Palestína

Hamas-liðar sleppa þrettán gíslum
Hamas-samtökin hafa sleppt þrettán ísraelskum gíslum og nokkrum erlendum ríkisborgurum. Misræmi er þó í yfirlýsingum ríkja um tölu gísla sem sleppt hefur verið í kvöld.

Lítum ekki undan
Þegar ég var barn og las um helförina velti ég því margoft fyrir mér hvernig fólk gat leyft því að gerast að annað fólk, góðhjartað og velviljað og saklaust, væri myrt með köldu blóði. Ég gat ekki með nokkru móti skilið hvernig það gat gerst. Ætli börnin á Gaza hugsi ekki það sama núna?

Blóðug barnaföt við Alþingi
Nokkur fjöldi fólks safnaðist saman á Austurvelli í dag þar sem haldinn var gjörningur til stuðnings börnunum á Gaza á vegum félagsins Ísland-Palestína. Félagið mun standa fyrir viðburðum tengdum Palestínu á hverjum degi það sem eftir lifir nóvember mánaðar.

Fagnaðarlæti á Vesturbakkanum
Mikil fagnaðarlæti brutust út á Vesturbakkanum í gærkvöldi þegar 39 konum og börnum var sleppt úr ísraelskum fangelsum. Það var gert í skiptum fyrir þrettán konur og börn sem vígamenn Hamas og Íslamsks jíhads héldu í gíslingu á Gasaströndinni.

Búið að sleppa tuttugu og fjórum gíslum
Hamas-liðar hafa sleppt fyrstu gíslunum úr haldi í fangaskiptum á Gasaströndinni. Um er að ræða tíu Taílendinga, einn Filippseying og þrettán Ísraela sem sleppt var í skiptum fyrir 39 Palestínumenn í haldi Ísraela. Vopnahléið sem hófst í morgun hefur að mestu haldið og neyðarbirgðir berast íbúa Gasastrandarinnar.

Óendurgoldin ást
Ég er 47 ára kona, sjálftitlaður heimspekingur, skáld og þýðandi og ég er í ástarsorg. Fyrsta ástin mín voru stjórnmálin eða réttara sagt baráttan fyrir betri heimi með pólitíkinni. Ein af fyrstu minningunum mínum snýst um gleðina er Francois Mitterand var kosinn forseti Frakklands 1981, ég þá fimm ára og búsett í Frakklandi.

Vilt þú kaupa vöru sem er framleidd í ólöglegri landtökubyggð Ísraels í Palestínu?
Umræðan um viðskiptabann á Ísrael er bæði áleitin og vaxandi í ljósi yfirgengilega árása Ísraels á Gasa að undanförnu. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs bauð félaginu Íslandi Palestínu á sinn fund til þess að ræða aðgerðir sem Ísland ætti að beita sér fyrir og þar bar margt á góma

Vopnahlé tekur gildi og fyrstu gíslunum sleppt klukkan tvö
Fjögurra daga hlé á átökunum á Gasa hófst klukkan fimm í morgun og síðar í dag, eða um klukkan tvö að íslenskum tíma, verður þrettán ísraelskum gíslum sem hafa verið í haldi Hamas-samtakanna sleppt.

Vopnahléið hefst í fyrramálið og þrettán gíslum sleppt
Vopnahlé milli ísraelska hersins og Hamas-samtakanna hefst klukkan fimm í fyrramálið, að íslenskum tíma. Það er klukkan sjö að staðartíma. Þá verður fyrstu gíslunum sleppt fyrir fólk í haldi Ísraela klukkan sex seinni partinn á morgun.

A WEIRD timing
Over the recent weeks, several leaders from the WEIRD (White/Western, Educated, Industrialized, Rich, and Developed/Democratic) world have expressed criticism for Israel's indiscriminate attacks in the occupied Palestinian territory (oPt).

Segja samkomulagið ekki munu taka gildi fyrr en á morgun
Samkomulag um hlé á átökum á Gasa gegn lausn gísla mun ekki taka gildi fyrr en í fyrsta lagi á morgun, segja embættismenn í Ísrael og Bandaríkjunum.

Var á Íslandi á meðan hálf fjölskyldan fórst í loftárás
Palestínumaður búsettur á Íslandi missti foreldra sína í loftárás Ísraelshers fyrir mánuði síðan. Systir hans missti fótlegg í árásinni og vonast hann til að hún geti fengið gervifót eða komið hingað til lands.

Krefst þess að Birgir og Inga dragi orð sín til baka
Sverrir Agnarsson, ráðgjafi í markaðsmálum, óskar þess að fullyrðingar um afhöfðuð börn verði dregin til baka.

Sömdu um lausn 50 gísla gegn fjögurra daga hléi á átökum
Ísraelsmenn og Hamas-samtökin hafa komist að samkomulagi um lausn 50 gísla úr haldi Hamas á fjórum dögum gegn hléi á átökum á Gasa. Um verður að ræða börn og konur og hafa Ísraelar samþykkt að frelsa 150 börn og konur úr fangelsum sínum.

Stríðinu muni ekki ljúka þótt gíslarnir komi heim
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir stríðið milli Ísraelsmanna og Hamas munu halda áfram, þrátt fyrir að gíslunum sem teknir voru í síðasta mánuði verði sleppt. Ísrael muni halda áfram að berjast þar til „öllum markmiðum hefur verið náð“.

Ábyrgð Vesturlanda á fjöldamorðunum á Gasa
Sagan geymir dæmi um ógnarverk sem hið svokallaða „alþjóðasamfélag“ brást ekki við. Það hefur verið horft til þess með hryllingi og spurt: Af hverju var ekki brugðist við?

Slíta stjórnmálasambandi við Ísrael þar til vopnahlé verður samþykkt
Löggjafarþing Suður-Afríku hefur samþykkt tillögu þess efnis að sendiráði Ísraels í landinu verði lokað og stjórnmálasambandi ríkjanna tveggja slitið, uns Ísrael samþykkir vopnahlé á Gasa.

Samkomulag um vopnahlé í sjónmáli
Ráðherrar í ríkisstjórn Ísrael munu koma saman á fundi seinni partinn, þar sem þeir munu ræða samkomulag um að skipta á föngum fyrir gísla í haldi Hamas og mögulegt vopnahlé á Gasaströndinni. Samkomulag er sagt vera næstum því í höfn.

Leiðtogi Hamas segir samkomulag um vopnahlé á lokametrunum
Aðstoðarmaður Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamas, sendi Reuters yfirlýsingu í morgun þar sem hann sagði samtökin nálægt því að ná samkomulagi við Ísrael um vopnahlé.

Birtu myndband af göngum undir al-Shifa sjúkrahúsinu
Ísraelar birtu um helgina myndefni frá al-Shifa sjúkrahúsinu sem á að sýna að Hamas-liðar voru þar og að finna megi göng undir sjúkrahúsinu. Meðal annars sýnir myndefnið Hamas-liða flytja gísla til sjúkrahússins þann 7. október.

Sverrir segir frásögn Birgis af ungabarni í bakaraofni fráleita
Sverrir Agnarsson, sem eitt sinn var formaður Félags múslima á Íslandi, segir frásögn Birgis Þórarinssonar alþingismanns af voðaverkum Hamas í besta falli bull.

Hvað er eiginlega þetta Hamas?
Það er fátt sem nefnt er oftar í fréttum þessa dagana en Hamas-samtökin í Palestínu. Hamas-samtökin, eða Íslamska andspyrnuhreyfingin, einsog þau heita fullu nafn, voru stofnuð um miðjan desember 1987 og eru um hálfum mánuði yngri að árum en Félagið Ísland-Palestína sem var stofnað 29. nóvember 1987.

31 fyrirburi fluttur frá al Shifa og til Egyptalands
Búið er að flytja 31 fyrirbura af al Shifa-sjúkrahúsinu á Gasa og til stendur að koma þeim til Egyptalands. Börnin eru öll sögð glíma við sýkingar og ofþornun sökum ástandsins á sjúkrahúsinu.

Gengu út af viðburði Clinton og mótmæltu
Hópur fólks mótmælti afstöðu Hillary Clinton stjórnmálakonu á viðburði á vegum Iceland Noir í hörpu í dag. Tvær konur stóðu upp úr sætum sínum í Eldborgarsal og flögguðu palestínska fánanum í mótmælaskyni.

Hótanir og áreiti vegna vegglistaverks: „Ef ég gæti tekið þig niður og barið þig þá myndi ég gera það“
Listakonan Julia Mai Linnéa Maria hefur unnið að listaverki við Vegamótastíg með skilaboðunum „Frjáls Palestína“ og „Vopnahlé strax“. Hún heldur ótrauð áfram þrátt fyrir áreiti og skemmdir á verkinu.

Þvertekur fyrir að samningur um vopnahlé sé í höfn
Forsætisráðherra Ísraels segir engan samning um tímabundið vopnahlé í átökum Ísraels og Hamas og sleppingu gísla í höfn.

Stærsti spítali Gasa rýmdur og tugir drepnir í flóttamannabúðum
Meira en hundrað manns létu lífið í þremur loftárásum Ísraelshers í dag. Þá var um 120 manns gert að yfirgefa stærsta spítala Gasastrandarinnar vegna húsleitar Ísraelshers.

Fjölmennt í samstöðugöngu með Palestínu: „Viðskiptabann strax“
Fjölmennur hópur gekk frá Utanríkisráðuneytinu niður á Austurvöll í samstöðu með Palestínu seinni partinn í dag. Félagið Ísland-Palestína, sem stendur fyrir fundinum, hefur staðið fyrir samstöðuviðburðum með Palestínu allar helgar frá upphafi stríðsins 7. október.

Níu ára stúlka sögð myrt, nú talin gísl
Níu ára stelpa sem var talin myrt af Hamasliðum er nú talin lifandi og meðal gísla þeirra. Emily Tony Korenberg Hand er ein þeirra sem tekin var höndum af Hamasliðum þegar þeir réðust inn í Be’eri kibbútsinn við landamæri Ísraels og Gasasvæðisins. Stuttu eftir árásina var föður Emily tilkynnt að dóttir sín væri látin.

Auka framlög vegna átakanna um hundrað milljónir
Ísland mun veita hundrað milljóna króna viðbótarframlag til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) og Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC). Er það vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs, milli Ísraela og Hamas-samtakanna.