Um land allt

Boðið upp í lengstu lyftuferð á landinu
Hæsta lyfta Íslands, sem ætluð er til fólksflutninga milli hæða, er ekki í Hallgrímskirkjuturni. Nei, í Húnavatnssýslum er lyfta sem er fjórfalt hærri en sú á Skólavörðuholtinu.

Telja Blönduvirkjun bjóða upp á frekari uppbyggingu í héraði
Stækkun Blönduvirkjunar og betri flutningslínur þaðan skapa enn frekari tækifæri til uppbyggingar á Blönduósi, að mati ráðamanna í héraði.

Býður ferðamönnum að sjá Kirkjufell í kajakróðri
Grundfirðingar eru farnir að nýta sér frægð Kirkjufells til atvinnusköpunar. Kajakleiðsögumaður sem býður ferðamönnum að sjá fjallið af sjó með því að róa á kajak.

Gamla símstöðin í Hrútafirði er með orkuver í kjallaranum
Áhugamannahópur um verndun gömlu símstöðvarinnar í Brú í Hrútafirði leitar nú leiða til að glæða húsið lífi á ný í von um að bjarga því frá eyðileggingu.

Dreymir um skíðaparadís í brekkum Grundarfjarðar
Skíðamenn á Snæfellsnesi telja að í brekkunum ofan Grundarfjarðar séu náttúrulegar forsendur til að byggja upp eitt besta skíðasvæði landsins.

Signý er silkibóndi og ræktar silkiorma
Hún kallar sig silkibónda, býr á Snæfellsnesi, og er eftir því sem best er vitað fyrsti Íslendingurinn sem ræktar silki hérlendis.

Þetta gerist þegar fjallið þitt verður allt í einu heimsfrægt
Frægð Kirkjufells við Grundarfjörð hefur aukist svo á síðustu misserum að bílastæði við rætur fjallsins yfirfyllist á hverjum degi og skapast þar iðulega hættuástand við þjóðveginn.

Segir veiðigjöldin glæpsamlega háan landsbyggðarskatt
Eitt fullkomnasta fiskvinnsluhús á Íslandi hefur verið tekið í notkun í Grundarfirði. Framkvæmdastjórinn efast um að þeir hefðu lagt út í fjárfestinguna hefðu þeir vitað hver veiðigjöldin yrðu.

Fyrsti íslenski hamborgarinn gæti hafa verið seldur 1941
Leitin að fyrsta íslenska veitingastaðnum sem seldi Íslendingum hamborgara er að verða æsispennandi. Áhorfendur Stöðvar 2 og lesendur Vísis hafa sent fréttastofunni fjölda ábendinga síðastliðinn sólarhring.

Hvaða veitingastaður seldi fyrsta hamborgara á Íslandi?
Getur verið að fyrstu hamborgarar á Íslandi hafi verið seldir í Hrútafirði og fyrstu hamborgarabrauðin bökuð á Blönduósi? Í Staðarskála telja menn að fyrsti hamborgarinn hafi verið snæddur þar.

Hrútfirðingum finnst þeir eiga Staðarskála
Staðarskáli er stærsta fyrirtæki í Húnavatnssýslum og þar hafa þeir afgreitt uppundir áttahundruð pylsur á dag ofan í viðskiptavini og yfir eitthundrað lítra af kjötsúpu.

Íslenskar konur lögðu áherslu á að hafa fallegt í kringum sig
Í safni, sem ekki á sinn líka hérlendis, má sjá hvernig undirfötum íslenskar konur klæddust fyrr á tímum og kynnast hugmyndafræðinni á bak við íslenska skautbúninginn.

Leyniformúlan gerir Blönduós mikilvægan fyrir fiskútflutning
Leyniformúla, sem varðveitt er í læstu hólfi, er lykilinn að því að lítið fyrirtæki á Blönduósi er orðið þýðingarmikið fyrir fiskútflutning þjóðarinnar.

Blönduós orðið vaxtarsvæði og fimm hæða blokk áformuð
Blönduós er að fá sitt fyrsta háhýsi, fimm hæða íbúðablokk. Eftir áratugadeyfð í húsbyggingum er bærinn á skömmum tíma að úthluta lóðum undir nærri fimmtíu nýjar íbúðir.

Gamli bæjarkjarninn sagður falið leyndarmál
Elsti bæjarhlutinn á Blönduósi er falið leyndarmál, að mati heimamanna, sem hafa ákveðið að skilgreina hann sem verndarsvæði í byggð.

Augun verða tvítug á ný þegar minnst er gamla Kvennaskólans
Gamli Kvennaskólinn á Blönduósi hefur öðlast nýtt hlutverk; sem alþjóðleg þróunar- og þekkingarmiðstöð á sviði textíls. Gömlum nemendum þykir dásamlegt að sjá húsið nýtast með þessum hætti.

Held að enginn viti að þetta sé á Blönduósi
Blönduós orðinn kryddbær Íslands. Húnvetningar státa af því að vera með stærstu markaðshlutdeild í sölu á kryddum hérlendis.

Margir búnir að grínast með að gagnaverið myndi aldrei koma
Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi. Framkvæmdirnar hafa hleypt miklu fjöri í athafnalíf í Húnavatnssýslum.

Sameining við Þórshöfn reynst dýrkeypt að mati Bakkfirðinga
Bakkfirðingar, sem sjá eftir að hafa sameinast Þórshöfn, segja skrítið að um leið og ríkið hvetji til sameiningar sveitarfélaga séu engin verkfæri til að láta hana ganga til baka.

Ræktar feldfé til að fá mjúka og fíngerða ull
Nokkrir sauðfjárbændur eru farnir að rækta svokallað feldfé, þar sem áhersla er lögð á gæði ullarinnar, en mjúk og fíngerð feldfjárull er eftirsótt í handverki.

Svarið við ófærð að fá vélsleðamenn á hótelið
Hótel Djúpavík er orðinn stærsti vinnustaður Árneshrepps en líður fyrir það að vegurinn þangað er ófær yfir háveturinn. Svar ráðamanna hótelsins er að gera út á vélsleðamenn.

Verða snarruglaðir fyrir sunnan ef eitthvað á að gera fyrir Vestfirði
Skiptar skoðanir eru meðal íbúa Árneshrepps um hvort Hvalárvirkjun muni styðja við heilsársbyggð í hreppnum. Íbúar upplifa deilur um virkjunina þannig að fólk fyrir sunnan vilji taka völdin af heimamönnum.

Fólkið í Árneshreppi sagt með eindæmum þrjóskt og þrautseigt
Svartsýni ríkir í Árneshreppi um framtíð heilsársbúsetu en í fyrsta sinn í 89 ár er ekkert skólahald þar í vetur. Íbúarnir tóku sig þó til fyrir helgi og stofnuðu verslunarfélag.

Fækkun viðhaldsdaga gæti aukið tekjur af virkjunum
Sérfræðingar Landsvirkjunar leita nú leiða til að stytta viðhaldstíma virkjana en hver dagur sem sparast gefur færi á verulegum tekjuauka.

Með draumblik í augum þegar þeir rifja upp tímann í Sigöldu
"Þegar vann ég við Sigöldu, meyjarnar mig völdu, til þess að stjórna sínum draumum.“ Starfsmenn sem unnu í Sigöldu rifja upp tímann þegar lagið sló í gegn.

Bjarnfirðingum kippt yfir á öld háhraðans
Íbúum Bjarnarfjarðar á Ströndum hefur í einu vetfangi verið kippt yfir á öld háhraðans. Þeir eru að fá allt í senn; ljósleiðara, þriggja fasa rafmagn og malbikaðan veg.

Fatatíska Soffíu Danadrottningar markar aldur predikunarstólsins
Vegna glöggra tískusérfræðinga telja Hróarstungumenn sig geta fullyrt að sóknarkirkjan þeirra að Kirkjubæ varðveiti elsta predikunarstól landsins.

Segir Jöklu kannski verða stærstu laxveiðiá Evrópu
Laxagengd í Jökulsá á Dal í sumar var sú mesta frá því byrjað var að rækta hana upp sem laxveiðiá eftir að áin varð bergvatnsá með Kárahnjúkastíflu.

Rómantík húsmæðraskólans ber enn ávöxt í sveitum Austurlands
Húsmæðraskólarnir þóttu fyrrum einhver helsta hjúskaparmiðlun landsbyggðarinnar. En rómantíkin er enn til staðar í hússtjórnarskólanum á Hallormsstað.

Upplifðu vetrarfegurðina á Húsafelli
Gjafabréf í mat og gistingu á Hótel Húsafelli eru vinsæl jólagjöf. Svæðið skartar sínu fegursta á veturna og er stutt að fara fyrir borgarbúa til að njóta náttúrufegurðar og borða góðan mat.