
Samgönguslys

Alvarlega slasaður eftir harðan árekstur á Seltjarnarnesi
Fimm slösuðust eftir harðan tveggja bíla árekstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á tólfta tímanum í kvöld, þar af einn alvarlega. Unnið er að því að koma fólki á sjúkrahús.

Tafir á Hringbraut vegna áreksturs
Umferðartafir mynduðust eftir að tveir bílar rákust saman við hringtorgið á mótum Suðurgötu og Hringbrautar í í Reykjavík í morgun.

Þrír fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir árekstur á Hólavegi
Tveir bílar skullu saman á Hólavegi í Hjaltadal upp úr klukkan fjögur í dag. Mikil hálka var á svæðinu. Þrír aðilar voru í bílunum og voru þeir fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Laus brunndæla til bjargar þegar farþegaskip sigldi á hval
Talið er líklegast að farþegaskipið Sif sem ferðaþjónustufyrirtækið Borea Adventures gerir út hafi siglt á hval á leið sinni frá Ísafirði til Hesteyrar í Jökulfjörðum. Höggið leiddi til talsverðs leka í vélarrúminu. Laus brunndæla í skipinu kom í veg fyrir að það sykki.

Rannsóknarnefnd segir orsök skort á viðhaldi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur komist að þeirri niðurstöðu að orsök slyssins sem varð á strandveiðibátnum Gosa KE 102 hafi verið skortur á viðhaldi. Nefndin gerir einnig athugasemd við skoðun bátsins.

Rúta rann út af vegi á Hellisheiði
Rúta fyrirtækisins Bus4U rann út af veginum á Hellisheiði nú í morgun. Tuttugu manns eru í rútunni en engin slys urðu á fólki eða farartækjum.

Vara við sérlega skæðri hálku
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar alla vegfarendur við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu. Hálkan er sögð sérstaklega skæð nú þegar þegar hitinn er í kring um frostmark.

Rúta valt við Kirkjubæjarklaustur
Rúta fór út af vegi við Kirkjubæjarklaustur og valt á hliðina rétt í þessu.

Alvarlegt bílslys í Hveradalabrekku
Harkalegur árekstur varð á Suðurlandsvegi til móts við Skíðaskálann í Hveradölum á öðrum tímanum í dag þegar lítil jeppabifreið hafnaði aftan á snjóruðningstæki.

Þrjú loftför, tvö slys og tíu slasaðir
Landhelgisgæslan vill hafa flugvél sína, sem gegndi mikilvægu hlutverki þegar alvarlegt umferðarlys varð á Suðurlandi í gær, oftar til taks hér á Íslandi. Tíu manns úr tveimur slysum voru fluttir til Reykjavíkur með þremur loftförum gæslunnar í gær; bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar.

Erlendir ferðamenn í öðrum bílnum en Íslendingar í hinum
Fólkið sem lenti í hörðum árekstri suður af Öræfajökli síðdegis í gær er bæði erlendir ferðamenn og Íslendingar. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan þeirra sem slösuðust en allir níu sem lentu í slysinu voru fluttir með flugi til Reykjavíkur.

Níu fluttir með flugi til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys
Harður árekstur varð á Suðurlandi í dag. Fólksbíll og jeppi skullu saman á Suðurlandsvegi við Öldulón og Fagurhólsmýri, suður af Öræfajökli, um klukkan tvö en níu manns voru í bílunum tveimur.

Harður árekstur á Kringlumýrarbraut
Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar, Laugavegar og Suðurlandsbrautar á þriðja tímanum í dag. Tveir voru fluttir á slysadeild.

Handtekinn eftir útafakstur á Vatnsendavegi
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann eftir að tilkynnt hafði verið um að bíl hafði verið ekið út af Vatnsendavegi um klukkan 18:30 í kvöld.

Fjórir í bíl sem valt á Þingvallavegi
Enginn slasaðist þegar bíll sem fjóra um borð valt á Þingvallavegi í morgun.

Lögreglan óskar eftir vitnum að banaslysi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 10. desember síðastliðinn, þar sem ekið var á gangandi vegfaranda sem lést.

Níu létust í umferðinni, fjórir í flugslysi og tveir á sjó
Níu létust í umferðinni á árinu sem er að líða, fjórir í flugslysi og tveir á sjó.

Umferðaróhapp á Öxnadalsheiði en enginn slasaður
Umferðaróhapp átti sér stað á Öxnadalsheiði klukkan fjögur í dag. Rúta með ferðamönnum og jeppi skullu saman. Engin slys urðu á fólki.

Hringsnerust eftir ákeyrslu og sáu bílinn stinga af
Fjölskylda frá Reykjanesbæ lenti í nokkuð harkalegri ákeyrslu á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Þau auglýsa nú eftir vitnum að ákeyrslunni þar sem ökumaðurinn keyrði af vettvangi skömmu eftir að hafa keyrt á afturhlið bílsins.

Alvarlegt bílslys við Vík í Mýrdal
Alvarlegt umferðarslys varð á þjóðvegi eitt fyrir stundu við Reynisfjall skammt frá Vík í Mýrdal þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Lögregla er við störf á vettvangi ásamt öðrum viðbragðsaðilum og var hinn slasaði fluttur með þyrlu Landhelgisgæslu á Landspítala.

Einn alvarlega slasaður eftir bílveltu
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti tvo slasaða norður í land eftir að útkall barst vegna bílveltu. Í tilkynningu frá lögreglu segir að annar þeirra sé alvarlega slasaður.

Gangandi vegfarandi lést eftir að ekið var á hann
Banaslys varð á Höfðabakka í Reykjavík í nótt en þar var ekið á gangandi vegfaranda. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Þrír fluttir á slysadeild eftir bílslys í Mosfellsbæ
Þrír voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Allir voru þeir með minniháttar meiðsli. Einhverjar umferðartafir eru á svæðinu.

Óveður á Kjalarnesi og vegurinn lokaður vegna umferðaróhapps
Þjóðvegur 1 um Kjalarnes er lokaður vegna umferðaróhapps. Tilkynning þess efnis má sjá á vef Vegagerðarinnar. Fram kemur á vef RÚV að hjólhýsi þveri veginn.

Vörubíll og fólksbíll lentu í árekstri undir Akrafjalli
Árekstur varð undir Akrafjalli klukkan tæplega fjögur í dag. Slökkviliðið hefur lokið störfum á vettvangi og búið er að opna veginn á ný.

Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin
Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag.

Leitin að skipverjanum ekki enn borið árangur
Leitinni að karlmanni, sem féll frá boði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa á laugardag var haldið áfram í dag. Hún hefur þó ekki borið árangur og henni hætt í kvöld. Leit hefst aftur í morgunsárið með varðskipi Landhelgisgæslunnar en óákveðið er hvort þyrlan verði kölluð út.

Skýrsla tekin af skipstjóranum í morgun
Lögreglan á Suðurnesjum tók skýrslu af skipstjóra Sighvats GK-57, sem er í eigu Vísis hf. í Grindavík, í morgun. Skipverji féll frá borði Sighvats síðdegis á laugardag í Faxaflóa og stendur leit að honum enn yfir.

Samfélagið í Grindavík í sárum og bíður þess að skipverjinn finnist
Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík.

Leitarsvæðið á Faxaflóa stækkað í dag
Leit að skipverja, sem féll útbyrðis af fiskiskipi á laugardag, heldur áfram í dag. Leitarsvæðið hefur verið stækkað nokkuð en bæði varðskipið Þór, þyrla Landhelgisgæslunnar og leitarskip björgunarsveita munu taka þátt í leitinni.