
Heilbrigðismál

Alda Karen segist njóta víðtæks stuðnings fagfólks
Alda Karen hefur verið gagnrýnd harðlega fyrir umdeild ummæli sín um lausn við sjálfsvígum.

Þykir siðferðilega rangt að selja fólki lífslausnir gegn greiðslu
Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur og Alda Karen Hjaltalín fyrirlesari mættu í Kastljós í kvöld þar sem ummæli Öldu Karenar í viðtali í Íslandi í dag voru rædd. Ummælin sem um ræðir sneru að sjálfsvígum.

„Maður segir ekki „þú ert nóg“ við einhvern sem er þunglyndur“
Þá leggur Salbjörg Bjarnadóttir verkefnisstjóri hjá Embætti landlæknis leggur áherslu á að alla umræðu um sjálfsvíg þurfi að nálgast af mikilli ábyrgð.

Sunna Snædal formaður vísindasiðanefndar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur skipað sjö manna vísindasiðanefnd til næstu fjögurra ára.

Byltingarkennd meðferð við augnþurrki sem stafar af vanvirkum fitukirtlum
Allt að þriðjungur fólks yfir fimmtugu þjáist af augnþurrki en meðal þess sem veldur þurrkinum er augnháramítill. Ný byltingarkennd aðferð við augnþurrki hefur verið tekin í notkun hér á landi en allir þeir sem hafa farið í meðferðina hingað til hafa náð einhverjum bata.

Sveitarstjóri fundar með stjórn HSU vegna fækkunar sjúkraflutningamanna
Sveitarstjóri Rangárþings ytra hefur miklar áhyggjur af fækkun sjúkraflutningamanna á Suðurlandi.

Fólk á lágkolvetnafæði hugi vel að trefjum
Kona sem hefur verið á lágkolvetnafæði í tvö ár segir mikilvægt að fólk á þannig mataræði hugi vel að því að borða nóg af trefjum.

Fagnar algjörri metþátttöku í umsögnum um klukkubreytingu
Opnað var fyrir umsagnir í gær en klukkan níu í morgun voru þær orðnar tæplega 400 talsins.

Niðurstöður um trefjar sagðar áfall fyrir lágkolvetnakúra
Neysla á trefjum sem finna má í kornmeti, pasta, brauði og hnetum er sögð draga úr líkum á hjartasjúkdómum og auka lífslíkur fólks.

Óttarr segist eiga erfitt með að átta sig á tillögum um klukkubreytingu
Heilbrigðisráðherrann fyrrverandi fór yfir kostina þrjá í Reykjavík síðdegis.

Sorglegt að peningar ráði möguleikum fólks á barneignum
Björn Þór Ingason segist hafa verið heppinn og haft sterkt bakland þegar í ljós kom að líkurnar væru ekki með honum og konu hans að búa til barn á eigin spýtur. Það sé hins vegar ekki raunin fyrir alla.

Lýsa yfir miklum áhyggjum vegna fækkunar sjúkraflutningamanna
Til stendur að fækka sjúkraflutningamönnum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands úr 27 í 23.

Um 10% fleiri sjúklingar á bráðamóttöku eftir lokun bráðahluta hjartagáttar
Álag á bráðamóttöku Landspítalans hefur aukist um tíu prósent að jafnaði síðan að bráðahluta hjartagáttar var lokað. Nær ómögulegt er að draga ákvörðunina til baka að sögn yfirlæknis á hjartagátt. Heilbrigðisráðherra segist treysta faglegu mati spítalans. Bráðahluti hjartagáttar Landspítalans við Hringbraut var færður yfir á bráðamóttökuna í Fossvogi fyrsta desember síðastliðinn.

ADHD samtökin gagnrýna starfsfólk landlæknis harðlega
ADHD samtökin sendu frá sér ályktun í dag, þar gagnrýnir stjórn samtakanna málflutning starfsfólks landlæknis um ofgreiningar og ofneyslu lyfja við ADHD.

Bíða fjórum sinnum lengur en æskilegt er talið
Bráðamóttöku Landspítalans tekst vel að sinna bráðahlutverki sínu. Ekki er töf á því að þeir sem veikastir eru fái þjónustu og meðaldvalartími þeirra sem útskrifast heim hefur ekki lengst.

Setja 200 milljónir í úrræði fyrir fólk með tvígreindan vanda
Formaður Velferðarráðs segir Reykjavíkurborg vera að bregðast við úrræðaleysi þegar kemur að búsetu fyrir fólk með fíknivanda og geðsjúkdóma eða svokallaðan tvígreindan vanda.

Hafa ekki val um annað en að fara í þriðju meðferðina
Par sem hefur farið í tvær misheppnaðar glasafrjóvganir líður eins og annars flokks þegnum eftir breytingar á greiðsluþátttöku við tæknifrjóvganir.

Þörf á að hafa til taks tvær sjúkraflugvélar
Á síðasta ári fóru sjúkraflugvélar Mýflugs í 806 útköll með 882 sjúklinga.

Bjóða upp á ókeypis skimun
Krabbameinsfélagið hefur ákveðið að ráðast í tilraunaverkefni og bjóða upp á ókeypis fyrstu skimun fyrir krabbameinum á árinu 2019.

Skoða þarf hvort flutningur hjartagáttar hafi gefist vel
Von á hlutaúttekt á starfsemi bráðamóttökunnar í Fossvogi vegna álags eftir flutninga hjartagáttar

Telur kjötskatt gott lýðheilsu- og loftslagsmál
Stjórnarþingmaður telur að sérstakur kjötskattur gæti verið rökrétt skref, jafnt til að bregðast við áhrifum kjötneyslu á heilsufar en ekki síður sem liður í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum.

Segir breytingar á greiðsluþátttöku við tæknifrjóvganir færa okkur lengra frá Norðurlöndunum
Eftir breytingu tekur ríkið þátt í kostnaði sem nemur fimm prósent í fyrsta skipti, þrjátíu prósent ef farið er í annað skipti en ríkið tekur engan þátt ef farið er í þriðja eða fjórða skipti.

Álfurinn í Kópavogi hættur sölu á sígarettum
Það er algjör vitleysa að reykja, þú brennir peninga á því að kveikja, þetta segir í laginu Tóm Tjara. Nú hefursöluturninn Álfurinn í Kópavogi tekið skref að því að minnka reykinga "vitleysuna“. Sölu á sígarettum hefur nefnilega verið hætt.

Fólk hættir við tæknifrjóvgun: „Hið opinbera lítur á þetta sem annars flokks sjúkdóm“
Fólk hefur þegar hætt við tæknifrjóvgun vegna aukins kostnaðar eftir breytingu á greiðsluþátttöku, að sögn ófrjósemislæknis.

Sá tvöfalt og kastaði upp eftir útsendingar
Sölvi Tryggvason segir frá algjöru niðurbroti og glímu við kvíða í starfi sínu á fréttastofu Stöðvar 2 fyrir rúmum áratug. Hann reyndi bæði hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar í leit að bata og betri heilsu og miðlar reynslu sinni.

Með greiningu en ekki skilgreiningu
Bandarísku mæðgurnar Mary Suzanne, Lily og Grace Crockett komu til Íslands eftir að hafa heyrt fréttaflutning um tíðni þungunarrofs hér á landi á fóstrum með Downs-heilkenni. Þær urðu undrandi þegar þeim var tjáð að um væri að ræða samhengislausar fréttir.

Ekkert eftirlit með hjálækningum
Ekkert formlegt eftirlit er með skottulæknum og græðurum hvers konar sem telja sig geta læknað einstaklinga af meinum sínum.

Hafnar því að verið sé að draga úr greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgana
Fæðingartíðni á Íslandi hefur jafnt og þétt minnkað og er nú um 1,71 barn á hverja konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.

Aldraðir eiga að borða fitu, prótein og orkuríka fæðu að sögn næringarfræðings
Næringarfræðingur hyggst fylgja eftir tvö hundruð öldruðum einstaklingum að lokinni útskrift af Landspítalanum og sjá til þess að þeir nærist rétt heima hjá sér.

Ráðgjafanefnd um blóðgjöf skilar afstöðu sinni eftir um tvær vikur
Ráðgjafanefnd um fagleg málefni í blóðbankaþjónustu hefur fjallað um reglur er varða blóðgjafir samkynhneigðra karlmanna að beiðni heilbrigðisráðherra.