöku landsteymi ætlað að bregðast við erfiðari málum strax
Á fimmta hundruð manns tóku þátt í svokölluðum þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu í Hörpu í dag, þar sem ný heildarlöggjöf í málaflokknum er væntanleg. Mennta- og barnamálaráðherra segir þau hafa skort löggjöf og stofnun til að aðstoða kerfið við að bregðast við áskorunum en við því sé verið að bregðast. Hann mun koma á fót landsteymi á næstu dögum sem er ætlað er að taka á erfiðum málum.

„Af hverju í ósköpunum fær þessi maður að endurtaka þetta aftur og aftur?“
Móðir drengs sem var í hóp þeirra sem maður sat um og réðst á í síðustu viku eftir að þeir höfðu gert dyraat á heimili hans, segir málið galið og grafalvarlegt. Hún er hrædd um að álíka atvik muni koma fyrir aftur, verði ekkert aðhafst. Maðurinn dró einn drengjanna inn til sín og hélt honum föngnum í tíu mínútur eða þar til faðir annars drengs braut rúðu á útidyrahurð mannsins til að komast inn og ná drengnum út.

Kærður fyrir líkamsárás gegn dreng sem gerði dyraat
Karlmaður í Reykjanesbæ hefur verið kærður fyrir frelsissviptingu og líkamsárás gegn barni. Maðurinn er sakaður um að hafa setið fyrir hópi ellefu ára drengja sem gerði dyraat á heimili hans, ráðist að einum drengjanna og læst hann inni.

Sló son sinn ítrekað með belti
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi karlmann í síðustu viku í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir brot í nánu sambandi með því að beita son sinn ítrekuðum og endurteknum líkamlegum refsingum. Maðurinn sló son sinn með belti, ýmist á bak, rass, maga, eða iljar hans.

Skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn blygðunarsemi
Héraðsdómur Norðurlands eystra dæmdi fyrr í þessum mánuði tvítugan karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn blygðunarsemi stelpu sumarið 2021. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa fengið sáðlát yfir andlit konunnar gegn hennar vilja. Maðurinn var nítján ára þegar atvikið átti sér stað en stúlkan nýorðin sextán ára.

Sneri við sakfellingu stjúpmóður fyrir mansal
Landsréttur sneri á föstudag löngum fangelsisdómi héraðsdóms yfir konu fyrir mansal með því að hafa neytt þrjú stjúpbörn sín til nauðungarvinnu. Málið var það fyrsta í rúman áratug þar sem sakfellt var fyrir mansal.

Móðir viðmælanda Eigin kvenna í mál við Eddu Falak
Móðir konu sem rætt var við í hlaðvarpsþættinum Eigin konur hefur höfðað mál gegn þáttastjórnanda þáttanna, Eddu Falak. Hún vill meina að upptökur sem spilaðar voru í þættinum hafi verið teknar án hennar vitundar.

Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi
Að minnsta kosti 6.000 börn frá Úkraínu hafa verið send í svokallaðar „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi, með það að markmiði að heilaþvo þau með rússneskum áróðri. Hundruð barna var haldið í búðunum í margar vikur eða mánuði.

Börn mega og geta tilkynnt sjálf um ofbeldi á neti
Öll viljum við hjálpa börnum sem beitt eru ofbeldi og áreiti og helst af öllu koma í veg fyrir það með öllu. En ef og þá þegar börn verða fyrir ofbeldi og áreiti verða þau að hafa greiða leið til að segja frá því, kalla eftir aðstoð og fá hjálp.

Ertu að bjóða barnaníðingum heim til þín?
Með nútímavæðingu þjóðfélagsins, og tilkomu internetsins og samfélagsmiðla, hafa leiðir til að stunda barnaníð orðið fjölbreyttari. Hafa aðferðirnar til barnaníðs einnig þróast í takt við tímann og orðið rafrænni en áður.

Ár í fangelsi fyrir að hafa ítrekað berað sig fyrir börnum
Landsréttur staðfesti í dag eins árs óskilorðsbundinn fangelsisdóm yfir manni á áttræðisaldri. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa ítrekað berað sig fyrir börnum á leikvelli fyrir framan heimili hans.

Móður sem misþyrmdi þremur af fjórum dætrum hafnað af Hæstarétti
Hæstiréttur hefur hafnað málskotsbeiðni móður sem sakfelld var fyrir að misþyrma þremur af fjórum dætrum hennar.

Franska liðið í sjokki eftir að upp komst um barnaníðinginn
Bruno Martini, fyrrverandi markvörður franska handboltalandsliðsins, hefur verið dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi fyrir barnaníð. Nikola Karabatic segir það vissulega hafa verið áfall fyrir leikmenn landsliðsins að heyra þær fréttir, á miðju heimsmeistaramóti.

Hvað myndirðu gera ef barnið þitt kæmi heim með sýnilega áverka?
Sem betur fer reyna langflestir foreldrar allt sem þau geta til að vernda og verja börnin sín fyrir því sem veldur þeim skaða. Börnum af minni kynslóð var til dæmis kennt að varast ókunnuga á götum úti, fara aldrei upp í bíl með ókunnugum og svo auðvitað var stúlkum kennt að passa sig og setja sig ekki í aðstæður sem gætu leitt af sér ofbeldi. Það heppnaðist ekki alltaf, en það voru verkfærin sem foreldrar okkar höfðu. Óþokkar í myrkum húsasundum voru óöryggið og óttinn sem bar að varast.

STOPP ofbeldi - Með góðri fræðslu getum við hjálpað til við að rjúfa þögnina!
Stafræn tækni er komin til að vera með öllum sínum kostum og göllum og því hefur aldrei verið jafn mikilvægt og nú að taka samtalið við börn um stafræn samskipti.

Misnotaði litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misnota litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár, frá því að stúlkan var ellefu ára gömul þar til hún var átján ára. Maðurinn braut meðal annars á stúlkunni á meðan að sambúðarkona hans, systir stúlkunnar, lá í sama rúmi og þau.

Þórarinn segist hafa mátt þola hrottalegt ofbeldi kennslukonu
Þórarinn Ævarsson athafnamaður opnar sig um hrottalegt ofbeldi sem hann segir umsjónarkennara sinn í barnaskóla hafa beitt sig og fleiri bekkjarfélaga sína í barnaskóla.

Skilorðsbundin refsing fyrir vörslu grófs teiknaðs barnakláms
Karlmaður var á dögunum dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa haft í vörslum sínum þónokkuð magn teiknaðs barnaníðsefnis. Í dómi segir að efnið hafi verið af afar grófu tagi.

Stöðvaður við akstur og reyndist með gróft barnaníðsefni í símanum
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann, sem handtekinn var vegna umferðarlagabrots á Akureyri í júní 2019, fyrir að hafa haft mikið magn barnaníðsefnis í sinni vörslu í tveimur símum og spjaldtölvu. Maðurinn hafði sömuleiðis dreift efni til ótilgreindra einstaklinga.

Meintur gerandi fái vernd á meðan brotaþoli og fjölskylda sitja í djúpum sárum
Réttargæslumaður fimmtán ára stúlku, sem sakaði stjúpföður sinn um ítrekað og gróft kynferðisofbeldi, segir ekki boðlegt að réttarkerfið geti ekki unnið úr málum án þess að valda brotaþolum skaða. Stúlkan hafi þurft að bíða í nærri tvö ár án ákæru og lögreglan á þeim tíma afhent manninum síma brotaþola. Maðurinn nýtur nú verndar í formi nálgunarbanns.

Fylgdarmaður Idol-keppanda reyndist dæmdur kynferðisbrotamaður
Stjórnendur Idol stjörnuleitar, sem nú er til sýninga á Stöð 2 við miklar vinsældir, þurftu að bregðast skjótt við eftir að áhorfandi setti sig í samband við Stöð 2 og benti þeim á að fylgdarmaður eins keppandans væri dæmdur kynferðisbrotamaður.

Þyngri refsing í kynferðisbrotamáli til kasta Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni ríkissaksóknara í máli manns sem sakfelldur var fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni. Málið snýst um hvort að Landsrétti hafi verið heimilt að þyngja refsingu mannsins eftir að mál hans var endurupptekið vegna Landsréttarmálsins svokallaða.