Íslendingar erlendis

Kjallarinn hjá Sjöfn fullur af vatni og ástandið á svæðinu hræðilegt
Fleiri en hundrað eru látin í miklum flóðum í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg og vesturhluta Þýskalands. Sjöfn Mueller Thor býr vestast í Þýskalandi og hefur staðið í ströngu við að dæla vatni úr kjallaranum hjá sér.

Hefur áhyggjur af Íslendingum á rauðum svæðum
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að þau fimm smit sem greindust utan sóttkvíar í gær minni okkur á að veiran sé úti í samfélaginu. Fjöldi Íslendinga sem staddur sé erlendis á svokölluðum rauðum svæðum sé einnig áhyggjuefni.

Guðbjörg fékk ekki leikskólapláss og yfirgefur Noreg
Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur spilað sinn síðasta leik fyrir Arna-Bjørnar. Ástæðan er álag heima fyrir en Guðbjörg fékk til að mynda ekki leikskólapláss fyrir eins árs gamla tvíbura sína.

„Ótrúlega gaman“ að heyra íslenskuna niðri í bæ
Íbúi á Amerísku ströndinni á Tenerife kveðst finna lítið fyrir kórónuveirufaraldrinum. Íslendingum hafi fjölgað mjög á svæðinu undanfarið.

Skúli og Gríma kveðja Como í hagléli
„Við kveðjum Como í hagléli,“ segir Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air, sem notið hefur lífsins á Ítalíu undanfarna daga.

„Byrjuðu að öskra nafnið hans og hvað þeir elskuðu hann“
„Ég hef aldrei upplifað svona stemningu. Maður komst varla heim og sá bara ekki fyrir sér að fagnaðarlætin myndu taka nokkurn enda,“ segir Andri Már Rúnarsson sem var svo heppinn að vera staddur á Dómkirkjutorginu í Mílanó þegar Ítalir fögnuðu Evrópumeistaratitlinum í fótbolta.

Guðlaugur Þór á Wembley
Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, er staddur í London. Í kvöld fór hann ásamt Ágústu Johnson, eiginkonu sinni, á úrslitaleik Evrópumótsins í fótbolta milli Ítalíu og Englands.

Stefnir á sigur í Meistaradeild Evrópu en segir það súrsætt að yfirgefa Svíþjóð
Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðskona í fótbolta, samdi í gær við Þýskalandsmeistara Bayern München. Skrifaði hún undir þriggja ára samning við liðið og segist spennt fyrir nýrri áskorun.

Glódís Perla semur við Þýskalandsmeistara Bayern
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir hefur samið við Þýskalandsmeistara Bayern München. Skrifar hún undir samning til ársins 2024.

Forsetinn klappar Patta bróður lof í lófa
Patrekur Jóhannesson var nýverið sæmdur silfurmerki Austurríkis á Bessastöðum.

Björgólfur naut leiksins með Beckham og félögum
Auðkýfingurinn Björgólfur Thor Björgólfsson lét sig ekki vanta á stórleik Englands og Danmerkur sem fór fram á Wembley fyrr í kvöld.

Kærastinn bað Unnar Eggerts á afmælisdaginn
Leikkonan, skólastýran og hlaðvarpsstjórnandinn Unnur Eggertsdóttir hefur trúlofast kærasta sínum Travis. Unnur segir frá rómantísku bónorðinu í færslu á Instagram.

Ráðin til starfa sem framkvæmdastjóri hjá OECD
Ragnheiður Elín Árnadóttir, fyrrverandi þingmaður og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin til starfa hjá Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) sem framkvæmdastjóri Þróunarmiðstöðvar stofnunarinnar.

Seinheppni Árnýjar og Daða Freys heldur áfram
Eurovision-parið Árný Fjóla Ásmundsdóttir og Daði Freyr Pétursson þarf að finna sér nýtt húsnæði sem allra fyrst í Berlín í Þýskalandi. Stóra lekamálið í íbúð þeirra hefur dregið dilk á eftir sér.

Leitin að John Snorra og samferðamönnum mikil áskorun
Elia Saikaly, kanadískur kvikmyndagerðarmaður sem vann að gerð heimildarmyndar um leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar og samferðamanna hans á K2, segir það mikla áskorun að standa í leitarleiðangri upp á fjallið og framleiða heimildarmynd á sama tíma. Hann er nú á leið upp fjallið til að leita að John Snorra og samferðamönnum hans.

Forseti rússneska þingsins vill banna þingmanni Pírata að koma inn í landið
Rússneska þingið vill banna Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur þingkonu Pírata að koma til landsins vegna skýrslu sem hún tók saman um alvarleg mannréttindabrot á Krímskaga. Skýrslan var samþykkt á Evrópuráðsþinginu á dögunum.

Macron gerði sig líklegan til að grípa Katrínu þegar henni skrikaði fótur
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er stödd í Frakklandi, þar sem hún fundaði með Emmanuel Macron Frakklandsforseta í morgun. Það er tímanna tákn að fullbólusettur forsætisráðherra hafi getað faðmað fullbólusettan forseta þegar þau kvöddust við dyraþrepið hjá honum.

Daði Freyr og Árný Fjóla fá fimm milljóna króna reikning í hausinn
Hjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir standa í stórræðum í Berlín en leki úr þvottavél þeirra ætlar að reynast þeim dýr.

Hertar samkomutakmarkanir á Tenerife
Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa tilkynnt að þriðja viðbragðsstig verði í gildi á Tenerife næstu tvær vikur.

Víkingur í úrslit alþjóðlegrar barþjónakeppni
Víkingur Thorsteinsson barþjónn og einn af eigendum Jungle Cocktail Bar er kominn í átta manna úrslit í Bacardi Legacy, einni stærstu barþjónakeppni heims. Drykkurinn hans kallast Pangea.

Fjögurra ára fangelsi fyrir að brjóta gegn dóttur sinni
Íslenskur karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn dóttur sinni og vörslu barnakláms.

Telur sig heppna að vera á lífi eftir að hafa misst aleiguna í eldsvoða
Íslensk kona búsett í New York segist heppin að vera á lífi eftir að hún missti aleiguna í eldsvoða aðfaranótt sautjánda júní.

Álfheiður fær ekki að keppa í BBC Cardiff Singer of the World vegna veirunnar
Íslenska sópransöngkonan Álfheiður Erla Guðmundsdóttir fær ekki að halda áfram keppni í BBC Cardiff Singer of the World en hún hefur verið skikkuð í sóttkví eftir að einstaklingur í flugvélinni hennar á leið frá Íslandi til Bretlands greindist smitaður af veirunni.

Næsti Balti er rauðhærður Grindvíkingur
Óskar Kristinn Vignisson kvikmyndaleikstjóri er að ljúka námi við Danske Film School og gerir það með glans. Útskrifarmynd hans fer beint á kvikmyndahátíðina í Cannes – sem er fáheyrt.

Guðmundur Felix léttur í lauginni
Guðmundur Felix Grétarsson deildi í gærkvöldi myndbandi af sér í sundlaug þar sem hann sést hreyfa annan handlegginn.

Segir Rúrik hafa haldið framhjá sér
Fyrirsætan Nathalia Soliani hefur sakað Rúrik Gíslason, fyrrum landsliðsmann í knattspyrnu, um að hafa haldið fram hjá sér. Hún er nú hætt að fylgja honum á samfélagsmiðlinum Instagram.

Íslendingur á gjörgæslu eftir Covid-smit á Everest
Íslensk-kúbverski fjallgöngumaðurinn Yandy Nunez Martinez, sem reyndi að klífa að toppi Everest í síðasta mánuði, er nú á gjörgæslu í Katmandú í Nepal eftir að hafa fengið blóðtappa í lungu ofan í Covid-19 smit. Eiginkona hans segir hann heppinn að vera á lífi en hann er nú á batavegi.

Róbert Wessman kaupir íbúð fyrir 2,4 milljarða á Flórída
Aztiq, fjárfestingafélag Róberts Wessman, hefur fest kaup á 2,4 milljarða króna lúxusíbúð á Flórída.

Enskur táningur dæmdur fyrir að hafa ráðist á íslenska ferðamenn
Enskur táningur var dæmdur á föstudag í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á tvo íslenska karlmenn í Brighton á Englandi. Dómari í málinu sagði að árásin væri þess eðlis að hann ætti að sitja í fangelsi en erfið fortíð piltsins hafi haft áhrif á ákvörðun hans um refsingu.

Að ganga fram hjá nýdánum klifrurum breytti ímyndinni af Everest
Sigurður B. Sveinsson og Heimir Hallgrímsson, sem klifu Everest í maí, segja upplifunina við það að ná á toppinn ekki hafa verið eins og þeir ímynduðu sér. Toppur fjallsins hafi verið skrítinn staður til að vera á.