
Noregur

Sjóræningjar skutu á norskt olíuflutningaskip
Sjóræningjar skutu á norska olíuflutningaskipið Stolt Apal sem var á siglingu í Adenflóa, suður af Jemen, fyrr í dag.

Daði í uppáhaldi hjá Norðmönnum
Í kvöld kusu Norðmenn Think About Things, lag Daða Freys og Gagnamagnsins sem besta lagið sem senda átti í Eurovision í ár.

Sagði lögreglu frá „stráknum“ strax eftir hvarfið
Tom Hagen, sem grunaður er um morð eða aðild að morði á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen, minntist á mann, sérfræðing á sviði rafmynta sem nú er grunaður um aðild að málinu, í yfirheyrslum skömmu eftir að Anne-Elisabeth hvarf í október 2018.

Norðmenn sækja milljarða í olíusjóðinn
Stjórnvöld í Noregi hyggjast sækja nærri 420 milljarða norskra króna, um sex þúsund milljarða íslenskra króna, úr olíusjóði sínum til að fjármagna aðgerðir sínar vegna faraldurs kórónuveirunnar.

Hagen sleppt úr gæsluvarðhaldi
Tom Hagen hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi eftir að Hæstiréttur Noregs úrskurðaði gegn lögreglunni um framlengingu.

Svæðaskipta norsku deildinni til að verjast útbreiðslu kórónuveirunnar
Norska deildin verður fjórskipt í fyrstu sex umferðunum þar sem liðin af sama svæði spila alla innbyrðis leiki sína.

Annar maður handtekinn vegna Hagen-málsins
Lögregla í Noregi handtók í gærkvöldi mann í tengslum við rannsóknina á hvarfi Anne-Elisabeth Hagen, eiginkonu auðjöfursins Tom Hagen.

Systkini Hagen telja Anne-Elisabeth vera enn á lífi
Systkini auðjöfursins Tom Hagen, sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana, segjast sannfærð um sakleysi bróður síns.

Lögmannsréttur vill sleppa Hagen úr gæsluvarðhaldi
Lögregla hefur nú áfrýjað úrskurði lögmannsréttarins sem þýðir að Hagen verður áfram í varðhaldi þar til að Hæstiréttur landsins hefur tekið málið til meðferðar.

Lögregla rannsakar fjallakofa Tom Hagen
Fjöldi lögreglumanna mættu í morgun að fjallakofa norska auðjöfursins Tom Hagen við Kvitfjell.

Norski seðlabankinn lækkar stýrivexti í núll
Þetta er í fyrsta sinn í 200 ára sögu bankans sem stýrivextir fara niður í núll prósent.

Manshaus vildi keyra niður sem flesta í miðborg Oslóar
Réttarhöld í máli hins 22 ára Philip Manshaus hófust í Osló í morgun. Hann er ákærður um morð á stjúpsystur sinni og brot gegn hryðjuverkalögum landsins.

Lögregla girðir af svæði við heimili Hagen-hjónanna
Lögreglan í Noregi girti í morgun af svæði við heimili Tom Hagen í Lørenskog í suðausturhluta landsins. Hagen er grunaður um morð á eiginkonu sinni, Anne-Elisabeth Hagen.

Reyna að bjarga Air France og Norwegian
Hluthafar í norska lággjaldaflugfélaginu Norwegian samþykktu í morgun björgunaraðgerðir, en félagið rambar á barmi gjaldþrots um þessar mundir. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti sjö milljarða evra aðstoðarpakka fyrir Air France.

Framtíð Norwegian ræðst í dag
Framtíð norska lággjaldaflugfélagsins Norwegian ræðst í dag en nú stendur yfir fundur hluthafa þar sem þeir taka ákvörðun um hvort reyna skuli björgunaraðgerðir.

Höfnuðu tillögu til bjargar Norwegian
Kröfuhafar flugfélagsins Norwegian höfnuðu í dag að breyta lánum sínum í hlutafé. Óvissa er því um framtíð félagsins sem rambar á barmi gjaldþrots og glímir við bráðan lausafjárvanda.

Líf Norwegian hangir á bláþræði
Örlög Norwegian voru ákveðin í gær en hluthafar greiddu atkvæði í gærkvöldi um það hvort björgunarpakki sem flugfélagið lagði til yrði samþykktur. Hluthafar áttu fund klukkan 16:00 að staðartíma í gær til að kjósa um pakkann en það liggur fyrir að hlutafé félagsins verði uppurið um miðjan maí.

Norskur fjölskyldufaðir í 20 ára fangelsi fyrir „hreina aftöku“
Norskur fjölskyldufaðir á fimmtugsaldri, Hans Olav Overn, var í dag dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir að kyrkja fimmtán ára son sinn, Oscar André Ocampo Overn, á heimili fjölskyldunnar í Kapp í október í fyrra.

Tom Hagen áfrýjar gæsluvarðhaldsúrskurðinum
Þetta staðfestir Svein Holden verjandi Hagen í samtali við norska miðilinn Dagbladet.

Tom Hagen í fjögurra vikna gæsluvarðhald
Norski auðjöfurinn Tom Hagen hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, grunaður um að hafa orðið eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen að bana í október 2018.

Konan sem hvarf og hægláti auðjöfurinn sem saknaði hennar
„Mannránið“ sem skók Noreg, hvarf Anne-Elisabeth Hagen, náði óvæntum vendipunkti í gær. Hér verður reynt að varpa ljósi á feril þessa merkilega máls og vendingar átján mánaða lögreglurannsóknar.

Tom Hagen neitar sök
Norski milljarðamæringurinn Tom Hagen, sem handtekinn var í morgun grunaður um morðið á eiginkonu sinni Anne-Elisabeth Hagen, neitar sök.

Tom Hagen grunaður um morðið á Anne-Elisabeth
Tom Hagen, eiginmaður Anne-Elisabeth Hagen sem ekkert hefur spurst til síðan í október 2018, er grunaður um morð, eða að eiga hlut að morði, á eiginkonu sinni.

SAS segir upp 40 prósent starfsfólks
Skandinavíska flugfélagið SAS hyggst segja upp fimm þúsund starfsmönnum að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Eiginmaður Anne-Elisabeth handtekinn
Tom Hagen, eiginmaður Anne Elisabeth Hagen sem hvarf af heimili sínu í október 2018, var handtekinn við heimili sitt í Lorenskógi á leið til vinnu í morgun.

Leikið án áhorfenda í Noregi í allt sumar
Stefnt er að því að hefja keppni í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta þann 23. maí næstkomandi en líklega verða engir áhorfendur leyfðir á leikjum deildarinnar fram á haust.

Vill að ríkisstjórnin leggi rúma átta milljarða íslenskra króna í knattspyrnuhreyfinguna
Terje Svendsen, forseti norska knattspyrnusambandsins, vill að ríkisstjórnin þar í landi hjálpi fótboltanum til muna og að knattspyrnusambandið fái 600 milljónir norskra króna í stuðning en sú upphæð jafngildir rúmlega átta milljörðum íslenskra króna.

Fjögur dótturfélög Norwegian í þrot
Norska flugfélagið Norwegian óskaði eftir því í dag að fjögur dótturfélög fyrirtækisins yrðu tekin til gjaldþrotaskipta.

Gengi Norwegian féll um rúmlega helming á tíu mínútum
Hrunið kom greinendum lítið á óvart.

Norðmenn segjast komnir með stjórn á faraldrinum
Norsk stjórnvöld sögðust í dag vera komin með stjórn á kórónuveirufaraldrinum.