Reykjavík
224 225 226 227 228 229 230 231 232 … 334 ›
Telja ólíklegt að hætta sé fyrir hendi en skoða að setja upp skilti Isavia telur ólíklegt að vegfarendur á ferð við flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar við Suðurgötu séu í hættu vegna loftstreymis frá kraftmiklum þotum. Þó er til skoðunar hvort tilefni sé til að vara sérstaklega við slíkri hættu. Innlent 28.10.2021 14:45
Framkvæmdastjóri ÍR ákærður fyrir að draga sér fé og strauja kortið fyrir milljónir Héraðssaksóknari hefur ákært Árna Birgisson, fyrrverandi framkvæmdastjóra Íþróttafélags Reykjavíkur (ÍR) fyrir fjárdrátt, umboðssvik og peningaþvætti, með því að hafa í starfi sínu dregið sér samtals tæpar 3,2 milljónir króna og greitt eigin reikninga með kreditkorti félagsins fyrir tæpar 1,6 milljónir króna. Innlent 28.10.2021 10:25
Hross mikið slasað eftir að ekið var á það á Kjalarnesi Ekið var á hross á Kjalarnesi í gærkvöldi. Lifði það áreksturinn en var mikið slasað. Engin slys urðu á fólki en ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og hefur ítrekað verið stöðvaður þrátt fyrir að hafa verið sviptur ökuréttindum. Innlent 28.10.2021 05:49
Árs fangelsi fyrir að hafa ítrekað berað sig fyrir framan börn Karlmaður á áttræðisaldri var nýlega dæmdur í tólf mánaða fangelsi. Maðurinn hefur ítrekað berað sig fyrir framan börn á leiksvæði við heimili sitt í Grafarvogi. Ákærði hefur þrisvar sinnum áður verið dæmdur fyrir sams konar brot. Innlent 27.10.2021 22:09
Stefnt að aðgerðum vegna búsetu í atvinnuhúsnæði Borgarstjóri segir að reikna megi með því að minnsta kosti hundruð manna búi í atvinnuhúsnæði þar sem aðbúnaði og öryggi fólks sé ábótavant. Gera eigi gangskör að því að meta umfangið og grípa til aðgerða í framhaldinu án þess þó að ógna húsnæðisöryggi fólks. Innlent 27.10.2021 21:00
Árekstur á Lambhagavegi í Úlfarsárdal: Einn fluttur á sjúkrahús Árekstur varð á Lambhagavegi í Úlfarsárdal um klukkan hálf sex í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var einn fluttur á bráðamóttöku. Innlent 27.10.2021 18:11
Flaug fjóra metra vegna loftstreymis frá einkaþotu Hún var myndarleg byltan sem flugáhugamaðurinn Benedikt Sveinsson fékk er hann var að fylgjast með einkaþotu hefja flugtak á Reykjavíkurflugvelli á dögunum. Lofstreymi frá hreyflum vélarinnar feykti honum um koll út á Suðurgötuna. Spurningamerki hefur verið sett við öryggi vegfarenda á þessum slóðum í umræðum um málið. Innlent 27.10.2021 14:04
Fylgifiskar yfirgefa Borgartúnið og stefnt að opnun Krónunnar Fylgifiskar munu loka verslun sinni í Borgartúni 26 í byrjun næsta mánaðar og þá er stefnt að opnun Krónuverslunar í sama og aðliggjandi rýmum. Stefnt er að opnun Krónunnar í Borgartúni í byrjun næsta árs. Viðskipti innlent 27.10.2021 11:50
Fyrst koma innviðirnir, svo uppbyggingin „Undanfarin ár hafa verið algjör metár í uppbygginu í borginni og það sem við erum að leggja upp með er að það haldi áfram. Og raunar ætlum við að bæta í heldur en hitt.“ Þetta sagði Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Bítínu á Bylgjunni í morgun, þar sem rætt var um húsnæðismál í höfuðborginni. Innlent 27.10.2021 11:13
Daggæsla á vinnustað Það er skortur á úrræðum fyrir fjölskyldufólk í Reykjavík. Leikskólapláss eru af skornum skammti, biðlistar á frístundaheimili langir og dagforeldrum fer árlega fækkandi. Fjölskyldur flytja til annarra sveitarfélaga þar sem þjónusta er trygg og lífsgæði mælast betri. Skoðun 27.10.2021 08:30
RAVEN steig á stokk á Stofutónleikum á Granda Nágrannarnir Ólafsson gin og Alda Music standa í haust fyrir tónleikaröð með nokkrum af frískustu hljómsveitum og tónlistarfólki landsins. Tónleikarnir eru teknir upp í húsakynnum Ólafsson við Eyjarslóð á Grandanum og verða frumsýndir á Vísi. Tónlist 27.10.2021 08:01
Leita að nýju húsnæði fyrir Vínbúð í miðborginni Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur auglýst eftir leiguhúsnæði í miðborg Reykjavíkur fyrir verslun sem ætlað er að koma í stað þeirrar sem er til húsa í Austurstræti. Viðskipti innlent 27.10.2021 07:46
Glænýr og allt öðruvísi Flatus lifir Listaverk sem hefur lifað með þjóðinni áratugum saman hefur tekið á sig nýja mynd í Kollafirði. Flatus lifir enn og nafn hans vísar að þessu sinni til vindgangs í huga listamannsins. Innlent 26.10.2021 20:48
Leitar réttar síns eftir að NS tók stöðu gegn Hróa hetti Forsvarsmaður Sparibíls fordæmir niðurstöðu Neytendastofu (NS) í máli bílasölunnar og sakar stofnunina um að ganga erinda samkeppnisaðilans. Stjórnendur hyggjast leita réttar síns og kæra ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála. Viðskipti innlent 26.10.2021 19:50
Alelda bíll við Þjóðarbókhlöðuna Bifreið á bílastæði Þjóðarbókhlöðunnar í vesturbæ Reykjavíkur varð alelda nú í kvöld. Innlent 26.10.2021 19:43
Dýralæknir MAST segir Gústa Jr. sýna skýr merki um streitu og telur brotið á honum Þóra Jóhanna Jónasdóttir, sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST), segist telja þörf á því staðreyndir í máli refsins Gústa Jr. komi fram, en talsvert hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum að undanförnu. Hún segir það skýrt að verið sé að brjóta gegn velferð refsins. Innlent 26.10.2021 18:32
Villandi framsetning Sparibíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ódýrari“ Rangar fullyrðingar koma fram í auglýsingum Bonum, sem rekur Sparibíl í Hátúni í Reykjavík, um þá bíla sem félagið selji og eru þær taldar villandi. Neytendur 26.10.2021 07:01
Ók á móti umferð og endaði á lögreglubifreið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók unga konu rétt eftir miðnætti í nótt sem grunuð er um umferðaóhapp og að aka rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Innlent 26.10.2021 06:18
Freistaði þess að stela 10 kg af smjöri Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá í gærkvöldi og nótt vegna þjófnaða en um var að ræða þrjú ótengd atvik. Innlent 26.10.2021 06:09
Hvarf í fjögur ár en birtist óvænt í dag Kötturinn Narfi er fundinn. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að fjögur ár eru síðan hann lét sig hverfa út um glugga í Hlíðunum. Eigandinn er í skýjunum, þótt kötturinn hafi óneitanlega elst um nokkur ár. Innlent 25.10.2021 21:30
Efast um að borgin kaupi fleiri smáhýsi Smáhýsi fyrir heimilislausa hafa nú verið ónotuð í geymslu í rúmt ár þar sem erfiðlega hefur gengið að finna þeim samastað. Formaður velferðarráðs Reykjavíkur segir andstöðu við málið hafa komið sér á óvart og efast um að borgin kaupi fleiri smáhýsi. Innlent 25.10.2021 20:00
Samdi lag um átökin við MAST: Tvísaga um hvort hann sé raunverulegur eigandi Héraðsdómur Reykjavíkur veitti lögreglu þann 12. október heimild til húsleitar á heimili Ágústs Beinteins Árnasonar. Vísir greindi frá því í síðustu viku að lögregla og fulltrúar Matvælastofnunar (MAST) hafi gripið í tómt þegar til stóð að sækja ref sem Ágúst hefur haldið sem gæludýr. Innlent 25.10.2021 19:48
Af metnaðarfullum áætlunum Reykjavíkurborgar Nú er rétt ár liðið síðan Reykjavík kynnti fyrst áform sín um að setja aukinn kraft í stafræna umbreytingu á þjónustu og innviðum borgarinnar. Þessi áform voru sett fram og kynnt með Græna planinu sem var lagt fram í fyrra sem viðspyrna vegna fyrirsjáanlegs efnahagssamdráttar. Skoðun 25.10.2021 08:01
Kveikt í bifreið í Háagerði í nótt Nokkur viðbúnaður var í Háagerði í Reykjavík í nótt vegna bílbruna. Tilkynning um eldinn barst rétt fyrir klukkan 2 en talið er að kveikt hafi verið í bifreiðinni. Var hún flutt af vettvangi þegar búið var að slökkva eldinn og er málið í rannsókn. Innlent 25.10.2021 06:08
Nýr framkvæmdastjóri KR bjartsýnn á framtíð félagsins Fyrrum knattspyrnumaðurinn Bjarni Guðjónsson tók nýverið við starfi framkvæmdastjóra KR. Sport 24.10.2021 23:30
Verk sem voru falin í geymslum á uppboð Nokkur hundruð listaverk eftir marga virtustu listamenn þjóðarinnar fundust óvænt í geymslum Hótels Sögu fyrr á árinu. Bændasamtökin ákváðu að bjóða verkin upp því þau gagnist engum falin inn í geymslum. Innlent 24.10.2021 21:31
Réðust á mann vopnaðir öxi og kúbeini Lögregla handtók þrjá vegna alvarlegrar líkamsárásar í Reykjavík aðfaranótt laugardags. Mennirnir voru vopnaðir bæði kúbeini og öxi en að sögn Þóru Jónasdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns á höfuðborgarsvæðinu, er ekki ljóst hvort báðum vopnum hafi verið beitt í árásinni. Innlent 24.10.2021 17:11
Var að horfa á konuna en ekki köttinn Færsla sem ljósmyndarinn Þröstur Guðlaugsson birti í Facebook-hópi Vesturbæinga hefur vægast sagt fengið mikil og góð viðbrögð. Færslunni er beint að konu sem hann átti í stuttum orðaskiptum við fyrir utan Kaffi vest í gær. Lífið 24.10.2021 13:30
Ein stærsta ráðstefna Íslandssögunnar verður að veruleika eftir átta ára baráttu Heimsþing Alþjóðajarðhitasambandsins hefst í Hörpu í fyrramálið og stendur í þrjá daga. Þetta er í fyrsta skipti sem þingið er haldið á Íslandi en að sögn formanns skipulagsnefndar þess þurfti Ísland að berjast við lönd á borð við Bandaríkin og Þýskaland um að fá að halda það. Innlent 24.10.2021 13:20
Grunaður um að hafa ekið á tvo bíla undir áhrifum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðaróhapp í Hlíðahverfi á tíunda tímanum í gærkvöldi að því er fram kemur í dagbók hennar. Meintur tjónvaldur var handtekinn á vettvangi grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Innlent 24.10.2021 07:31