

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis bjóða til upplýsingafundar í Björgunarmiðstöðinni að Skógarhlíð 14 klukkan 14 í dag.
Landhelgisgæslan herðir allt eftirlit með komu farþega skipa til landsins að sögn forstjóra. Von er á fyrsta skipinu til Reykjavíkur á morgun með yfir 2000 manns. Alls er gert ráð fyrir að tæplega þrjúhundruð þúsund manns komi til Reykjavíkur með skemmtiferðaskipum á þessu ári
Ástrós Magnúsdóttir segir að margir þekki ekki eftirheilahristingseinkenni. Hún fékk höfuðhögg í nóvember árið 2018 og er enn að glíma við afleiðingarnar.
Heilbrigðisráðherra segir útbreiðslu kórónuveirunnar áhyggjuefni en heilbrigðisyfirvöld séu vel undirbúin útbreiðslu veirunnar á Íslandi.
Félagsmenn stéttarfélagsins Sameykis og Sjúkraliðafélags Íslands sem starfa á Landspítalanum og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins munu ekki taka þátt í fyrirhuguð verkfalli nú eftir helgi. Ástæðan er útbreiðsla COVID-19 kórónuveirunnar.
Kona sem hefur verið í sóttkví ásamt eiginmanni sínum eftir ferð frá Norður-Ítalíu segist meta lífsgæði sín betur en áður. Hún segir viðbrögð fólks mismunandi, sumir hlæi af einangrunni en stundum líði henni eins og hún sé holdsveik. Mannauðsstjórar segja brýnt að fyrirtæki undirbúi að starfsfólk geti unnið heima.
Staðfest smittilfelli eru nú 45.
Tekið hefur verið fyrir heimsóknir á Landspítalann til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. Aðstoðarmaður forstjóra spítalans segir lokað verði fyrir heimsóknir á meðan neyðarstig almannavarna er í gildi, og jafnvel lengur.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir alveg víst að Íslendingarnir sem smitaðir eru af kórónuveirunni eftir dvöl í Ischgl í Tyrol í Austurríki hafi smitast áður en það steig upp í flugvélina á leiðinni heim.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis og Landhelgisgæsla Íslands bjóða til upplýsingafundar fyrir blaðamenn í Björgunarmiðstöðinni í Skógarhlíð í dag.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, embætti landlæknis og Landhelgisgæsla Íslands hafa boðað til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 15 í dag.
Alls voru fjögur ný kórónuveirusmittilfelli greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær.
Íslendingar sem segjast hafa miklar áhyggjur af útbreiðslu kórónaveirunnar eru örlítið fleiri en þeir sem segjast hafa litlar áhyggjur.
Framkvæmdir standa nú yfir fyrir utan bráðadeild Landspítalans í Fossvogi. Verið er að koma upp öðrum gámi sem ætlaður er fyrir móttöku sjúklinga sem grunaðir eru um kórónuveirusmit.
Kórónaveiran COVID-19 hefur notið mikillar athygli fjölmiðla að undanförnu og vel um það fjallað hvernig varast beri smit.
Átta smit til viðbótar hafa greinst á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans það sem af er degi.
Yfirlæknir smitsjúkdómalækninga Landspítalans segir að ný kínversk rannsókn, þar sem varpað var ljósi á stökkbreytingu kórónuveirunnar snemma í útbreiðsluferlinu, hafi ekki grundvallarþýðingu fyrir framvindu veirunnar.
Þórunn Sveinbjörnsdóttir segir eldri borgara verða 45 þúsund í árslok og óttast ekki að kórónuveiran höggvi skörð í hópinn.
Sóttvarnalæknir, landlæknir og ríkislögreglustjóri hafa lýst yfir áhyggjum vegna verkfalla, sem standa nú yfir og eru einnig yfirvofandi.
Álagið á veirufræðideild Háskóla Íslands er með því mesta sem hefur verið vegna kórónuveirunnar. Starfsmaður segir andrúmsloftið hafa verið spennuþrungið þegar fyrsta smitið greindist hér á landi.
Baldur Hermannsson heldur því fram að yngra fólki þyki ekkert verra þó kvarnist úr hópi eldri borgara.
Læknafélag Íslands hefur frestað fundum sem fara áttu fram á vegum félagsins í kvöld og á morgun vegna kórónuveirunnar.
Tekin hefur verið ákvörðun um að fresta ársfundi Samorku, sem fram átti að fara í næstu viku.
Forstjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) tók mið af COVID-19 þegar hann sagði á upplýsingafundi á dögunum að heimsbyggðin stæði frammi fyrir áður óþekktum kringumstæðum.
„Þetta tók samtals tólf sekúndur,“ sagði Ólafur Þór Gunnarsson, þingmaður Vinstri grænna, um leið og hann hafði lokið sér af við að maka handspritti á hendur sínar í pontu Alþingis.
Ragnar Þór Ingólfsson segir bæklinga í flugvélum stórvarasama.
Tala smitaðra hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins sem geisar er komin í tuttugu manns. Fjögur sýni hafa greinst jákvæð í dag. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu.
Landsvirkjun hefur ákveðið að fresta ársfundi fyrirtækisins sem var á dagskrá á morgun, 5. mars. Ástæðan er varúðarráðstafanir vegna kórónuveirunnar.
Tala smitaðra hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins sem nú geisar stendur nú í sextán manns, en tveir bættust í hópinn seint í gærkvöldi.
"Lokamarkmiðið er það að þegar hópar sem rannsóknir sýna að eru viðkvæmastir fyrir þessu og eru veikastir að okkur takist að veita þeim sem besta þjónustu þegar þeir þurfa á því að halda,“ segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra.