
Norski boltinn

Hólmbert Aron og félagar ósigraðir á toppnum
Hólmbert Aron Friðjónsson lék tæpan hálftíma er Lilleström vann 4-1 útisigur á Sandefjord í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Stórir íslenskir sigrar í norska bikarnum
Fyrsta umferð norsku bikarkeppninnar fór fram í dag. Alls voru fimm Íslendingalið í eldlínunni og öll unnu þau stórsigra.

Þjálfari íslensku stelpnanna í Brann gæti orðið þjálfari íslensku stelpnanna í Bayern
Alexander Straus hefur verið að gera góða hluti með kvennalið Brann í norska fótboltanum og nú er hann orðaður við starfið hjá kvennaliði Bayern München.

Svava og Ingibjörg áfram í 16-liða úrslit
Svava Rós Guðmundsdóttir og Ingibjörg Siguðardóttir eru báðar komnar áfram í 16-liða úrslit norska bikarsins í fótbolta með sínum liðum eftir stórsigra í kvöld.

Viking komið á toppinn í Noregi | Silkeborg öruggt í þriðja sæti
Íslendingalið Viking er komið á topp Eliteserien, norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Þá virðist sem Stefán Teitur Þórðarson og félagar í Silkeborg séu komnir í sumarfrí eftir að ljóst var að liðið endar í 3. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.

Emil fór aftur í hjartastopp: „Þakklátur að þetta hafi farið vel“
Fótboltamaðurinn Emil Pálsson fór aftur í hjartastopp í síðustu viku. Emil lenti í þeirri skelfilegu lífsreynslu að fara í hjartastopp er hann var að spila með Sogndal í Noregi. Nú lenti hann í því að hníga niður á æfingu hjá FH hér á landi.

Svava Rós skoraði tvö er Brann fór á toppinn
Svava Rós Guðmundsdóttir skoraði tvívegis er Brann vann 10-0 stórsigur á Åvaldsnes í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Í Svíþjóð voru íslenskir bakverðir í eldlínunni.

Alfons og Viðar Ari reimuðu á sig markaskó
Alfons Sampsted, landsliðsbakvörður í fótbolta, skoraði mark Bodø/Glimt í 1-1-jafntefli liðsins gegn Lilleström í sjöttu umferð norsku efstu deildarinnar í dag.

Jafnt í toppslagnum í Noregi | Rosengård tók toppsætið í Svíþjóð
Vålerenga og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Þá fór fjöldi leikja fram í sænsku úrvalsdeild kvenna þar sem alls voru sex Íslendingar í eldlínunni.

Viking Stavanger komst á toppinn með sigri
Patrik Sigurður Gunnarsson stóð á milli stanganna hjá Viking Stavanger þegar liðið lagði Molde að velli í norsku efstu deildinni í fótbolta karla í dag.

Hólmbert Aron með þrennu í stórsigri og Selma Sól spilaði í naumum sigri Rosenborgar
Hólmbert Aron Friðjónsson og Selma Sól Magnúsdóttir unnu bæði sína leiki í Noregi í dag.

„Kröftugt högg á trýnið og vantar annan skóinn“
Alfons Sampsted fékk olnbogaskot í andlitið í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar í fótbolta í gær. Hann fékk myndarlegt glóðarauga en segist ekki koma til með að missa af mínútu með Bodö/Glimt.

Alfons lék allan leikinn er Bodø/Glimt tapaði í bikarúrslitum
Molde er norskur bikarmeistari í fótbolta eftir 1-0 sigur á Alfonsi Sampsted og félögum í Bodø/Glimt.

Vålerenga og Brann enn með fullt hús stiga
Þegar sjö leikir eru búnir af norsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta eru Íslendingalið Vålerenga og Brann bæði með fullt hús stiga. Sigrar dagsins voru þó frekar ólíkir.

Hættu loks við að stöðva hátíð sem þrír Íslendingar taka þátt í
Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Brann ætla sér að skapa mikla hátíð og stemningu í kringum leikinn við Vålerenga í úrvalsdeild kvenna í Noregi. Vålerenga sagði ítrekað nei við því en hefur nú loks snúist hugur.

Gott gengi Hólmberts og félaga heldur áfram
Hólmbert Aron Friðjónsson var í byrjunarliði Lilleström er liðið vann góðan 2-0 sigur gegn Ålesund í fimmtu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Hólmbert skaut Lilleström á toppinn
Nokkrir Íslendingar voru í eldlínunni í 4.umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.

Jónatan Ingi kominn á blað í Noregi
Jónatan Ingi Jónsson er byrjaður að láta að sér kveða í norska fótboltanum eftir að hafa nýverið gengið í raðir Sogndal frá FH.

Ingibjörg byrjaði og Vålerenga viðheldur 100% árangri sínum
Ingibjörg Sigurðardóttir var í byrjunarliði Vålerenga og spilaði allan leikinn í 2-0 sigri liðsins á Kolbotn í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Alfons og félagar í bikarúrslit eftir sigur í Íslendingaslag
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt eru á leið í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar eftir 2-1 sigur gegn Viking í Íslendingaslag í kvöld.

Alfons og félagar unnu stórsigur í Íslendingaslag
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt unnu afar öruggan 5-1 stórsigur á Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Íslendingaliðin Brann og Vålerenga enn með fullt hús stiga
Íslendingaliðin Brann og Vålerenga eru enn með fullt hús stiga eftir leiki dagsins í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Patrik Gunnarsson hélt hreinu gegn Aalesund
Patrik Gunnarsson spilaði allan leikinn í marki Viking í 1-0 sigri í lokaleik dagsins í norsku úrvalsdeildinni.

Viðar tryggði Vålerenga sigur
Allir íslensku leikmenn norsku deildarinnar, að Ara Leifs fráskyldum, fengu mínútur í leikjum sinna liða í dag. Viðar Örn Kjartansson var á skotskónum.

Aðstoðarmaður Mourinhos kærður vegna kverkataks í göngunum
Forráðamenn norska knattspyrnufélagsins Bodö/Glimt hafa nú ákveðið að kæra Nuno Santos, markmannsþjálfara Roma, vegna árásar á Kjetil Knutsen, þjálfara norska liðsins, eftir 2-1 tap Roma í Noregi í gærkvöld. Atvikið náðist á myndband.

Lögreglan ræddi við Mourinho og þjálfara Alfonsar eftir að upp úr sauð
Það var enn hiti í mönnum inni á búningsklefasvæðinu í Bodö í gærkvöld, eftir 2-1 sigur heimamanna gegn Roma í Sambandsdeildinni í fótbolta og var lögregla kölluð til. Mikill hefndarhugur er í fyrirliða Roma vegna málsins.

Ari Leifsson skoraði sjálfsmark og Molde fer í úrslit
Ari Leifsson, leikmaður Strømsgodset, kom inn á sem varamaður og spilaði í 14 mínútur í undanúrslitaleik Molde og Strømsgodset í norska bikarnum í dag. Ari skoraði þriðja og síðasta mark Molde í 3-0 tapi.

AC Milan hafði áhuga á Svövu en hún gæti ekki verið ánægðari með að hafa valið Brann
Eftir erfiða tíma í Frakklandi þar sem hún fékk nánast ekkert að spila nýtur Svava Rós Guðmundsdóttir, landsliðskona í fótbolta, lífsins hjá Brann í Noregi.

Stefán Teitur spilaði allan leikinn í tapi | Íslendingalið Sogndal byrjar á sigri
Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn er Silkeborg tapaði 3-2 fyrir Midtjylland í umspilinu um danska meistaratitilinn. Elías Rafn Ólafsson lék ekki með Midtjylland vegna meiðsla.

Alfons og norsku meistararnir hófu tímabilið á jafntefli
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt hófu titilvörnina í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á 2-2 jafntefli gegn Rosenborg í kvöld.