
Bretland

Enn ekkert nýtt í máli Gylfa
Talskona lögreglunnar í Manchester á Bretlandi segir enn engar fregnir hafa borist um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns. Gylfi er laus gegn tryggingu en það fyrirkomulag rann út á laugardag og taka átti ákvörðun í máli hans sama dag.

Kórónuveiran á siglingu í Bretlandi
Þeim sem smitast af kórónuveirunni í Bretlandi hefur fjölgað stöðugt í þessum mánuði og í gær greindust tæplega fimmtíu þúsund manns með Covid 19 í landinu.

Sorphirðumenn Glasgow í verkfalli á meðan risafundurinn er
Sorphirðumenn Glasgow-borgar í Skotlandi hafa samþykkt að fara í vikuverkfall, á sama tíma og risaloftlagsráðstefnan COP26 verður haldin í borginni.

Stuðningsmaðurinn sem hneig niður sagður stöðugur
Óhugnalegt atvik átti sér stað í leik Newcastle og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar að stuðningsmaður Newcastle hneig niður. Stöðva þurfti leikinn um stund á meðan maðurinn fékk aðhlynningu, en nýjustu fréttir herma að líðan hans sé stöðug.

Innanríkisráðherra íhugar lögregluvernd fyrir þingmenn eftir morðið
Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, hefur sagst vera að íhuga að bjóða þingmönnum upp á lögregluvernd eftir að þingmaðurinn David Amess var myrtur á föstudaginn.

Nafngreina grunaðan morðingja þingmannsins
Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt breska þingmanninn Sir David Amess í Essex á föstudag heitir Ali Harbi Ali og er 25 ára Breti af sómölskum uppruna, samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla sem nafngreina hann í dag.

Morðið aðför að lýðræðislega kjörnum fulltrúum
Forsætisráðherra segir morð á breskum þingmanni mikið áfall og í raun aðför að lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Það sé hættulegt ef stjórnmálamenn veigri sér við að sinna skyldum sínum vegna mögulegra árása.

Morð þingmannsins minni óþægilega mikið á morðið á Jo Cox
Stjórnmálafræðingur segir morðið á breska þingmanninum David Amess geta haft gífurleg, og alvarleg, áhrif á stjórnmál í Bretlandi og víðar. Lögregla í Lundúnum rannsakar nú morðið sem hryðjuverk en Amess var stunginn til bana á kjördæmisskrifstofu sinni í Essex í gær.

Morðið á breska þingmanninum rannsakað sem hryðjuverk
Breski þingmaðurinn Sir David Amess var stunginn margsinnis þar sem hann var staddur í kjördæmaskrifstofu sinni í Leigh-On-Sea í Essex í gær. Lögreglan segir að málið sé rannsakað sem hryðjuverk.

Adele rýfur sex ára þögn með ástarballöðu
Eftir sex ára þögn er komið út nýtt lag frá bresku poppstjörnunni Adele. Lagið heitir Easy on me og verður á fjórðu plötu hennar sem ber titilinn 30.

Breskur þingmaður stunginn til bana
Sir David Amess þingmaður breska Íhaldsflokksins var stunginn til bana þar sem hann var staddur í kjördæmaskrifstofu sinni í Leigh-on-Sea.

Hraðpróf nóg fyrir bólusetta sem ferðast til Englands
Ekki verður lengur krafist að erlendir ferðamenn sem eru fullbólusettir taki svonefnt PCR-próf eftir komuna til Englands frá og með 24. október. Ferðalöngum dugar að taka hraðpróf innan tveggja daga eftir komuna.

Enn ekki búið að taka ákvörðun í máli Gylfa
Lögreglan í Manchester hefur enn ekki tekið ákvörðun hvort Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verði ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni, hvort hann verði áfram laus gegn tryggingu eða hvort mál hans verði látið niður falla.

Tugir þúsunda sagðir hafa fengið rangar niðurstöður úr skimun
Búið er að loka skimunarstöð í Bretlandi vegna þess að fjöldi fólks fékk ranga niðurstöðu úr Covid-skimun. Áætlað er að prófum sem tekin voru hafi rangar niðurstöður verið gefnar í 43 þúsund tilvikum.

Heimsfrægt listaverk eftir Banksy selst á rúma þrjá milljarða króna
Listaverk eftir breka götulistamanninn Banksy seldist á rúma þrjá milljarða á uppboði í London í dag. Verðið er það hæsta sem fengist hefur fyrir Banksy-verk.

Ákvörðun um framhaldið í máli Gylfa líklega tekin á morgun
Lögreglan í Manchester á Bretlandi mun að öllum líkindum taka ákvörðun um það á morgun hvort Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrnumaður, verði ákærður fyrir kynferðisofbeldi gegn barni eða hvort farbann yfir honum verði framlengt.

Skikkuð í sóttkví í Bretlandi þrátt fyrir að hún sé fullbólusett
Ung íslensk kona er á meðal fjölda erlendra háskólanema á heimavist í Cambridge á Englandi sem hefur verið settur í sóttkví vegna smits sem kom upp þar. Hún þarf að vera tíu daga í sóttkví þrátt fyrir að hún sé bólusett og breskar reglur segi að bólusettir þurfi ekki að fara í sóttkví í tilvikum sem þessum.

Þingnefnd gefur fyrstu viðbrögðum bresku stjórnarinnar algera falleinkunn
Fyrstu viðbrögð breskra stjórnvalda vegna faraldurs kórónuveirunnar fá algera falleinkunn og er aðgerðaleysið á fyrstu dögum og vikum faraldursins sagt vera einn mesti misbrestur breskra stjórnvalda þegar kemur að því að tryggja lýðheilsu bresku þjóðarinnar í sögunni.

Segir Lennon hafa sundrað Bítlunum
Bítillinn Paul McCartney segist hafa í tæp fimmtíu ár ranglega verið sakaður um að bera ábyrgð á því að hljómsveitin goðsagnakennda hætti. Í nýju viðtali segir hann John Lennon hafa gengið frá Bítlunum.

Hætta rannsókn á máli Andrésar prins
Lögregla í London hefur hætt rannsókn vegna ásakana á hendur hinum 61 árs Andrési prins vegna ásakana um kynferðisbrot. Andrés hefur neitað sök í málinu.

Breska lögreglan hefur rætt við Giuffre um Andrés Bretaprins
Breskir rannsóknarlögreglumenn hafa tekið skýrslu af Virginiu Roberts Giuffre, konunni sem hefur sakað Andrés Bretaprins um að hafa nauðgað sér þegar hún var aðeins sautján ára gömul.

Staðfesta að Bissouma hafi verið leikmaðurinn sem var handtekinn
Í liðinni viku var greint frá því að leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hafi verið handtekinn gegna gruns um kynferðisbrot. Nú hefur verið staðfest að umræddur leikmaður sé Yves Bissoume, miðjumaður Brighton & Hove Albion.

Bretar í áfalli eftir innslag úr heimildaþáttum um Ísland
Viðbrögð við fyrsta þætti bresku sjónvarpsstjörnunnar Alexanders Armstrong í nýrri heimildaþáttaseríu hans um Ísland hafa ekki látið á sér standa. Þar heimsækir Alexander helstu túristastaði landsins en það er Reðursafnið sem vekur helst athygli breskra áhorfenda.

Newcastle komið í eigu Sádi-Araba
Yfirtöku sádi-arabíska sjóðsins PIF á enska knattspyrnufélaginu Newcastle er nú lokið. Sjóðurinn hefur keypt 80% hlut í félaginu sem verið hafði í eigu Mike Ashley síðastliðin 14 ár.

Lögmenn Andrésar fá trúnaðarsamning Giuffre og Epstein afhentan
Dómstóll í Bandaríkjunum hefur heimilað að samningur milli Virginiu Giuffre og athafnamannsins Jeffrey Epstein, sem trúnaður hefur ríkt um, sé afhentur lögmönnum Andrésar Bretaprins.

Leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar handtekinn grunaður um kynferðisbrot
Lögreglan í Sussex í Bretlandi handtók leikmann Brighton í ensku úrvalsdeildinni vegna gruns um kynferðisbrot í dag.

Lét brjótast inn í síma Hayu prinsessu og lögmanna hennar
Leiðtogi furstadæmisins Dúbaí lét fylgjast með símum Hayu prinsessu og lögmanna hennar á meðan á forræðisdeilum þeirra stóð fyrir breskum dómstólum. Hann er talinn hafa hindrað framgang réttvísinnar með afskiptunum.

Erfitt að opna íþróttirnar fyrir öllum og tryggja sanngirni á sama tíma
Regnhlífasamtök íþróttahreyfinga á Bretlandseyjum hafa komist að þeirri niðurstöðu að líklega verða þau sem fara með boðvaldið yfir einstaka íþróttagreinum að ákveða hverju þau ætla að forgangsraða; sanngirni og öryggi eða að gera öllum kleift að taka þátt.

Auðjöfrar festa kaup á dýrum fasteignum í gegnum aflandsfélög
Pandóraskjölin halda áfram að leiða ýmislegt í ljós sem ekki lá fyrir áður, en um er að ræða milljónir skjala frá aflandseyjum víðsvegar um heiminn.

Bronsið í stærstu vaxtarræktarleikum heims er bara byrjunin
Íslendingur sem vann til bronsverðlauna í einni stærstu vaxtarræktakeppni heims er gríðarlega sáttur með árangurinn. Hann stefnir að sjálfsögðu að gullinu á næsta ári.