Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Dorrit Moussaief fyrrverandi forsetafrú vill fá að ræða við eigendur kaffihússins Lava Sweets í Keflavík og biðja þau afsökunar. Lífið 16.8.2026 12:48
Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Eigendur kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweet við Hafnargötu í Keflavík segja fjóra menn hafa ógnað starfsmanni staðarins og valdið tjóni eftir að hafa séð að á veggnum var kort af Palestínu með vinsælu slagorði. Eigendur staðarins eru Palestínumenn. Innlent 15.8.2026 17:19
Ósátt með fyrirhugaða sameiningu lögregluembætta Bæjarráð Reykjanesbæjar tekur undir bókun Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum sem leggst gegn því að embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verði sameinað öðru lögregluembætti. Innlent 15.8.2026 14:41
Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar var á línunni í Bítinu í morgun og upplýsti þar að óvenju margir ungir einstaklingar njóti fjárhagsaðstoðar á Suðurnesjum. Hann segir vísbendingar um að þetta sé ekki bara svona í Reykjanesbæ. Innlent 28. júlí 2026 10:16
Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi. Innlent 22. júlí 2026 11:33
Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, hefur sett á fót samlagsfélagið Ráðagjörð slf. í félagi við Guðmund Einarsson. Félagið er almennt samlagsfélag og tilgangur þess er viðskiptaráðgjöf og önnur rekstrarráðgjöf. Viðskipti innlent 20. júlí 2026 15:41
Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Jóhann Helgason tónlistarmaður er einn af þeim stóru; ferill hans er magnaður og víst að perlur eftir hann eiga eftir að lifa um ókomin ár. Jóhann var á mótunarárum þegar Bítlarnir komu fram snemma á 7. áratugnum og heimsbyggðin hefur ekki orðið söm. Jóhann greindist nýverið með krabbamein. Hann segist ekki óttast dauðann en hann væri alveg til í meiri tíma með fólkinu sínu. Lífið 11. júlí 2026 07:03
Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Oddvitar Framsóknar og Samfylkingar í Reykjanesbæ gagnrýna aðferðir nýs meirihluta í hagræðingaraðgerðum. Í þeim felist að ráða fjóra ráðgjafa bæjarstjóra. Meirihlutinn hafnar fullyrðingum fulltrúanna. Innlent 9. júlí 2026 19:55
„Hagræðingar” í Reykjanesbæ Tveimur mánuðum eftir kosningar leggur Sjálfstæðisflokkurinn fyrir bæjarráð Reykjanesbæjar málið „úttekt á fjármálum og stjórnsýslu Reykjanesbæjar“. Þar hefur nýr meirihluti fundið út hvernig best sé að ná fram hagræðingu, með því að ráða inn fjóra ráðgjafa bæjarstjóra. Skoðun 9. júlí 2026 19:30
Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á laggirnar sérstakt umbóta- og hagræðingarteymi til að auka skilvirkni stjórnsýslunnar og bæta rekstur bæjarins. Fannar Jónasson, fyrrverandi bæjarstjóri Grindavíkur, leiðir teymið. Innlent 9. júlí 2026 11:36
Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Maður sem hlaut alvarleg brunasár eftir að rafbyssu var beitt í aðgerðum lögreglu í kirkjugarði í Reykjanesbæ í maí neitar því að hafa borið eld að sér. Hann hafi verið að fara með bæn fyrir látna ástvini þegar atburðarrásin hófst. Innlent 7. júlí 2026 19:32
Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri á Suðurnesjum Margrét Kristín Pálsdóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum af Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur. Greint var frá því í morgun að Margrét Kristín hefði verið á lista umsækjenda um starf lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 29. júní 2026 18:47
Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Jarðskjálfti sem mældist þrjú komma eitt stig reið yfir um um tuttugu kílómetra suðvestur af Eldey á Reykjaneshrygg rétt fyrir klukkan tvö í nótt. Innlent 22. júní 2026 07:06
„Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Vilhjálmur Árnason, nýr bæjarstjóri í Reykjanesbæ, fær það óþvegið frá minnihlutanum í bæjarstjórn sem gagnrýnir bæði launakjör hans, sem þau segja ofurlaun, sem og það að hafa ráðið sér aðstoðarmann sem ekki er gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun. Vilhjálmur lætur minnihlutann ekki eiga neitt inni hjá þér og sakar hann um á móti að standa fyrir bulli og upplýsingaóreiðu. Innlent 18. júní 2026 15:44
Biðja allar stofnanir bæjarins um að flagga í allt sumar Bæjarstjórn Reykjanesbæjar hefur beðið allar stofnanir bæjarins um að flagga íslenska þjóðfánanum allan sólarhringinn í sumar, sem má nú samkvæmt nýjum fánalögum. Auk þess hefur fáninn verið dreginn að húni við allar innkomuleiðir bæjarins. Innlent 17. júní 2026 13:02
Brottfararstöð eigi enga samleið með flugvallarrekstri Upplýsingafulltrúi Isavia segir fyrirhugaða brottfarastöð eiga enga samleið með flugvallarrekstri og að hún eigi alls ekki heima á skilgreindu haftasvæði flugverndar. Stjórnvöld óskuðu eftir fundi í dag. Innlent 16. júní 2026 19:37
Vonast til að brottfararstöðin verði á Keflavíkurflugvelli Starfsmenn í dómsmálaráðuneytinu leita að húsnæði á Suðurnesjum undir nýja brottfararstöð, þar sem flóttamenn sem vísa á úr landi verða vistaðir nauðugir. Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar fagnar því að ríkið hyggist hafa stöðina fjarri íbúabyggð en hann vill helst hafa hana innan flugvallarsvæðisins í Keflavík. Innlent 16. júní 2026 14:58
Tveir í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásar Tveir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við alvarlega líkamsárás sem átti sér stað í Reykjanesbæ í fyrrinótt. Þrír voru handteknir við Valhallarbraut eftir stunguárás og einn fluttur á sjúkrahús með stungusár. Sérsveit aðstoðaði lögregluna við aðgerðir. Innlent 16. júní 2026 10:04
Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Þrír voru handteknir við Valhallarbraut í Reykjanesbæ vegna stunguárásar í nótt. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að einn sé á spítala, en ekki í lífshættu, með stungusár. Innlent 15. júní 2026 10:25
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina. Innlent 14. júní 2026 07:30
Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Hermann Nökkvi Gunnarsson blaðamaður á Morgunblaðinu verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar nýs bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Hann tók einnig þátt í kosningabaráttu Vilhjálms. Innlent 11. júní 2026 11:26
Þorsteinn Ólafsson er látinn Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Innlent 10. júní 2026 11:08
Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins. Innlent 8. júní 2026 17:52
Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. Innlent 8. júní 2026 12:09