

Ekkert er því til fyrirstöðu að koma upp neyslurými í Borgartúni, eins og stefnt hefur verið að um nokkra hríð. Teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum segir aðstæður vímuefnanotenda hafa versnað síðustu mánuði eftir að eina neyslurými landsins var lokað. Þetta sé því mikið fagnaðarefni.
Kolfreyja Sól Bogadóttir er tónlistarkona og vinnur á frístundaheimili í grunnskóla. Fyrir ári síðan var hún heimilislaus og djúpt sokkin í neyslu ópíóíða. Hún segir líf sitt hafa breyst með undraverðum hætti eftir að hún dvaldi á Hlaðgerðarkoti í langtímameðferð.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, hefur kallað eftir samvinnu allra þingflokka við nýja stefnu í áfengis- og vímuvörnum. Starfshópur sem hann skipaði fyrir um ári síðan um nýja stefnu í skaðaminnkun á að skila til að hans tillögum á næstu vikum. Willum Þór segir ópíóíða þurfa miklu meiri athygli.
Það er góðra gjalda vert að heilbrigðisráðherra hafi skipað tvo starfshópa til að bregðast við fíknivandanum. Annar hópurinn á fjalla um skaðaminnkun og skila af sér fljótlega. Hinn hópurinn á að uppfæra stefnu stjórnvalda í málaflokknum en stefnan sem var í gildi rann út árið 2020. Sú vinna á að skila sér í haust. Mjög gott og þarft.
Takmarkaður hópur fólks kaupir langmest af því áfengi sem selt er í Vínbúðum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. En þetta er sama fólk og glímir við áfengisvanda.
Mikið hefur verið rætt um áfengis og vímuefnavandann og sitt sýnist hverjum og meðan málæðið á sér stað hrynur fólk niður úr sjúkdómnum og ekkert gerist. Nú er nóg komið að handabendingum, ekki benda á mig, við þurfum ekki meira af því það er tímaeyðsla, það er kominn timí framkvæmda, snúum bökum saman ráðamenn sem og aðrir landsmenn.
Heilbrigðisráðherra sagðist í fyrra ætla að verja 225 milljónum til að verjast „ópíóíðafaraldri“ á Íslandi. Í dag er búið að úthluta um 91 milljón í verkefni því tengdu en af þeim er um helmingur í neyslurými. Tveir starfshópar eru starfandi og einn vinnuhópur.
„Ég bý við það óöryggi að ég held að enginn skilji mig,“ segir leikarinn Gunnar Smári Jóhannsson. Gunnar Smári er 31 árs gamall og hefur upplifað meira en flestir jafnaldrar hans. Sem barn missti hann báða foreldra sína sem og ömmu sína og afa og hefur hann tamið sér að ræða opinskátt um sorgina.
Foreldrar með börn í vímuefnaneyslu, eiga að geta farið strax og fengið ráðgjöf vegna vandans og ber ríkisvaldinu að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að standa bak þeirra úrræða sem eru til staðar.
Efnt var til minningarstundar í dómkirkjunni síðdegis í dag um þau sem látist hafa úr fíknisjúkdómi. Varaformaður Samtaka aðstandenda og fíknisjúkra segir fólk deyja á biðlistum meðan stjórnvöld setji ekki fjármagn í málaflokkinn og marki sér ekki.
Samtök aðstandenda og fíknisjúkra (SAOF) standa fyrir minningarathöfn í Dómkirkjunni síðdegis í dag til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir fíknisjúkdómi. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir, ein stofnenda samtakanna, segir viðburðinn opinn og hefjast klukkan 17.
Það var áhugavert að hlusta á útvarpsþátt um skaðaminnkun sunnudaginn 3. mars á RÚV og ekki síst viðtal við Árna Tómas Ragnarsson gigtarlækni, sem nú er greinilega „persona non grata“ hjá kollegum sínum og heilbrigðisyfirvöldum vegna lyfjagjafa hans til fólks með fíknivanda til skaðaminnkunar.
Við hjá Samtökum aðstandenda og fíknisjúkra SAOF eigum erfitt með að skilja og samþykkja það afskipta og stefnuleysi sem ríkir í áfengis og fíkniefnamálum.
Ekkert ráðuneyti eða stofnun hefur tekið skýra forystu í málum sem snúa að ópíóðafíkn og öðrum fíknivanda. Þetta er eitt af því sem fram kemur í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á ópíóðavandanum. Þingmaður Viðreisnar segir skýrsluna falleinkun fyrir stjórnvöld.
Stefnu- og forystuleysi ríkir í málefnum er varða ópíóíðafíkn og fíknivanda almennt. Þannig hefur ekkert ráðuneyti skýra forystu í málaflokknum. Ótvírætt er að ópíóíðavandi er fyrst og fremst viðfangsefni heilbrigðisráðuneytis sem ber að taka skýra forystu.
Ný úttekt Ríkisendurskoðunar á ópíóðavandanum er svakaleg lesning. Margt af þessu vissi maður fyrir en að fá þetta allt samandregið frá eftirlitsstofnun Alþingis er mjög verðmætt.
Fíknisjúkdómar eru algjört helvíti. Allt of margir glíma við fíkn sem dregur því miður marga til dauða og sjúkdómurinn rýrir verulega lífsgæði fólks sem við sjúkdóminn glímir. Auk þess hafa fíknisjúkdómar mikil áhrif á aðstandendur sjúklinga og kosta samfélagið allt verulega fjármuni.
Þann 9. mars síðastliðin varð sá gleðilegi atburður að veruleika að svokölluð regnhlífasamtök voru stofnuð og fengu þau nafnið Sigurbogi.
Árni Tómas Ragnarsson gigtarlæknir varð fyrir líkamsárás á læknastofu sinni í vikunni, þegar tveir menn mættu á stofuna og kröfðust þess að hann breytti læknisvottorði sem hann hafði skrifað fyrir móður annars þeirra.
Það sem allir virðast vera að adda mér og Árna Tómasi saman er best að ég komi með annan pistil handa ykkur.
Formaður samtaka um skaðaminnkun segir heilbrigðiskerfið ekki vera að grípa hóp fólks sem glími við fíknivanda nægilega vel eftir að Árni Tómas Ragnarsson læknir var sviptur leyfi til að skrifa upp á lyf.
Árni Tómas Ragnarsson læknir segir Ölmu Möller landlækni hafa framið illvirki á skjólstæðingum sínum þegar hún stöðvaði starfsemi hans. Þá gagnrýnir hann Valgerði Rúnarsdóttur yfirlækni á Vogi og sakar um blekkingar.
Eins og mörgum er kunnugt um og hefur mikið verið rætt að undanförnu sinnti ég morfínsprautufíklum um 2-3 ára skeið þar til Alma Möller landlæknir stöðvaði starfsemi mína í haust. Skjólstæðingar mínir hafa margir liðið vítiskvalir síðan eða eru komnir aftur á götuna, stelandi til að kaupa óhrein efni, sem valda dauða um 100 ungs fólks á ári.
Það er rétt hjá Sigmari Guðmundssyni Alþingismanni að eitt allra alvarlegasta meinið sem samfélagið glímir við í dag er áfengis- og/eða annar vímuefnavandi og er innlegg hans mikilvægt eins og margra annarra sem hafa tjáð sig um ástandið í málaflokknum.
Borgarstjóri Rotterdam í Hollandi sakar yfirvöld í Evrópu um að hafa sofnað á verðinum gagnvart notkun fíkniefna, sem hefði leitt til spillingar, ofbeldis og eymdar.
Ég hef ekki farið í felur með þá skoðun mína að eitt allra alvarlegasta meinið sem samfélagið glímir við í dag er áfengis- og vímuefnavandinn. Við sem samfélag erum merkilega áhugalaus gagnvart þeirri staðreynd að um 100 einstaklingar deyja árlega úr þessum sjúkdómi.
Þegar stórt er spurt getur verið flókið að finna svör, þá meina ég rétt svör byggð á margra ára reynslu ekki svörin sem henta þér best í það og það skiptið.
Árni Tómas Ragnarsson læknir hefur ekkert heyrt frá Ölmu Möller landlækni vegna sviptingar á leyfi til að skrifa út lyf. Hann segist ekki geta meira en einstaklingar séu nú að kaupa eitraðar pillur sem verði þeim að aldurtila. Árlega deyja tugir manna vegna þessa.
Læknisþjónusta á að vera fyrir alla, en er það ekki. Það er staðreynd. Ég og sonur minn höfum reynt það á eigin skinni. Við höfum þrisvar látið á það reyna að fara til læknis til að fá viðeigandi lyf vegna veikinda hans.
Íslenska sprotafyrirtækið Prescriby hefur í samráði við Heilsuvernd og Heilsugæsluna í Urðarhvarfi stigið stórt skref í veitingu heilbrigðisþjónustu, en þau bjóða nú upp á persónusniðna verkjamóttöku og þjónustu við að minnka notkun eða hætta á sterkum verkjalyfjum.