Erlendar

Stefán Jón komst inn í aðalkeppnina í stórsvigi
Stefán Jón Sigurgeirsson frá Húsavík náði þeim frábæra árangri að tryggja sér þátttökurétt í aðalkeppninni í stórsvigi karla á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Brett Favre endanlega hættur
Leikstjórnandinn Brett Favre hjá New York Jets í NFL deildinni tilkynnti í dag að hann væri hættur eftir glæstan 18 ára feril.

Enn eitt áfallið fyrir bandarískan hafnarbolta
Bandaríski hafnarboltakappinn Alex Rodriguez hefur viðurkennt að hann notaði stera í nokkur ár en hann er hæst launaðasti leikmaðurinn í sinni grein þar í Bandaríkjunum.

Íslendingarnir luku ekki keppni
Stefán Jón Sigurgeirsson og Árni Þorvaldsson náðu ekki að ljúka keppni í alpatvíkeppni á HM í alpagreinum. Þeir voru neðstir eftir brunkeppnina í morgun en síðdegis var keppt í svigi.

Christian Bale styður Phelps
Leikarinn Christian Bale hefur stigið fram og beðið Michael Phelps um að keppa á næstu Ólympíuleikum.

Íslendingarnir neðstir eftir brunið
Þeir Stefán Jón Sigurgeirsson og Árni Þorvaldsson eru í neðstu sætum alpatvíkeppninnar á HM í alpagreinum eftir brunhlutann sem fór fram í morgun.

Hooker nálgast heimsmet Bubka
Olympíumeistarinn í stangarstökki, Ástralinn Steve Hooker, stökk yfir 6 metra og 6 sentimetra á frjálsíþróttamóti í Boston í gær.

Ronaldo lýsir yfir stuðningi við Phelps
Bandaríski sundkappinn Michael Phelps hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að breska blaðið News of the World birti mynd af honum með hasspípu um síðustu helgi.

Sharapova hyggur á endurkomu í mars
Rússneska tenniskonan Maria Sharapova stefnir á að hefja keppni á nýjan leik í mars, en hún hefur strítt við meiðsli á öxl í meira og minna tvo ár. Hún hefur verið alveg frá keppni síðan í ágúst.

Phelps í keppnisbann
Sundsambandið í Bandaríkjunum hefur sett landsliðsmanninn Michael Phelps í þriggja mánaða keppnisbann eftir að breska blaðið News of the World birti myndir af honum með hasspípu um síðustu helgi.

Phelps óákveðinn hvort hann keppir á næstu Ólympíuleikum
Michael Phelps segist ekki vera búinn að ákveða sig hvort hann ætli að keppa á Ólympíuleikunum í Lundúnum árið 2012.

Ágætur árangur Íslendinganna
Þeir Stefán Jón Sigurgeirsson og Árni Þorvaldsson kepptu báðir í risasvigi karla á HM í alpagreinum sem fer fram í Val d'Isere í Frakklandi.

Phelps sleppur með skrekkinn
Hvorki Alþjóða ólympíunefndin né Ólympíunefnd Bandaríkjanna ætla sér að aðhafast nokkuð í hasspípuhneyksli sundkappans Michael Phelps.

Ótrúlegur sigur Pittsburgh
Pittsburgh Steelers vann í nótt sigur á Arizona Cardinals í úrslitaleik NFL-deildarinnar, Super Bowl, 27-23.

Phelps myndaður með hasspípu
Enska götublaðið News of the World birtir í dag mynd af sundkappanum Michael Phelps þar sem hann er að sjúga á hasspípu.

Federer brast í grát
Roger Federer var gjörsamlega niðurbrotinn eftir að hann tapaði fyrir Rafael Nadal í úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis.

Nadal betri en Federer
Rafael Nadal vann í dag sinn fyrsta sigur á opna ástralska meistaramótinu eftir sigur á Roger Federer í úrslitunum.

Federer getur komist í sögubækurnar
Roger Federer getur í dag jafnað met Pete Sampras ef hann vinnur sinn fjórtánda slemmutitil í dag. Federer mætir Rafael Nadal í úrslitum ástralska meistaramótsins í tennis í dag.

Fjórði titill Serenu í Ástralíu
Serena Williams fór létt með hina rússnesku Dinöru Safinu í úrslitum einliðaleiks kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis og vann þar með sinn annan titil á mótinu á tveimur dögum.

Nadal í úrslit eftir maraþonviðureign
Spánverjarnir Rafael Nadal og Fernando Verdasco mættust í einni eftirminnilegustu viðureign í undaúrslitum í stórmóti í opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Williams-systur unnu í tvíliðaleik
Venus og Serena Wiliams fögnuðu í nótt sigri í tvíliðaleik kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Ungfrú Ameríka fékk ekki miða á Superbowl
Nýkrýnd ungfrú Ameríka, Katie Stam, verður líklega að sætta sig við að horfa á leikinn um ofurskálina í NFL í sjónvarpinu.

Federer í úrslitin eftir sigur á Roddick
Roger Federer tryggði sér í morgun sæti í úrslitum einliðaleiks karla á opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir sigur á Andy Roddick í undanúrslitunum.

Serena og Safina í úrslitin
Það verða Serena Williams og Dinara Safina sem mætast í úrslitum einliðaleiks kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis um helgina.

70 þúsund miðar seldust upp á sólarhring
Tampa Bay Buccaneers og New England Patriots í NFL deildinni munu spila leik á Wembley leikvangnum í Lundúnum í október.

Nadal mætir Verdasco í undanúrslitum
Rafael Nadal og Fernando Verdasco munu mætast í undanúrslitum einliðaleiks karla á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Serena í undanúrslitin ásamt þremur Rússum
Serena Williams tryggði sér í nótt sæti í undanúrslitum einliðaleiks kvenna á opna ástralska meistaramótinu í tennis.

Federer slátraði Del Potro
Roger Federer vann sér í dag sæti í undanúrslitum einliðaleiks karla á opna ástralska meistaramótinu í tennis með auðveldum sigri á Juan Martin del Potro frá Argentínu.

Öskubuskuævintýri Dokic lokið
Dinara Safina komst í morgun í undanúrslit á opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir sigur á hinni áströlsku Jelenu Dokic.

Meistarinn úr leik vegna meiðsla
Serbinn Novak Djokovic þurfti að hætta í miðri viðureign sinni gegn Andy Roddick frá Bandaríkjunum í fjórðungsúrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis í nótt.