Akureyri

Rýma sveitabæi í Útkinn vegna úrkomu og skriðuhættu
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissutigi á Tröllaskaga vegna úrkomu á Norðurlandi eystra. Nokkrir sveitabæir í Þingeyjarsveit hafa verið rýmdir vegna úrkomu og skriðuhættu.

Ellefu greindust smitaðir á Akureyri í dag
Ellefu bættust í hóp smitaðra á Akureyri eftir skimun dagsins. 65 er í einangrun í bæjarfélaginu.

61 greindist smitaður í gær
Töluvert fleiri greindust smitaðir af Covid-19 í gær en hafa gert undanfarna daga. 61 greindist smitaður og þar af voru 35 í sóttkví. Af þeim sem greindust voru 25 á Akureyri.

Íbúar á Hlíð í sóttkví
Íbúar á einu heimili Heilsuverndar hjúkrunarheimila á Hlíð á Akureyri eru nú komnir í sóttkví eða smitgát ásamt nokkrum starfsmönnum vegna smits sem greindist hjá einum starfsmanni seinni partinn í gær, föstudag.

Tuttugu og fimm smit greindust á Akureyri í gær
Alls eru fimmtíu manns í einangrun á Akureyri vegna Covid-19. Tuttugu og fimm bættust í hóp smitaðra í bæjarfélaginu eftir skimun gærdagsins.

Hátt í 300 í sóttkví eftir að tólf börn á Akureyri greindust með Covid
Tólf börn í grunnskólum á Akureyri eru með staðfest Covid-19 smit og eru fleiri en 250 börn og 33 starfsmenn skólanna komin í sóttkví vegna þessa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akureyrarbæ í kvöld.

Vara við fjölgun tilfella og hvetja börn til að halda sig til hlés
Minnst fjórtán hafa greinst með Covid-19 á Akureyri í dag og er mest um að ræða börn á gunnskólaaldri. Unnið er að því að rekja sýkingarnar en fjöldi sýna var tekinn í dag.

Veturinn skall á með skömmum fyrirvara
Veturinn skall á með skömmum fyrirvara á Akureyri í dag. Stórhríð skall á snemma morguns og varð jörðin ekki lengi að verða alhvít, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi.

Ólíkar ríkisstjórnir í boði
Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, vonast til þess að ríkisstjórnin falli og ný stjórn jafnaðarmanna verði mynduð. Hann segir kvöldið leggjast ágætlega í sig.

Blóð, sviti og tár farið í Skógarböðin sem eru að taka á sig mynd
Framkvæmdir við Skógarböðin við Akureyri er í fullum gangi. Heita vatnið úr Vaðlaheiðargöngunum verður nýtt í laugarnar, sem forsvarsmenn baðstaðarins vona að muni bæta afþreyingarmöguleikana á svæðinu.

Hefja söfnun fyrir nýrri kirkju í Grímsey
Grímseyingar komu saman í félagsheimili eyjunnar í gærkvöldi þar sem samþykkt var einróma að byggja nýja kirkju í svipaðri mynd og þeirri sem brann í vikunni. Hafin er söfnun til þess að fjármagna verkið.

Gríðarleg menningarverðmæti hurfu með Miðgarðakirkju
Formaður sóknanefndar í Grímsey segir eyjaskeggja í áfalli eftir að Miðgarðakirkja brann þar til kaldra kola í gærkvöldi. Ómetanleg menningarverðmæti hafi orðið eldinum að bráð. Mikill vilji sé til að endurreisa kirkjuna.

„Gríðarlega mikilvægt fyrir þetta samfélag að endurreisa kirkjuna“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hugur sinn sé hjá Grímseyingum. Hún er viss um að það sé ríkur vilji allra flokka til styðja við bakið á þeim við að endurbyggja kirkjuna í eyjunni.

Forsætisráðherra: Óbætanlegt tjón og hugurinn hjá íbúum
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að stjórnvöld muni eiga samtal við íbúa í Grímsey vegna bruna Miðgarðakirkju í nótt. Hún telur ríkan vilja hjá öllum til að styðja við bakið á íbúum í kjölfarið.

Bruninn í Grímsey: „Maður er bara hálfdofinn“
„Maður er bara hálfdofinn. Þetta er alls ekki eitthvað sem maður á von á,“ segir Henning Henningsson, annar slökkviliðsmanna í Grímsey, eftir að Miðgarðakirkja brann til kaldra kola í nótt.

Grímseyjarkirkja brunnin til grunna
Mikill eldur kviknaði í Grímseyjarkirkju í kvöld. Kirkjan er að mestu leyti brunnin til grunna, þegar þetta er skrifað.

Hjólaði þvert yfir landið á minna en sólarhring
Íþróttamaðurinn Payson McElveen hjólaði nýverið þvert yfir Ísland á innan við sólarhring. Hann er atvinnumaðurinn í fjallahjólreiðum og segir Ísland fallegasta land sem hann hafi komið til.

Árshlutareikningur Akureyrarbæjar: Afkoma 369 milljónum betri en áætlað var
Afkoma samstæðu Akureyrarbæjar á fyrri hluta ársins var nokkru betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Finnbogi Jónsson er látinn
Finnbogi Jónsson verkfræðingur og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja lést þann níunda september síðastliðinn í Vancouver í Kanada. Finnbogi lét mjög að sér kveða í íslensku atvinnulífi og sat í stjórn fjölmargra félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana. Greint er frá andláti Finnboga á vefsíðu Samherja.

Ýmsum ráðum beitt til að tryggja viðskiptavinum bílaleigubíla
Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir sumarið hafa verið framar vonum í útleigu bíla. Eftirspurnin hefur verið svo svo mikil að grípa hefur þurft til ýmissa ráða til að redda bílum fyrir viðskiptavini.

Stal bíl í morgunsárið en handtekinn eftir stuttan sprett
Karlmaður tók sig til og star bíl í miðbæ Akureyrar á tíunda tímanum í morgun. Ökumaður bílsins hafði skilið bílinn eftir í gangi meðan hann var að ferja inn vörur. Þegar ökumaðurinn kom út var bíllinn horfinn.

Höfnuðu eina tilboðinu og bjóða út flugstöðina á ný
Isavia hefur hafnað eina tilboðinu sem barst í viðbætur og breytingum á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Stefnt er á að bjóða út verkið á ný.

Akureyri verði „svæðisborg“
Flokka ætti Akureyri sem „svæðisborg“ með skilgreinda ábyrgð og skyldur til að þjóna íbúa og atvinnulíf í landshlutanum samkvæmt tillögu starfshóps á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

Bónus opnar þriðju verslunina á Akureyri næsta vor
Bónus hyggst opna þriðju matvöruverslunina á Akureyri næsta vor. Verslunin mun opna í verslunarkjarnanum að Norðurtorgi.

Þrjátíu daga fangelsi fyrir að stórslasa barn í bílslysi
Karlmaður var í dag dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekið á barn á Hörgársbraut á Akureyri með þeim afleiðingum að það stórslasaðist.

Víða hlýjasti ágústmánuður frá upphafi mælinga
Nýliðinn ágúst var víða hlýjasti ágústmánuður frá upphafi mælinga. Til dæmis hefur aldrei verið hlýrra á Akureyri, Stykkishólmi, Bolungarvík, Hveravöllum og Grímsey.

Greindist tvisvar með krabbamein á skömmum tíma: „Ég er ekki reið“
Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju hefur tvívegis á skömmum tíma greinst með krabbamein. Hún hefur fundið enn sterkari tengsl við trú sína í þessu verkefni.

Þrefalt fleiri „sumardagar“ á Akureyri en í Reykjavík
Óhætt er að segja að veðurgæðunum hafi verið misskipt hér á landi þetta sumarið. Þannig hafa svokallaðir „sumardagar“ í Reykjavík verið þrefalt færri á tímabilinu maí-ágúst í ár en á Akureyri. Allir dagar í ágústmánuði nema einn náðu að uppfylla viðmið fyrir sumardag á Akureyri.

Karl Eskil ráðinn til að stýra heimasíðu og miðlum Samherja
Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks.

Grímseyingurinn Bjarni Magnússon er látinn
Bjarni Magnússon, fyrrverandi hreppstjóri í Grímsey, er látinn, 91 árs að aldri.