Kópavogur

Giftu sig í stofunni á draumaheimilinu mánuði eftir flutninga
Helga Lóa Kristjánsdóttir og Valgerður Jóhannsdóttir voru fasteignaleitendur vikunnar í Draumaheimilinu á Stöð 2 og fékk Hugrún Halldórsdóttir að fylgjast með þeim skoða þrjár eignir í Kópavogi.

Braut rúðu á hóteli og hrækti í andlit lögreglumanns
Tilkynning barst til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt um aðila sem braut rúðu á hóteli í miðborginni.

Minnstu bræðurnir
Kópavogur á að fara fyrir í að hjálpa þeim sem helst eru hjálpar þurfi, ekki vera eftirbátur annarra. Fjárfesting í betra samfélagi er góð fjárfesting sem skilar góðri ávöxtun á alla mælikvarða. Mannúð elur af sér mannúð.

Metnaðarlaust klúður í skipulagsmálum í Kópavogi - Kársnes
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar í Kópavogi hefur haldið því fram að skipulagstillaga á reit 13 á þróunarsvæði á Kársnesinu hafi verið unnin í samráði við íbúa á svæðinu. Sú fullyrðing er í besta falli sjónhverfingar.

Grunar að skitið hafi verið á bíl sinn vegna nágrannaerja
Eiganda bíls sem skitið var á í Kópavogi í nótt segist gruna að athæfið tengist langvarandi nágrannaerjum. Hann segist þó ekki skilja fyllilega hvað skilaboðin eigi að fela í sér.

Grímuklæddur maður skeit á bíl í Kópavogi
Vægast sagt undarlegt atvik átti sér stað í Kópavogi rétt eftir miðnætti í gærkvöldi. Maður gekk upp að bíl á Álfhólsvegi, virti hann fyrir sér og gekk í burtu. Stuttu síðar kom maðurinn aftur en lét sér þá ekki nægja að skoða bifreiðina, heldur girti hann niður sig og skeit á húddið. Eigandi bílsins birti myndband af athæfinu og velti fyrir sér hvaða skilaboð væri verið að senda.

Brotist inn verslun í Kópavogi í nótt og mikið um ölvunarakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í nótt. Mikið var um ýmiskonar tilkynningar sem tengdust ölvun, slagsmálum og hávaða. Sex einstaklingar voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis og einn undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Þá var brotist inn í verslun í Kópavogi.

Glænýr Land Cruiser sem betur fer í bílskúrnum
Stærðarinnar ösp varð vindinum að bráð við Digranesheiði í Kópavogi á þriðja tímanum. Tilviljun réð því að öspin féll ekki á glænýjan Land Cruiser sem var aldrei þessu vant inni í bílskúr.

Rafmögnuð stemning í Kópavogi í kvöld
„Vörpunarverk Þórönnu er eitt stærsta og viðamesta verkefnið á hátíðinni í ár en áralöng hefð er fyrir því að varpa nýju verki á kirkjuna á Vetrarhátíð,“ segir Elísabet Indra Ragnarsdóttir, verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi en glæsileg dagskrá Vetrarhátíðar hefst í kvöld klukkan 18 þegar verki Þórönnu Björnsdóttur verður varpað á austurhlið Kópavogskirkju.

Eldur í raðhúsi í Kópavogi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út eftir að eldur kom upp í raðhúsi við Hrauntungu í Kópavogi í dag.

Innlit í útsýnisperlu á Hafnarbraut í Kópavogi
147,1 fermetra íbúð á Hafnarbraut í Kópavogi á Fasteignavef Vísis hefur vakið athygli fagurkera. Um er að ræða innlit í einstaklega smekklega eign í fjölbýli með lyftu.

Fullyrðingar um hæfi biskups tilraun til að afvegaleiða umræðuna
Lögmaður séra Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digranesprestakalli, hefur dregið umboð og hæfi biskups í efa og kallað eftir úrskurði forseta kirkjuþings. Biskupsritari gefur lítið fyrir fullyrðingar lögmannsins og segir þær tilraun til að afvegaleiða umræðuna.

Lögmaður Gunnars dregur í efa að biskup sé biskup
Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digraneskirkju, hefur sent erindi á Drífu Hjartardóttur, forseta kirkjuþings, þar sem hún óskar eftir því að Drífa úrskurði um hæfi biskups til að taka ákvarðanir um Gunnar.

Tilkynnt um þjófnað í verslun og innbrot í geymslur í Kópavogi
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út vegna þjófnaðar úr verslun í Kópavogi í gærkvöldi. Sömuleiðis var óskað eftir aðstoð lögreglu þegar tilkynnt var um innbrot í geymslur í Kópavogi.

Hundabíói aflýst vegna leyfisvandræða
Bíósýningu þar sem gestir máttu taka hundana sína með hefur verið aflýst. Ekki tókst að fá leyfi eða undanþágu frá reglum sem banna hunda í kvikmyndahúsum.

Helga María nýr framkvæmdastjóri Sky Lagoon
Helga María Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Sky Lagoon. Hún tekur við af Dagnýju Pétursdóttur sem hættir störfum í byrjun mars.

Hyggst kæra manninn fyrir tilraun til manndráps
Maðurinn sem varð fyrir því að gröfumaður frá fyrirtækinu Óskatak sturtaði úr fullri skóflu af snjó yfir sig er strætóbílstjóri. Hann segist slasaður eftir atvikið og hyggst kæra gröfumanninn fyrir tilraun til manndráps.

„Við höfum engan áhuga á því að sjá iðnað á þessu svæði“
Bæjarstjóri í Kópavogi segir einhug innan bæjarstjórnarinnar um að mótmæla harðlega áformum Garðbæinga varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðarmörkum bæjarfélaganna. Stefnt er að því að byggja upp atvinnu- og verksmiðjuhverfi sem staðsett verður nánast í bakgarði eins stærsta hverfis Kópavogs, á Rjúpnahæð.

„Það dýrasta er ekki endilega það fallegasta“
Í fyrsta þætti af glænýrri þáttaröð af Heimsókn kíkti Sindri Sindrason í heimsókn í ævintýralegt hús á Kársnesinu í Kópavogi.

Óskatak og Strætó funda vegna uppákomunnar í Kópavogi
Forsvarsmenn verktakafyrirtækisins Óskataks og Strætó ætla að funda í dag vegna uppákomu við Engihjalla í Kópavogi í gær. Þar reyndi starfsmaður Óskataks á gröfu að sturta snjó yfir karlmann sem stóð nærri og öskraði að honum.

Gröfumaður hellir snjó yfir mann
Myndband er nú í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem gröfumaður sést hella nokkru magni af snjó yfir mann sem stóð þar á gangstétt við hliðina á gröfunni.

Sérfræðingur í lestarmálum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lest
Franskur byggingarverkfræðingur sem hefur sérhæft sig í lestarsamgöngum segir aðstæður hér á landi sérlega góðar fyrir lestarkerfi. Framkvæmdin sé vissulega dýr en samgöngur eigi ekki endilega að vera fjárhagslega arðbærar.

„Lítill og þægilegur“ eldur geti alltaf orðið að stærra báli
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu fékk útkall vegna elds í ruslatunnu við Kórinn í Kópavogi nú síðdegis. Varðstjóri segir að litlir eldar sem þessi geti hæglega orðið að einhverju stærra og alvarlegra.

Í þessum hópi ræða menn um bilaða flugvélahreyfla
Svo vænt þykir fyrrverandi starfsmönnum Loftleiða um sitt gamla félag að þeir halda úti sérstökum aðdáendaklúbbi. Þar lifir enn gamli Loftleiðandinn þar sem öldungar rifja upp glæsta tíma í flugsögunni.

Iðnaður ekki talinn æskilegur í Garðabæ en í lagi í Kópavogi
Íbúar í efri byggðum Kópavogs eru vægast sagt ósáttir við áform Garðbæinga um fyrirhugaðar framkvæmdir á lóðarmörkum bæjarfélaganna. Um er að ræða atvinnu-og verksmiðjuhúsnæði sem fyrirhugað er að muni rísa nánast í bakgarði einnar stærstu götu Kópavogs. Bæjarfulltrúi í Kópavogi segir einhug ríkja í bæjarstjórninni um að ráðast gegn fyrirhuguðum framkvæmdum.

Þarf að grisja trjálundinn eftir að nágrannaerjur fóru fyrir dóm
Íbúi í einbýlishúsi í Hjallahverfi Kópavogs hefur þrjá mánuði til þess að klippa trjágróður í trjálundi við húsið og á lóðamörkum við nærliggjandi parhús niður í ákveðna hæð, ella sæta dagsektum, eftir að nágrannaerjur um hæð gróðursins fóru fyrir dóm. Íbúinn þarf jafn framt að greiða nágrönnum sínum 1,6 milljónir króna í málskostnað vegna málsins. Tilraunir til sátta báru ekki árangur.

Umferð á Hafnarfjarðarvegi beint um hjáleið í næstu viku
Hafnarfjarðarvegi verður lokað á kafla við Kópavogsgjá öll kvöld og nætur á virkum dögum í næstu viku vegna framkvæmda.

Viðar Örn og Thelma selja hönnunarperlu í Kópavogi
Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson og barnsmóðir hans Thelma Rán Óttarsdóttir eru að selja stórglæsilegt einbýlishús við Perlukór í Kópavogi.

Ofurbloggari selur einbýlishúsið
Marinó Gunnar Njálsson ráðgjafi og ofurbloggari og eiginkona hans Harpa Karlsdóttir snyrtifræðingur hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt í Vatnsendahverfi á sölu.

Leggur til að samnýta borgarlínu og fluglest til Keflavíkur
Hægt væri að samnýta neðanjarðargöng fyrir fluglest frá Reykjavík til Keflavíkur og borgarlínu. Þetta segir ritstjóri skýrslu um lestarmál, sem kom út fyrir nokkrum árum, sem telur verkefnið leysa samgönguvanda borgarinnar í eitt skipti fyrir öll.