Heilbrigðismál

Fara með Intuens-málið fyrir dómstóla sem gæti reynst afdrifaríkt
Sjúkratryggingar Íslands hyggjast fara með niðurstöðu nýs úrskurðar, þar sem lögð var fjörutíu milljóna sekt á stofnunina vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, fyrir dómstóla. Forstjóri stofnunarinnar segir að málið gæti reynst afdrifaríkt. Hann hafnar ásökunum um mismunun.

Læknar fresta verkfalli
Læknafélag Íslands hefur tilkynnt læknum að það muni boða til nýs verkfalls með þeim hætti sem ríkið telur að sé löglegur. Hver vinnustaður lækna kjósi um verkföllin og þau muni ná til Landspítalans alls. Félagið ætlar því ekki að láta málið fara fyrir Félagsdóm af ótta við að niðurstaðan muni seinka verkfallinu fram í desember.

Gott umhverfi er gott fyrir okkur
Nú í aðdraganda alþingiskosninga er mikið talað um húsnæðismál og þá einkum í því samhengi að gera þurfi gangskör að uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Að ekki sé nægjanlega mikið byggt og íbúðaverð of hátt. Sumir vilja brjóta nýtt land undir íbúðabyggð og telja landrými nægjanlegt. Aðrir tala fyrir þéttingu byggðar. Eiginlega allir vilja byggja hratt og helst hagkvæmt fyrir almenning og/eða uppbyggingaraðila.

Gjafakynfrumur- dýrmæt gjöf
Mikið er barnið líkt pabba sínum. Vá, það er með augn svipinn hennar mömmu sinnar. Heyrðu, þessi litli einstaklingur er alveg eins og afi sinn, eða amma.

Sjúkratryggingar sektaðar um 40 milljónir: „Hér er verið að mismuna fyrirtækjum“
Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða 41 milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Framkvæmdastjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni.

Þrjú börn á gjörgæslu og eitt í öndunarvél
Þrjú börn eru enn á gjörgæslu á Landspítalanum vegna E.coli-sýkingar sem kom upp á leikskólanum Mánagarði. Eitt barnið er í öndunarvél. Sjö börn til viðbótar liggja inni á almennri deild vegna sýkingarinnar.

Stöndugur efnahagur og sterk velferð – undirstaða hvors annars
Það er margt sem betur má fara í íslensku samfélagi, en heilt yfir einkennist samfélagið af mikilli innviðaskuld. Því lengur sem dregst að bæta þar úr, þeim mun erfiðara og dýrara verður það.

Dó í 33 mínútur og 3 sekúndur
Það eru ekki margir sem státa af þeirri reynslu að hafa dáið og komið aftur til lífs. Og það eru líklega enn færri sem geta sagt að þeir gangi bókstaflega fyrir rafhlöðum. Þorvaldur Sigurbjörn Helgason er einn af þeim.

Afstaða ríkisins hleypi illu blóði og hörku í viðræðurnar
Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands óttast að afstaða ríkisins gagnvart verkfallsboðun lækna muni hleypa illu blóði og aukinni hörku í kjaraviðræðurnar. Ríkið telur að verkfallsboðunin sé ólögmæt. Steinunn segir að verið sé að þrýsta læknum í harðari aðgerðir.

Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga
Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn en við tók löng bið eftir að hitta lækni.

Ríkið telur ólöglega boðað til verkfalls lækna
Íslenska ríkið telur að boðun Læknafélags Íslands á verkfalli lækna sem hefjast á þann 18. nóvember sé ólögmæt. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem nú stendur yfir í höfuðstöðvum félagsins í Hlíðarsmára.

Rétt meðhöndlun hakksins hefði komið í veg fyrir veikindi
Framkvæmdastjóri Kjarnafæðis segir fyrirtækið hafa átt í nánum samskiptum við MAST allt frá því að E. coli smit kom upp á leikskólanum Mánagarði. Það sé miður að fjöldi barna hafi veikst en með réttri meðhöndlun á hakkinu hefði verið hægt að koma í veg fyrir það.

Uppruni smitsins var hakk frá Kjarnafæði
Rannsóknir Matís á uppruna E.coli smits á leikskólanum Mánagarði hafa staðfest að bakterían var í hakki sem var matreitt á leikskólanum. Niðurstaða rannsóknarinnar er að meðhöndlun hakksins á leikskólanum var ekki fullnægjandi með tilliti til hreinlætis.

Uppbygging heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni: Er það á stefnuskránni fyrir þessar kosningar?
Í aðdraganda kosninga á pistill Ágústar Kr. Steinarssonar á Vísi frá því 25. október 2024 (Hvað með afköst ríkisins? - Vísir) vel við sem og hans vangaveltur varðandi forgangsmál frambjóðenda á næsta kjörtímabili.

Börnin okkar á biðlistunum
Á mánudaginn síðastliðinn varð alvarlegt bílslys á Reykjanesbrautinni og umferð stöðvuð á meðan verið var að hlúa að fólki og koma slösuðum á sjúkrahús. Þennan veruleika þekkjum við sem eigum þarna leið um nær daglega.

Mikið vinnuálag til að ná launum upp sem læknir
Formaður Læknafélags Íslands segir að það virði sem læknar skili út í samfélagið, skili sér ekki til baka í launaumslaginu. Launin geti verið há, en þá liggi mjög mikið vinnuálag að baki.

„Tifandi tímasprengjur“ á leið út í samfélagið
Hættulegir fangar sem losna úr fangelsi á næstunni eru eins og tifandi tímasprengjur vegna ágreinings um hver eigi að veita þeim stuðning, að sögn geðhjúkrunarfræðings. Maður sem varað var við að væri líklegur til að brjóta af sér aftur er sagður grunaður um líkamsárás og nauðgun skömmu eftir að hann lauk afplánun.

Læknar á leið í verkfall
Félagsmenn í Læknafélagi Íslands hafa samþykkt að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Atkvæðagreiðslu lauk klukkan fjögur og samþykktu 93 prósent verkfallsaðgerðir.

Á ekki von á að þeim fjölgi sem þurfi innlögn vegna E.coli
Eitt barn var útskrifað af gjörgæslu í gær og fjögur liggja þar inni vegna Ecoli sýkingar. Yfirlæknir segist ekki eiga von á að þeim fjölgi mikið sem þurfi að leggjast inn vegna sýkingarinnar.

Fá greitt 150 þúsund krónum minna en læknar í sömu stöðu
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Fíh, hefur sent inn kæru til Kærunefndar jafnréttismála vegna þess að forstöðuhjúkrunarfræðingar á tveimur sviðum Landspítalans fá greidd um 150 þúsund krónum lægri laun en forstöðulæknar á sömu sviðu.

Matráður segir upp á Mánagarði
Matráður leikskólans Mánagarðs þar sem upp kom svæsin E.coli-sýking í síðustu viku hefur sagt upp störfum. Leikskólinn verður lokaður út vikuna.

Eitt barn útskrifað af gjörgæslu
Eitt barn hefur verið útskrifað af gjörgæslu Landspítalans vegna E. coli sýkingarinnar sem greindist á leikskólanum Mánagarði í síðustu viku. Ellefu eru inniliggjandi og enn fjögur á gjörgæslu. Greint er frá á vef RÚV. Rannsókn á E.coli smiti á leikskólanum Mánagarði beinist aðallega að mati sem börnin neyttu þann 17. október. Þá fengu börnin hafragraut, spaghettí og melónur í kaffitímanum.

Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna
Félag íslenskra heimilislækna hefur sent á félagsmenn sína og stjórnvöld ályktun og tilmæli um að heimilislæknar muni ekki gefa út svokölluð „fit to fly“ vottorð fyrir hælisleitendur sem á að vísa úr landi. Þau telji þau það stríða gegn siðareglum lækna og mannréttindasáttmálum. Þau vilja að reglugerð um vottorðin sé breytt.

Vekur athygli á einkennum heilaslags í minningu móður sinnar
Móðir Birnu Drafnar Jónasdóttur lést af völdum heilaslags. Birna starfar í dag að innleiðingu FAST aðferðar sem kennir börnum hver einkenni heilaslags eru. Heilaslag er ein af algengustu dánarorsökunum á Vesturlöndum.

Heilbrigðiskerfi okkar allra
Öll höfum við persónulega reynslu af heilbrigðiskerfinu og við viljum að það virki vel þegar við þurfum á að halda, það veitir okkur öryggi.

Algengt neyðartilfelli
Heilaslag er algengt neyðartilfelli sem ber að bregðast við án tafar. Ef heilaslag á sér stað er mikilvægt að einstaklingur komist á spítala sem fyrst því læknismeðferð þarf að veita innan ákveðins tímaramma. Á hverri mínútu eftir að slag á sér stað deyja tæplega tvær milljónir heilafruma.

Færri börn undir eftirliti vegna E.coli en enn fimm á gjörgæslu
Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir á ekki von á því að niðurstöður úr rannsókn á uppruna E.coli smits á Mánagarði liggi fyrir fyrr en í fyrsta lagi við lok vikunnar eða um helgina. Leikskólinn er enn lokaður. Tíu börn eru undir undir eftirliti á bráðamóttöku Barnaspítalans eins og er samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Auk þess eru tíu börn inniliggjandi, þar af eru fimm á deild og fimm á gjörgæslu.

„Þann 9. ágúst létust ekki bara tveir bræður“
Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar segir það ekki að ósekju að vímuefnasýki sé kölluð fjölskyldusjúkdómur. Öll fjölskyldan og nánustu aðstandendur finni fyrir afleiðingum neyslunnar.

Föðurlaus börn og fjölskyldusjúkdómurinn
Það er ekki að ósekju að áfengis og vímuefnasýki sé kölluð fjölskyldusjúkdómur. Það er ekki bara sá veiki sem þjáist, öll fjölskyldan og jafnvel vinir finna mikið fyrir afleiðingum neyslunnar.

Fimm börn alvarlega veik á gjörgæslu vegna E.coli sýkingar
Alls eru nú tíu börn inniliggjandi á Landspítalanum vegna E.coli sýkingar. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eru þar af fimm þeirra á gjörgæslu. Um 40 börn eru undir eftirlit vegna sýkingarinnar. E. Coli sýking getur leitt til alvarlegar nýrnabilunar og því eru börn sem eru á gjörgæslu í blóðskilun.