
Norski boltinn

Vildu ekki sjá kvennaliðið undir þeirra hatti þótt þær beri sama nafn
Kvennalið Lilleström á ekki upp á pallborðið hjá Lilleström. Það kom vel í ljós í kosningu á aðalfundi félagsins í gær.

Hoppar yfir Bestu deildina og út í atvinnumennsku eins og Eyjólfur Sverris
Gróttumaðurinn Kjartan Kári Halldórsson tekur nú risastökk á sínum ferli með því að gerast atvinnumaður hjá norska félaginu Haugesund.

Haugesund vann kapphlaupið um Kjartan Kára
Kjartan Kári Halldórsson, markakóngur Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili, er genginn í raðir Haugesund í Noregi frá Gróttu.

Carew dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir stórfelld skattsvik
John Carew, fyrrverandi landsliðsmaður Noregs í fótbolta, hefur verið dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir gróf skattsvik. Auk þess þarf hann að greiða háa sekt.

Brynjólfur Darri skoraði í lokaumferðinni og Alfons og félagar tryggðu annað sætið
Það var nóg um að vera þegar lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fór fram í dag. Brynjólfur Darri Willumsson skoraði eina mark Kristiansund er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Jerv og Alfons Sampsted lék allan leikinn er Bodö/Glimt tryggði sér annað sæti deildarinnar með 2-4 sigri gegn Stromsgodset.

Alfons kveður eftir mikla velgengni
Alfons Sampsted, landsliðsbakvörður í fótbolta, mun fara frítt frá norska félaginu Bodö/Glimt nú þegar keppnistímabilinu í Noregi lýkur.

Gulli hlaðin eftir franska martröð: „Hefði ekki getað farið á betri stað“
Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir fullkomnaði sannkallað viðspyrnutímabil sitt í Noregi um helgina með því að leggja upp tvö mörk þegar lið hennar Brann varð bikarmeistari í fótbolta, eftir að hafa orðið Noregsmeistari í síðasta mánuði.

Brynjólfur og félagar enn í fallsæti
Brynjólfur Andersen og félagar í norska liðinu Kristiansund eru enn í fallsæti norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu en næstsíðasta umferðin fór fram í dag.

Sjáðu þegar Svava Rós lagði upp tvö þegar Brann varð bikarmeistari
Landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttir gerði sér lítið fyrir og lagði upp tvö mörk þegar Brann varð norskur bikarmeistari í fótbolta með 3-1 sigri á Stabæk. Stutt er síðan liðið tryggði sér norska meistaratitilinn og fullkomnaði liðið frábært tímabil með sigri í dag.

Norsku meistararnir sækja Natöshu til Blika
Nýkrýndir Noregsmeistarar Brann tilkynntu í dag um að félagið hafi samið við íslenska miðvörðinn Natöshu Anasi.

Brynjólfur Andersen á skotskónum og Sveindís Jane enn með fullt hús stiga
Brynjólfur Andersen Willumsson skoraði og lagði upp í stórsigri Kristiansund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Sigurinn heldur vonum liðsins um að halda sæti sínu í deildinni á lífi. Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru enn með fullt hús stiga í Þýskalandi.

Ingibjörg og Svava skiptu stigunum á milli sín í lokaumferðinni
Lokaumferð norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu fór fram í dag, en úrslit hennar voru nú þegar ráðin. Svava Rós Guðmundsdóttir og stöllur hennar í Brann tryggðu sér titilinn í seinustu umferð, en þær gerðu 1-1 jafntefli gegn Ingibjörgu Sigurðardóttur og liðsfélögum hennar í Vålerenga í dag.

Bjarni Mark skoraði úr glæsilegri hjólhestaspyrnu og lætur sig dreyma um úrvalsdeildina
Bjarni Mark Antonsson skoraði fyrra mark Start í 2-1 sigri á Ranheim í norsku B-deildinni í fótbolta í dag. Markið var í glæsilegri kantinum og sjá má það hér að neðan. Start fer nú í umspil um sæti í norsku úrvalsdeildinni.

Hörður Björgvin áfram ósigraður á toppnum | Brynjar Ingi fékk loks tækifæri
Hörður Björgvin Magnússon var á sínum stað í miðverði Panathinaikos þegar liðið vann öruggan 5-1 útisigur á Volos í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Brynjar Ingi Bjarnason fékk loks tækifæri í byrjunarliði Vålerenga þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Sarpsborg í Noregi.

Brynjar Ingi á listum sem enginn vill vera á
Eftir afar hraðan uppgang á síðasta ári hefur miðvörðurinn og landsliðsmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason átt afar erfitt uppdráttar á sinni fyrstu leiktíð í Noregi.

Kristall spilaði í tapi gegn Molde
Kristall Máni Ingason var í byrjunarliði Rosenborg þegar liðið heimsótti Molde í stórleik helgarinnar í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Ingibjörg skoraði í stórsigri Vålerenga
Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði sjötta mark Vålerenga er liðið vann afar öruggan 6-0 sigur gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Svava skoraði er Brann tryggði sér titilinn
Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði fyrra mark Brann er liðið tryggði sér efsta sæti efri hluta norsku deildarinnar í knattspyrnu með 1-2 útisigri gegn Selmu Sól Magnúsdóttur og stöllum hennar í Rosenborg.

Bjarni Mark hafði betur gegn Íslendingaliðinu
Bjarni Mark Antonsson kom inná sem varamaður eftir rúmlega klukkutíma leik þegar Start bar sigurorð af Sogndal með tveimur mörkum gegn einu í norsku B-deildinni í fótbolta karla í dag.

Vilja afnema úrslitakeppnina strax
Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Vålerenga, liðsins sem Ingibjörg Sigurðardóttir leikur með, vilja að nýja úrslitakeppnin sem notast er við í úrvalsdeild kvenna í Noregi í ár verði afnumin strax.

Svava Rós nálgast norska meistaratitilinn | Berglind Rós drap titilvonir Kristianstad
Svava Rós Guðmundsdóttir nældi sér í gult spjald þegar Brann vann öruggan 3-0 sigur í úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Sigurinn þýðir að Brann er hársbreidd frá norska meistaratitlinum. Þá skoraði Berglind Rós Ágústsdóttir í 3-2 sigri Örebro á Kristianstad, segja má að tapaði hafi endanlega gert út um vonir Kristianstad að verða sænskur meistari.

Vålerenga heldur í vonina um að ná toppliði Brann
Ingibjörg Sigurðardóttir spilaði allan leikinn í miðri vörn Vålerenga þegar liðið vann 2-0 sigur á Rosenborg í umspilinu um norska meistaratitilinn i fótbolta.

Nauðgunarákæra gegn fyrrum leikmanni Selfoss felld niður af því að konan dó
Málið gegn senegalska knattspyrnumanninum Babacar Sarr hefur verið fellt niður og ástæðan er að fórnarlambið lést í sumar.

Kristall sneri aftur eftir meiðsli í stórsigri á Valerenga
Kristall Máni Ingason sneri aftur á knattspyrnuvöllinn í kvöld þegar hann kom inná sem varamaður í 3-0 sigri Rosenborg.

Alfons spilaði allan leikinn í mikilvægum sigri
Spennandi lokaumferðir framundan í norska boltanum.

Bjarni kann engar skýringar á fyndnum fagnaðarlátum
Óhætt er að segja að Siglfirðingurinn Bjarni Mark Antonsson hafi ekki ráðið sér fyrir kæti þegar lið hans Start skoraði dramatískt og afar mikilvægt sigurmark í norsku 1. deildinni í fótbolta.

Rosenborg kynnir Ísak Snæ til leiks
Norska liðið Rosenborg hefur gengið frá kaupum á Ísaki Snæ Þorvaldssyni frá Breiðabliki. Ísak klárar tímabilið hér heima og fer til Rosenborgar um áramótin.

Ísak Snær mættur til Þrándheims
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, er mættur til Þrándheims í Noregi og mun líklega ganga frá skiptum til Rosenborgar. Hann mun þá ganga til liðs við félagið þegar félagsskiptaglugginn opnar á ný um áramótin.

Brynjólfur lagði upp eitt mark í átta marka jafntefli gegn Rosenborg
Ótrúleg úrslit litu dagsins ljós í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag þegar Brynjólfur Willumsson og félagar í Kristiansund fengu stórveldið Rosenborg í heimsókn.

Alfons og félagar unnu stórsigur í mikilvægum leik
Alfons Sampsted og félagar í Bodo/Glimt unnu mikilvægan sigur á Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.