Lögreglan

„Það var ekki leiðtogafundur í Nettó“
Maður sem vakti athygli á vopnuðum lögreglumanni í Nettó segir að ekki megi normalísera vopnaburð lögreglunnar. Lögregluþjónninn reyndist vera sérsveitarmaður en samkvæmt verklagi eru þeir alltaf vopnaðir á vakt, þó þeir séu bara að kaup sér skyr.

Manndráp og stórfellt fíkniefnasmygl: Staðan á málunum
Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er undir gríðarlegu álagi um þessar mundir, en auk þriggja manndrápsmála hefur hún einnig stórfellt fíkniefnasmygl til rannsóknar. Tveir Grænlendingar og einn Dani eru í haldi fyrir að smygla inn miklu magni af fíkniefnum til landsins í skútu.

Gunnar Hörður til Brussel frá ríkislögreglustjóra
Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, hyggst kveðja félaga sína hjá embættinu en hann hefur þess í stað störf í Brussel við samskiptadeild uppbyggingarsjóðs EES.

Lögreglan gerði rassíu á skrifstofu skipulagsnefndar Ólympíuleikanna
Lögregluyfirvöld í Frakklandi réðust í dag inn á skrifstofur skipulagsnefndar Ólympíuleikanna sem fram eiga að fara í París á næsta ári, 2024.

Útskrifuð og stolt að hafa ekki gefist upp á baráttunni við kerfið
Eftir tveggja ára þrotlausa baráttu við kerfið og önnur tvö ár í námi útskrifaðist ung kona sem lögreglumaður síðustu helgi. Henni var upphaflega vísað frá vegna notkunar á kvíðalyfi. Hún er stolt af því að hafa tekið slaginn fyrir alla þá sem hafa haft hugrekki til að leita sér aðstoðar.

Lumbraði á löggu í ölæði
Karlmaður á Austurlandi hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir brot gegn valdstjórninni, með því að kýla lögregluþjón.

„Ég er á grensunni að fremja fjöldamorð bara núna“
Aðdáun á alræmdum morðingjum sem hafa framið hryðjuverk á undanförnum árum skín í gegnum samskipti tveggja ungra manna sem eru ákærðir fyrir að leggja á ráðin um hryðjuverk. Annar þeirra vakti ítrekað máls á að feta í fótspor þeirra með árásum á einstaklinga og stofnanir.

Kostnaður við rafbyssurnar áætlaður 54 milljónir króna
Samkvæmt þeim upplýsingum sem Ríkiskaup hafa um fyrirhuguð kaup Ríkislögreglustjóra á rafbyssum fela fyrstu kaup í sér 120 rafbyssur fyrir um 54 milljónir króna án virðisaukaskatts.

Fráfarandi dómsmálaráðherra segir ósamstöðu hafa fellt frumvarp til lögreglulaga
Fastlega er reiknað með að Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra láti af ráðherraembætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum á mánudag og Guðrún Hafsteinsdóttir taki sæti í ríkisstjórn. Jón segist kveðja dómsmálaráðuneytið með söknuði verði þetta niðurstaðan en hann hafi náð mörgum góðum málum í gegn á Alþingi.

Ríkiskaup vilja skýringar á innkaupum Ríkislögreglustjóra
Ríkiskaup hafa óskað eftir því að Ríkislögreglustjóri tilkynni innkaup á búnaði vegna leiðtogafundar Evrópuráðsins með formlegum hætti á heimasíðu útgáfuskrifstofu Evrópusambandsins og rökstyðji val sitt á innkaupaferlinu.

Lögmaður beinir spjótum að Páleyju í kjölfar sýknudóms
Lögmaður konu sem sýknuð var fyrir umsáturseinelti gegn Örnu McClure, lögfræðingi Samherja, segist efast um að slík ákæra hefði birst annars staðar á landinu. Málið sé dapurt í alla staði.

Aðallega Glock-skammbyssur og MP5-byssur í 185 milljóna króna vopnapakka
Ríkislögreglustjóri keypti vopn og skotfæri fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins fyrir um 185 milljónir króna. Þetta kemur fram í samantekt á vef lögreglunnar þar sem segir að engar hríðskotabyssur hafi verið keyptar.

Spyr út í veru vopnaðra erlendra lögregluþjóna hér á landi
Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá dómsmálaráðherra um veru vopnaðra og einkennisklæddra erlendra lögreglumanna, sem voru hér á landi í tilefni leiðtogafundar Evrópuráðsins.

Útilokar að kerfislæg spilling sé innan lögreglunnar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri hafnar því að kerfislæg spilling þrífist innan lögreglunnar. Mikil áhersla sé lögð á mannauðsmál og fátítt sé að lögreglumenn séu reknir.

Mátti ekki banna börn í Meradölum
Lögreglustjóranum á Suðurnesjum var ekki heimilt að banna för barna yngri en 12 ára að gosstöðvunum í Meradölum í ágúst 2022 í ljósi þess tíma sem leið frá því tilkynnt var um þau opinberlega og þar til þau voru látin niður falla, þar sem ekki hafði verið tekið til skoðunar hvort aðrar lagaheimildir gætu helgað slíkt bann til lengri tíma.

Óskar eftir nákvæmum upplýsingum um hvaða byssur voru keyptar
Þingmaður Pírata hefur óskað eftir nákvæmum upplýsingum um hvaða vopn voru keypt vegna leiðtogafundarins í Hörpu, hvers vegna þau voru keypt og að fengnu mati hvers. Þingmaðurinn segir ekki hægt að veita lögreglu meira vald án aðkomu þjóðarinnar.

Að hafa skilning á öryggissjónarmiðum
Í svari við fyrirspurn minni á þingi í vikunni var Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, ómyrkur í máli um það að pöntuð hefðu verið ógrynnin öll af allskyns vopnum og vígbúnaði fyrir lögregluna í tilefni komu mikilvægra Evrópuleiðtoga til landsins í vikunni á undan. Ekki stæði til að fækka neitt í vopnabúrinu, þó fundurinn—og sú ægilega ógn sem honum fylgdi—væri yfirstaðin.

Frændhygli innan lögreglunnar umtöluð í áraraðir
Formaður Landssambands lögreglumanna segir frændhygli hafa verið umtalaða innan lögreglunnar í áraraðir og lögregluna skorti betri mannauðsstjórn. Hann segir lögreglumenn of hrædda um að gera mistök í starfi og telur þá hverfa frá störfum vegna lélegra launa og mikils álags.

Stefán Jónsson nýr yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum
Stefán Jónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn sem yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Hann tekur við að Jóhannesi Ólafssyni sem lætur af störfum vegna aldurs eftir fjóra áratugi í embættinu.

Ófaglegar ráðningar, frændhygli og spilling ríki innan lögreglunnar
Lögregluþjónn segir slælega stjórnunarhætti og spillingu vera stóra áhrifaþætti í miklu brottfalli hjá lögreglumönnum undanfarin fimmtán ár. Fjölgun lögreglunema sé ekki svarið heldur sé breytinga þörf í stjórnunarháttum og skipulagi lögreglunnar.

Ráðherra segir Pírata hafa lítinn skilning á öryggissjónarmiðum
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hafnar ásökunum um að leiðtogafundur Evrópuráðsins hafi verið nýttur til að lauma auknum vígbúnaði til lögreglunnar en segir að eftir fundinn eigi Íslendingar miklu öflugra og betur búið lögreglulið að öllu leyti.

Leiðtogafundurinn hvalreki fyrir vopnabúr löggunnar
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra greindi frá því á þinginu nú rétt í þessu að ekki stæði til að selja aftur þann búnað sem keyptur var fyrir lögregluna vegna leiðtogafundarins. Alls fóru í það um 350 milljónir króna.

Stóraukið myndavélaeftirlit í miðborginni
Myndavélar sem keyptar voru í tilefni leiðtogafundar Evrópuráðsins verða ekki fjarlægðar. 24 nýjar vélar voru keyptar að sögn upplýsingafulltrúa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins hefur miklar áhyggjur af auknu eftirliti.

Lögreglumaður sagðist blaðamaður við eftirgrennslan um listgjörning Odee
Rannsóknarlögreglumaðurinn Gísli Jökull Gíslason sagðist vera „sjálfstætt starfandi blaðamaður“ í tölvupóstum til listamannsins Oddds Eysteins Friðrikssonar, þegar hann reyndi að afla upplýsinga um gjörninginn We're Sorry.

Vopnvæðum öryggi?
Á undanförnum 4 árum hefur lögreglan keypt varnarbúnað fyrir 230 milljónir króna samkvæmt opnirreikningar.is. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hefur 112 milljónum verið varið í varnarbúnað.

Segir starfmenn hafa hindrað starf fjölmiðla fyrir misskilning
Dómsmálaráðherra segir að líklegasta skýringin á því að starfsmenn Isavia á Keflavíkurflugvelli trufluðu starf fjölmiðla, þegar flóttafólk var flutt úr landi af lögreglu í nóvember síðastliðnum, sé að þeir hafi misskilið beiðni stoðdeildar ríkislögreglustjóra.

Myndir: Viðbúnaður og vegalokanir vegna leiðtogafundarins í Hörpu
Í miðborg Reykjavíkur má víða sjá brynjaða lögreglumenn með byssukjaftana á lofti. Viðbúnaður hefur sjaldan eða aldrei verið meiri enda von á flestum þjóðarleiðtogum Evrópu í tilefni af leiðtogafundi Evrópuráðsins í vikunni.

Skipanir Karls Gauta og Gríms án hæfisnefndar óvanalegar
Aðeins í tvígang á fimm árum hefur verið skipað í stöðu lögreglustjóra án þess að hæfisnefnd hafi verið skipuð. Í annað skiptið var Karl Gauti Hjaltason, fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, skipaður sem lögreglustjóri Vestmannaeyja.

Eiga sérstakan búnað til drónavarna
Allt drónaflug verður bannað á stóru svæði á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi á meðan leiðtogafundi Evrópuráðsins stendur. Brot geta varðað fimm ára fangelsi.

Hæstiréttur samþykkir að taka fyrir launaákvörðun ríkislögreglustjóra
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál embættis ríkislögreglustjóra og íslenska ríkisins gegn fjórum lögreglumönnum. Málið varðar samkomulag sem þáverandi ríkislögreglustjóri gerði við lögreglumennina árið 2019 en nýr ríkislögreglustjóri hefur freistað þess að fá hnekkt.