
EM 2022 í Englandi

Þýska blaðið Bild: Nýtt Wembley svindl
1966 vann karlalandslið Englands Þýskalands í úrslitaleik HM á Wembley. 2022 vann kvennalandslið Englands Þýskaland í úrslitaleik EM á Wembley. Þjóðverjum þykir á sér brotið í báðum þessum leikjum.

Enska knattspyrnusambandið íhugar að bjóða Wiegman nýjan samning
Eftir að hafa tryggt enska kvennalandsliðinu í knattspyrnu sinn fyrsta Evrópumeistaratitil í knattspyrnu gæti þjálfarinn Sarina Wiegman verið að fá nýjan samning við liðið.

Kvennaleikir þrír mest sóttu fótboltaviðburðir ársins
Áhorfendamet var slegið þegar England vann Þýskaland fyrir framan rúmlega 87 þúsund manns í úrslitum Evrópumóts kvenna á Wembley í Lundúnum í gær. Þrír mest sóttu fótboltaleikir ársins eru allir í kvennaboltanum.

Bretlandsdrottning lofar enska liðið: Innblástur fyrir komandi kynslóðir
Elísabet önnur, Englandsdrottning, óskaði leikmönnum enska kvennalandsliðsins í fótbolta til hamingju með frábæran árangur eftir að liðið fagnaði sigri á Evrópumótinu sem lauk í gær.

Leikmenn Englands trufluðu blaðamannafund Wiegman syngjandi og trallandi
Leikmenn enska kvennalandsliðsins fögnuðu skiljanlega vel eftir sigur á Þýskalandi í úrslitum Evrópumótsins á Wembley í Lundúnum í gær. Liðið var að vinna fyrsta stóra titil Englands frá árinu 1966.

Mead bæði markahæst og best á EM
Beth Mead átti frábært mót fyrir England og átti stóran þátt í að liðið tryggði sér sinn fyrsta Evrópumeistaratitil í sögunni.

Nýtt áhorfendamet slegið á Wembley
Aldrei hafa fleiri áhorfendur mætt á leik í lokakeppni Evrópumóts í fótbolta en á Wembley í dag þegar England og Þýskaland mættust í úrslitum.

England Evrópumeistari í fyrsta sinn
England er Evrópumeistari í knattspyrnu í fyrsta sinn eftir sigur á áttföldum Evrópumeisturum Þjóðverja á Wembley í London í kvöld.

Kemur Wiegman enskum loks til fyrirheitna landsins?
Enskt A-landslið fær í dag möguleika á að vinna stórmót í fyrsta sinn síðan 1966. Þá var England á heimavelli líkt og nú.

Hver verður markadrotting á EM?
Tveir markahæstu leikmenn Evrópumóts kvenna í fótbolta verða báðir í eldlínunni þegar England mætir Þýskalandi í úrslitaleik mótsins á morgun.

Mætti með yfirvaraskegg á blaðamannafund
Alexandra Popp, fyrirliði þýska kvennalandsliðsins í fótbolta, fór mikinn á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik liðsins við England á Evrópumótinu í fótbolta sem fram fer á sunnudag.

„Þetta verður frábær fótboltaveisla“
England og Þýskaland mætast í úrslitaleik Evrópumótsins í Lundúnum á sunnudaginn og þjálfari Þjóðverja lofar veislu á Wembley leikvanginum.

Brotist inn hjá enskri landsliðskonu á meðan hún var að spila á EM
Þetta hefur verið vandamál hjá þekktustu fótboltakörlunum í Englandi en nú eru óprúttnir aðilar líka farnir að brjótast inn hjá ensku landsliðskonunum þegar þær eru að spila fyrir þjóð sína.

Störf æðstu ráðamanna Íslands á EM í knattspyrnu
Íslenska landsliðið í knattspyrnu fékk mikinn stuðning á yfirstandandi EM kvenna í Englandi, bæði úr stúkunni og frá fólki heima í stofu. Ráðamenn þjóðarinnar lögðu sín lóð á vogarskálarnar en auk forseta Íslands fóru þrír ráðherrar út til Englands til að styðja við liðið.

Reyndi nýliðinn að gera gæfumuninn fyrir þýsku stelpurnar á þessu EM
Alexandra Popp missti af tveimur síðustu Evrópumótum vegna meiðsla og er því að taka þátt í sínu fyrsta EM í sumar þrátt fyrir að spila fyrir Þýskaland og hafa verið í hópi öflugustu framherja álfunnar í langan tíma. Það er óhætt að segja að frumraunin langþráða gangi vel.

Unga stuðstelpan í stúkunni fékk gefins miða á úrslitaleikinn
Ensku ljónynjurnar eru komnar alla leið í úrslitaleikinn á Evrópumótinu þar sem þær mæta Þýskalandi á Wembley á sunnudaginn.

Popp skaut Þjóðverjum í úrslit Evrópumótsins
Þjóðverjar munu leika til úrslita á EM þetta árið eftir 2-1 sigur á Frökkum í undanúrslitum í kvöld. Alexandra Popp skoraði bæði mörk Þýskalands í leiknum en Þýskaland mun mæta gestgjöfum Englands í úrslitaleiknum næsta sunnudag.

Smitaðist og missir af undanúrslitaleik EM
21 árs gömul þýsk landsliðskona fékk mjög leiðinlegar fréttir í gær þegar í ljós kom að hún má ekki taka þátt í undanúrslitaleik Evrópumóts kvenna í fótbolta í kvöld.

Hælspyrnuhetjan og fleiri um markið ótrúlega: Ég get ekki útskýrt hvað gerðist
Ensku ljónynjurnar eru á góðri leið með að vinna langþráðan titil fyrir enska landsliðið í knattspyrnu en þær unnu frábæran 4-0 sigur á Svíum í undanúrslitaleik Evrópumótsins í gær.

Ensku blöðin: Himnaríki og hællinn
Ensku ljónynjurnar stálu að sjálfsögðu fyrirsögnunum í ensku blöðunum í morgun eftir 4-0 sigur á Svíþjóð í undanúrslitaleik Evrópumótsins.

Sjáðu hælspyrnuna og hin mörkin sem komu Ljónynjunum í úrslitaleik EM
Enska landsliðið er komið í úrslitaleik Evrópumóts kvenna í fótbolta eftir 4-0 sigur á Svíum í undanúrslitaleiknum í gærkvöldi.

Umfjöllun: England - Svíþjóð 4-0 | England fór sannfærandi áfram í úrslitaleikinn
England bar sigurorð af Svíþjóð, 4-0, þegar liðin áttust við í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta á Bramall Lane í kvöld.

Heimakonur sigurstranglegastar en þær sænsku ólíklegastar
Undanúrslit Evrópumóts kvenna hefjast á morgun og líkt og á öðrum stigum keppninnar hafa hinar ýmsu tölfræðiveitur reiknað út sigurmöguleika hverrar þjóðar fyrir sig.

Umfjöllun: Frakkland - Holland 1-0 | Frakkar áfram eftir framlengingu
Frakkland bar sigurorð af Hollandi með einu marki gegn engu þegar liðin áttust við í átta liða úrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta á New York-leikvangnum í Rotherham í Englandi í kvöld.

Svíar þurfa skothelt plan
Svíþjóð varð í gærkvöld þriðja liðið til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum á Evrópumóti kvenna í fótbolta eftir nauman sigur á Belgíu. Heimakonur frá Englandi bíða þeirra sænsku í næsta leik.

Svíar tryggðu sér sæti í undanúrslitum með marki í blálokin
Linda Sembrant kom Svíþjóð í undanúrslit Evrópumóts kvenna í fótbolta með marki á þriðju mínútu uppbótartíma gegn Belgíu. Lokatölur 1-0 og Svíþjóð mætir Englandi í undanúrslitum.

Tilkynnt um 290 níðfærslur á mótinu sem stelpurnar okkar spiluðu á
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, vinnur gegn því að leikmenn og þjálfarar á Evrópumóti kvenna í fótbolta verði fyrir netníði. Sambandið hefur þegar tilkynnt um að minnsta kosti 290 níðfærslur.

Þýskaland nýtti sér skelfileg mistök og fór í undanúrslit
Austurríki hafði aðeins fengið á sig eitt mark á EM þar til kom að leiknum við Þýskaland í 8-liða úrslitum í kvöld en þar unnu Þjóðverjar hins vegar 2-0 sigur. Þýskaland hefur því enn ekki fengið á sig mark á mótinu en það stóð tæpt í kvöld.

Sjáðu markið: Þrumufleygur Stanway leyfir Englandi að dreyma
Georgia Stanway reyndist hetja Englands er liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum Evrópumóts kvenna í fótbolta með 2-1 sigri á Spáni í framlengdum leik. Mark Stanway var einkar glæsilegt.

Aldrei fleiri horft á leik á EM kvenna en þegar Ísland og Frakkland mættust
Sett var met yfir landsleik Íslands og Frakklands í lokaumferð D-riðils Evrópumóts kvenna í fótbolta. Aldrei hafa fleiri Íslendingar horft á leik á EM kvenna.