Sveitarstjórnarmál

Bókað í bak og fyrir á fyrsta fundi nýs borgarráðs
Líf og fjör var á fyrsta fundi nýs borgarráðs Reykjavíkurborgar í gær. Alls var lögð fram 21 bókun á fundinum vegna hinna ýmsu mála.

Segir sáttmála meirihlutaflokkanna hrákasmíð
Minnihluti bæjarstjórnar Akureyrar lagði fram 50 spurningar til meirihlutaflokkanna á síðasta fundi bæjarstjórnarinnar.

Eva Björk er nýr formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
Eva Björk Harðardóttir, oddviti Skaftárhrepps, var kosinn formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) á aukaaðalfundi samtakanna sem fór fram í Vestmannaeyjum í dag.

Telur að siðareglur hafi verið brotnar og vill borgarfulltrúa á námskeið
Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, telur að ákvæði sveitarstjórnalaga um réttindi og skyldur kjörinna fulltrúa og siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg hafi verið brotnar

Nýr meirihluti í borginni kynntur til leiks
Bein útsending frá kynningu á njum borgarstjórnarmeirihluti Samfylkingarinnar, Vinstri Grænna, Pírata og Viðreisnar.

Milljóna styrkir til íþróttafélaga fyrir bæjarráð
Á síðasta fundi Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjanesbæjar var samþykkt að leggja það til við bæjarráð Reykjanesbæjar að veita tvo styrki, samtals að upphæð sex milljónir króna, til Ungmennafélags Njarðvíkur og Keflavíkur ungmennafélags.

Þátttaka í nafnakosningu vonbrigði en fyrirsjáanleg
Engin skýr niðurstaða fékk í kosningu um nýtt nafn sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðisbæjar. "Þessi niðurstaða kemur mér ekki á óvart,“ segir formaður bæjarráðs Sandgerðisbæjar.

Óánægju gætir meðal árrisulla sundlaugargesta
Óánægja er meðal starfsfólks sundlauga í Hafnarfirði sem og fastagesta vegna nýrra sumaropnunartíma að sögn Gunnars Axels Axelssonar, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar.

Perlan Öskjuhlíð
Við Reykvíkingar eigum frábært útivistarsvæði í miðbænum, Öskjuhlíð. En því miður virðist borginni ekki þykja vænt um þessa paradís.

Grunnur að geðheilbrigði
Geðheilbrigði er grunnstoð í heilbrigðu samfélagi. Það er órjúfanlegur hluti af almennri vellíðan og forsenda virkrar samfélagsþátttöku.

Kosningaloforð Eyþórs gæti komið Eyjamönnum í bobba
Ráðuneytið krefur Eyjamenn útskýringa á niðurfellingu fasteignagjalda eldri borgara.

Innantóm kosningaloforð
Um helgina kynnti Sjálfstæðisflokkurinn í borginni kosningaloforðin sín í aðdraganda komandi borgarstjórnakosninganna.

Þrýstingur frá íþróttafélögum klauf Bjarta framtíð
Þrýstingur íþróttafélaganna FH og Hauka um byggingu knatthúsa var ein uppspretta þeirra átaka sem geisað hafa í bæjarpólitíkinni í Hafnarfirði. Brottrekinn fulltrúi Bjartrar framtíðar leitar réttar síns hjá ráðuneytum.

Segir bæjarstjóra Kópavogs afbaka orð sín
Ármann Kr. Ólafsson segir Kópavog með allt sitt á hreinu í furðulegri deilu.

Ráku menn BF úr öllum ráðum
Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar samþykkti í gær á hitafundi að víkja Borghildi Sturludóttur og Pétri Óskarssyni úr nefndum og ráðum sem þau hafa setið í fyrir hönd Bjartrar framtíðar

Í stórfurðulegu stríði við Kópavogsbæ
Gert að greiða skatt af dánarbótum sem fyrrverandi kona hins látna fékk.

Bærinn sé ekki deild í Sjálfstæðisflokknum
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði er ósáttur við að hafa ekki verið boðaður á fund bæjaryfirvalda um Lyklafellslínu. Bæði bæjarfulltrúi og þingmaður frá Sjálfstæðisflokki sátu fund embættismanna bæjarins bæjarins með Landsneti.

Sóley Björk leiðir lista VG á Akureyri
Sóley Björk Stefánsdóttir bæjarfulltrúi leiðir lista Vinstri grænna á Akureyri fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Díselbann fær lítinn hljómgrunn hjá oddvitum í Reykjavík
Áform Evrópuborga um að banna umferð díselbíla fá lítinn hljómgrunn hjá oddvitum flokkanna sem bjóða fram í Reykjavíkurborg.

Sjálfstæðisflokkurinn vill þrjú ný hverfi í Reykjavík
Svokallaður Reykjavíkursáttmáli með áherslum Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík var samþykktur á fundi í gær. Þar segir að flokkurinn vilji sjá ný hverfi rísa við Keldur, í Örfirisey og í Geldinganesi

Dagur segir Sjálfstæðismenn hafa skilið fjárhag borgarinnar eftir í „rjúkandi rúst“
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að fjárhagsstaða borgarinnar hafi verið „rjúkandi rúst“ eftir valdatíma Sjálfstæðismanna árið 2010 og að upplausn og óstjórn hafi einkennt þetta tímabil.

Tíu konur á framboðslista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ
Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor var samþykktur samhljóða.

Ósátt við að þurfa að lesa tíðindi af sveitarstjóra í fjölmiðlum
Sveitarstjóri réð sig til ráðherra áður en sveitarstjórnin vissi af því.

„Einu sinni pólitíkus, alltaf pólitíkus"
Miðflokkurinn mun bjóða fram lista víða um land í sveitastjórnarkosningunum að sögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem sótti fyrsta flokksráðsfund flokksins í dag. Borgarstjóraefnið Vigdís Hauksdóttir, segir markmiðið að ná að minnsta kosti fjórum borgarstjórnarfulltrúum.

„Við þurfum að muna að við erum að tala við fjölbreyttan hóp“
Aðeins fimmtungur innflytjenda tekur þátt í sveitarstjórnarkosningum hér á landi og hefur hlutfallið farið minnkandi. Ungt fólk og eldri konur mæti einnig afar illa á kjörstað.

Á móti lækkun kosningaaldurs
"Við í Hveragerði teljum að líta verði á málið í heild sinni. Ef 16 ára börn eiga að mega kjósa, á þá lögræðisaldur ekki að vera 16 ár líka?“ segir Unnur Þormóðsdóttir, formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar.

Sveinbjörg vill snjallsímabann í grunnskólum borgarinnar
Óháði borgarfulltrúinn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir hyggst í byrjun febrúar leggja fram tillögu í borgarstjórn um að borgaryfirvöld auðveldi skólastjórnendum að banna notkun snjallsíma í grunnskólum borgarinnar.

Svar við opnu bréfi Hjördísar Albertsdóttur
Kæra Hjördís, Takk fyrir opið bréf til mín sem birt var á Vísi í gærmorgun.

Sjálfsbjörg gagnrýnir sinnuleysi Vesturbyggðar um akstursaðstoð
Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra, er ósáttur við málsmeðferð og úrræðaleysi Vesturbyggðar gagnvart hreyfihamlaðri konu í sveitarfélaginu sem nú er látin.

Góðan daginn, Viðar Guðjohnsen hérna megin
Harðlínuhægrimaður vill leiða Sjálfstæðismenn í borginni.