Seðlabankinn

Fjárfestar flýja í öryggi af ótta við veika krónu, verðbólgu og lægra fasteignaverð
Seðlabanki greip inn í veikingu krónunnar eftir fall WOW.

Baldvin harmar framgöngu sína á göngum þingsins
Baldvin Þorsteinsson segist hafa komist óheppilega að orði við Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, að loknum opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á Alþingi í morgun.

Sonur Þorsteins Más lét seðlabankastjóra heyra það
Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja og sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra fyrirtækisins, lét Má Guðmundsson, seðlabankastjóra, heyra það að loknum opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á Alþingi í morgun.

Leita upplýsinga um leka til RÚV í tölvupóstum Más
Seðlabankinn telur sig hafa ætíð farið að lögum í öllum þeim aðgerðum sem hann greip til við framfylgd gjaldeyrishafta, miðað við þær upplýsingar sem bankinn hafði á hverjum tíma.

Gríðarlegur samfélagslegur kostnaður af framgöngu Seðlabanka
Seðlabankinn var engann veginn undir það búinn að framfylgja fjármagnshöfum að mati formanns Bankaráðs.

Bein útsending: Seðlabankastjóri kemur fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
Opinn fundur hefst klukkan 9 í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem á dagskrá verða lög um gjaldeyrismál og stjórnsýsla Seðlabanka Íslands við framkvæmd gjaldeyriseftirlits.

Útlánatöp ógna ekki bönkunum
Fari svo að WOW air yrði gjaldþrota og það yrði samdráttur í ferðaþjónustu er bent á að eiginfjárhlutfall bankanna sé hátt og útlán til ferðaþjónustu séu um tíu prósent af útlánasafninu.

Einn bætist í hóp umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra
Töluvpóstsvarnir Stjórnarráðsins komu í veg fyrir að ein umsókn bærist forsætisráðuneytinu. Umsóknin barst þó fyrir lok tímafrests.

Fimmtán vilja verða seðlabankastjóri
Már Guðmundsson, núverandi seðlabankastjóri, sótti ekki um starfið en hann hefur verið seðlabankastjóri í tæp tíu ár.

Stýrivextir óbreyttir
Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 4,5%.

Már á opnum fundi í dag
Már Guðmundsson seðlabankastjóri mætir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar kl. 14 í dag. Ráðgert er að fundurinn verði opinn.

Algjör áfellisdómur yfir stjórnsýslu Seðlabankans
Þingmaður Viðreisnar segir það með ólíkindum að Seðlabankinn hafi haldið áfram með mál gegn Samherja eftir að ljóst var að ekki var hægt að beita refsingum.

Seðlabankastjóri boðaður á opinn fund í næstu viku
Már Guðmundsson seðlabankastjóri mætir á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á fimmtudaginn í næstu viku. Umboðsmaður Alþingis var harðorður um stjórnsýslu eftirlits bankans fyrr í vikunni. Formaður nefndarinnar segir málið alvarlegt.

Möguleg brot í Seðlabankanum ekki komin til lögreglu
Þagnarskyldubrot eru fyrst kærð til lögreglu og fara svo eftir atvikum í ákæruferli hjá embætti héraðssaksóknara.

Umboðsmaður um Samherjamálið: „Verður að vera alveg ljóst að svona gera menn ekki“
Samherjamálið er ágætis dæmi um að það sé óheppilegt að reglusetning, rannsókn mála og ákvörðun viðurlaga sé á einni hendi, að mati Umboðsmanns Alþingis.

Arftaki Más þarf að vera góður í mannlegum samskiptum
Forsætisráðherra hefur auglýst til umsóknar starf seðlabankastjóra til næstu fimm ára.

Málverk af nöktum konum fyrir augu almennings í Seðlabankanum
Mannslíkaminn, bæði kvenna og karla, hefur verið mankyninu hugleikinn allt frá fyrstu hellisristum frummanna til málverka og höggmynda nútímans.

Brjóstamyndir Blöndals opinberaðar á morgun
Heilu hóparnir hafa boðað komu sína í Seðlabankann á morgun til að skoða verk Gunnlaugs Blöndal.

Seðlabankinn á átta verk eftir Rósu Ingólfs
Bókfært virði skráð 100 milljónir á tilkomumiklu listaverkasafni Seðlabankans.

Fylgir reglum um að fegra byggingar og umhverfi
Ritstjóri Seðlabankans segir bankann vera með listaverkaeign sinni að fylgja viðmiðum og stefnum sem opinberir aðilar hafi sett.

Blöndalsverkið í Opinberun Hannesar
Málverk eftir Gunnlaug Blöndal eru heldur betur komin á dagskrá.

Seðlabankinn einn leitað eftir listfræðilegri leiðsögn Jafnréttisstofu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir listrænt frelsi grundvallaratriði.

Seðlabankinn á 320 málverk
Bankinn á alls sex málverk eftir Gunnlaug Blöndal.

Seðlabankinn sýnir hin umdeildu verk Blöndals
Verkin tekin niður með hliðsjón af jafnréttisstefnu.

Tepruskapur og púrítanismi sagður ráða ríkjum í Seðlabankanum
Bandalag listamanna gerir alvarlegar athugasemdir við að listaverk séu falin á vafasömum forsendum.

Nektarlist í Seðlabanka komið fyrir í geymslu
Eftir skoðun innan Seðlabankans varð niðurstaða stjórnenda sú að málverk sem innihalda nekt eftir Gunnlaug Blöndal skuli fjarlægð úr almennum vinnusvæðum og skrifstofum yfirmanna.