
Kjaramál

Kópur ekki hluti af ASÍ
Forseti ASÍ segir að nýtt stéttarfélag, Kópur, sem hafi verið auglýst og sé sérstaklega beint að Pólverjum sem starfa á Íslandi, hafi verið stofnað. Það tengist þó ASÍ ekki á nokkurn hátt.

Segir vegið að grundvallarreglum á vinnumarkaði og undirbúa málsókn
Alþýðusamband Íslands hyggst stefna Icelandair fyrir félagsdómi vegna framgöngu félagsins í kjaradeilu við flugfreyjur. Lögfræðingur ASÍ segir Icelandair hafa vegið að grundvallarreglum á vinnumarkaði.

Telja sig peð í tafli Rio Tinto og Landsvirkjunar
Starfsmenn álversins í Straumsvík telja Rio Tinto tefla sér fram í deilu álfyrirtækisins fyrir betri raforkusamningi við Landsvirkjun. Kjaradeilan er komin til ríkissáttasemjara.

Starfsmönnum Jóa Fel sem kröfðust þess að kjarasamningum yrði fylgt sagt upp
Þrír fyrrverandi starfsmenn Jóa Fel hröktust úr starfi, var annað hvort sagt upp eða sögðu upp, eftir að laun þeirra voru ekki útgreidd samkvæmt kjarasamningum.

Vilja fjögurra daga vinnuviku til að hindra stórfelldar uppsagnir
Stærsta stéttarfélag Þýskalands, IG Metall, hefur lagt til að fjögurra daga vinnuviku verði komið á í landinu til að koma megi í veg fyrir stórfelldar uppsagnir í þýskum iðnaði og bílaframleiðslu.

Skólastéttir samþykktu kjarasamninga
Félagsmenn í Félagi leikskólakennara, Félagi stjórnenda leikskóla og Skólastjórafélagi Íslands hafa samþykkt kjarasamninga sem undirritaðir voru 10. júlí.

Fjórtán kjaradeilur á borði ríkissáttasemjara
Fjórtán kjaradeilur eru nú á borði ríkissáttasemjara en þrjár bættust við til meðferðar hjá embættinu í júlímánuði.

Norræna flutningamannasambandið fordæmir Icelandair
Norræna flutningamannasambandið, NTF, fordæmir aðgerðir Icelandair í kjaraviðræðum félagsins við Flugfreyjufélag Íslands. Sambandið hvetur Icelandair jafnframt til að bæta starfsandann hjá félaginu.

Flugfreyjur Icelandair næstu tvo mánuði verði um 200 talsins
Forstjóri Icelandair Group segir um 200 flugfreyjur og flugþjónar verði á mála hjá félaginu í ágúst og september, þetta kom fram í viðtali við Boga Nils í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Fólk er að kjósa að Flugfreyjufélag Íslands verði áfram stéttarfélagið okkar“
Formaður Flugfreyjufélags Íslands segir það ekki koma á óvart að nýr kjarasamningur hafi verið samþykktur í dag. Atkvæðagreiðslan hafi ekki einungis snúist um nýjan kjarasamning heldur einnig um það hvort Flugfreyjufélagið yrði áfram stéttarfélag flugfreyja.

Flugfreyjur samþykkja nýjan kjarasamning með yfirgnæfandi meirihluta
Flugfreyjur samþykktu nýjan kjarasamning við Icelandair í dag. Samningurinn var samþykktur með 83,5 prósentum greiddra atkvæða og greiddu 88,2 prósent félagsmanna atkvæði.

Telur Icelandair hafa verið á gráu svæði þegar flugfreyjum var sagt upp
Félagsmálaráðherra telur Icelandair hafa verið á gráu svæði þegar félagið sagði upp öllum flugfreyjum í miðri kjaradeilu.

Atkvæðagreiðslu um kjarasamning lýkur og Icelandair kynnir uppgjör annars ársfjórðungs á morgun
Atkvæðagreiðslu flugfreyja um nýjan kjarasamning lýkur klukkan 12 á hádegi á morgun. Uppgjör Icelandair fyrir annan ársfjórðung verður einnig birt á morgun en bráðabirgðarekstrarniðurstöður benda til þess að tekjur félagsins hafi lækkað um 85 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Margir lífeyrissjóðir hafa ekki enn farið að tilmælum FME
Seðlabankastjóri segir stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna ekki hafa brugðist við ársgömlum tilmælum Fjármálaeftirlitsins um að skýra við hvaða aðstæður stjórnarmönnum yrði vikið frá. Formaður VR hafi sett stjórn lífeyrissjóðsins í mjög vonda stöðu.

Stjórn VR dregur yfirlýsingu sína um Icelandair til baka
Tryggi lífeyrissjóðir ekki sjálfsstæði stjórnarmanna sinna að eigin frumkvæði ætlar Seðlabankinn að kalla eftir lagabreytingum um slíkt.

Telur farsælla að stjórn Icelandair verði skipt út
Formaður VR er enn þeirrar skoðunar að ekki sé fýsilegt að fjárfesta í Icelandair með núverandi stjórnendur fyrirtækisins í brúnni. Samtök atvinnulífsins vilja að Fjármálaeftirlitið skoði umdeilda yfirlýsingu formannsins um hlutafjárútboð Icelandair.

Flugfreyjur byrjaðar að greiða atkvæði um kjarasamninginn
Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair hófst klukkan 12 á hádegi.

Segir Ragnar Þór gefa sjóðsfélögum langt nef
Halldór Benjamín Þorbergsson er afar ósáttur við framgöngu Ragnars Þórs Ingólfssonar.

Flugfreyjur kallaðar „æluþrífarar á háum hælum“ og „stífmálaðar frekjur“
Flosi Eiríksson rís upp til varnar flugfreyjum og fordæmir skítkast sem þær hafa mátt sæta á umliðnum vikum og dögum.

Segir verkalýðsforingja reyna að knésetja Icelandair
Þorsteinn Víglundsson segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar til skammar með því að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku um fjárfestingar í Icelandair. Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, segir að fulltrúum í stjórnum lífeyrissjóða sé óheimilt að láta undan slíkum þrýstingi.

Ferðir Herjólfs III fara að óbreyttu fyrir félagsdóm
Vinnustöðvun um borð í Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi hefst að óbreyttu á miðnætti í kvöld og mun hún standa yfir næstu tvo sólarhringa þar á eftir.

Aldrei upplifað annað eins „kjálkabrot“
Flugfreyjur sem voru viðstaddar fund Flugfreyjufélags Íslands, þar sem nýr kjarasamningur félagsins við Icelandair var kynntur, segja stéttina og félagið í sárum eftir að Icelandair ákvað að slíta kjaraviðræðum á föstudag.

Samræma ákvæði kjarasamnings við samning flugmanna
Með nýundirrituðum kjarasamningi Flugfreyjufélags Íslands eru ákvæði samræmd við kjarasamning Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Mikilvægt að málin séu leyst við samningaborðið
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ánægjulegt að Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands hafi náð saman og ritað undir nýjan kjarasamning hjá ríkissáttasemjara í nótt.

Tilefni hafi verið til mikillar hörku gagnvart Icelandair
Forseti Alþýðusambands Íslands segir að viðbrögð ASÍ við ákvörðun Icelandair Group um að hætta kjaraviðræðum og segja upp flugfreyjum félagsins hafi verið eðlileg og tilefni hafi verið mikillar hörku.

Fullyrðingar verkalýðsleiðtoga um undirboð „algjör þvæla“
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var harðorður í garð verkalýðsforystunnar í viðtali á Sprengisandi í morgun.

„Hálfvitaleg leið til að bjarga flugsamgöngum“
Gunnar Smári Egilsson, einn stofnenda Sósíalistaflokksins, spyr hvort það sé eitthvað fagnaðarefni að samningar hafi náðst milli Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair í nótt.

„Ákveðin viðbótarhagræðing fyrir fyrirtækið“
Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands undirrituðu nýjan kjarasamning í Karphúsinu í nótt.

Telur að sameiginleg ástríða fyrir Icelandair hafi verið lykillinn að nýjum samningi
Ríkissáttasemjari segist alltaf hafa vonað að viðræðum FFÍ og Icelandair myndi ljúka með samningi, þó gengið hafi á ýmsu í viðræðum þeirra á milli.

Uppsagnir verða dregnar til baka
Uppsagnir sem Icelandair tilkynnti um á föstudaginn, og náðu til allra flugfreyja og flugliða sem starfa hjá félaginu, verða dregnar til baka eftir að nýr kjarasamningur var undirritaður í nótt. Formaður Flugfreyjufélags Íslands segist ganga sátt frá borði.