
Lögreglan

Leita ekki Sigríðar í dag
Ekki verður leitað að Sigríði Jóhannsdóttur í dag en hún sást síðast á föstudag. Víðtæk leit hefur farið fram víða á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga.

Hefur leit að nýjum saksóknara
Dómsmálaráðherra segir mikilvægt að búið sé að ljúka máli fráfarandi vararíkissaksóknara sem mun láta af embætti. Hún hafi erft málið frá fyrirennara sínum í embætti. Nýr vararíkissaksóknari verður skipaður.

Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti
Helgi Magnús Gunnarsson, fráfarandi vararíkissaksóknari, hefur hafnað því að vera fluttur í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. Mun hann því láta af embætti en mikið hefur gustað um Helga í embætti undanfarin ár.

Jón Óttar kærir Ólaf Þór fyrir rangar sakargiftir
Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi lögreglumaður og fyrrum eigandi PPP, hefur kært Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara og fyrrverandi sérstakan saksóknara, fyrir rangar sakargiftir í tengslum við rannsókn á meintum brotum hans í tengslum við vinnu á vegum PPP á þrotabúi Milestone árið 2011 til 2012. Greint er frá kærunni í Morgunblaðinu í dag.

Boðinn flutningur en tekur ekki afstöðu fyrr en ákvörðun liggur fyrir
Vararíkissaksóknari segir dómsmálaráðherra hafa boðið honum flutning í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra, embætti sem ekki hefur verið starfrækt í fimmtán ár. Hann segist ekki taka afstöðu til þess hvort hann taki embættinu fyrr en endanleg ákvörðun ráðherra liggur fyrir.

Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa
Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða.

„Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“
Formaður Landssambands lögreglumanna segir hótanir í garð lögreglumanna hafa færst í aukana undanfarin misseri. Hann segir dæmi um að lögreglumenn skrái sig af samfélagsmiðlum og þjóðskrá og fjárfesti í rándýrum öryggiskerfum fyrir heimili sín.

Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf
Fjórir menn eru sagðir hafa verið handteknir fyrir að mæta á heimili lögreglumanns í fyrrinótt og hóta honum með hníf. Héraðssaksóknari segist hafa „atvik sem beindust að lögreglumönnum“ til rannsóknar.

Betri vegir, fleiri lögreglumenn og hægt að komast í meðferð á sumrin
Fyrir viku síðan var lagt fram frumvarp til fjáraukalaga. Í því felast stór pólitísk skilaboð. Með frumvarpinu eru nefnilega rúmlega 5,2 milljarðar króna settir í nokkur af lykilmálum ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.

„Kraftmiklar og afgerandi aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi“
Frumvarp dómsmálaráðherra um farþegalista flaug í gegn á þinginu í dag. Ráðherra segir lögin mikilvægan lið í að taka fastar á skipulagðri brotastarfsemi á Íslandi.

Frumvarp um farþegalista samþykkt
Frumvarp dómsmálaráðherra sem gerir flugfélögum skylt að afhenda íslenskum yfirvöldum farþegalista við komu til landsins hefur verið samþykkt á Alþingi.

Alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað á síðustu kvartöld
Tíðni rána og alvarlegra ofbeldisbrota hefur aukist á síðustu 25 árum. Heilt yfir hefur glæpatíðni þó dregist saman.

Notkun rafbyssa í samræmi við markmið
Tvöföldun hefur orðið á milli ársfjórðunga á þeim tilvikum þar sem lögreglumenn hafa tekið upp rafbyssur við handtöku en slíku vopni hefur þrisvar verið beitt á fyrsta ársfjórðungi á þessa árs. Lögreglufulltrúi segir að notkunin sé í samræmi við markmið lögreglu þegar vopnin voru fyrst tekin til notkunar.

Rafbyssu beitt þrisvar sinnum á fyrsta ársfjórðungi
Á fyrsta ársfjórðungi ársins hefur lögregla beitt rafbyssum þrisvar sinnum við handtöku. Á sama tímabili var rafbyssa dregin úr slíðri eða ógnað með rafbyssu 28 sinnum við handtöku.

Sigríður svarar gagnrýni á störf lögreglunnar á Suðurnesjum
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri svaraði gagnrýni Úlfars Lúðvíkssonar, fyrrverandi lögreglustjóra, í tölvupósti til starfsmanna embættisins á þriðjudag. Þar sagði hún Úlfar ekki hafa sinnt sameiginlegu verkefni lögreglunnar og tollsins um farþegaeftirlit og því hafi samstarfinu verið rift.

Hefur lagt tillögur á borðið en tjáir sig ekki um lögreglustjóra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur fundað með vararíkissaksóknara og lagt tillögur um lausn á hans málum á borðið. Hún tjáir sig ekki um það hvort ein tillagnanna hafi verið um að gera hann að vararíkislögreglustjóra og sú staða þannig endurvakin eftir fimmtán ára dvala.

Þorbjörg sögð bjóða Helga embætti vararíkislögreglustjóra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra er sögð hafa boðið Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara að taka við embætti vararíkislögreglustjóra, sem ekki hefur verið skipað í frá 2010.

Bara einn sagt af sér og það sé Úlfar
Ríkislögreglustjóri segir fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum frjálst að tjá sig svo lengi sem hann beri ábyrgð á orðum sínum. Hún segir pólitískar væringar síðustu ár hafa bitnað á löggæslustörfum hér á landi.

Þorbjörg segir Úlfar hengja bakara fyrir smið
Dómsmálaráðherra sakar Úlfar Lúðvíksson um að hengja bakara fyrir smið með því að saka ríkislögreglustjóra og ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins um að hafa brugðist skyldum sínum og með því kalla eftir afsögn þeirra. Ráðherra segir stjórnmálamenn bera alla ábyrgð á stöðunni á landamærum Íslands.

NEL tekur fyrir mál fjölskyldu Sigurðar Kristófers í júní
Nefnd um eftirlit með lögreglu tekur fyrir í júní mál fjölskyldu sem hefur kvartað til nefndarinnar vegna framkomu lögreglumanns þegar þeir var tilkynnt um andlát sonar síns. Samkvæmt svörum frá nefndinni eru þau að bíða frekari gagna og stefni svo að því að taka málið fyrir í júní.

Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á
„Það eru auðvitað þessi ofbeldismál og stóru erfiðu mál sem valda álagi, sérstaklega á lögreglumenn sem eru á vaktinni,“ segir Sigurveig Helga Jónsdóttir mannauðsstjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu (LRH).

Níðingarnir treysta á skömmina í kynlífskúgunarmálum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar, áður yfirlögregluþjónn, gerði kynlífskúgun að umtalsefni í ræðustól Alþingis nú fyrir stundu.

Varað við embætti sérstaks saksóknara
Í ljósi umræðu síðustu daga um verkefni og verk embættis sérstaks saksóknara á árunum eftir bankahrunið 2008 finnst mér rétt að birta erindi sem ég hélt sem framsögumaður á málþingi sem ríkissaksóknari og Ákærendafélagið efndu til með dómsmálaráðherra, lagadeild HÍ, ákærendum og fulltrúum þeirra 18.mars 2011. Þetta geri ég til þess að sýna fram á að viðvörunarorð og alvarlegar athugasemdir komu fram við það ferli sem þá var hafið og reyndist illa grundað að mínu viti.

Bað lögreglustjóra að „veita framvegis réttar upplýsingar“
Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, sendi Úlfari Lúðvíkssyni , þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, bréf í kjölfar viðtals sem hann fór í janúar í fyrra um farþegaeftirlit á Keflavíkurflugvelli. Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag og vísað til bréfsins sem miðillinn hefur undir höndum.

Reyndi að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi
Einn gisti í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt fyrir að hafa reynt að stinga af frá 700 þúsund króna hótelreikningi. Fram kemur í dagbók að málið sé til rannsóknar en ekki kemur fram í dagbók lögreglunnar hvaða hótel um ræðir. Atvikið á sér þó stað hjá stöð 1 sem sér um Austurbæ, miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes.

Biggi ekki lengur lögga
Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, er hættur í löggunni. Birgir hefur ráðið sig sem deildarstjóra hjá Barna- og fjölskyldustofu á nýju stuðningsheimili sem er í smíðum. Hann er þakklátur fyrir ár sín í einkennisbúningi lögreglunnar.

Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til
Leki á gögnum frá sérstökum saksóknara er kominn til rannsóknar hjá lögreglunni á Suðurlandi í máli sem má rekja allt aftur til falls bankanna haustið 2008. Hleranir, njósnir, vanhæfi, auðmenn og embættið sem enginn vildi stýra; allt er orðið að miklum graut og margir hættir að skilja málið. Jafnvel Namibíumál Samherja fléttast inn í það.

Úlfar heldur fullum launum í heilt ár
Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum, heldur fullum launum út skipunartíma sinn og í sex mánuði til viðbótar. Hann verður því á launum til og með 15. maí á næsta ári.

Mál Margeirs til Landsréttar
Ríkislögmaður hyggst áfrýja máli Margeirs Sveinssonar, yfirlögregluþjóns, gegn Íslenska ríkinu til Landsréttar. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að því á dögunum að lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki verið heimilt að breyta verksviði Margeirs.

Vó að æru Margeirs með því að færa hann til í starfi
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ákvörðun lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu um að breyta verksviði Margeirs Sveinssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns, hafi ekki verið málefnaleg. Ríkið þarf að greiða honum tvær milljónir í miskabætur og 1,6 milljónir í málskostnað.