Sænski boltinn

Sveindís strax að verða of góð fyrir Svíþjóð
Sveindís Jane Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru báðar í úrvalsliði 1. umferðar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta hjá mest lesna miðli Svíþjóðar, Aftonbladet.

Kolbeinn skoraði tvö og afgreiddi gömlu félagana
Kolbeinn Sigþórsson skoraði bæði mörk IFK Gautaborgar í 2-0 sigri á AIK í 2. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar.

Dramatískur sigur hjá Glódísi Perlu á meðan lítið gekk upp hjá strákunum
Fjöldi Íslendinga var í eldlínunni í sænsku úrvalsdeildunum í knattspyrnu í dag. Rosengård vann dramatískan sigur á Linköping en karla megin var enginn Íslendingur í sigurliði.

Sjáðu markið: Sveindís Jane skoraði í sínum fyrsta leik
Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði sinn fyrsta leik með Kristianstad í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar gegn Eskilstuna í dag. Það tók Sveindísi ekki nema 11 mínútur að stimpla sig inn. Lokatölur 1-1, en Eskilstuna jafnaði rétt fyrir hálfleik.

Hallbera og Andrea Mist skiptu stigunum á milli sín í fyrsta leik tímabilsins
Växjö tók á móti AIK þegar sænska úrvalsdeildin fór af stað í dag. Hallbera Gísladóttir spilaði allan leikinn fyrir AIK sem gerði 1-1 jafntefli gegn Andreu Mist Pálsdóttur og félögum hennar í Växjö.

Frumraun Sveindísar sem beðið er með mikilli eftirvæntingu í beinni
Metfjöldi íslenskra leikmanna leika í sænsku úrvalsdeildinni sem hefst um helgina. Stöð 2 Sport sýnir beint frá fyrsta leik Sveindísar Jane Jónsdóttur með Kristianstad á morgun.

Talin einn besti leikmaðurinn í Svíþjóð þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik
Þrátt fyrir að hafa ekki enn spilað leik í sænsku úrvalsdeildinni er Sveindís Jane Jónsdóttir á lista Fotbollskanelan yfir bestu leikmenn deildarinnar.

Ari Freyr skoraði glæsimark í endurkomunni til Svíþjóðar
Ari Freyr Skúlason stimplaði sig inn í sænska boltann með glæsibrag þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir Norrköping í dag.

Jón Guðni spilaði í fjörugum opnunarleik
Sænska úrvalsdeildin í fótbolta hófst í dag með pompi og prakt þegar Malmö fékk Hammarby í heimsókn.

Ísak Bergmann talinn efnilegasti leikmaður sænsku deildarinnar
Ísak Bergmann Jóhannesson er efstur á blaði hjá Göteborgs-Posten yfir efnilegustu leikmenn sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.

Hákon sagður fara til eins besta liðs Svíþjóðar
Hinn 19 ára gamli Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður Gróttu og U21-landsliðsins, er á leið í atvinnumennsku ef að líkum lætur.

Spennt að sjá hvað Sveindís Jane hefur fram að færa
Það styttist í að sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu fari af stað og það er ljóst að sparkspekingar þar í landi geta vart beðið eftir að sjá Sveindísi Jane Jónsdóttur spila sinn fyrsta leik í deildinni.

Häcken í úrslit eftir sigur á Rosengård
Häcken vann 1-0 sigur á Rosengård í dag er liðin mættust í undanúrslitum sænska bikarsins.

Jón Guðni í úrslit, Sverrir Ingi tapaði en Guðlaugur Victor var ekki með
Jón Guðni Fjóluson er kominn í úrslit sænska bikarsins í knattspyrnu. Sverrir Ingi Ingason var á sínum stað er PAOK tapaði stórt og Guðlaugur Victor Pálsson fékk frí.

Íslendingaliðum spáð efstu þremur sætunum sem og þremur neðstu
Sænska úrvalsdeildin í knattspyrnu hefst eftir tvær vikur og hefur Twitter-reikningurinn Damallsvenskan Nyheter birt spá sína fyrir komandi tímabil. Þrjú efstu liðin eiga það sameiginlegt að vera með Íslending innanborðs.

Ari Freyr til Norrköping
Ari Freyr Skúlason er genginn í raðir IFK Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en þetta var staðfest í dag.

Sex marka jafntefli þegar Sveindís og Glódís mættust
Kristianstad og Rosengard áttust við í sænska bikarnum í fótbolta í dag og þar voru íslenskir leikmenn í eldlínunni.

Sjáðu stoðsendingu Zlatans í fyrsta landsleiknum í fimm ár
Zlatan Ibrahimovic lagði upp sigurmark Svía gegn Georgíumönnum í sínum fyrsta landsleik í fimm ár.

Koma Sveindísar Jane sögð vera þriðju bestu félagaskiptin
Tvær íslenskar landsliðskonur eru á nýjum lista yfir bestu félagaskiptin fyrir komandi tímabil í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Segir að sonurinn eigi að vera í landsliðinu
Henrik Larsson, aðstoðarþjálfari Barcelona og goðsögn í Svíþjóð, skilur ekki hvernig sonur hans Jordan Larsson er ekki í sænska landsliðshópnum fyrir komandi leiki.

Cecilía til Örebro: „Handviss um að hún muni spila með einu af bestu liðum Evrópu“
Hin 17 ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, er farin út í atvinnumennsku. Hún er þegar mætt til Svíþjóðar og orðin leikmaður Örebro, rétt eins og fyrrverandi fyrirliði hennar hjá Fylki.

Jón Guðni einn af sextán leikmönnum með kórónuveiruna: „Finn enga lykt og ekkert bragð“
Sextán leikmenn og fimm starfsfólk sænska úrvalsdeildarfélagsins Hammarby eru með kórónuveiruna. Jón Guðni Fjóluson er einn leikmannanna með veiruna.

Zlatan snýr aftur í sænska landsliðið: „Endurkoma guðs“
Zlatan Ibrahimovic, framherji AC Milan, hefur verið valinn aftur í sænska landsliðið eftir fimm ára fjarveru.

Arnór til Bandaríkjanna
Arnór Ingvi Traustason er genginn í raðir New England Revolution í MLS-deildinni.

Tveir sigrar, jafntefli og tap hjá Íslendingaliðunum
Íslenskt landsliðsfólk í knattspyrnu var í eldlínunni í dag. Úrslitin voru jafn mismunandi og þau voru mörg.

Albert skoraði sjálfsmark í sigri | Valgeir lagði upp sigurmarkið
Albert Guðmundsson skoraði sjálfsmark í 4-1 sigri AZ Alkmaar á Twente í hollensku úrvalsdeildinni. Häcken hafði betur, 3-2, gegn Norrköping í 8-liða úrslitum sænska bikarsins. Lagði Valgeir Lunddal Friðiksson upp sigurmark leiksins.

Diljá elti kærastann og vann sér inn samning hjá sænsku meisturunum
Diljá Ýr Zomers hefur fengið félagaskipti til Svíþjóðar frá Val og er þegar byrjuð að spila með Gautaborgarliðinu Häcken.

Böðvar frá Póllandi til Svíþjóðar
Vinstri bakvörðurinn Böðvar Böðvarsson var í dag kynntur sem nýr leikmaður Helsingborg. Hann mun því leika í næstefstu deild Svíþjóðar á komandi leiktíð.

Arnór Ingvi á leiðinni til Bandaríkjanna
Arnór Ingvi Traustason er á leiðinni frá sænsku meisturunum í Malmö í MLS-deildina í Bandaríkjunum en það er FotbollDirekt sem greinir frá þessu á vef sínum í dag.

Hamsik staðfestur sem liðsfélagi Kolbeins
Marek Hamsik var í kvöld kynntur til leiks sem leikmaður Gautaborgar í sænska boltanum en hann skrifar undir samning við félagið fram á sumar.