Hvað gerist ef það verður jafnt? Birgir Olgeirsson skrifar 26. ágúst 2026 14:44 Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri landskjörstjórnar, segir engar reglur kveða á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. Yfirkjörstjórn hvers kjördæmis tekur ákvörðun um endurtalningu. Einar Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei.
Kosið verður á laugardag um hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Kannanir benda til þess að úrslitin geti orðið mjög jöfn og hefur forskot já-fylkingarinnar minnkað eftir því sem nær dregur kjördegi. Í nýjustu könnun Maskínu sögðust 51,3 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að segja já en 48,7 prósent nei. Munurinn mældist því 2,6 prósentustig en var 6,2 stig í júní. Í Þjóðarpúlsi Gallup sem birtur var fyrr í mánuðinum mældist heldur enginn marktækur munur. Þar sögðust 51,5 prósent þeirra sem tóku afstöðu ætla að segja já en 48,5 prósent nei. Jöfn atkvæði yrðu niðurstaðan Vísir spurði Ástríði Jóhannesdóttur, framkvæmdastjóra landskjörstjórnar, hvað gerðist ef atkvæði féllu jafnt og hvort þá kæmi til greina að greiða atkvæði að nýju eða varpa hlutkesti. Ástríður segir að þar sem atkvæðagreiðslan sé ráðgefandi kalli jöfn niðurstaða ekki á nein sérstök viðbrögð. Hún yrði einfaldlega niðurstaða atkvæðagreiðslunnar og það kæmi í hlut stjórnvalda að vinna úr henni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra. Það kæmi í þeirra hlut að meta framhaldið ef jafnt yrði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Anton Brink Í kosningalögum segir að tillaga sem borin er undir þjóðaratkvæði þurfi meirihluta gildra atkvæða til að teljast samþykkt. Þar kemur jafnframt fram að niðurstaða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á grundvelli þingslályktunar frá Alþingi sé ráðgefandi. Hlutkesti réð úrslitum í Bolungarvík Dæmi er um að hlutkesti hafi ráðið úrslitum þegar atkvæði féllu jafnt í íslenskum kosningum. Í sveitarstjórnarkosningunum í Bolungarvík árið 2002 fengu D-listi Sjálfstæðisflokksins og K-listi Bæjarmálafélags Bolungarvíkur 296 atkvæði hvor. Varpa þurfti hlutkesti um hvort framboðið fengi síðasta sætið í sjö manna bæjarstjórn. Í sveitarstjórnarkosningunum í Bolungarvík árið 2002 fengu tvö framboð 296 atkvæði hvort. Hlutkesti réð síðasta sætinu í bæjarstjórn, en slíkt úrræði kemur ekki til álita í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag. Arnar Sjálfstæðisflokkurinn vann hlutkestið, fékk fjóra bæjarfulltrúa og hélt meirihluta sínum. Bæjarmálafélagið fékk þrjá fulltrúa. Þar var verið að úthluta sætum í bæjarstjórn. Engin slík úthlutun fer fram eftir ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu og jöfn atkvæði á laugardag myndu því ekki leiða til hlutkestis. Ekkert ákveðið atkvæðamagn kallar á endurtalningu Ekki er heldur kveðið á um sjálfkrafa endurtalningu ef aðeins eitt eða örfá atkvæði skilja fylkingarnar að. Ekkert ákveðið atkvæðamagn setur slíkt ferli sjálfkrafa af stað. Ástríður segir að yfirkjörstjórn í hverju kjördæmi taki ákvörðun um hvort atkvæði þar verði endurtalin. Við sjálfa talninguna gilda þó reglur um tvíflokkun og tvítalningu atkvæða. Þá er niðurstaðan stemmd af við fjölda greiddra atkvæða áður en yfirkjörstjórn staðfestir hana. Segja ómögulegt að spá fyrir um úrslitin Fulltrúar beggja fylkinga voru sammála um það í Pallborðinu á Vísi í gær að mjótt yrði á munum. „Þetta er hnífjafnt og það er ómögulegt að ráða í það hvernig þetta fer á laugardaginn,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún sagði ríkisstjórnina myndu virða niðurstöðuna hvernig sem færi. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins sagði kannanirnar allar hafa sýnt mjög lítinn mun. Jónas Hagan Guðmundsson, einn stofnenda Já til að sjá, sagði reynsluna sýna að oft yrði mjótt á munum í slíkum kosningum. Hilmar Veigar Pétursson, fulltrúi Nei-fylkingarinnar, tók undir það. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, sagði í samtali við Vísi fyrr í mánuðinum að úrslitin gætu ráðist af kjörsókninni. „Það getur vel verið að það fari þannig að það muni bara örfáum atkvæðum,“ sagði Eiríkur. Kristrún sagði á opnum fundi í Reykjanesbæ 11. ágúst að meirihluti upp á 50,1 prósent fæli í sér lýðræðislegt umboð, hvort sem meirihlutinn væri með já eða nei. Afgerandi niðurstaða væri þó alltaf æskileg.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bolungarvík Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira