Flóttafólk á Íslandi

Það vantar hinn helminginn í lög um útlendinga
Það eru miklir fólksflutningar í heiminum í dag og útlit er fyrir að þeir muni aukast á næstu árum og áratugum t.d. vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Evrópa er þar engin undantekning. Flestir eru í reglulegri för þ.e. hafa leyfi til að ferðast til áfangastaðarins t.d. hafa borgarar Schengen ríkjanna leyfi til að ferðast til annarra aðildarríkja til að búa þar og starfa.

Okkar lágkúrulega illska
Heimspekingurinn Hannah Arendt skilgreindi fyrirbærið lágkúrulega illsku, sem er af öðrum meiði en sú djöfullega illska sem birtist okkur meðal annars í trúarbrögðum. Undir merkjum djöfullegu illskunnar eru kölski, illir andar, skrímsli, illmenni og allt sem talið er vera í eðli sínu illt.

„Getur ekki verið að við ætlum að bregðast þessu barni“
Skipuleggjendur samstöðufundar fyrir hinn ellefu ára gamla Yazan Tamimi segja stjórnvöld setja það fordæmi með brottvísun hans að það sé í lagi að hjálpa ekki barni. Það sé ljótt fordæmi sem fólk muni ekki sætta sig við.

Þátttakendur í mannréttindakreppunni sem við fordæmum
Venesúela var eitt sinn fimmta stærsta hagkerfi Suður-Ameríku en hefur nú undanfarin ár gengið í gegnum eitt versta efnahagshrun í sögu þjóðarinnar. Efnahags- og stjórnmálakreppan sem hefur heltekið þjóðina stafar í grunninn af verðhruni á olíu, en olía er lykilútflutningsvara þjóðarinnar.

Ég skil ekki
Ég skil ekki. Ég skil ekki hvernig hægt er að senda fatlað, fárveikt barn á flótta af landi brott. Ég bara skil það ekki.

Skora á flugfélög að neita að flytja Yazan úr landi
Samtökin No Borders Iceland skora á öll starfandi flugfélög á Íslandi að neita að fljúga Yazan Tamimi úr landi.

Að brúa bil: Hlutverk pólitískrar orðræðu í félagslegri samheldni
Á meðan ég vann að gerð námskeiðs um menningarnæmi og inngildingu fylltist ég tilfinningu um hversu aðkallandi þessi námskeið væru. Mín upplifun og reynsla er að ég er alltaf beðin um að flytja þessi námskeið fyrir fólk sem hefur þegar lagt af stað við að skilja og vinna með eigin viðhorf um fjölbreytileika og inngildingu.

Byggja upp eða pakka?
Flokksráðsfundur VG umhelgina sendi frá sér ályktun um málefni Palestínu og stríðið á Gasa þar sem ákvörðun Bjarna Ben, þáverandi utanríkisráðherra, um að frysta framlög til UNRWA var gagnrýnd og hvatt til vopnahlés. Ályktunin kom mér, sem fyrrverandi félaga í VG, kunnuglega fyrir sjónir og var ég ekki lengi að finna út af hverju.

Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi
Karlmaður sem stendur til að vísa úr landi þarf að sæta gæsluvarðhaldi þar til brottflutningurinn er framkvæmdur. Talið er að mikil hætta sé á að hann rjúfi nálgunarbann gagnvart fjórum dætrum sínum.

Skeytasendingar ráðherra til marks um valdþreytu
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem nokkrir hafa munnhöggvast opinberlega síðustu daga, nota stöðu sína í eigin þágu til að skapa sér sérstöðu í aðdraganda kosninga.

Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara
Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki geta tjáð sig um mál vararíkissaksóknara á meðan málið er til skoðunar í ráðuneytinu. Hún hefur leitað sér ráðgjafar innan og utan ráðuneytis vegna málsins. Guðrún ræddi þetta mál, og fleiri, í Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Treystir Útlendingastofnun fullkomlega
Um sjö fjölskyldum frá Venesúela var vísað úr landi í gær þrátt fyrir óöldina þar í landi eftir umdeildar forsetakosningar fyrir rúmri viku síðan. Formaður allsherjar- og menntamálanefndar segist treysta mati útlendingayfirvalda í málaflokknum.

„Þið vitið ekki hver raunveruleikinn þarna er“
Hælisleitendur óttast um líf sitt verði þeir sendir til baka til Venesúela frá Íslandi. Lögmaður segir útlendingayfirvöld ekki taka mið af óöldinni sem ríkir í Venesúela eftir endurkjör forsetans. Flugvél full af hælisleitendum frá Venesúela flýgur frá Keflavíkurflugvelli í kvöld.

Brennandi hús
Í komandi viku ætla íslensk stjórnvöld að smala fjölskyldum frá Venesúela í flugvélar og senda beint í fangið á ólögmætum stjórnvöldum þar í landi. Nicolas Maduro, sem er eftirlýstur fyrir fíkniefnasmygl og sakaður af Sameinuðu þjóðunum um glæpi gegn mannkyni, tapaði kosningum síðasta sunnudag en neitar að viðurkenna það.

Haraldur tekur maraþonið fyrir Yazan
Haraldur Þorleifsson athafnamaður ætlar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í nafni hins ellefu ára gamla Yazan Tamimi. Yazan er með vöðvarýrnunarsjúkdóm líkt og Haraldur en til stendur að vísa fjölskyldu hans úr landi eftir verslunarmannahelgi.

Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn
„Það má því segja að þau séu að verða þétt tvíeyki, Sigríður og Helgi Magnús,“ var skrifað í Viðskiptablaðið þegar Sigríður Friðjónsdóttir og Helgi Magnús Gunnarsson voru skipuð í embætti ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara árið 2011, en þar á undan höfðu þau verið saksóknarar Alþingis í málaferlum á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í Landsdómsmálinu svokallaða.

Kæra vararíkissaksóknara vegna ummæla um innflytjendur
Stjórn Solaris, hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi hefur lagt fram kæru á hendur Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara vegna ummæla sem hann lét falla um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum og um Solaris-samtökin í síðustu viku.

Verndum Yazan og Barnasáttmálann
Yazan er 11 ára drengur á flótta. Hann er greindur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne sem er einn ágengasti og alvarlegasti vöðvarýrnunarsjúkdómurinn. Lífslíkur þeirra sem ekki fá meðferð við sjúkdómnum eru 19 ár.

„Rasísk“ ummæli foreldrafulltrúa vekja reiði íbúa
Til stendur að starfrækja móttökuúrræði fyrir börn í leit að alþjóðlegri vernd í Breiðagerðisskóla í Reykjavík frá og með næsta hausti. Fulltrúi foreldra í skólaráði telur úrræðið slæmt fyrir börn í skólanum, sem eigi ekki „blandast“ með börnum í neyð. Aðrir íbúar hneykslast á þessum ummælum foreldrafulltrúans.

Gæti reynst erfitt að senda Kourani úr landi
Það gæti reynst erfitt að brottvísa Mohamad Kourani úr landi fái hann ekki framlengingu um alþjóðlega vernd hér á landi. Kourani hefur hlotið dóm hér á landi fyrir fjölda hegningarlagabrota, og bíður dóms í máli sem varðar meðal annars stunguárás í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári.

Ómannúðlegur forsendubrestur – aðrir möguleikar en brottvísun og ólögleg dvöl
Margir á Íslandi hafa upplifað forsendubrest af mörgu tagi. Tökum sem dæmi hjónin sem unnu hörðum höndum í hraðfrystihúsinu í heimabæ sínum þegar kvótakerfið kom til sögunnar. Kvótinn í heimabæ þeirra var síðan framseldur og þau misstu atvinnuna. Erfitt var að láta enda ná saman.

Umræða um útlendinga oft harkaleg og ekki uppbyggileg
Félags- og vinnumarkaðsráðherra segir umræðu um útlendinga hafa verið harkalega og ekki uppbyggilega. Hann kynnti nýlega fyrstu stefnu Íslands í málefnum innflytjenda. Markmiðið með stefnunni er að búa til samfélag sem er jafnara og býður upp á sömu tækifæri fyrir alla, óháð uppruna. Í haust mun hann leggja fram tillögu til þingsályktunarum stefnuna til fimmtán ára og framkvæmdaáætlun til fjögurra ára.

Vill koma upp móttöku flóttamanna við Kaffi Vest
Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur, víninnflytjandi og fjölmiðlamaður á Mogganum segir mjög óþægilegt að bera fram erfiðar spurningar í viðtölum, en það sé hlutverk blaðamanna. Og er hann þá ekki síst að tala um innflytjenda- og hælisleitendamál.

Kristrún segir mál sem skekið hafa Samfylkinguna ekki svarthvít
Kristrún Frostadóttir segir eðlilegt að ágreiningur eigi sér stað innan breiðfylkingar og stórs flokks líkt og Samfylkingarinnar. Þannig svarar hún gagnrýni innan flokksins sem snýr að hjásetu flokksins við afgreiðslu nýrra útlendingalaga.

Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina
Meira en tvö þúsund manns hafa skrifað undir undirskriftalista á vef Ísland.is þar sem skorað er á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra að grípa inn í svo Yazan Tamimi og fjölskyldu hans verða ekki vísað úr landi.

Engin gögn bendi til tengsla við Hamas
Útlendingastofnun býr ekki yfir neinum gögnum sem gefa til kynna að þeir sem fengu dvalarleyfi hér á landi á grundvelli fjölskyldusameiningar Palestínumanna á þessu ári og síðasta hafi nokkur tengsl við Hamas-samtökin. Samanlagt hafa 184 dvalarleyfi hafa verið veitt í ár og í fyrra.

„Nöturlegt“ ef Barnasáttmálinn grípur ekki Yazan
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir nöturlegt ef réttindi barna og barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna grípi ekki fatlaðan ellefu ára dreng sem hefur verið vísað frá landinu. Brottvísun drengsins hefur verið frestað fram yfir verslunarmannahelgi og lögmaður fjölskyldu hans hefur óskað eftir endurupptöku á máli hans.

Yazan vísað úr landi eftir Verslunarmannahelgi
Brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans hefur verið frestað þar til eftir Verslunarmannahelgina. Lögmaður fjölskyldunnar mun seinna í dag senda inn beiðni til kærunefndar útlendingamála um að taka málið aftur upp.

Mál Yazans vekur athygli erlendra fjölmiðla
Mál Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með hrörnunarsjúkdóm sem búið er að ákveða að vísa úr landi, hefur vakið athygli erlendra fjölmiðla á borð við Al Jazeera.

Það er ákvörðun að beita mannvonsku
11 ára drengur með Duchenne-hrörnunarsjúkdóminn liggur á Barnaspítalanum og bíður brottvísunar sinnar af landinu. Sérfræðingar innan heilbrigðiskerfisins, hagsmunasamtök og almenningur hafa fordæmt brottvísun drengsins bæði vegna heilbrigðis- eða mannúðarsjónarmiða.