Reykjavík
232 233 234 235 236 237 238 239 240 … 334 ›
Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði. Innlent 17.9.2021 18:56
SI gapandi hissa vegna milljarða stafræns verkefnis borgarinnar Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, segir borgina þramma með yfirgengilega freklegum hætti inn á viðkvæman samkeppnismarkað. Innlent 17.9.2021 16:30
Covid-sýktir bíleigendur fá að kjósa á Skarfabakka Fólk sem er í einangrun eða sóttkví vegna Covid-19 verður gert kleift að kjósa til alþingis á sérstökum bílakjörstað á Skarfabakka í Reykjavík frá og með næsta mánudegi. Innlent 17.9.2021 14:19
Handtóku Covid-smitaðan mann í mjög annarlegu ástandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að sóttvarnarhúsi í nótt og handtók þar mann í mjög annarlegu ástandi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu en hann er grunaður um líkamsárás og eignarspjöll. Innlent 17.9.2021 06:20
Iðnó verður hús fólksins: Opið frá morgni til kvölds alla daga Iðnó verður opnað aftur á laugardaginn eftir eins og hálfs árs lokun. Í fyrsta sinn í langan tíma mega borgarbúar búast við að dyrnar standi þeim opnar frá morgni til kvölds. Og forsalurinn hefur verið tekinn í gegn, að því marki sem hrófla má við heilögu innra byrði þessa sögulega húss. Innlent 16.9.2021 20:30
Farsóttarhúsinu í Fosshótel Reykjavík lokað Farsóttarhúsinu í Fosshótel Reykjavík var lokað í dag, en þar gistu um og yfir 300 manns þegar mest lét. Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsa Rauða krossins, í samtali við Vísi. Innlent 15.9.2021 21:33
„Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. Innlent 15.9.2021 17:01
Kvistaborgarbörn í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna rakaskemmda Starfsemi leikskólans Kvistaborg í Fossvogi færist tímabundið í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna framkvæmda sem framundan eru í húsnæði leikskólans vegna rakaskemmda og uppfærslu á húsnæði leikskólans. Innlent 15.9.2021 07:29
Lögreglumenn sáu hvergi haglabyssu heima hjá Armando Lögreglumenn, sem sinntu rannsókn á vettvangi morðsins í Rauðagerði í febrúar, segjast ekki hafa séð nein ummerki um að haglabyssa hafi verið á heimilinu. Angjelin Sterkaj hélt því fram við vitnaleiðslur í gær að hann hafi skotið Armando Beqirai í sjálfsvörn, eftir að Armando teygði sig eftir haglabyssu. Innlent 14.9.2021 13:04
„Sigur fyrir mig, starfsfólkið og veitingastaðinn“ Gunnar Karl Gíslason, stofnandi og yfirkokkur veitingastaðarins Dill í Reykjavík, segir það mikinn heiður að staðnum hafi verið veitt Michelin-stjarna annað árið í röð. Slíkar stjörnur eru veittar veitingastöðum sem þykja skara fram úr og eru afar eftirsóttar meðal veitingamanna. Viðskipti innlent 13.9.2021 21:59
Bíll Unnar Aspar fundinn eftir tveggja sólarhringa „standandi partí“ Bíll leikkonunnar Unnar Aspar Stefánsdóttur, sem var stolið fyrir utan vinnustað hennar Þjóðleikhúsið síðastliðinn laugardag, er kominn í leitirnar. Bílinn var illa farinn og fullur af alls konar munum eftir tveggja daga „standandi partí,“ eins og leikkonan orðar það í samtali við fréttastofu. Innlent 13.9.2021 18:26
Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. Innlent 13.9.2021 10:34
Skýrslutaka í Rauðagerðismálinu hefst í héraðsdómi í dag Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og munu skýrslutökur standa yfir fram á fimmtudag. Málflutningur fer fram fimmudaginn 23. september næstkomandi. Innlent 13.9.2021 07:11
Væri mögulega ekki á lífi hefði nágranninn ekki komið heim í tæka tíð Ung kona sem slapp naumlega eftir að eldur kom upp í íbúð hennar á föstudaginn segir magnað að hún sé á lífi. Hún var sofandi þegar nágranni hennar kom óvænt heim og varð eldsins var. Innlent 12.9.2021 18:00
Reyndi að stöðva slagsmál í bænum en var skorinn Lögreglunni barst í nótt tilkynning um líkamsárás í miðbænum þar sem maður hlaut áverka á hendi eftir eggvopn. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn sagðist hafa fengið áverkana við að stöðva slagsmál tveggja manna sem hann þekkti ekki. Innlent 12.9.2021 07:15
Bíl Unnar Aspar stolið fyrir utan Þjóðleikhúsið Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir varð fyrir óláni í gær þegar bíl hennar var stolið fyrir utan vinnustað hennar Þjóðleikhúsið. Innlent 11.9.2021 18:34
Kona hætt komin í bruna við Týsgötu Kona var flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í kjallaraíbúð við Týsgötu í Reykjavík í dag. Tilviljun réði því að nágranni á næstu hæð var heima og sá reyk leggja frá íbúðinni. Innlent 10.9.2021 20:10
Skaust óvænt heim og kom nágranna sínum til bjargar „Grannar, allir þurfa góða granna,“ segir í frægu lagi í sjónvarpsþáttunum Nágrannar og sú var sannarlega raunin á Týsgötu í Reykjavík í dag þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð á öðrum tímanum. Innlent 10.9.2021 14:37
Sekta fjórar verslanir vegna trassaskapar við verðmerkingar Neytendastofa hefur sektað Gulla Arnar bakarí, Kjötbúðina, Kjötkompaní og Sælkerabúðina fyrir að fara ekki að fyrirmælum stofnunarinnar um verðmerkingar. Neytendur 10.9.2021 14:35
Eldur í íbúð við Týsgötu Einn náði að flýja út úr íbúð við Týsgötu í Þingholtunum í Reykjavík rétt fyrir klukkan tvö í dag þegar eldur kom upp. Innlent 10.9.2021 14:05
Varði á fimmtu milljón króna úr eigin vasa í baráttuna við Áslaugu Örnu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra varði rúmum ellefu milljónum króna í baráttunni um efsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í sumar. Þar hafði hann betur eftir harða baráttu við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra. Innlent 10.9.2021 10:26
Borgarfulltrúar óttaslegnir: Maðurinn sem hafði í hótunum hvorki verið handtekinn né yfirheyrður Maður, sem skaut á bíl borgarstjóra fyrr á árinu og hafði í hótunum við varaborgarfulltrúa fyrr í vikunni, hefur hvorki verið handtekinn né yfirheyrður. Innlent 9.9.2021 19:21
Maður féll í sjóinn á Granda Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út að Granda í Reykjavík upp úr hádegi í dag eftir að tilkynning barst um mann sem hafði fallið í sjóinn. Innlent 9.9.2021 12:59
Brugðið eftir alvarlegar hótanir Varaborgarfulltrúi Miðflokksins sætti alvarlegum hótunum af hálfu sama manns og er grunaður um að hafa skotið á bíl borgarstjóra fyrr á árinu á þriðjudag. Sérsveit ríkislögreglustjóra vaktaði Ráðhús Reykjavíkur meðan borgarstjórnarfundur stóð yfir vegna hótananna. Innlent 9.9.2021 12:15
Ráðhús Reykjavíkur vaktað Lögreglan mun hafa vaktað Ráðhús Reykjavíkur á meðan á borgarstjórnarfundi stóð þar síðasta þriðjudag. Innlent 9.9.2021 06:53
Kveikti í ruslatunnu hjá Ingólfi og hugðist hita sviðakjamma Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi handtók lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mann við styttuna af Ingólfi Arnarsyni. Maðurinn var í annarlegu ástandi og var búinn að kveikja í ruslatunnu þar sem hann hugðist hita sviðakjamma. Innlent 9.9.2021 06:18
„Ekki fallegt“ að selja hús sem var gjöf til Alzheimer-sjúklinga Áform um að selja húsnæði vinsæls dagvistunarúrræðis fyrir heilabilunarsjúklinga mæta mótstöðu aðstandenda. Fríðuhús var gjöf til Alzheimer-samtakanna á sínum tíma, sem fyrrverandi starfsmaður segir „ekki fallegt“ að setja á sölu. Innlent 8.9.2021 19:20
Óþægileg stemmning eftir að Ólafur sneri aftur Ólafur Guðmundsson, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið aftur sæti sem varamaður í ráðum sem hann sat í hjá borginni áður en hann vék úr þeim í byrjun árs vegna ummæla sem hann lét falla um skotárás á fjölskyldubíl Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Borgarfulltrúi Pírata furðar sig á þessu og segir það hafa verið óþægilegt að sitja fund með Ólafi í morgun. Innlent 8.9.2021 14:27
Regnboginn er ekki skraut Í síðustu viku voru kynntar tillögur borgarinnar að breytingum á Skólavörðustíg. Tillögurnar eru um margt góðar, en einhvers staðar í ferlinu gleymdist að gera ráð fyrir því að á neðsta hluta Skólavörðustígs er varanlegur regnbogafáni, eða þannig var hann víst samþykktur í borgarstjórn árið 2019. Skoðun 8.9.2021 09:31
Loka í Aðalstræti og leggja minni áherslu á miðbæinn Te og kaffi hefur lokað kaffihúsi sínu við Aðalstræti í Reykjavík eftir níu ára rekstur. Aðstoðarframkvæmdastjóri segir að miðbærinn hafi tekið breytingum og keðjan leggi nú meiri áherslu á önnur svæði. Viðskipti innlent 8.9.2021 08:00