Kópavogur

Aðalsóknarfundur Digraneskirkju kærður til úrskurðarnefndar Kirkjuþings
Jón Svavarsson, sóknarbarn í Digranessókn, hefur sent úrskurðarnefnd Kirkjuþings ítrekun á kæru vegna kosningar sóknarnefndar Digraneskirkju á aðalsafnaðarfundi þann 18. apríl síðastliðinn.

Sinubruni í Seljahverfi: Slökkvistörf gengu greiðlega
Tekist hefur að slökkva sinubrunann sem upp kom á Rjúpnahæð fyrir ofan Seljahverfið í Reykjavík nú síðdegis. Að sögn Jónasar Árnasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu, gengu slökkvistörf vel.

Sinubruni á höfuðborgarsvæðinu
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út á fjórða tímanum í dag vegna sinubruna við Turnahvarf í Kópavogi.

Krefjast þess að ákvörðunin verði endurskoðuð
Stjórn Vinstri grænna í Kópavogi hefur lýst furðu sinni á samþykktum sem gerðar voru nýlegar á fundi bæjarstjórnar í sveitarfélaginu er varða starfsemi menningarhúsa í bænum. Er þess krafist að ákvarðanirnar verði endurskoðaðar.

Reyndi að hindra störf sjúkraflutningamanna með því að halda í börur
Einn var handtekinn í nótt eftir að hafa reynt að hindra lögreglu og sjúkraflutningamenn við störf í samkvæmi. Lögreglan hafði mætt á svæðið vegna meðvitundarlauss gests.

Til hvers eru skjalasöfn?
Það virðist sem ekkert lát sé á aðsókninni að skjalasöfnum þessa dagana. Svo virðist sem hverju sveitarfélaginu á fætur öðru finnist þau vera stofnanir sem megi leggja niður án þess að taka faglega umræðu um tilgang þeirra eða gagnsemi.

Hafna alfarið kröfum um afturvirkni
Starfsemi frístundaheimila og leikskóla í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur skerðist og gæti jafnvel lamast samþykki félagsmenn BSRB boðaðar verkfallsaðgerðir. Samband íslenskra sveitarfélaga hafnar alfarið kröfum BSRB um afturvirkni.

Uppsagnir í Kópavogi og stöðugildum fækkað
Stöðugildum fækkar um fjögur vegna skipulagsbreytinga á vegum Kópavogsbæjar sem tengjast starfsemi menningarhúsa bæjarins og samþykktar voru á bæjarstjórnarfundi í gær. Stöðugildum verður fjölgað um þrjú við Gerðarsafn. Alls munu níu missa vinnuna vegna skipulagsbreytinga hjá Kópavogsbæ.

Segir SÍS einbeitt í að mismuna fólki
Atkvæðagreiðsla um verkfall starfsmanna BSRB í skólum og frístundaheimilum í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur hófst núna á hádegi en kjaradeila stéttarfélagsins við Samband íslenskra sveitarfélaga hefur siglt í strand. Formaður BSRB segir SÍS einbeitt í því að mismuna fólki.

Greiða atkvæði um verkföll í leik- og grunnskólum
Í dag hefst atkvæðagreiðsla ellefu aðildarfélaga BSRB um verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS). Atkvæðagreiðslunni lýkur á laugardag og verða niðurstöður kynntar þá eftir hádegi.

Leggja niður Héraðsskjalasafn Kópavogsbæjar
Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að leggja niður Héraðsskjalasafn Kópavogsbæjar og fara í samvinnu við Þjóðskjalasafn um að taka við safnkostinum. Ákvörðunin er tekin fáeinum vikum eftir að borgarstjórn Reykjavíkur ákvað að leggja niður Borgarskjalasafn.

Glæsieign í Goðakór
Fimm herbergja einbýlishús við Goðakór í Kópavogi er til sölu. Ásett verð fyrir fermetrana 228 eru 162.900.000 milljónir króna.

Innbrotsþjófar á faraldsfæti í nótt
Innbrotsþjófar voru á ferð víð og dreif um höfuðborgarsvæðið í gærkvöldi og í nótt. Ekki tókst að handtaka alla þá og komust einhverjir á brott með þýfi. Þá var mikið um að lögregla hafi þurft að vísa fólki í annarlegu ástandi úr heimahúsi í nótt.

Hallarbylting í sóknarnefnd Digraneskirkju á löngum fundi í gær
Það bar til tíðinda á aðalsafnaðarfundi Digraneskirkju í gærkvöldi, þar sem öllum tillögum formanns sóknarnefndar um framboð til stjórnar var hafnað og fólk af nýjum lista sem dreift var til fundarmanna kosið þess í stað.

Réðust inn í verslun vopnaðir hamri og kúbeini
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gær tilkynning um vopnað rán í Kópavogi, þar sem tveir einstaklingar vopnaðir hamri og kúbeini réðust inn í verslun og höfðu á brott með sér peninga úr peningakassa.

Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið.

Sitja ein í súpunni og þrífa skítinn
Hjón í Kópavogi þrífa skólp af heimili sínu vopnuð kolagrímum og sitja uppi með milljóna tjón eftir að stífla í skólpröri olli því að úrgangur flæddi inn í hús þeirra. Tryggingafélag hafnar bótaskyldu og fjölskyldan segir engin svör berast frá Kópavogsbæ.

Hópur íbúa ræðir að koma sóknarnefndinni frá á aðalfundi á morgun
Fundað hefur verið um það meðal hóps íbúa í Kópavogi að koma sóknarnefnd Digraneskirkju frá. Aðalsafnaðarfundur Digraneskirkju verður haldinn klukkan 20 annað kvöld.

Gamall Volvo brann til kaldra kola í Kópavogi
Eldur kom upp í bifreið í Kórahverfinu í Kópavogi í dag. Samkvæmt varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu brann bíllinn til kaldra kola en um var að ræða gamlan bíl frá Volvo.

Allar björgunarsveitir höfuðborgarsvæðisins kallaðar út vegna hvassviðris
Allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út vegna gríðarlegs fjölda tilkynninga um foktjón. Meðal þeirra verkefna björgunarsveita, sem eru orðin hundrað talsins, er hjólhýsi sem fauk á hliðina í Kórahverfinu. Flugvél Play neyddist til að lenda á Akureyri þar sem ekki tókst að lenda henni í Keflavík.

Eftirlýstur reyndi að hlaupa frá lögreglu
Ökumaður reyndi að flýja lögreglu á bifreið sinni í gærkvöldi en þegar það gekk ekki fór hann úr bílnum og reyndi að komast burt á hlaupum. Það tókst honum ekki og voru bæði hann og farþegi bifreiðarinnar handteknir grunaðir um að selja fíkniefni en töluvert magn þeirra fundust í fórum þeirra ásamt fjármunum sem taldir eru vera hagnaður af sölu. Þá reyndist ökumaðurinn einnig vera eftirlýstur.

Eldur í bíl á Reykjanesbraut
Eldur kom upp í bíl á Reykjanesbraut í Kópavogi á tíunda tímanum í morgun. Mikinn reyk lagði frá bifreiðinni.

Stofnuðu Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins eftir tveggja ára undirbúning
Í dag var Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð eftir tveggja ára undirbúning. Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og stofnendur eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins.

Tryllt dagskrá í fimmtugsafmæli aldarinnar í Smáranum
Það er óhætt að segja að dagskráin hafi verið sérstaklega vegleg í tvöföldu fimmtugsafmæli í Smáranum í Kópavogi í gær. Margir af vinsælustu skemmtikröftum þjóðarinnar skemmtu fleiri hundruð manns í afmæli sem verður lengi í minnum haft.

„Allt sem við áttum fór í þetta“
Fjölskylda í Kópavogi stendur frammi fyrir milljónatjóni eftir að skólp flæddi upp um öll gólf vegna stíflu í röri, sem fjölskyldan segir á ábyrgð sveitarfélagsins. Kópavogsbær hafnar því að hafa vitað af stíflunni áður en ósköpin dundu yfir.

Bíll með hestakerru valt nærri Bláfjallaafleggjara
Ökumann og hest sakaði lítið þegar bíll með hestakerru í eftirdragi valt á Suðurlandsvegi nærri afleggjaranum að Bláfjöllum í dag. Dælubíll slökkviliðs var sendur á staðinn vegna þess að slysið átti sér stað inni á vatnsverndarsvæði.

Organista Digraneskirkju sagt upp störfum
Sólveigu Sigríði Einarsdóttur, organista í Digraneskirkju, hefur verið sagt upp störfum. Sunna Dóra Möller, sóknarprestur í Hjallakirkju, segir að þar með sé búið að láta „síðasta þolandann fjúka úr Digranesi“.

Skólp flæddi inn á heimili fjölskyldu í Kópavogi: „Hér er allt fullt af skít“
Fjögurra manna fjölskylda í Kópavogi sér fram á milljóna tjón eftir að stífla í skólpröri olli því að skólp flæddi inn í íbúð þeirra og olli gífurlegum skemmdum. Eigandi segir Kópavogsbæ hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni. Svör frá tryggingafélaginu séu á þá leið að ekkert sé hægt að aðhafast fyrr en beiðni berist frá Kópavogsbæ. Íbúðin sé byrjuð að mygla og tíminn á þrotum. Kópavogsbær hafnar að hafa viðurkennt ábyrgð á stíflunni.

Hörðuvallaskóla verður skipt í tvennt
Hörðuvallaskóla verður skipt í tvo sjálfstæða skóla frá og með næsta skólaári. Annars vegar skóla fyrir 1.-7.bekk og hins vegar skóla fyrir unglingastigið, 8.-10.bekk. Miðað er við núverandi skiptingu árganga á milli skólabygginga.

Íbúar Kópavogsbæjar hafa rofið 40 þúsund manna múrinn
Íbúar Kópavogsbæjar eru nú orðnir 40 þúsund talsins. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri afhenti á dögunum dreng sem kom í heiminn um miðjan mánuðinn, ásamt foreldrum hans gjafir til að fagna tímamótunum í sögu bæjarins.