Ítalía

Ítalía

Höfuðborg: Róm. Mannfjöldi: 58,9 milljónir (2025). Flatarmál: 301.340 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sex kafarar látnir á Maldíveyjum

Yfirvöld á Maldíveyjum hafa fundið lík fjögurra ítalskra kafara sem saknað hafði verið síðan í síðustu viku. Hópurinn var frá háskólanum í Genóa og var þar til að sinna rannsóknum. Maldíveyjar eru sjálfstætt ríki staðsett í Indlandshafi og þykja búa yfir gífurlegri náttúrufegurð. Þar á meðal eru fjölskrúðug kóralrif sem hópurinn hugðist rannsaka.

Erlent
Fréttamynd

Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikil­ey

Athafnakonan, tískudrottningin og fyrrum forsetafrú Íslands Dorrit Moussaieff átti nýverið æðislega daga á Ítalíu þar sem hún fagnaði ástinni með vinum og djammaði með ofurfyrirsætunni Adwoa Aboah. 

Lífið
Fréttamynd

Tala dýrsins 666 og Neró keisari

Fáir eiga sér jafn blóði drifin og skrautleg eftirmæli í mannkynssögunni og rómverski keisarinn Neró. Flestir hafa heyrt söguna af geðsjúka harðstjóranum sem lék á fiðlu á meðan Rómaborg brann til ösku. En kemur það heim og saman við staðreyndir?

Lífið
Fréttamynd

Námið ekki eins krefjandi og á Tene

Fiðluleikarinn Matthildur Traustadóttir fæddist á Ítalíu, ólst upp á Spáni, gekk í menntaskóla á Íslandi og lærir nú við tónlistarháskólann Oberlin í Bandaríkjunum. Lengi vel átti hún erfitt með að velja á milli balletts og fiðluleiks og spiluðu álagsmeiðsli inn í endanlegt val. Matthildur er ein fjögurra sem kemur fram á tónleikunum Ungum einleikurum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kvöld.

Tónlist
Fréttamynd

Hætta að styrkja Fen­eyjart­víæringinn vegna þátt­töku Rússa

Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026.

Erlent
Fréttamynd

Tólf tonnum af Kitkat rænt

Óprúttnir aðilar rændu um tólf tonnum af vinsæla súkkulaðistykkinu Kitkat í flutningi í vikunni. Um rúmlega fjögur hundruð þúsund stykki var að ræða, og það rétt fyrir páska, en Nestlé segir þjófnaðinn ekki koma til með að hafa áhrif á súkkulaðibirgðir Evrópubúa.

Erlent
Fréttamynd

Óvæntustu deilur ársins: „Ég hata ekki börn“

Poppstjörnuna Chappell Roan óraði sennilega ekki fyrir því þegar hún fékk sér morgunmat á hóteli í Sao Paulo í gærmorgun að hún myndi reita bæði fótboltamanninn Jorginho og borgarstjóra Rio de Janeiro til reiði. Stjúpdóttir Jorginho hafði gengið framhjá borði Roan og fengið skammir í hattinn frá öryggisverði í kjölfarið. Roan segir öryggisvörðinn hafa verið á vegum hótelsins og hún hati ekki börn.

Tónlist
Fréttamynd

Einn helsti sam­starfs­maður Berlusconi látinn

Umberto Bossi, stofnandi ítalska harðlínuflokksins Norðurbandalagsins, er látinn 84 ára að aldri. Undir stjórn Bossi átti flokkurinn sæti í ríkisstjórnum Silvios Berlusconi, þáverandi forsætisráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Brotist inn hjá Alberti

Brotist var inn á heimili Alberts Guðmundssonar knattspyrnumanns í Flórens á Ítalíu í gær. Nokkrum verðmætum var stolið.

Innlent
Fréttamynd

Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur

Leikstjórinn Sean Baker, sem hreppti fjögur Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina Anoru í fyrra, hefur loks uppljóstrað um næstu kvikmynd sína. Hún verður tekin upp á Ítalíu og er ástarbréf til kynlífskómedía Ítalíu á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sprengdu hurðina af bryn­vörðum bíl

Grímuklæddir og þungvopnaðir glæpamenn sprengdu hurðina af brynvörðum bíl á hraðbraut í suðurhluta Ítalíu í gærmorgun. Þá skutu mennirnir úr Kalashnikov-árásarrifflum á lögregluþjóna þegar þeir voru á flótta eftir ránið.

Erlent
Fréttamynd

Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“

Áhorfendur sem bauluðu á varaforseta Bandaríkjanna á opnunarhátíð vetrarólympíuleikanna í Mílanó í síðustu viku gerðu það til að sýna „evrópskt stolt“, að mati utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Ástæðan sé ítrekaðar skammir Vance í garð Evrópu að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Krútteyjurnar Ischia og Sikil­ey: Ástu leist ekki á einnar evru húsin

Ásta Sigurðardóttir ævintýrakona fór fyrir fáeinum árum til Sikileyjar til að skoða einnar evru hús, en endaði á því að kaupa sér ekki hús á eina evru. Enda sá hún fram á að það yrði á endanum dýrara og tímafrekara að gera einnar evru hús íbúðarhæft, heldur en að kaupa dýrari eign. Sem hún gerði og hefur nú gert upp stórt hús í hjarta Salemi, sem er fjallaþorp á miðri Sikiley.

Lífið