

Sendinefnd háttsettra lögreglufulltrúa frá Portúgal ferðaðist til Bretlands fyrr á þessu ári til að biðja Kate og Gerry McCann, foreldra Madeleine McCann, afsökunar á því hvernig rannsóknin á hvarfi dóttur þeirra fór fram og hvernig komið var fram við fjölskylduna.
Breska raunveruleikaþáttastjarnan Gemma Owen er gengin út. Hún er nú byrjuð með boxaranum Aadam Hamed en bresk götublöð greina frá því að þau hafi skellt sér saman til Dubai.
Lögreglumaður í Lundúnum hefur verið handtekinn grunaður um að hafa deilt myndbandi úr öryggismyndavél, sem talið er hafa verið af nauðgun. Konan sem talið er að hafi verið nauðgað á myndbandinu lést síðar sama kvöld.
Sextíu árum eftir að þeir stigu fyrst fram á sjónarsviðið munu allir fjórir Bítlarnir gefa út lag. Þetta kann að koma sumum á óvart kannski helst vegna þess að tveir þeirra eru fallnir frá, þeir George Harrison og John Lennon. Það sem virtist ómögulegt er þó orðið mögulegt með hjálp gervigreindar.
Leikarinn Daniel Radcliffe framleiðir nú heimildarmynd um manninn sem lék öll áhættuatriði hans og lamaðist á setti við tökur á Harry Potter kvikmyndinni Deathly Hallows: Part 1.
Angelo Bruschini, gítarleikari sem spilaði lengi með bresku sveitarinni Massive Attack, er látinn. Hann varð 62 ára gamall.
Tónlistarkonan Hafdís Huld og aðdáendur hennar sitja eftir með sárt ennið eftir að flugferð hennar var frestað ítrekað og loks aflýst. Hún hefur þurft að aflýsa þrennum tónleikum á Bretlandseyjum vegna þessa.
Forseti Úganda segir að dauðaleit standi yfir að mönnum sem taldir eru hafa myrt nýgift hjón, ferðamenn í brúðkaupsferð. Hann segir að öryggissveitir séu komnar á sporið. Bresk yfirvöld ráðleggja ríkisborgurum sínum að ferðast til tiltekinna svæða í Úganda.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir Hamas, Hezbollah og bakhjarla þeirra í Íran vilja færa Mið-Austurlönd aftur til tíma stríða, þrælkunar og útrýmingar. Hann segir heiminn allan þurfa að standa með Ísrael í baráttunni við þennan „ás hins illa“.
Sænski loftslagsaðgerðarsinninn Greta Thunberg var handtekinn í Lundúnum í dag þegar hún og aðrir aðgerðarsinnar mótmæltu fyrir utan ráðstefnu eldsneytisfyrirtækja.
Breski miðillinn Guardian hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við skopmyndateiknarann Steve Bell, eftir að hann skilaði inn mynd sem miðlinum þótti ýta undir fordóma gegn gyðingum.
Vinnumáladómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að Citibank hafi verið heimilt að reka starfsmann sem rukkaði bankann um endurgreiðslu fyrir tvo kaffibolla, tvær samlokur og tvo pastarétti.
Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi.
Bernie Ecclestone, fyrrum eigandi Formúlu 1 mótaraðarinnar, hefur játað sök í skattsvika máli sem höfðað var gegn honum eftir að upp komst að hann hefði haldið 400 milljónum punda leyndum fyrir breskum stjórnvöldum í sjóði í Singapúr.
Búið er að loka Luton-flugvelli á Englandi vegna eldsvoða sem breiddist hratt út um bílageymslu á vellinum. Byggingin virðist hrunin að hluta og öll starfsemi vallarins liggur niðri.
Englendingar, Skotar, Írar og Walesverjar munu í sameiningu halda Evrópumótið í fótbolta árið 2028 en þetta var endanlega ákveðið á fundi Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA í Sviss í dag. Þá var einnig ákveðið hvar mótið fari fram árið 2032.
Breska sjónvarpsstjarnan Holly Willoughby mætti ekki í þáttinn This Morning Show, sem hún hefur stýrt frá árinu 2006 á ITV-sjónvarpsstöðinni, í morgun vegna ótta um öryggi hennar. Hinn 36 ára gamli Gavin Plumb hefur verið handtekinn vegna málsins og er grunaður um að skipuleggja mannrán og morð á Willoughby.
Breska hagkerfið hefur sýnt meiri viðnámsþrótt en búist var við. „Þessi kreppuhundur sem fólk bjóst við að myndi gelta hefur þagað,“ segir hagfræðingur Kviku Securities í Bretlandi. Það skýrist annars vegar af því að verðbólguvandi hafi verið rangt greindur og hins vegar að hagkerfið var vel í stakk búið að standa af sér áföll.
Aðstoðarforsætisráðherra Belgíu, sem er trans kona, hefur hvatt Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, til að ganga ekki í lið með raunverulegum bullum. Tilefnið eru ummæli sem Sunak lét falla á þingi Íhaldsflokksins fyrr í vikunni.
Leo Varadkar, forsætisráðherra Írlands, segir að hann hafi áhyggjur af því að hvernig Bretland einangri sig á alþjóðavettvangi, að því er fram kemur á vef Guardian.
Jaysley Beck, 19 ára breskur hermaður, er talin hafa svipt sig lífi eftir stöðug kynferðislegt áreiti yfirmanns innan hersins. Hún fannst látin á Larkhill-herstöðinni í Wiltshire í desember árið 2021.
Bretland og Írland vilja halda saman Evrópumeistaramótið í fótbolta sumarið 2028 og þjóðirnir á Bretlandseyjum færðust nær því eftir fréttir dagsins.
Breska Love Island stjarnan Jay Younger varð að undirgangast aðgerð eftir að hafa rifið brjóstvöðva í ræktinni. Hann segist hafa tekið of vel á því í ræktinni.
Sigurvegarar úr nýjustu seríunni af bresku raunveruleikaþáttunum Love Island, þau Jess Harding og Sammy Root, eru hætt saman. Rúmir tveir mánuðir eru síðan þau fóru alla leið í þáttunum.
Breski auðkýfingurinn Jim Ratcliffe, íhugar nú að leggja fram tilboð í kaup á minnihluta í enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United til þess að reyna losa um hnút sem virðist hafa myndast í söluferli félagsins.
Sextán ára drengur í norðurhluta Englands hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa fellt eitt ástsælasta tré Englands.
Írsk-enski leikarinn Sir Michael Gambon er látinn, 82 ára að aldri. Hann er meðal annars þekktur fyrir hlutverk sitt sem Albus Dumbledore.
Björk Guðmundsdóttir var á meðal þeirra sem hlutu verðlaun á AIM hátíðinni í London á þriðjudaginn. Björk var valin hlustendaverðalaunum sem besti flytjandinn.
Stjórnendur „flaggskipa“ BBC ættu að mega tjá skoðanir sínar á málefnum og stefnumótun opinberlega en ekki taka pólitíska afstöðu segir í nýrri skýrslu BBC.
Svo virðist sem Formúlu 1 lið McLaren hafi náð vopnum sínum að nýju.