Vinnumarkaður

Hefðu átt að fara sér hægar
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, gagnrýnir þann flýti sem settur var í að loka kjarasamningi milli Samtaka Atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins. Menn hefðu átt að fara sér hægar og ekki glutra niður góðu tækifæri.

Forystufólk einbeiti sér að eigin samningum í stað þess að rífa niður aðra
Formaður Starfsgreinasambandsins segir formann Eflingar hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera ekki í samfloti við aðra fyrir kjaraviðræður og leggur til að hún einbeiti sér að því að ná kjarasamnningi handa sínu fólki frekar en að rífa niður samning Starfsgreinasambandsins. Formaður Eflingar segir gagnrýni sína fullkomlega réttmæta og segir samninginn til marks um óþolinmæði.

Vill einbeita sér að samningum í stað þess að munnhöggvast við félaga sína
Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin eftir deilur milli formanns Eflingar og formanns Starfsgreinasambandsins sorglega og eitthvað sem hann átti ekki von á. Sjálfur ætli hann ekki að taka afstöðu og munnhöggvast við félaga sína en er þó gagnrýninn á samning Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins.

„Ekki niðurstaða sem við getum sætt okkur við að neinu leyti“
Nýr kjarasamningur Starfsgreinasambandsins veldur Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar vonbrigðum. Hún segir launahækkanirnar þar ekki geta talist ásættanlegar fyrir Eflingarfólk að nokkru leyti og að þær verði ekki fordæmisgefandi fyrir kröfur Eflingar í komandi viðræðum við Samtök atvinnulífsins.

Segir báða aðila hafa gert verulegar málamiðlanir
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ljóst að kjarasamningarnir sem undirritaðir voru í dag séu stefnumarkandi í eðli sínu. Hann segir báða aðila hafa gert verulegar málamiðlanir við samkomulagið og að viðræðurnar hafi verið flóknar og erfiðar. Hann telur þó báða aðila geta vel við unað.

„Fagnaðarefni að Starfsgreinasambandið hafi brotið ísinn með þessum hætti“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir stjórnvöld eiga í samræðum varðandi það hvað þau geti lagt af mörkum í kjaraviðræðum. Hún segist vonast til þess að fleiri félög fylgi í kjölfarið nú þegar ísinn hefur verið brotinn.

„Morgunljóst í mínum huga að það er ekki hægt að ætlast til þess að launafólk axli eitt ábyrgð í íslensku samfélagi“
Vilhjálmur Birgisson segir samningaviðræðurnar hafa verið langar og strangar en hann sé afar stoltur af þeirri niðurstöðu sem komin er í málið. Hann segir samninginn miða að því að hjálpa þeim sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi.

Hafa náð samkomulagi um nýjan kjarasamning
Nú leggur vöffluangan um húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni, því þar var verið að skrifa undir kjarasamninga Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins.

VR snýr aftur til viðræðna
VR, LÍV og samflot iðn- og tæknigreina hafa ákveðið að taka höndum saman í yfirstandandi kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins.

Fundað til miðnættis í kvöld og meira á morgun
Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari segir í samtali við fréttastofu að fundarhöld Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins muni standa til um það bil miðnættis í kvöld.

Engar hópuppsagnir í nóvember
Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í nýliðnum nóvembermánuði.

Uggur um lífeyrisréttindi heilbrigðisstarfsmanna sem fresta starfslokum
„Við viljum alls ekki hafa nein ákvæði um starfslokaaldur í lögum, hvorki hámörk um 67 né 70 ára aldur. Þetta á fyrst og fremst að vera samningsatriði milli þess sem vinnur og þess sem vill hafa fólk í vinnu.“

Fréttir um meint einelti þekkts Íslendings hverfa ekki úr Google-leit
Persónuvernd hefur úrskurðað að hagsmunir almennings af því að hafa aðgang að upplýsingum um þekktan Íslending í Google-leit vegi þyngra en réttur umrædds manns til að gleymast.

Efling gerir SA tilboð um skammtímasamning
Samninganefnd Eflingar - stéttarfélags hefur samþykkt að gera Samtökum atvinnulífsins tilboð um kjarasamning til rúmlega árs. Tilboðið er 56.700 króna flöt krónutöluhækkun á öll laun og 15 þúsund króna framfærsluuppbót til viðbótar. Þessar hækkanir komi til framkvæmda frá 1. nóvember 2022. Samningur gildi til 31. janúar 2024.

Stöðugildum fækkað og nýir framkvæmdastjórar ráðnir
Stjórn Sýnar hefur samþykkt nýtt skipulag félagsins sem miðar meðal annars að því að bæta arðsemi félagsins, einfalda starfsemina og búa félagið undir frekari vöxt. Stöðugildum verður fækkað og nýir framkvæmdastjórar verða ráðnir.

Gagnrýnir álag á heilbrigðisstarfsfólki: Vakinn vegna hægðatregðu og rifrildis
Oddur Þórir Þórarinsson læknir gagnrýnir harðlega álag á heilbrigðisstarfsfólki, þá sérstaklega því sem sinni héraðslækningum. Hann segir það standa í verkefnum alla daga sem það eigi ekki að sinna og nái á meðan ekki að sinna fólki sem sé raunverulega veikt. Oddur telur að sífellt fleiri muni gefast upp ef starfsumhverfið breytist ekki.

Sanngjarnt að segja að vinnumarkaðurinn sé vandamálið
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir sanngjarnt að tala um að vinnumarkaðurinn sé vandamálið þegar kemur að kjaraviðræðum hér á landi. Skortur sé á samhljómi á milli kröfugerða stéttarfélaga, kröfur þeirra séu ólíkar. Hann segist þó vera ágætlega bjartsýnn á að hægt verði að landa kjarasamningum á almennum vinnumarkaði þrátt fyrir viðræðuslit VR.

Harmar viðræðuslit
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, harmar að VR hafi ákveðið að slíta kjaraviðræðum, en vonar að hægt verði að setjast aftur að samningaborðinu. Hún segir enga óeiningu innan ríkisstjórnarinnar hver aðkoma hennar eigi að vera að samningaviðræðunum.

Mat hugmyndir SA bæði óaðgengilegar og óásættanlegar
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hugmyndir samninganefndar Samtaka atvinnulífsins hvernig ná mætti skammtímasamningi í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði hafi verið algjörlega óásættanlegar. Þá hafi orð fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær ekki hjálpað til.

Framhald kjaraviðræðna ræðst í Karphúsinu í dag
Forysta aðila almenna vinnumarkaðarins situr nú á fundi hjá ríkissáttasemjara til að meta möguleika á áframhaldandi viðræðum eftir fund með forsætisráðherra í morgun. Ríkisstjórnin er reiðubúin að liðka fyrir samningum og forsætisráðherra hefur skilning á að horft sé til skammtímasamninga við núverandi aðstæður.

Allir sjái að mikið sé undir
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur ljóst að allir sjái að mikið sé undir í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. Hann segir aðila vinnumarkaðarins ágætlega nestaða fyrir kjaraviðræður dagsins eftir óvæntan fund með forsætisráðherra í morgum.

Ítrekaði að stjórnvöld væru reiðubúin að greiða fyrir gerð kjarasamninga
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hún hafi með fundi sínum með fulltrúm verkalýðshreyfingarinnar og atvinnulífsins viljað ítreka það sem áður hafði komið fram. Að stjórnvöld séu reiðubúin til að leggja sitt að mörkum til greiða fyrir gerð kjarasamninga, ef þess er einhver kostur að þeir náist.

Staðan í kjaraviðræðum brothætt
Kristján Þórður Snæbjarnarson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir stöðuna í kjaraviðræðum brothætta þessa stundina og að stýrivaxtahækkun Seðlabankans í gær hafi sent kolröng skilaboð inn í þær. Hann fagnar að vilji sé hjá ríkisstjórn að koma inn í málin ef þurfa þykir.

Félagsmenn Vilhjálms ekki með neinar tær á Tenerife
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýndi stýrivaxtahækkun Seðlabankans harkalega er hann gekk inn á fund forsætisráðherra sem boðað var til með aðilum vinnumarkaðarins í morgun með nær engum fyrirvara.

Halldór Benjamín: Leiðsögn forsætisráðherra reynst vel á undanförnum árum
„Ég fékk bara fundarboð, ég hafði ekki hugmynd af þessum fundi, mæti hér og hlýði á skilaboð forsætisráðherra.“

Forsætisráðherra boðar samningsaðila í kjaraviðræðum á fund
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur boðað samningaaðila í kjaradeilum á almennum vinnumarkaði á sinn fund í Stjórnarráðshúsinu í Lækjargötu klukkan 9:30.

Segir krónutöluhækkanir gætu jafngilt kaupmáttarrýrnun hjá stórum hópum
Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir kaupmátt láglaunafólks hafa hækkað sexfalt á við aðra frá gerð lífskjarasamningsins. Hann segir að ef krónutöluhækkanir verða aftur ráðandi við gerð kjarasamninga gæti það jafngilt kaupmáttarrýrnun fyrir stóran hluta launafólks.

Frá orðum til athafna
Atvinnulífið ber ótvíræðan hag af því að allt starfsfólk fái notið eigin verðleika og hafi jöfn tækifæri til launa, starfa og starfsþróunar óháð kynferði. Það liggur í augum uppi að ekkert fyrirtæki hefur hagsmuni af því að mismuna starfsfólki sínu eftir kynferði eða öðrum þáttum eins og kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, skertri starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu.

Boltinn er enn hjá vinnumarkaðnum
Það kom mörgum á óvart þegar peningastefnunefnd Seðlabanks ákvað að hækka vexti um aðeins 0,25 prósentustig í október síðastliðnum. Vextir höfðu þá hækkað um 3,5 prósentustig á árinu og verðbólga 9,3% - langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiðinu. Á sama tíma, sem kom kannski enn meira á óvart, gaf seðlabankastjóri í skyn að ekki myndi endilega koma til frekari vaxtahækkana.

Öll þjónusta við útlendinga í eina stofnun
Félags- og vinnumarkaðsráðherra ætlar að leggja fram frumvarp um að sameina Vinnumálastofnun og Fjölmenningarsetur þannig að öll þjónusta við við innflytjendur, flóttafólk og umsækjendur um alþjóðlega vernd verði á hjá einni stofnun. Hún á að taka til starfa á næsta ári og fá nýtt nafn.