Íþróttir

Button örlítið fljótari en Rosberg á æfingu - Vettel í vandræðum
Jenson Button á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Istanbúl Park brautinni í Tyrklandi í dag. Hann varð á undan Nico Rosberg á Mercedes, en Lewis Hamilton á McLaren var með þriðja besta tíma og Michael Schumacher á Mercedes fjórði.

Vettel: Það er enginn ósigrandi
Sebastian Vettel, heimsmeistarinn og forystumaður stigamótsins í Formúlu 1 í ár segir Red Bull verði að læra af mistökum sem voru gerð í síðustu keppni í Kína. Lewis Hamilton vann mótið í Sjanghæ í Kína á dögunum, en Vettel hafði verið fremstur á ráslínu.

Massa: Mikilvægt að taka framfaraskref
Felipe Massa vonar að nýir fram og afturvængir sem Ferrari er mætt með á Formúlu 1 mótssvæðið í Tyrklandi muni bæta gengi liðsins, en Ferrari hefur ekki unnið mót á þessu ári. Mótið í Tyrklandi er það fjórða á keppnistímabilinu og er keppt á Istabúl Park brautinni, en Massa hefur þrívegis unnið mótið. Keppt hefur verið á brautinni í sex skipti.

Hamilton mætir varfærinn til keppni
Lewis Hamilton hjá McLaren keppir í Formúlu 1 í Tyrklandi um helgina, en hann vann síðustu keppni sem var í Kína, auk þess sem hann vann mótið í Tyrklandi í fyrra. Hamilton er í öðru sæti á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigamóti ökumanna.

Glock: Ein besta og erfiðasta brautin í Tyrklandi
Virgin liðið í Bretlandi sem er að hluta til í eigu Marussia sportbílaframleiðandans í Rússlandi mætir með verulega endurbættan bíl hvað yfirbygginguna varðar fyrir Þjóðverjann Timo Glock í mótið í Tyrklandi um helgina. Belginn Jerome d'Ambrosio verður hinsvegar að bíða til mótsins á Spáni til að fá samskonar útfærslu af Virgin bílnum.

Trulli vill komast skör ofar með Lotus
Lotus Formúlu 1 liðið mætir til keppni í Tyrklandi um helgina, en fyrstu æfingar keppnisliða á Istanbúl Park brautinni eru á föstudaginn. Sama fyrirtæki, Lotus Enterprise og á Lotus liðið tilkynnti í síðustu viku að það hefði keypt Caterham Cars sportbílafyritækið breska, sem er sögufrægt merki.

Fjárfestar skoða möguleika á að kaupa Formúlu 1
Fjárfestingafélagið EXOR og News Corporation fjölmiðlasamsteypan, sem er í eigu Rupert Murdoch staðfestu síðdegis í dag að verið er að frumkanna möguleg kaup á Formúlu 1. Fyrirtækin tvö sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu þessa efnis, en autosport.com greindi frá þessu og í frétt á BBC Sport segir að fulltrúi fyritækjanna sé þegar búinn að ræða við eigendur Formúlu 1.

Williams án stiga eftir þrjú fyrstu mótin
Williams liðið hefur ekki byrjað Formúlu 1 tímabilið vel, en hvorki Rubens Barrichello frá Brasilíu né nýliðinn Pastor Maldonado frá Venusúela hafa fengið stig í keppni ökumanna í fyrstu þremur mótunum og þar af leiðandi Williams ekki heldur stig í stigakeppni bílasmiða.

Jákvætt gengi hjá Force India
Force India Formúlu 1 liðið, sem er í eigu Vijay Mallay frá Indland mun njóta þess heiðurs að keppa í fyrsta mótinu í Indlandi í lok október, en um næstu helgi mætir liðið með bíla sína til Tyrklands. Þjóðverjinn Adrian Sutil og nýliðinn skoski Paul di Resta munu þá takast á við Istanbúl Park brautina, eftir þriggja vikna hlé frá kappaksturskeppni.

Liuzzi: Markmiðið að minnka bilið í forystubílanna
Ítalinn Viantonio Liuzzi hjá Formúlu 1 liði Hispania segir að lið sitt gæti komið á óvart í kappakstrinum í Tyrklandi um næstu helgi, en þá keppir hann ásamt liðsfélaga sínum Narain Karthikeyan frá Indlandi á Istanbúl Park brautinni.

Nýliðinn Perez vill ná í fyrstu stigin
Sergio Perez frá Mexíkó, hjá Formúlu 1 liðii Sauber vill ná því markmiði að fá fyrstu stigin sín í stigakeppni ökumanna um næstu helgi. Þá keppir hann í Tyrklandi ásamt liðsfélaga sínum Kamui Kobayashi frá Japan á Istanbúl Park brautinni. Perez er á fyrsta ári sínu í Formúlu 1.

FIA framlengdi frest Barein til 3. júní
FIA, aþjóðabílasambandið tilkynnti í kvöld að bílasambandið í Barein og mósthaldarar á Barein brautinni fái frest til þriðja júní að sækja aftur um að halda Formúlu 1 mót í Barein á þessu ári. Fyrri frestur til til umsóknar rann út í gær, en mótið átti upphaflega að fara fram 15. mars. Því var frestað vegna pólitísks ástands í landinu.

Enn óljóst hvort Formúlu 1 mót verður í Barein 2011
Frestur sem FIA, alþjóðabílasambandið gaf Formúlu 1 mótshöldurum í Barein til að sækja aftur um mót á þessu ári rann út í gær. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins átti upphaflega fara fram 15. mars í Barein. Vegna póltísks ástands í landinu var því frestað, en FIA gaf mótshöldurum færi á því til sunnudagsins 1. maí að sækja um að koma mótinu á síðar á árinu.

Rosberg: Fyrstu þrjú mótin eins og rússibanareið tilfinninga
Michael Schumacher og Nico Rosberg hjá Mercedes hafa ekki náð því flugi, sem Mercedes liðið vonaðist eftir. En þeir eru ekki meðal efstu manna í stigamóti ökumanna eftir þrjú fyrstu mótin. Mercedes bíllinn hefur ekki reynst eins öflugur og til stóð í upphafi, en virkaði þó betur í síðustu keppni, en í fyrstu tveimur mótum ársins. Mercedes keppir í Tyrklandi um næstu helgi.

Whimarsh telur að framþróun McLaren geti fært liðinu titilinn
Martin Whitmarsh hjá McLaren telur að framþróun McLaren á keppnisbíl þeirra Lewis Hamilton og Jenson Button geti fært liðinu meistaratitilinn í Formúlu 1. Hamilton vann síðustu keppni, sem var í Kína og McLaren keppir í Tyrklandi um aðra helgi.

Meistaranum Vettel hlakkar til næsta móts eftir páskaeggjaát
Forystumaður stigamótins í Formúlu 1, Sebastian Vettel nýtti páskafríið vel og hitti vini sína og gæddi sér á nokkrum páskaeggjum eins og hann orðaði það í fréttatilkynningu frá Red Bull. Vettel og Mark Webber, liðsfélagi hans hjá Red Bull keppa næst í Tyrklandi um aðra helgi og kunna báðir vel við mótssvæðið.

Hamilton og Button telja áhugavert mót framundan í Tyrklandi
Næsta Formúlu 1 mót er um aðra helgi í Tyrklandi og sigurvegari þess móts í fyrra var Lewis Hamilton hjá McLaren. Hann vann einnig síðustu keppni þessa árs, sem var í Kína.

Eigendur Formúlu 1 liðs Lotus keyptu sportbílaframleiðanda
Team Lotus Enterprise, sem á Formúlu 1 liðið Lotus tilkynnti í morgun að fyrirtækið hafi keypt breska sportbílaframleiðandann Caterham Cars. Eigendur Team Lotus Enterprise eru Tony Fernandes, Kamarudin Maranun og SM Nasarudin, en Formúlu 1 lið Lotus hefur keppt í Formúlu 1 frá því í fyrra.

Endurskipulag bætti gengi Mercedes
Nobert Haug, einn af yfirmönnum Mercedes Formúlu 1 liðsins segir að fundur um skipulag á mótshelgum hafi breytt gangi mála í Kína á dögunum, en liðsmenn voru ekki sáttir við árangurinn í fyrstu tveimur mótum ársins.

Ísland eignaðist Evrópumeistara í keilu
Arnar Davíð Jónsson varð í dag Evrópumeistari unglinga í keilu á EM 18 ára og yngri sem fór fram í Þýskalandi um helgina.

Haug hjá Mercedes hrifinn af frammistöðu nýliðans Paul di Resta
Þjóðverjinn Nobert Haug, sem er yfirmaður hjá Mercedes Benz í akstursíþróttageiranum telur að frammistaða Skotans Paul di Resta í Formúlu 1 sé framúrskarandi. Di Resta ekur með Force India sem notar Mercedes vélar og hann varð meistari með Mercedes í DTM mótaröðinni í fyrra, sem er fer að mestu fram í Þýskalandi.

Keppnisáætlanir mikilvægar í mótum ársins
Yfirmenn McLaren og Red Bull sem áttust við um fyrsta sætið í Formúlu 1 mótinu í Sjanghæ á sunnudaginn telja að keppnisáætlanir liða verði mikilvægar í mótum ársins. McLaren sá við Red Bull í Sjanghæ á betur útfærðri keppnisáætlun.

Enginn uppgjöf hjá Webber
Óhætt er að segja að Mark Webber hafi sýnt framúrskarandi hæfileika í Formúlu 1 mótinu í Sjanghæ í gær. Hann var átjándi á ráslínu, en vann sig upp í þriðja sæti, á eftir þeim Lewis Hamilton og Sebastian Vettel.

Vettel: Reyndi að verjast Hamilton af bestu getu
Sebastian Vettel hjá Red Bull er efstur í stigamótinu í Formúlu 1, en hann varð annar á eftir Lewis Hamilton á Sjanghæ brautinni í gær. Hann var fremstur á ráslínu, en komst ekki hratt af stað í rásmarkinu og missti Jenson Button og Lewis Hamilton framúr sér.

Hamilton: Einstök tilfinning að færa liðinu sigur
McLaren liðið og Lewis Hamilton tók ákveðna áhættu fyrir mótið í Sjanghæ í Kína varðandi keppnisáætlun og það skilaði gullinu í æsispennandi keppni. Hamilton sá við helsta keppinaut sínum í næst síðasta hring mótsins.

Hamilton vann æsispennandi Kína kappakstur
Lewis Hamilton á McLaren kom fyrstu í endmark í tilþrifamiklum kappakstri í Sjanghæ í Kína í dag. Sex ökumenn skiptust á að hafa forystu í mótinu, en Sebastian Vettel varð annar og Mark Webber þriðji, en báðir aka með Red Bull.

Vettel vill ekki oftmetnast
Sebastian Vettel er fremstur á ráslínu í þriðja skipti í röð á keppnistímabilini í Formúlu 1 og ræsir fremstur af stað í kínverska kappaksturinn á morgun. Á sama tíma er liðsfélagi hans Mark Webber aðeins átjándi á ráslínu, eftir ógöngur í tímatökunni í Kína í morgun.

Keppinautarnir þokast nær Vettel
Sebastian Vettel á Red Bull náði aftur besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða í Kína snemma morguns, á Sjanghæ brautinni. En Lewis Hamilton og Jenson Button á McLaren komu honum næstir. Þá voru Mercedes bílar Nico Rosberg og Michael Schumacher skammt undan.

Vettel: Lánsamir að vera fremstir
Sebastian Vettel telur að mótshelgin í Sjanghæ í Kína verði erfið og veðrið geti haft áhrif á möguleika ökumanna. Vettel var á fréttamannafundi á Sjanghæ brautinni i dag, en hann er með 24 stiga forskot í stigakeppni ökumanna eftir tvö fyrstu mótin.

KA Íslandsmeistari í blaki karla - þrefaldir meistarar
KA frá Akureyri varð í gær Íslandsmeistari í karlaflokki í blaki eftir að hafa lagt HK í annað sinn í úrslitum. KA vann einvígið 2-0 en liðið hafði titil að verja.