
Ofbeldi gegn börnum

Hafðu áhrif á líf barna
Ofbeldi gegn börnum á ekki að líðast í okkar samfélagi. En það er samt sem áður sorgleg staðreynd að börn verða fyrir kynferðisofbeldi, eru lögð í einelti eða búa við erfiðar heimilisaðstæður. Það er því enn brýn þörf á að minna á að við sem samfélag verðum að taka höndum saman og koma í veg fyrir slíkt eða tryggja að það gerist ekki aftur.

Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku
Kolbeinn Sigþórsson hefur verið ákærður fyrir alvarlegt kynferðisbrot gegn barnungri stúlku. Kolbeinn neitar sök, en meint brot á að hafa verið framið í júní fyrir tveimur árum.

Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd
Ingi Valur Davíðsson, Ólafsfirðingur á fertugsaldri, hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga sextán ára stjúpdóttur æskuvinar síns.

Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans
Karlmaður hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að nauðga pilti undir lögaldri. Pilturinn hafði ætlað að koma upp um barnaníðing eftir að hafa horft á fréttaskýringaþáttinn Kompás, þar sem barnaníðingar voru veiddir með notkun tálbeita.

Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum
Fyrrverandi kennari í Ástralíu sem var dæmdur í fangelsi fyrir að hafa brotið á nemanda sínum hefur áfrýjað dómnum og vill fá hann felldan úr gildi þar sem hún er kona.

Réðst á barn sem gerði dyraat
Karlmaður hefur hlotið þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast að ungum dreng.

Höfðu afskipti af barnaníðingi í Dalslaug
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af dæmdum barnaníðingi í Dalslaug í Úlfarsárdal fyrr í dag. Maðurinn sótti laugina á skólatíma og var lögregla kölluð á vettvang.

Ætla að fæla barnaníðing úr sundlauginni
Skólastjórinn í Dalskóla í Úlfarsárdal hefur varað foreldra og forráðamenn barna í skólanum við dæmdum kynferðisbrotamanni sem leitar í Dalslaug á skólatíma. Hann spjalli reglulega við drengi í skólasundi. Allt kapp verði lagt á að fæla manninn frá sundlauginni.

Kennari sem sló barn fær milljónir
Hæstiréttur hefur dæmt Dalvíkurbyggð til þess að greiða konu tæpar ellefu milljónir króna í skaða- og miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar. Konan var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir veita þrettán ára stúlku kinnhest.

Dæmdur fyrir að skamma níu ára dreng sem hrinti syni hans
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir barnaverndarlagabrot. Hann var sakfelldur fyrir að taka harkalega í níu ára dreng sem hafði verið að stríða syni hans.

Börn fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju
Verkefnastjóri forvarna hjá borginni segir áhyggjuefni að hópamyndun unglinga við verslunarkjarna og víðar hafi aukist. Neikvæðar hliðar þessa séu ofbeldi og neysla vímuefna. Dæmi séu um að börn hafi fundist meðvitundarlaus eftir landadrykkju.

Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns
Maður var í gær sýknaður af ákæru um líkamsárás og barnaverndarlagabrot í Héraðsdómi Reykjaness. Honum var gefið að sök að hafa beitt barn líkamlegum refsingum og sýnt af sér ruddalega háttsemi í garð þess í sameiginlegu húsnæði þeirra að Ásbrú.

Í góðri trú þegar hún kallaði mann nauðgara með barnagirnd
Landsréttur hefur sýknað konu af kröfum manns sem höfðaði mál á hendur henni, vegna ærumeiðandi ummæla í einkaskilaboðum og Facebook-hópi. Fallist var á að ummælin, sem sneru að því að maðurinn væri nauðgari og með barnagirnd, væru ærumeiðandi en að konan hafi verið í góðri trú.

Skólaliði grunaður um að mynda börn í búningsklefa
Mál starfsmanns Laugarnesskóla í Reykjavík, sem handtekinn var um miðjan október síðastliðinn, er komið á borð ákærusviðs. Hann starfaði sem skólaliði við skólann og er grunaður um kynferðisbrot með því að taka myndir í búningsklefa ungra drengja.

„Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“
Síðustu mánuði hefur Drífa Jónasdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, unnið að því að búa til samræmt verklag fyrir alla heilbrigðisstarfsmenn til að fylgja þegar til þeirra leita einstaklingar sem hafa sætt heimilisofbeldi. Verklagið er tilbúið en forritarar hanna nú rafrænt skráningarkerfi svo hægt sé að koma því í prófun og svo framkvæmd.

Um 280 börnum rænt í bænum Kuriga í Nígeríu
Byssumenn á mótorhjólum hafa rænt yfir 280 skólabörnum í bænum Kuriga í Kaduna í Nígeríu. Nemendurnr höfðu safnasta saman á samkomustað í gær þegar mennirnir mættu vopnaðir á svæðið og tóku börnin með sér og einn kennara.

Skýr merki um að Hamas hafi beitt konur og börn kynferðisofbeldi
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í málefnum er varða kynferðisofbeldi í átökum segir skýr merki um að konum og börnum í haldi Hamas-samtakanna hafi verið nauðgað og þau beitt kynferðislegum pyntingum.

Fjárkúgun erlendra glæpahópa á íslenskum drengjum eins og útgerð
Lögfræðingur hjá ríkislögreglustjóra segir málum þar sem ungir drengir eru fjárkúgaðir með hótunum um dreifingu á nektarmyndum hafa fjölgað. Skipulagðir erlendir glæpahópar standa oft að baki fjárkúguninni.

Drengir plataðir og kúgaðir eftir að þeir senda af sér nektarmyndir
Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu merkir fjölgun í svokölluðum sæmdarkúgunarmálum [e. sextortions] meðal ungra manna og drengja á Íslandi. Lögreglan er með nokkur slíkt mál til rannsóknar að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, yfirmanns deildarinnar.

Nauðgaði sautján ára stúlku í leigubíl á Reykjanesbrautinni
Abdul Habib Kohi hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar, fyrir að hafa nauðgað sautján ára stúlku í leigubíl sínum þegar hann ók henni heim.

Skýringar manns sem greiddi táningsstúlku fyrir kynmök fráleitar
Ungur maður hefur hlotið tveggja ára fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að hafa samræði við táningsstúlku í sjö skipti og greiða henni fyrir það. Brotin sem málið varðar áttu sér stað frá október 2021 til janúar 2022, en þá var stúlkan fjórtán ára, en maðurinn verið tæplega tvítugur.

Vagnstjóri fylgdi ekki verklagi þegar stúlku var hótað nauðgun
Vagnstjóri Strætó fylgdi ekki verklagsreglum þegar ung stúlka tilkynnti honum fyrir tæpum tveimur vikum að sex drengir væru að áreita hana í vagninum. Framkvæmdastjóri Strætó segir að verklag verði ítrekað við vagnstjóra. Hann segir slík atvik eiga sér stað reglulega en að þeim hafi ekki farið fjölgandi.

Vildu mann grunaðan um brot gegn börnum framseldan frá Íslandi
Landsréttur hefur vísað máli frá dómi sem varðar erlendan mann dvaldi hér á landi sem er grunaður um kynferðisbrot gegn börnum á erlendri grundu. Ástæðan er sú að maðurinn fór af landi brott og því ekki á færi íslenskra stjórnvalda að aðhafast í máli hans. Síðastliðinn mánudag var hann handtekinn erlendis.

Ástralskur biskup ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn börnum
Ástralskur biskup hefur verið ákærður fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot, meðal annars gegn börnum. Christopher Saunders, 74 ára, var handtekinn í Broome á miðvikudag, eftir að sætt rannsókn af hálfu lögregluyfirvalda og Páfagarðs.

Vinsæll áhrifavaldur dæmdur fyrir að beita eigin börn ofbeldi
Sex barna móðir, sem öðlaðist vinsældir og frægð fyrir að deila uppeldisráðum á YouTube-rás sinni, hefur verið dæmd í fjögurra til 60 ára fangelsi fyrir illa meðferð á börnum.

Flutti DVD-diska með barnaníðsefni til Íslands
Karlmaður hlaut í síðustu viku eins árs fangelsisdóm, skilorðsbundinn til þriggja ára, í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir vörslu barnaníðsefnis.

Skorti sönnunargögn gegn stjúpafa á Suðurlandi
Landsréttur hefur mildað dóm karlmanns sem stundaði það að taka myndir stjúpdóttur sinni og tveimur stjúpbarnabörnum ýmist nöktum eða klæðalitlum. Hann fékk fimmtán mánaða fangelsisdóm í héraði en Landsréttur taldi ekki sönnun komna fram hvað varðaði öll ákæruatriðin.

Starfsfólk eigi ekki að breytast í rannsóknarlögreglumenn
Þorbjörg Sveinsdóttir, sálfræðingur og sérfræðingur hjá Barna- og fjölskyldustofu, segir áríðandi að allir sem vinni með börnum þekki einkenni þess að verið sé að beita barn ofbeldi eða tæla það.

Nýtti Snapchat til að freista fermingarstúlkna og nauðga þeim
Theódór Páll Theódórsson, þrítugur matreiðslumaður, hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn unglingsstelpum, vændiskaup og vörslu barnaníðsefnis. Hann þarf að greiða hvorri stúlkunni þrjár milljónir króna í miskabætur.

Ítalskur karlmaður handtekinn á Íslandi grunaður um barnaníð
Tæplega fimmtugur ítalskur karlmaður búsettur á Íslandi hefur verið handtekinn grunaður um að hafa brotið á að minnsta kosti fimmtíu ungum stúlkum.