Grindavík

Erlendu leikmenn Grindavíkur vel upplýstir: „Nóttin var ekkert eðlileg“
Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur í körfuboltanum, segir vel haldið utan um erlendu leikmennina í liðinu sem eru flestir að finna fyrir almennilegri jarðskjálftavirkni í fyrsta sinn á ævinni þessa dagana. Órói hefur gert vart um sig á svæðinu en Ólafur sjálfur er rólegur yfir stöðunni og svaf hann af sér skjálfta næturinnar.

Skjálftavirknin viðbúin þegar land rís svona hratt
Stærðarinnar skjálftar hafa riðið yfir norðvestur af Grindavík frá miðnætti, þrír hafa verið yfir fjórum að stærð. Jarðeðlisfræðingur segir eðlilegt að stærri skjálftar ríði yfir þegar landris verður eins hratt og raunin er við fjallið Þorbjörn. Það þurfi þó ekki að þýði að von sé á gosi.

Lokum Bláa lóninu
Þann 9. desember 2019 hófst sprengigos á eyjunni Whakaari úti fyrir ströndum Nýja Sjálands. Gosið kom nokkuð á óvart og var töluvert af ferðamönnum á eyjunni. Fólkið á svæðinu hafði enga undankomuleið og alls létust 22 á eyjunni þennan dag.

750 skjálftar frá miðnætti
Alls hafa 750 jarðskjálftar mælst á Reykjanesinu frá miðnætti og segir sérfræðingur að virknin hafi aukist aðeins í nótt.

„Þetta er í fyrsta sinn sem manni er svolítið órótt“
„Ég vaknaði bara strax við þann fyrsta sem kom eftir miðnætti. Og vaknaði aftur um klukkan þrjú og hef ekki sofnað síðan. Þetta er bara búið að vera viðvarandi; stórir skjálftar. Maður sér á vefnum að þeir eru yfir þrír meira og minna.“

Skjálfti 4,2 að stærð rétt vestur af Bláa lóninu
Skjálfti 4,2 að stærð varð um 1,2 kílómetra vestur af Bláa lóninu á Reykjanesskaga klukkan 3:51 í nótt. Sjö skjálftar sem hafa verið stærri en 3 að stærð, hafa mælst frá miðnætti, en skjálftanir hafa fundist víða á suðvesturhorni landsins.

Heitt vatn og rafmagn undir: „Allt kapp lagt á það að verja virkjunina“
Framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku segir virkjun fyrirtækisins í Svartsengi gríðarlega mikilvæga, enda sjái hún íbúum á Reykjanesi fyrir heitu og köldu vatni og rafmagni. Verði eldgos á vondum stað verði erfiðast að koma heitu vatni til íbúa.

Snarpur skjálfti norðaustur af Þorbirni
Íbúar í Grindavík fundu vafalítið fyrir nokkuð snörpum jarðskjálfta á níunda tímanum.

Þensla undir Þorbirni og öflugra merki um landris
Kristín Jónsdóttir, deildarstjóri eldvirkni, jarðskjálfta og í jarðhniki hjá Veðurstofu Íslands, segir að þensla á fimm kílómetra dýpi undir Þorbirni sé til marks um kvikusöfnun. „Kvikukoddi“ sé að myndast undir Þorbirni og öflugra merki sé um landris.

Bein útsending: Upplýsingafundur vegna jarðhræringa á Reykjanesi
Boðað hefur verið til upplýsingafundar fyrir íbúa Grindavíkur í íþróttamiðstöð bæjarins klukkan 17. Tilefni fundarins eru jarðhræringar norðvestan við fjallið Þorbjörn.

Staðfest að kvika sé á fjögurra til fimm kílómetra dýpi
Ítarleg greining á nýjum GPS gögnum og myndum frá gervitunglum staðfesta að kvikuinnskot sé að myndast á fjögurra til fimm kílómetra dýpi undir svæðinu norðvestan við Þorbjörn. Landris heldur áfram á svæðinu.

Jarðskjálftavirkni heldur áfram
Jarðskjálftavirkni heldur áfram við Þorbjörn og Svartsengi á Reykjanesskaga. Rúmlega tvö hundruð skjálftar hafa mælst frá miðnætti en engar stórar breytingar eru á virkninni síðan í gær. Síðasta sólarhring hafa aðalega smáskjálftar mælst á svæðinu en enn má gera ráð fyrir stærri skjálftum.

Öflugt landris en engin merki um að eldgos sé yfirvofandi
Engin skýr merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs á Reykjanesi. Landris við fjallið Þorbjörn heldur þó áfram af krafti.

Hópur íbúa í Grindavík kvíðinn og óttasleginn
Gervitunglamyndir og GPS gögn benda til þess að kvikuinnskot sé á um það bil fjögurra kílómetra dýpi norðvestan við fjallið Þorbjörn. Bæjarstjóri Grindavíkurbæjar segir marga íbúa kvíðna og að sérstaklega þurfi að halda vel utan um íbúa af erlendum uppruna.

Stærsti skjálftinn í nótt 3,7 stig
Tæplega hundrað skjálftar hafa riðið yfir á Reykjanesinu frá miðnætti, sá stærsti upp á 3,7 stig. Sá kom rétt fyrir klukkan eitt í nótt og var á fimm kílómetra dýpi, 4,6 kílómetra norðvestur af Grindavík.

„Maður hrekkur upp eins og húsið sé að farast hjá manni“
Íbúar í Grindavík eru löngu orðnir vanir skjálftum eftir tíðar hrynur síðustu ár. Þrátt fyrir það taka þeir skjálftunum ekki fagnandi. Margir hrökkva ítrekað við á nóttunni vegna skjálftanna.

Vel undirbúin fari að gjósa
Sérfræðingar Veðurstofunnar telja ekki útilokað að kvika nái að brjóta sér leið upp í jarðskorpuna norðvestur af Þorbirni skammt frá Bláa lóninu. Framkvæmdastjóri lónsins segir starfsmenn þess reiðubúna ef það fer að gjósa. Jarðskjálftahrina á svæðinu í dag þykir skýrt merki um kvikuhlaup.

Tveir stórir skjálftar norður af Grindavík
Laust fyrir klukkan níu í morgun reið yfir skjálfti sem mældist 3,1 að stærð um 3,6 km norður af Grindavík en litlu seinna reið annar og stærri yfir á sama stað en sá mældist 3,4 að stærð.

Með áætlanir gjósi í Svartsengi
Kvikusöfnun heldur áfram nærri Svartsengi og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segir fyrirtækið með viðbragðsáætlun komi til eldgoss. Stjórnendur funduðu með almannavörnum í dag.

Skjálfti upp á 4,5 fannst víða
Fólk á suðvesturhorninu fann margt hvert vel fyrir jarðskjálfta nærri Grindavík um klukkan nítján mínútur yfir tólf. Íbúar á Akranesi voru á meðal þeirra sem fundu fyrir skjálftanum sem reyndist 4,5 að stærð.

Langvarandi landris gæti þýtt kröftugra eldgos
Eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands segir ört landris við Svartsengi og Þorbjörn ekki góðar fréttir í ljósi staðsetningar. Langvarandi landris sé til marks um að töluvert hafi safnast af kviku á svæðinu og því ætti eldgos þar að vera aðeins kraftmeira en síðustu tvö. Hann segir farsælla að viðbragðsaðilar geri í undirbúningi sínum ráð fyrir slæmri útkomu til að þeir séu betur í stakk búnir að leysa málin skjótt og örugglega.

Áframhaldandi þensla við Þorbjörn
Land heldur áfram að rísa umhverfis Þorbjörn og Svartsengi. Þetta staðfesta nýjustu gögn Veðustofunnar. Von er á nýjum gervihnattamyndum síðar í dag sem þó verður líklega ekki hægt að lesa úr fyrr en á morgun.

Staðan skýrist betur á morgun
Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á Reykjanesskaga muni skýrast betur á morgun þegar nýjar myndir berast frá SENTINEL, gervitungli Evrópsku geimstofnunarinnar. Landris hófst við Svartsengi í gær og merki eru um aflögun við Fagradalsfjall. Ekki er talið að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborð að svo stöddu.

Landris mælist norðvestan við Þorbjörn
GPS gögn og myndir frá gervitunglum sýna skýr merki um landris nærri Svartengi sem virðist hafa hafist í gær.

Reikna með áframhaldandi skjálftavirkni á Reykjanesi
Sérfræðingar Veðurstofu Íslands segja áfram mega búast við jarðskjálftum á Reykjanesskaganum vegna spennubreytinga vegna þenslu á töluverðu týpi undir Fagradalsfjalli.

Segir ekkert eldgos að byrja en hrinan haldi áfram
Jarðeðlisfræðingur segir að skjálftahrinan á Reykjanesi muni að öllum líkindum halda áfram. Hann segir ekkert benda til þess nú að eldgos sé við það að hefjast. Hann segir ekkert nýtt að frétta í Bárðarbungu, þrátt fyrir stóran skjálfta sem mældist þar í gær.

Skjálfti 3,6 að stærð á Reykjanesi
Jarðskjálfti 3,6 að stærð mældist í kvöld klukkan 20:45 um 2,5 kílómetra norðvestur af Þorbirni á Reykjanesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni.

Fylgjast vel með en óvíst hvort kvika færist nær yfirborðinu
Tveir jarðskjálftar yfir þremur að stærð mældust rétt norður af Þorbirni í Grindavík í morgun. Meira en þúsund skjálftar hafa mælst við Þorbjörn og Fagradalsfjall síðan á miðnætti. Bæjarstjórinn í Grindavík segir óþægilegt að vakna aftur við þennan veruleika en íbúar séu orðnir vanir.

Lýsa yfir óvissustigi vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrinan hófst snemma í morgun og er enn í gagni.

Skjálfti 4,5 að stærð við Grindavík
Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 mældist nærri Grindavík klukkan 8:18. Skjálftinn er annar sem mælist yfir þremur að stærð á Reykjanesi í morgun. Jarðskjálftinn fannst vel á Reykjanesi, á höfuðborgarsvæðinu og alla leið upp á Akranes.