Bretland

Harry prins vann meiðyrðamál
Harry Bretaprins lagði útgefanda Daily Mail í meiðyrðamáli sem hann höfðaði eftir að grein í The Mail on Sunday um meinta yfirhylmingu prinsins á deilum hans við krúnuna var birt.

Leitin að nýjum leiðtoga hafin en Íhaldsflokkurinn áfram í sterkri stöðu
Boris Johnson hefur ákveðið að segja af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins en mun gegna embætti forsætisráðherra þar til nýr leiðtogi hefur verið valinn. Prófessor í stjórnmálafræði segir ekki augljóst á þessari stundu hver muni taka við. Þrátt fyrir mótmæli Verkamannaflokksins virðist ekkert benda til að flokkurinn komi illa út, sem sýni fram á styrk hans.

Líklegustu arftakar Johnson
Fjöldi fólks vill verða næsti leiðtogi Íhaldflokksins í Bretlandi en leiðtogi þeirra, Boris Johnson, sagði af sér í dag. Nýr leiðtogi mun taka við sem forsætisráðherra í október á þessu ári.

Leiðtogi Verkamannaflokksins vill Johnson burt strax
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands sagði af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins nú skömmu fyrir hádegi en ætlar að gegna embætti forsætisráðherra fram á haust. Leiðtogi Verkamannaflokksins segir óásættanlegt að Johnson hverfi ekki úr embætti forsætisráðherra nú þegar. Verkamannaflokkurinn muni leggja fram vantrauststillögu losi Íhaldsflokkurinn sig ekki við Johnson.

Boris Johnson segir af sér
Boris Johnson hefur sagt af sér sem leiðtogi Íhaldsflokksins í Bretlandi. Boris mun þó starfa áfram sem forsætisráðherra Bretlands þar til í október þegar nýr leiðtogi verður kjörinn á landsfundi.

Von á tilkynningu á næstu mínútum
Boris Johnson mun hætta sem leiðtogi Íhaldsflokksins í dag en halda áfram sem forsætisráðherra Bretlands þar til í haust. Tæplega sextíu ráðherrar, aðstoðarráðherrar og aðstoðarmenn í bresku ríkisstjórninni sagt af sér síðasta rúma sólarhringinn.

Fjöldi ráðherra segir af sér til viðbótar
Enn berast fréttir af afsögnum ráðherra í ríkisstjórn Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, en Brandon Lewis, ráðherra í málefnum Norður-Írlands og Helen Whatley, aðstoðarráðherra í fjármálaráðuneytinu, tilkynntu um afsagnir sínar nú í morgun. Guy Opperman, lífeyrismálaráðherra, George Freeman, vísindamálaráðherra, Chris Philp, tæknimálaráðherra, Damian Hinds, öryggismálaráðherra, og James Cartlidge, ráðherra málefna dómstóla, bættust síðan í hópinn rétt í þessu.

Vara við gífurlegri ógn frá Kína
Ken McCallum og Christopher Wray, yfirmenn MI5, innanríkisöryggisstofnunar Bretlands og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), vöruðu báðir við því í dag að mikil ógn stafaði af Kommúnistaflokki Kína. Ógnin sneri bæði að hagkerfum Bretlands og Bandaríkjanna og þjóðaröryggi ríkjanna. Þeir sögðu Kína einnig ógna bandamönnum ríkjanna í Evrópu og annars staðar í heiminum og að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða.

Boris rak ráðherra sem bað hann um að segja af sér
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segist alls ekki ætla að segja af sér. Nú í kvöld rak hann ráðherrann Michael Gove úr ríkisstjórn sinni en Gove er sagður hafa beðið Johnson um að láta gott heita og segja af sér.

Gríðarleg stemming á opnunarleik EM - myndasyrpa
Evrópumótið í fótbolta kvenna hófst í kvöld með leik Englands og Austurríkis en leikurinn fer fram á troðfullum Old Trafford. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, er á vellinum og fangaði stemminguna fyrir leikinn.

Hart sótt að Johnson á breska þinginu: „Hann vissi af ásökunum en veitti honum samt stöðuhækkun“
Hart var sótt að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands í fyrirspurnartíma ráðherrans á breska þinginu í dag. Tveir þingmenn Íhaldsflokksins sögðu af sér á meðan honum stóð og þrír þingmenn í röðum Johnson kölluðu eftir afsögn hans á þinginu í dag.

Staða Johnsons hafi beðið varanlega hnekki og erfitt að sjá að hann lifi málið af
Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands berst fyrir pólitísku lífi sínu eftir að á annan tug ráðherra og embættismanna Íhaldsmanna hafa sagt af sér í mótmælaskyni. Prófessor í stjórnmálafræði segir stöðu Johnsons hafa beðið varanlega hnekki og erfitt að sjá að honum takist að halda embætti.

Fjöldi íhaldsmanna til viðbótar segja af sér
Fimm ráðherrar hafa sagt af sér úr ríkisstjórn Borisar Johnson og fjöldi þingmanna íhaldsflokksins. Útlit er fyrir að ríkisstjórn Johnson sé að riða til falls þótt honum hafi tekist að fylla í skarð þeirra ráðherra sem sögðu af sér í gær.

Límdu hendur sínar við ramma Síðustu kvöldmáltíðarinnar
Fimm umhverfissinnar í Bretlandi límdu hendur sínar við ramma á eftirlíkingu málverksins „Síðasta kvöldmáltíðin“ eftir Leonardo Da Vinci, í mótmælaskyni. Eftirlíkingin sem um ræðir er sögð hafa verið máluð af Giampietrino.

Skipar nýja ráðherra en stendur enn höllum fæti
Boris Johnson, forsætisráðherra, Bretlands, skipaði í kvöld nýjan fjármálaráðherra og nýjan heilbrigðisráðherra eftir að báðir sögðu af sér í dag. Johnson er sagður eiga í miklum vandræðum innan Íhaldsflokksins og er ríkisstjórn hans sögð standa verulega höllum fæti.

Handtökur í fimm löndum í tengslum við stóran mansalshring
Á annað hundrað manns hafa verið handtekin grunuð um aðild að stórtæku mansali til Bretlands.

Ríkisstjórn Borisar sögð riða til falls eftir afsagnir
Tveir háttsettir ráðherrar í ríkisstjórn Bretlands hafa sagt af sér í dag. Það er eftir sjónvarpsviðtal þar sem Boris Johnson, forsætisráðherra, viðurkenni að hann hefði ekki átt að skipa þingmann Íhaldsflokksins í stöðu aðstoðarþingflokksformanns, eftir að sá hafði verið sakaður um að káfa á tveimur mönnum.

„Ég myndi vilja eignast fleiri börn“
Söngkonan Adele sagði að hún væri með áhuga á því að eignast fleiri börn í framtíðinni, ef það er í boði, í viðtali við BBC. Fyrir á hún rúmlega níu ára son, Angelo, með fyrrverandi eiginmanni sínum.

Leikmaður í ensku úrvalsdeildinni handtekinn grunaður um nauðgun
Ónafngreindur leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu var fyrr í dag handtekinn grunaður um nauðgun.

Tveir Bretar reyndu að smygla kókaíni til landsins
Tveir breskir ríkisborgarar voru dæmdir í hálfs árs fangelsi á föstudag fyrir að hafa reynt að smygla rúmlega 270 grömmum af kókaíni til Íslands.

Fordæma mögulega dauðarefsingu bresku hermannanna
Bresk stjórnvöld hafa fordæmt það að tveir Bretar, Dylan Healy og Andrew Hill, skyldu fá dauðadóm í Rússlandi. Skýrsla frá rússneskum dómstólum var lekið í gær en samkvæmt henni verða mennirnir dæmdir til dauða.

Andy Goram fyrrum landsliðsmarkvörður Skota látinn
Andy Goram sem varði mark Skota á EM ´92 og ´96 og HM ´90 er látinn úr krabbameini einungis 58 ára að aldri.

Adele sneri aftur eftir fimm ára hlé
Söngkonan Adele söng í fyrsta sinn fyrir framan áhorfendur í fimm ár í gær. 65 þúsund manns hlustuðu á hana syngja í Hyde Park í London.

Reknir eftir að hafa sagt rasískan brandara um Meghan Markle
Tveimur lögreglumönnum í London var í dag sagt upp vegna skilaboða sem þeir sendu á hópspjall með öðrum lögreglumönnum. Skilaboðin innihéldu meðal annars rasískan brandara um Meghan Markle, eiginkonu Harry Bretaprins.

Segir af sér eftir að hafa „gert sig að fífli“ á fylleríi
Chris Pincher hefur sagt af sér sem varaþingflokksformaður Íhaldsflokksins á breska þinginu eftir að tveir samflokksmenn kvörtuðu yfir hegðun hans á skemmtistað.

Pútín vísar fullyrðingum Johnson til föðurhúsanna
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fullyrti í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona. Pútín hefur nú vísað staðhæfingu Johnson til föðurhúsanna og látið kné fylgja kviði.

Boris segir Pútín ekki hefðu ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona
Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona. Þetta segir Boris Johnson, forsætisráðherra Breta. Hann segir hina „brjálæðislegu“ og „macho“ innrás fullkomið dæmi um „eitraða karlmennsku“.

Stefna á aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands
Skoska heimastjórnin stefnir á aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands í október á næsta ári. Nicola Sturgeon, oddviti heimastjórnarinnar, segist ætla að draga bresku ríkisstjórnina fyrir dómstóla reyni hún að koma í veg fyrir atkvæðagreiðsluna.

„Þetta er 1937 augnablikið okkar,“ segir yfirmaður breska hersins
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir leiðtoga G7-ríkjanna hafa verið sammála um að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þeir þurfa til að snúa stríðinu sér í hag. Þetta sé það sem Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hafi óskað eftir.

Kona fannst látin í rústum hússins sem sprakk
Slökkviliðið í Vestur-Miðlöndum á Englandi hefur tilkynnt að kona hafi fundist látin í rústum íbúðarhúss sem sprakk í loft upp í Birmingham í gærkvöldi.