Garðabær

Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ
Hjónin Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur og fyrrum Ungfrú Heimur, og Pétur Rúnar Heimisson, markaðs-og þjónustustjóri fasteignafélagsins Heima, hafa fest kaup á einbýlishúsi við Löngumýri í Garðabæ.

Hundrað ára afmæli bílsins í uppnámi eftir brunann
Níutíu og níu ára gamall bíll brann þegar eldur kviknaði í bílskúr á Álftanesi á þriðjudag. Eigandi hugðist halda upp á hundrað ára afmæli bílsins í júlí á næsta ári en er þó ekki alveg tilbúinn að afskrifa hann.

Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars
Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031.

Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði Olíudreifingu af rúmlega sjötíu milljóna króna bótakröfu Costco vegna olíuleka á bensínstöð verslunarrisans í Garðabæ árið 2022. Meira en hundrað þúsund lítrar af olíu láku út í fráveitukerfi Hafnarfjarðar. Ekkert stöðugt eftirlit með stöðinni var tryggt.

Eldur í bílskúr á Álftanesi
Eldur kom upp í bílskúr á Álftanesi rétt fyrir kl. 16 í dag. Allt tiltækt lið slökkviliðsins var ræst út en svo virðist sem búið sé að slökkva eldinn.

VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor
Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir víða um land rætt um mögulegt samstarf í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga sem fara fram næsta vor. Hún vill ekki segja til um hvaða flokka sé að ræða en nefnir í þessu samhengi Kópavog, Árborg og Ísafjörð.

Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma
„Það er óhætt að segja að Ómar hafi verið og sé enn eitt af mínum átrúnaðargoðum,“ segir tónlistarmaðurinn Reynir Snær sem notast við listamannsnafnið Creature of Habit. Hann og Ómar Guðjónsson voru að senda frá sér ábreiðu af sögulega laginu Þrek og tár og frumsýna hér tónlistarmyndband.

Missti nánast sjónina þegar sláttuorf skaut steini í annað augað
Óttarr Makuch veitingamaður segist nánast hafa misst sjónina í öðru auganu þegar garðyrkjumaður skaut óvart steini í augað á honum með sláttuorfi. Garðyrkjufyrirtækið harmar að slysið hafi orðið og segist búið að ræða við starfsmanninn.

Íbúar leiti réttar síns vegna flautsins: „Þetta er lýðheilsuógn“
Umtalað „djöflablístur“ eða „draugahljóð“ virðist leika íbúa fleiri hverfa en Laugarneshverfis grátt. Hljóðverkfræðingur segir hljóðið lýðheilsuógn og hvetur íbúasamtök til að leita réttar síns. Þreyttir foreldrar í Urriðaholti íhuga að gera nákvæmlega það.

Braust inn hjá vinsælum hársnyrti og hafði af honum vegabréfið
Jad Mar hársnyrti brá heldur í brún þegar hann mætti í vinnuna í morgun og sá að brotist hafi verið inn á hársnyrtistofu hans í Garðabæ. Hann segir að þjófurinn hafi numið á brott reiðufé, rakvélar og jafnvel vegabréf.

Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi
Heilsukokkurinn Kristjana Steingrímsdóttir, betur þekkt sem Jana, og eiginmaður hennar Sigþór Júlíusson framkvæmdastjóri Leiknis og fyrrverandi knattspyrnumaður, hafa sett fallegt raðhús við Byggakur í Garðabæ á sölu. Ásett verð er 225 milljónir.

Gæsluvarðhald framlengt aftur
Gæsluvarðhald yfir konu á þrítugsaldri, sem grunuð er um að hafa ráðið föður sínum bana á heimili þeirra í Garðabæ, hefur verið framlengt um fjórar vikur, til 1. júlí, á grundvelli almannahagsmuna.

Stærsta brautskráning í sögu skólans
Aldrei hafa jafn margir útskrifast úr Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í sögu skólans. 159 nemendur brautskráðust frá skólanum í gær.

Svæðið sem Veitur vilja girða „óþarflega stórt“
Jarðfræðingur segir svæði sem Veitur áforma um að girða af í Heiðmörk í þágu vatnsverndar óþarflega stórt. Hann leggur endurskilgreiningu vatnsverndarsvæðisins og bindur vonir við að Veitur, sem standa fyrir breytingunum, hinkri með framkvæmdir í Heiðmörk. Sjálfbærnistjóri segir forgangsröðunina einfalda; vatnið fyrst og aðrir hagsmunir síðan.

Bein útsending: Uggandi yfir breytingum á Heiðmörk
Skógræktarfélag Reykjavíkur býður til málþings um framtíð Heiðmerkur klukkan 17 í Norræna húsinu í tilefni þess að margt bendir til þess að aðgengi almennings verði takmarkað að svæðinu í framtíðinni.

Eldur kviknaði í hjólhýsi við íbúðarhús
Eldur kviknaði í hjólhýsi fyrir utan einbýlishús í Lundahverfi í Garðabæ laust fyrir klukkan 13. Slökkvilið hefur náð tökum á eldinum.

Sara Björk og Árni kaupa í Urriðaholti
Knattspyrnuparið Sara Björk Gunnarsdóttir og Árni Vilhjálmsson hafa fest kaup á glæsilegri útsýnisíbúð við Brekkugötu í Urriðaholti. Kaupverðið nam 88,5 milljónum króna.

Skera niður til að mæta launahækkunum
Garðabær hefur ákveðið að ráðast í aukna hagræðingu upp á 83 milljónir króna á árinu 2025 til að mæta kostnaðarauka vegna nýrra kjarasamninga.

Fjölga ferðum og auka tíðni ákveðinna leiða Strætó í haust
Auka á þjónustu Strætó í haust á ákveðnum leiðum. Ákveðnar leiðir munu ganga lengra fram á kvöld og tíðni ákveðinna leiða verður aukinn á annatíma og á milli annatíma. Þjónustuaukningunni er ætla að venja fólk við aukinni tíðni áður en nýtt leiðanet tekur gildi með tilkomu Borgarlínunnar árið 2031.

Keyptu glæsihús Atlanta-hjónanna á undirverði
Hjónin Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju, og Edda Björk Kristjánsdóttir, mannauðsstjóri Húsasmiðjunnar, hafa fest kaup á glæsilegu húsi við Stórakur í Garðabæ. Kaupverðið var 370 milljónir króna.

Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi
Einn gisti í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt fyrir að hafa reynt að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi. Fram kemur í dagbók að málið sé til rannsóknar en ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar hvaða hótel um ræðir. Atvikið á sér þó stað hjá stöð 1 sem sér um Austurbæ, miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes.

Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina
Heimsfrægur sundkappi segir fyrirhugaða ferð sína í kringum landið geta tekið allt að fimm mánuði. Hann segir stuðning og gleði Íslendinga vera honum ómetanlegt en hann var við æfingar á Álftanesi fyrr í dag.

Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið
Fimmtán ára ökumaður ók undan lögreglu með ofsafengnum hætti úr Hafnarfirði, í gegnum Garðabæ og Kópavog og endaði akstur sinn í Reykjavík. Hann var á bíl sem hann tók í óleyfi.

„Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“
„Ég er ekki að segja þessa sögu til að kvarta, heldur af því að þetta er sannleikur sem margir þora ekki að segja upphátt,“ segir Greta Ósk Óskarsdóttir, móðir 19 ára pilts með fötlun, sem hefur nú stigið fram opinberlega til að segja frá því sem hún lýsir sem kerfisbundnu viðnámi gegn lögbundinni þjónustu fyrir son sinn í Garðabæ.

Viðsnúningur eftir krappan dans
Rekstur sveitarfélaga virðist með miklum ágætum ef marka má nýjustu uppgjör þeirra flestra fyrir árið 2024. Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir þetta kærkomið eftir erfiðan, langan tíma.

Konan í gæsluvarðhaldi í mánuð til viðbótar
Gæsluvarðhaldið yfir konu um þrítugt vegna rannsóknar á andláti föður hennar hefur verið framlengt um fjórar vikur, eða til 3. júní.

Stefán Einar keypti 145 milljón króna þakíbúð
Fjölmiðlamaðurinn Stefán Einar Stefánsson hefur fest kaup á glæsilegri þakíbúð í nýju fimm hæða fjölbýlishúsi við Lautargötu í Urriðaholti. Hann greiddi samkvæmt heimildum fréttastofu 144,9 milljónir fyrir eignina.

Eldur í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti
Eldur kviknaði í bíl við fjölbýlishús í Urriðaholti í Garðabæ um fimmleytið í nótt.

Verðmiðinn hækkar á höll Antons
Verðmiðinn á einbýlishúsi við Haukanes 24 í Garðabæ heldur áfram að hækka. Um er að ræða glæsilegt hús sem enn er í byggingu og í eigu Antons Kristins Þórarinssonar. Ásett verð eignarinnar er 625 milljónir króna, en fasteignamat hennar er 407,4 milljónir. Þegar eignin var fyrst auglýst til sölu í janúar í fyrra var ásett verð 590 milljónir.

Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina
Flestar félagslegar leiguíbúðir eru í Reykjavík og þar er hlutfall slíkra íbúða einnig hæst miðað við fjölda íbúða á hverja þúsund íbúa, samkvæmt svari Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni þingmanni Samfylkingarinnar.